Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.06.2018, Blaðsíða 14
NÁTTÚRAN
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.6. 2018
Þ
essi ótrúlegi foss verður
undir ef Hvalárvirkjun
verður að veruleika.
Hef gengið þarna um sl.
daga og er uppnuminn
af þessu svæði – ósnortið land sem
örfáir Íslendingar hafa séð. Viljum
við fórna svona perlu fyrir mega-
wött til stóriðju? Slíkt væri brjál-
æði. Auk þess eru upp af Ófeigsfirði
tugir annarra fossa í ósnortnu um-
hverfi sem ekki eiga sinn líka og
margir km af hrikalegum gljúfrum
og grasi grónum heiðum. Við þurf-
um að skila svona perlum til næstu
kynslóða, ekki til HS Orku eða
Vesturverks. Dreifið endilega þess-
um pósti ef þið eruð sammála.“
Með þessum orðum hófst formleg
barátta Tómasar Guðbjartssonar,
hjartaskurðlæknis og náttúruvernd-
arsinna, gegn fyrirhugaðri Hval-
árvirkjun á Facebook í fyrrasumar.
Færslunni fylgdi sjálfa sem Tómas
tók við Rjúkandisfoss í Árneshreppi
á Ströndum.
Viðbrögðin létu ekki á sér standa;
bæði jákvæð og neikvæð. Margir
þökkuðu Tómasi fyrir frumkvæðið
meðan aðrir kváðust komnir með
upp í kok af fólki sem „heimsækir
Vestfirði í nokkra daga á ári og
berst gegn framkvæmdum þar“.
Gáfu út fossadagatal
Tómas ákvað að láta kné fylgja
kviði; hringdi í Ólaf Má Björnsson
augnlækni, vin sinn og ferðafélaga
og bað hann að koma með sér vest-
ur til að taka ljósmyndir af fossum í
Árneshreppi sem ógnað er af téðum
framkvæmdum. Ólafur lét ekki
segja sér það tvisvar; pakkaði
myndavél sinni og dróna og fylgdi
vini sínum á svæðið.
Félagarnir náðu góðu myndefni
og í framhaldinu kynntu þeir til
leiks í máli og myndum einn foss á
dag í þrjátíu daga á Facebook-
síðum sínum undir merkjum
#Fossadagatal á Ströndum. Við-
brögð voru sterk og Tómas og Ólaf-
ur ákváðu að fylgja málinu eftir með
útgáfu bæklings og dagatals sem
leit dagsins ljós í nóvember. Upp-
lagið, um 3.000 eintök, seldist upp
og segja félagarnir viðtökur hafa
verið vonum framar. „Það gaf okkur
byr undir báða vængi,“ segja þeir.
Salan gekk þó betur hér syðra en
fyrir vestan. „Það seldust bara fimm
eintök í versluninni Götu á Ísafirði
en við erum eigandanum þakklátir
fyrir hugrekkið,“ segir Tómas, en
stuðningur við málstað þeirra hefur
ekki verið mikill þar um slóðir.
„Við höfum fundið fyrir reiði á
Ísafirði, meðal annars á opnum
fundi sem við héldum þar. Margir
eru okkur ósammála og töluð var
kjarnyrt íslenska á fundinum. Á
móti kemur að fólk í bænum hefur
líka komið að máli við okkur og
þakkað fyrir framtakið. Það fólk vill
hins vegar af einhverjum ástæðum
ekki koma fram opinberlega. Það
hefur komið okkur á óvart hvað fólk
fyrir vestan er hrætt að tjá sig um
málið,“ segir Tómas.
Hinn valkosturinn
var að gera ekki neitt
Þeir segjast hafa búið sig undir hita
og tilfinningar þegar þeir lögðu af
stað í þessa vegferð. „Við vissum að
einhverjir myndu segja okkur til
syndanna en eina leiðin til að vekja
athygli á málinu er að útsetja sig og
þess vegna var aldrei spurning að
láta slag standa. Hinn valkosturinn
var að gera ekki neitt,“ segir
Tómas.
Ólafur tekur undir það. „Hags-
munirnir eru of ríkir til að maður
geti setið aðgerðalaus á hliðarlín-
unni. Þetta er okkar sannfæring.“
Og Tómas botnar þessa pælingu.
„Það er ekki stór fylking sem hefur
tekið að sér að brjóta ölduna. Ég
veit að fleiri eru okkur sammála og
hvet þá til að láta sig málið varða.
Því fleiri brýnd sverð, þeim mun
betra.“
Þess má geta að Ólafur og Tómas
fjármögnuðu gerð Fossadagatalsins
sjálfir enda þykir þeim brýnt að
vera frjálsir og óháðir í nálgun
sinni. „Við erum í þessu á okkar eig-
in forsendum og þess vegna höfum
við hafnað öllum styrkjum,“ segir
Tómas.
Með Fossadagatalinu vildu Ólafur
og Tómas kynna fegurð þessara
ósnortnu víðerna með áherslu á
fossana á svæðinu sem skipta
hundruðum. „Sennilega er hvergi á
Íslandi að finna jafn fjölbreytt
fossalandslag og eru sumir þeirra á
meðal fallegustu fossa landsins og
náttúruperlur á heimsmælikvarða,“
segja þeir í bæklingnum og bæta við
að flestir fossanna séu óþekktir og
fæstir þeirra hafi sést á mynd.
