Morgunblaðið - 12.06.2018, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2018
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Einstök gæði frá
40 ár
á Íslandi
Sterkir og
notendavænir
sláttutraktorar
Sigurður Ægisson
Siglufjörður
Þessi litfagri fjallafinkukarl sem hér má sjá hóf upp
raust sína í blíðviðrinu á Austurlandi á dögunum og söng
þar hástöfum, annaðhvort fyrir sína heittelskuðu, sem
kann að hafa legið á hreiðri einhvers staðar í skógar-
þykkninu í nágrenninu, eða þá, ef sú var ekki raunin, til
að heilla til sín einhverja aðra slíka fjaðurdís í von um
endurgoldna ást.
Fjallafinkan verpir í barrskógum Evrópu og Asíu, er á
stærð við steindepil og sést af og til á vorin á Íslandi og
oftar þó á haustin.
Hún hefur endrum og sinnum orpið í öllum lands-
hlutum á undanförnum árum og með aukinni skógrækt
gæti hún einn daginn orðið að reglubundnum varpfugli.
Annar karlfugl var t.d. í Hallormsstaðaskógi á sama tíma
og þessi þandi raddböndin í Miðhúsum við Egilsstaði og
eflaust er tegundina enn víðar að finna hér þetta sum-
arið.
Sungið í blíðviðri austantil
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Starfsmenn þýska fyrirtækisins
Oidtmann byrjuðu í gær að taka
niður steinda glugga Gerðar Helga-
dóttur í Kópavogskirkju. Gluggarn-
ir verða sendir til viðgerðar á verk-
stæði Oidtmann í Linnich í
Norður-Þýskalandi. Listiðnaðar-
verkstæðið þýska gerði gluggana á
sínum tíma eins og fleiri glugga-
listaverk í íslenskum kirkjum. Stef-
an Oidtmann rekur nú fyrirtækið
sem hefur verið í eigu fjölskyldu
hans í rúm 160 ár.
„Faðir minn og frændi ráku fyrir-
tækið á undan mér og fengu fálka-
orðuna fyrir frá forseta Íslands.
Núna þegar þeir eru báðir fallnir
frá þá rek ég fyrirtækið með Henry
frænda mínum. Við erum fimmta
kynslóð Oidtmann-fjölskyldunnar
sem sér um rekstur fyrirtækisins
en fyrirtækið fagnaði 160 ára af-
mæli á dögunum,“ segir Stefan
Oidtmann sem er staddur hér á
landi til að taka niður gluggana.
Gerður gisti hjá fjölskyldunni
Oidtmann segir fjölskyldu sína
hafa þekkt Gerði Helgadóttur vel.
„Fyrirtækið okkar gerði marga af
gluggunum sem hún hannaði. Við
erum enn í góðu sambandi við fjöl-
skyldu hennar hér á Íslandi og í
gegnum árin höfum við verið í við-
haldi og viðgerðum á verkum henn-
ar. Hún bjó vanalega í húsi foreldra
minna í Þýskalandi þegar hún var
þar,“ segir Stefan og bætir við að
fólk úr fjölskyldu Gerðar hafi komið
við í Kópavogskirkju.
„Ég er í góðu sambandi við
frænda hennar, Jón Snorrason.
Hann hefur komið til Þýskalands og
ég hef heimsótt hann nokkrum
sinnum hér á Íslandi. Hann kom
einmitt hingað í Kópavoginn til að
sjá hvað við erum að gera við verk
frænku hans,“ segir Stefan og hlær
við.
Þrír starfsmenn, að Stefan með-
töldum, eru hér á landi frá þýska
fyrirtækinu að sjá um viðgerðir á
Kópavogskirkju. Stefan segir að
unnið sé að því að fá betri ramma
um gluggana og tryggja að þeir
muni endast lengur. Fyrirtækið býr
það vel í dag að hafa ýmsa þekk-
ingu sem ekki var til staðar þegar
gluggarnir voru upphaflega settir í.
Hann segir að það skipti máli að
þeir sem koma að verkum Gerðar
þekki þau og að viðgerðir séu fram-
kvæmdar með sama hætti og verkin
voru upphaflega gerð, svo þau verði
í nákvæmlega sama standi og áður.
Morgunblaðið/Hari
Gluggaskipti Stefan er hér við vinnu á glugga á suðurhlið Kópavogskirkju.
Gluggarnir verða sendir á verkstæði Oidtmann-fjölskyldunnar í Þýskalandi.
Gluggar Gerð-
ar í viðgerð
Oidtmann í Þýskalandi annast verkið
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Miðflokksins, hefur sent
fyrirspurn til forseta Alþingis vegna
gjörnings á Listahátíð í Reykjavík,
þar sem berbrjósta konur gengu frá
Alþingishúsinu að Listasafni Íslands.
