Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.06.2018, Page 23
Penninn húsgögn
274.900 kr.
Melody-hillusamstæðan er með því fallegra sem gerist í hilluheiminum. Hið
ofursnjalla hönnunarteymi Neuland Industriedesign stendur að baki hönn-
uninni, en margir þekkja hinar víðfrægu Random-hillur þess. Framleiðandi
er MDF italia. Verðið á við um eina blokk en hér á myndinni eru þær fjórar.
IKEA
53.500 kr.
Svalnäs-hillurnar eru undir greinilegum áhrifum hinna
sívinsælu hansahillna en þessi gerð, sem er blanda af
hvítum festingum og hillum úr bambus, gefur stofunni milt
yfirbragð og rænir ekki athyglinni frá fallegu stofustássi.
Willamia
398.000 kr.
Látlaus fágun í
þessum fögru
bókahillum
frá Saba Italia
sem kallast
Leyva.
Alessandro Michele, maðurinn sem er ábyrgur
fyrir því að svona margar konur ganga um í lit-
ríkum og blómaskreyttum kjólum, sýndi ný-
verið nýja línu Gucci-tískuhússins í Suður-
Frakklandi. Línan er milli-
lína, svokölluð „cruise“-
lína og er fyrir árið
2019. Hann sveik ekki
frekar en fyrri daginn
og var fatnaðurinn og
öll framsetning á tísku-
sýningunni leikræn og listræn.
Það jók á dramatíkina að
sýningin fór fram í Alys-
camps, kirkjugarðaborg
(necropolis) nærri Arles
frá tímum Rómverja.
Sýningin fór fram um
kvöld og var andrúms-
loftið dulrænt og seið-
andi og reykur lék
um fyrirsæturnar á
meðan Michele
messaði yfir
tískugestunum.
Þessi
hattur
er algjört
listaverk.
Skyrtukraginn er risastór og í anda áttunda áratugarins.
Slaufan bindur
útlitið saman.
Litríkt með
leikrænum tilburðum
Gucci heldur áfram að heilla heimsbyggðina
með litríkum fötum en Alessandro Michele,
listrænn stjórnandi tískuhússins, virðist hafa
náð tangarhaldi á tískuheiminum og ekkert
bendir til þess að hann sleppi því taki í bráð.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Reykurinn léði
sýningunni dul-
rænt yfirbragð.
Stórgert
blómamynstr-
ið passar vel
við ísaumaða
gullþráðinn.
AFP
Krossinn gefur fatnaðinum trúarlegt yfir-
bragð og fyrirsætan heldur töskunni nærri,
líkt og prestur myndi gera við biblíu.
Það fer vel að
nota litríka
slæðu við stór
sólgleraugu.
Himneskt
hárskraut.
10.6. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23
TÍSKA