Verslunartíðindi - 01.08.1935, Side 13

Verslunartíðindi - 01.08.1935, Side 13
VERSLUNARTÍÐINDÍ 89 gáfurjettinum áður en leyfistími hans væri liðinn (1917—’19), en nú er þetta mál tek- ið upp með auknum krafti í sambandi við þá hjálp, sem hjer varð að veita ban'kan- um. Kemur þetta fyrst alveg skýrt fram í lögunum um seðla íslandsbanka, hluta- fjárauka o. fl., sem samþykt voru á þing- inu 1921. Þar er íslandsbanka gert að skyldu, að hafa ekki úti nema 8 miljónir króna í seðlum 31. okt. 1922. En eftir það skal hann svo draga inn 1 miljón króna í seðlum á ári þar til eftir eru 21/2 miljón, en þá seðla dregur hann svo inn með jöfn- um upphæðum árlega til enda leyfistím- ans, 1933. Er ekki ástæða til að rekja nán- ar framkvæmd þessa, eða aðrar fram- kvæmdir í sambandi við það. En aðal- atriðið er það, að með þessum lögum er því slegið föstu, að seðlaútgáfan eigi að hverfa úr höndum íslandsbanka, og til ríkisins. En þá var eftir að ráðstafa seðlaútgáf- unni. Var því slegið á frest hvað eftir annað. En smám saman fór það að draga meira og meira að sjer athyglina við hlið þeirra gífurlegu pólitísku átaka, sem um bankamálin eru þessi árin. Skiftust menn nú í tvo flokka um seðlaútgáfumálið. Vildu sumir setja á stofn sjerstakan seðlabanka, sem hefði það starf nálega eitt, og úthlut- aði seðlum til annara banka. En aðrir vildu fela þeim banka, sem landið átti hvort sem var, Landsbankanum, þetta starf. Er ómögulegt að rekja hjer þær tillögur, sem komu fram um breytin'gar á Landsbank- anum í sambandi við þetta, en yfirleitt gengu þær í þá átt, að gera bankann að hlutabanka, þar sem innskotsfje ríkissjóðs sje varið til hlutabrjefakaupa af hálfu rík- isins, en síðan sje heimilt að auka hluta- fjeð. Gekk seigt og fast að fá málinu ráð- ið til lykta. En loks var horfið að því ráði á þingi 1925, að skipa milliþinganefnd í málið. Voru tillögur hennar svo í öllum aðalatriðum samþyktar og málinu þar með ráðið til lykta (1. nr. 48, 31. maí 1927). I þessum lögum var í raun og veru farið bil beggja um ráðstöfun seðlaútgáfunnar. Landsbankanum var að vísu falin útgáfan, en jafnframt var honum skift í þrjár deild- ir, seðlabanka, sparisjóðsdeild og veðdeild, með algerlega aðgreindu reikningshaldi og störfum. Bankinn er því í rauninni þrír bankar undir sameiginlegri stjórn banka- ráðs og framkvæmdarstjóra. Bankinn er ekki gerður að hlutabanka, en seðlabank- anum er lagt til allríflegt stofnfje, 3 milj. kr., og ríkisábyrgð tekin á öllum fjárreið- um hans. Til þess að losa bankann sem mest undan beinum áhrifum stjórnmála- flokkanna á þingi, lagði nefndin það til, að þingið kysi fjölmenna nefnd, er svo aft- ur kysi bankaráðið. Þetta var ekki sam- þykt, en síðar bætt inn í lögin (1. nr. 9, 15. apríl 1928). Var þá ætlast til, að þessi nefnd svaraði til hluthafafundar, en bankaráðið til stjórnar í hlutafjelagi. — Á fyrsta ársreikningi bankans eftir að skiftingin hafði verið framkvæmd (1930) var jafnaðarreikningur seðlabankans kr. 20.514.097 og sparisjóðsdeildar með úti- búum kr. 44.881.482, samtals kr. 65.395,- 579. En á síðasta reikningi bankans, 1934, eru jafnaðartölur þessar: Seðlabankinn kr. 23.535.528 og sparisjóðsdeildin með úti- búum kr. 43.149.421, eða samtals kr. 66.684.949. Hefir þetta því haldist býsna svipað. Saga bankans á þessari hálfu öld, sem liðin er frá stofnun hans, er því harla merkileg. Bankinn hefir riðið stormana furðanlega af, og stendur nú sem höfuð- banki landsins, eins og hann er landsins elsti banki.

x

Verslunartíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.