Einnig voru teknar myndir af kon-
unum berbrjósta inni í þinghúsinu.
Sigmundur spyr meðal annars hver
hafi veitt leyfi fyrir því „að hálfnakið
fólk nýtti Alþingishúsið í auglýs-
ingaskyni og gengi þaðan á sama
hátt og forseti Íslands og þingmenn
gera við þingsetningu?“ og hvort
forseti þingsins telji slíka notkun á
þinghúsinu og þinghefðum til þess
fallna að auka virðingu Alþingis.
Steingrímur J. Sigfússon, forseti Al-
þingis, vildi ekki gefa upp hvernig
atvikið kom til þegar Morgunblaðið
hafði samband í gærkvöldi. „Ég ætla
bara að svara fyrirspurninni, ég tek
það alvarlega þegar lögð er fram
svona fyrirspurn og henni er beint
að mér. Maður á að sýna því þá virð-
ingu að vinna bara sitt svar og ég
ætla ekkert að tjá mig um málið.“
Spurður hvort það náist fyrir þing-
lok segir hann að það ætti að vera
hægt en annars kemur svarið á vef
Alþingis.
Morgunblaði/Arnþór
Demoncrazy Konurnar gengu
berbrjósta frá Alþingishúsinu.
Ætlar að svara Sig-
mundi á Alþingi
Öllum Víðisverslunum hefur verið
lokað og engin svör fást frá stjórn-
endum fyrirtækisins um ástæður
þess og hvort fyrirtækið stefni í
gjaldþrot eða sé þegar komið í þrot,
eins og sterkur orðrómur hefur verið
á kreiki um síðustu daga. Stór birgir
verslanakeðjunnar segir eitthvað
hafa borið á vanskilum hjá verslun-
inni undanfarna mánuði og hefur
áhyggjur af því að á annan tug millj-
óna bundið í ferskri matvöru liggi
undir skemmdum á meðan búðin sé
lokuð.
Víðisverslanirnar fimm hafa verið
lokaðar síðan á fimmtudag og segir í
gluggum verslunarinnar að það sé
vegna breytinga. Eigendur
verslunarinnar hafa ekki svarað
ítrekuðum símtölum mbl.is og hafa
einhverjir starfsmenn verslunarinn-
ar sagt frá því á samfélagsmiðlum að
þeir hafi mætt til vinnu og komið að
læstum dyrum, og enginn hafi látið
þá vita af lokuninni.
Í samtali við mbl.is segir Bryndís
Guðnadóttir, forstöðumaður kjara-
málasviðs VR, að einhverjir starfs-
manna Víðis hafi leitað til stéttar-
félagsins og leitað upplýsinga um
hvað sé á seyði. VR hafi því sent
fyrirspurn til Víðis en engin svör
fengið um hvort lokunin sé varanleg
eða tímabundin.
Ekkert bendir til annars en að
starfsmenn hafi fengið greidd laun
um síðustu mánaðamót, að sögn
Bryndísar, og hún segir rétt starfs-
manna alveg skýran upp á að þeir
eigi að fá uppsagnarfrest greiddan
hjá fyrirtækinu, sé um gjaldþrot að
ræða.
Allar verslanir
Víðis lokaðar
Engin svör fást frá eigendum
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Íslendingum hefur gengið vel á
Evrópumótinu í brids í Oostende í
Belgíu.
Mótinu lýkur á laugardag og er
keppni í opnum flokki rúmlega
hálfnuð. Íslenska liðið er í fjórða
sæti sem stendur og vann allar
viðureignir sínar í gær, að undan-
skilinni rimmu gegn Norðmönnum
þar sem íslenska liðið tapaði 15-5.
Liðið hefur verið í efstu fimm
sætunum frá því mótið hófst, en
átta efstu liðin vinna sér inn þátt-
tökurétt á heimsmeistaramóti.
Liðið etur kappi við sterkar brids-
þjóðir í dag, Ítalíu og Þýskaland.
Hollendingar vermdu fyrsta
sætið í gærkvöldi, Ungverjar voru
í öðru sæti og Ítalir í því þriðja.
Alls keppa 34 þjóðir í opna flokkn-
um.
Í kvennaflokki og öðlingaflokki
gekk illa á sunnudag, en í gær
unnu liðin allar viðureignir sínar
og eru bæði um miðja deild.
Fundur Evrópska bridgesam-
bandsins (EBL) fór fram á laug-
ardag. Nýr forseti, Jan Kamras
frá Svíþjóð, var kjörinn á fund-
inum og Jafet Ólafsson, forseti
Bridgesambands Íslands, var
endurkjörinn í stjórn sambands-
ins.
Íslendingar í toppbaráttu