Verslunartíðindi - 01.08.1935, Page 14

Verslunartíðindi - 01.08.1935, Page 14
90 VERSLUNARTÍÐINDI Bankastjórar Landsbanka Islands. Hjer á eftir er getið helstu æfiatriða þeirra, sem hafa gegnt banka- stjórastöðu við Landsbanka íslands í þau 50 ár, sem liðin eru frá stofnun hans. Eru þeir 7 alls, sem hafa fengið veitingu fyrir þessari stöðu, en auk þess eru þrír, Benedikt Sveinsson, Oddur Gíslason og Jón Gunnarsson, sem voru settir bankastjórar nokkurn tíma. Rúmsins vegna verður þetta aðeins örlítið ágrip, og því stiklað á því helsta, þó vitanlega væri margs fleira að minnast, þar sem segja má, að allir bankastjórarnir sjeu þjóðþektir menn, sem hafa int marg- vísleg störf af höndum. Lárus E. Sveinbjörnsson, 1886—1893. Fyrsti bankastjóri Landsbankans var Lárus E. Sveinbjörnsson. Hann er fæddur 31. ágúst 1834; út- skrifaður úr Reykjavíkurskóla 1855; las lög við há- skólann í Kaupmannahöfn og lauk prófi 1863. Árið 1866 var hann settur sýslumaður í Árnessýslu, en veitt Þingeyjarsýsla 1867. Árið 1874 varð hann bæj- arfógeti í Reykjavík og samhliða sýslumaður í Gull- bringu- og Kjósarsýslu. Landsyfirrjettardómari varð hann 1878 og háyfirdómari 1889. Lárus E. Sveinbjörnsson sat á alþingi sem konung- kjörinn frá 1885—1897, og er Landsbankinn tók til starfa 1886 varð hann bankastjóri og gegndi því starfi til 1893. Hann andaðist í Reykjavík 7. jan. 1910. Tryggvi Gunnarsson, 1893—1909. Er fæddur 18. október 1835. Hann stundaði landbún- aðarnám í Noregi og gerðist eftir það bóndi í Suður-Þing- eyjarsýslu í nokkur ár. Þegar Gránufjelagið var stofnað 1870 var hann fenginn til þess að taka að sjer stjórn þess fjelags, og gegndi hann því starfi í rúm 20 ár. Árið 1893 ljet hann af verslunarstjórastarfinu, er honum var veitt bankastjórastaðan við Landsbankann, er hann hafði á hendi í 16 ár eða til 1909. Tryggvi Gunnarsson var alþingismaður í mörg ár; var fyrst kosinn á þing 1869 og sat samtals á 15 þingum. Af mannvirkjum, sem hann hafði umsjón með, má telja brýrn- ar á Skjálfandafljóti og Ölfusá, sú fyrnefnda bygð árið 1884, hin síðari 1891. Tryggvi Gunnarsson ljest árið 1917.

x

Verslunartíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.