Myndefnið mikilvægt
Ólafur og Tómas vísa í baráttuna
gegn Kárahnjúkavirkjun á sínum
tíma en þá voru samfélagsmiðlar
ekki komnir til sögunnar. „Ómar
Ragnarsson og fleiri reyndu af veik-
um mætti að vekja athygli á tjóninu
sem virkjunin kæmi til með að valda
á náttúrunni en allt kom fyrir ekki.
Lítið myndefni var til af því svæði
og það höfðum við í huga nú þegar
við hófum okkar baráttu gegn Hval-
árvirkjun. Það er auðveldara fyrir
fólk að taka afstöðu ef það þekkir á
einhvern hátt til svæðisins, þó ekki
sé nema af mynd,“ segir Tómas.
Og Ólafur bætir við: „Einhver
þarf að tala máli náttúrunnar. Sem
betur fer eru að verða kynslóða-
skipti í hugsun; mun fleiri sýna nátt-
úruvernd skilning en fyrir tíu til
fimmtán árum og átta sig á því að
verðmætin eru víða.“
Snýst ekki um
hægri og vinstri
Þeir nefna listamenn í þessu sam-
bandi og nærtækasta dæmið sé
kvikmynd Benedikts Erlingssonar,
Kona fer í stríð, sem nú er í kvik-
myndahúsum. Þeim þykir myndin
ákaflega vel heppnuð og þarft inn-
legg í umræðuna um náttúruvernd.
Af öðrum listamönnum sem lagt
hafa baráttunni ómetanlegt lið til-
greina þeir Ragnar Kjartansson
myndlistarmann, Andra Snæ
Magnason rithöfund, Björk Guð-
mundsdóttur söngkonu og Ragnar
Axelsson ljósmyndara. „Þetta fólk
hefur veitt okkur mikinn inn-
blástur.“
Þá segja Tómas og Ólafur nátt-
úruvernd löngu hætta að snúast um
hægri og vinstri pólitík. „Einu sinni
var það feimnismál hjá hægrimönn-
um að vilja vernda náttúruna. Sem
betur fer er það liðin tíð; við þekkj-
um marga hægrimenn sem eru
sama sinnis og við. Og vonandi eru
vinstrimenn ekki að linast í afstöðu
sinni en gárungarnir segja að
„Vinstri græn“ séu orðin bara
„Vinstri“ eftir að þau tóku sæti í
ríkisstjórn,“ segir Ólafur og glottir.
Meiri stuðningur
frá konum en körlum
„Síðan er það svo merkilegt,“ segir
Tómas, „að ég upplifi iðulega meiri
stuðning frá konum en körlum. Það
er líklega engin tilviljun að það var
kona sem verndaði Gullfoss á sínum
tíma, Sigríður í Brattholti.“
Sjálfir segjast Ólafur og Tómas
ekki vera öfgamenn, einungis
raunsæismenn sem beri hagsmuni
lands og þjóðar fyrir brjósti.
En samfélög þurfa að þrífast.
Ólafur og Tómas gera sér fulla
grein fyrir því. „Árneshreppur þarf
að lifa, eins og önnur samfélög í
þessu landi. Við skiljum það,“ segir
Ólafur og Tómas bætir við:
„Hreppurinn er skilgreindur sem
brothætt byggð og við skiljum vel
að fólk vilji úrræði; ekki eftir tíu ár
heldur strax. Þess vegna hoppar
það á þennan virkjunarvagn. Ein-
mitt þess vegna er svo mikilvægt að
bjóða íbúum upp á valkosti.“
Þeir gera hlé á máli sínu.
„Það eru aðrar leiðir en virkjun
og stóriðja,“ segir Ólafur síðan með
þungri áherslu. „Það er kjarni máls-
ins. Þess vegna biðjum við fólk að
horfa til framtíðar í stað þess að ein-
blína á skammtímalausnir.“
Og Tómas tekur upp þráðinn:
„Fer einhver í Ófeigsfjörð til að
taka ljósmynd af stöðvarhúsinu og
pípunum?“
Svari nú hver fyrir sig!
Spurðir um aðrar leiðir benda
þeir á að ferðaþjónustu hafi vaxið
fiskur um hrygg á Ströndum og
Vestfjörðum eins og annars staðar á
landinu undanfarin misseri og tæki-
færin séu margvísleg, ekki síst þeg-
ar kemur að dýrum ferðum með
verðmæta ferðamenn. „Ísfirðingar
átta sig á þessu og fyrir vikið hljóta
þeir líka að sjá möguleikana í Ár-
neshreppi; byggð sem er miklu
brotnari en þeirra. Túrisminn er að
leggjast á sveif með okkur náttúru-
verndarsinnum og því ber að
fagna,“ segir Ólafur.
Félagarnir hafa lagt mikið á sig til að
mynda náttúruperlur í Árneshreppi.
Hér sleppir Ólafur drónanum lausum.
’„Við vissum að einhverjir myndu segja okkur tilsyndanna en eina leiðin til að vekja athygli á mál-inu er að útsetja sig og þess vegna var aldrei spurningað láta slag standa. Hinn valkosturinn var að gera ekki
neitt,“ segir Tómas. Ólafur tekur undir það. „Hags-
munirnir eru of ríkir til að maður geti setið aðgerðalaus
á hliðarlínunni. Þetta er okkar sannfæring.“