Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.06.2018, Síða 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.06.2018, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.6. 2018 R íkisútvarpið gerði furðumikla frétt úr því að forseti Bandaríkjanna ætlaði ekki að sitja út leiðtogafundinn í Quebec í Kanada. Gott að „RÚV“ sé ekki eitt um að segja fréttir Gefið var til kynna að mikið mætti lesa úr því að sein- asti hluti fundarins fjalli um loftslagsmál og Trump væri því að koma sér undan umræðu um þau. Hvergi var minnst á hina raunverulegu ástæðu þess að forset- inn þyrfti að stytta viðveru sína. Hún er sú, að forseti Bandaríkjanna ætlar sér á fund í Singapúr strax eftir helgina og um hálfan hnöttinn að fara. Fundurinn sá er einstæður í sögunni og veltur á miklu hver útkoma hans verður. Fundir eins og sá í Quebec, sem kallaður er G7 eftir að Rússar voru útilokaðir eftir atburðina í Úkraínu, og aðrir sams konar og fjölmennari fundir, þar sem Rússar eru ekki útilokaðir, eru reglubundnir fundir. Oftast er látið nægja á slíkum fundum að sam- þykkja texta sem diplómatar hafa legið yfir mánuðum saman eftir mikinn þvæling höfuðborga á milli. Það helsta hefur jafnan lekið út mörgum vikum fyrir fund- ina og helstu atriði frétta snúast því um „fjölskyldu- myndir“ og temaklæðnað, þegar það á við. Það er ekki gefið að slíkir fundar séu gagnslausir. Víst er, að óþægilega mikið er til í því að yfirlýsingar sem dipló- matar koma sér saman um snúast mest um að tryggja það sem ekki megi segja, nema þá með svo miklum krúsindúllum að hver leiðtogi geti málað sína eigin mynd af niðurstöðunni. Samt er gagnlegt fyrir leið- toga að eiga þetta návígi í þröngum hóp og skynja persónur hver annars, veikleika og styrkleika. Og einnig er hjálplegt að fara í gegnum álitaefni svo ljóst sé hvar helstu línur skerast. Óvenjulega mörg raunveruleg fundarefni En á þessum fundi vill svo til að full efni eru til að fara yfir það hvernig hin ríkin ætla sér að höndla að Bandaríkin hafa ógilt aðild sína að kjarnorkusamningi við Íran. Þann samning hefur Trump kallað versta samning sem Bandaríkin hafa staðið að. Og víst er að Obama treysti sér ekki til að leggja samninginn undir Bandaríkjaþing, enda andstaða við hann í báðum flokkum þess. Leiðtogar ESB-ríkjanna komu saman stuttu eftir að ákvörðun forsetans var tilkynnt og samþykktu að þau ríki álfunnar sem áttu aðild að samningnum myndu áfram ganga út frá gildi hans. En það varð þó ljóst daginn eftir að forystumenn fyrirtækja þeirra landa sem tóku upp viðskipti við Íran á ný á grundvelli þess viðskiptaöryggis sem sagt var að samningurinn tryggði, gera ekkert með yfirlýsingu leiðtoga sinna. Þeir þora ekki að koma viðskiptum við Bandaríkin eða banka þess lands í uppnám vegna miklu minni við- skiptahagsmuna við Íran. Í annan stað ættu leiðtog- arnir í Quebec að eiga þarft umræðuefni um stöðu al- þjóðlegra viðskipta og þá stefnu Bandaríkjanna að láta ekki hlunnfara sig lengur, eins og leiðtogi þeirra orðar það nú tæpitungulaust, eins og sumt annað. Parísarsamkomulagið hvergi til umræðu Staðreyndin er hins vegar sú að eftir að Trump dró Bandaríkin út úr Parísarsamkomulaginu með einni pennastroku hefur sáralítið gerst með það. Það er satt best að segja sáralítið rætt nema meðal atvinnumanna og hugsjónafólks. Það er margt líkt um framhaldið þar eins og um Íranssamninginn. Stór orð voru uppi um að láta ekki ákvörðun Trumps trufla hið göfuga ferli. En engum dettur í hug að í þennan samning hefði verið farið án þess að Bandaríkin væru með, eins og gildir í raun um Kína og Indland, Afríku og Suður- Ameríku. Enda væri þá enn hlægilegra að tala um merkan alþjóðasamning en ella. Obama skrifaði undir þann samning eins og væri hann bréf til mömmu. Rétt eins og Bill Clinton skrifaði undir Kyoto-samninginn þótt aðeins einn öldungadeildarþingmaður af 100 hefði lýst yfir stuðningi við hann. Allir meiriháttar al- þjóðasamningar verða að fá staðfestingu öldunga- deildarinnar til að öðlast gildi. En vegna stöðunnar í þinginu var látið eins og um lítinn prívatsamning for- setans væri að ræða. Þess vegna stóð umræðan í Bandaríkjunum um ógildingu Trumps í aðeins fáeina klukkutíma, svona 5% af tímanum sem íslenska þingið eyddi í veiðileyfagjöld, sem ríkisstjórnin heyktist á að afgreiða, en það var veikleikamerki. Sýndarskapur Nú er komið á daginn að ýmis „aðildarríki“ voru fjarri því að taka samkomulagið alvarlega og standa við skuldbindingar þess og loforð um fjárveitingar. Þar með talin eru burðarríki Evrópusambandsins. Kína, sem tók þátt í að fordæma ákvörðun Trumps um að setja plaggið í körfuna við hliðina á skrifborðinu, lof- aði að taka fullan þátt í samkomulaginu fyrir sitt leyti eftir árið 2030. Það voru gríðarleg fagnaðarlæti á ráð- stefnunni í París við þessa „stefnmörkun“. Það vill þannig til að bréfritari hafði nokkru áður en þetta gerðist í París tilkynnt konu sinni, að tilefnis- lausu, að einmitt 5 árum síðar, eða árið 2035, hefði hann niðurnjörfuð áform um að hefja undirbúning að aukinni þátttöku í almenningsíþróttum með því að klífa Öskjuhlíðina í fyrsta sinn, án aðstoðar fjalla- sérfræðinga úr röðum Sérpa og án alls aukasúrefnis, nema þá því aðeins að hann verði þá farinn að nota slíkt hjálparloft á jafnsléttu daglega. Og það sýnir glöggt hversu menn eru misörlátir á hrós og fagn- aðarlæti að það mátti ekki merkja hvort konunni líkaði betur eða verr. Kannski var það vegna þess að tekið var fram að einungis 5 árum síðar eða árið 2040 ætlaði sami að gera samræmda atlögu að tiltekt í vinnuherbergi sínu og fallast þar með á tilmæli sem bárust fyrst að haustlagi 1970. Var engu líkara en að valdamesta manni þessa tiltekna heimilis þætti ódýrt að jafna niðurnjörfuðum og í stein höggnum fyrir- heitum við það sem þegar er framkvæmt á þeim stað ekki sjaldnar en daglega af öðrum. En það gætu fleiri fundið að slíku alvöruleysi í tali um stórmál en menn með krónískt ofnæmi fyrir létt- leika tilverunnar, sem orða aldrei neitt án magaverkja og mæðu. Rúmlega 40 þúsund fulltrúar „störfuðu“ í heila viku að Parísarályktuninni, sem truflaði verulega veislu- höld og viðburði, og samþykktu hana loks samhljóða. Nýjar fréttir um loftslag kvenna Í þessu sambandi er fróðlegt að skoða nýlegan pistil Páls Vilhjálmssonar: „Til að hemja hnattrænar lofts- lagsbreytingar þarf að valdefla konur, jafna efnahags- legt kynslóðabil og berjast fyrir ,,loftslagsréttlæti“, Kim í síðustu viku og Kim í þeirri næstu en hvað svo? ’Þeir sem fengu boðskort voru áminntirum að nota „almenningssamgöngur“ tilað komast á sýninguna. Það eru um 95 pró-sent borgarbúa, sem nota bílinn sinn að jafn- aði, þótt margskattaðir séu fyrir vikið af yfir- völdum og fyrirlitnir af þeim sem stjórna borginni. Ef eitthvað mætti kalla almenningssam- göngur þá er það fyrirbærið sem 95% almennings nota en ekki 5%. Reykjavíkurbréf08.06.18

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.