Morgunblaðið - 12.06.2018, Page 8

Morgunblaðið - 12.06.2018, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2018 bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar Enn einn dagur í Paradís Bez t á nau tið Forsætisráðherra hefur að beiðniformanns Viðreisnar skilað skýrslu um „aðkomu og hlutdeild hulduaðila í kosningum til Alþingis“. Skýrslubeiðnin sýndi að formanni Viðreisnar sveið eitt- hvað sem einhver sagði og formaðurinn hefði frekar viljað að látið hefði verið ósagt. Það var út af fyrir sig fróðlegt fyr- ir þá sem misstu af glæpnum.    Skýrslan sjálf skil-aði hins vegar litlu eins og við var að búast um skýrslu um huldufólk.    Vinsælt er að halda því fram, ogekki aðeins hér á landi, að nafn- lausir á netinu hafi mikil áhrif á úr- slit kosninga. Minna hefur verið um að sýnt hafi verið fram á áhrifin.    Huldufólkið fer auðvitað alls ekkialltaf með ósannindi, en ósann- indin eru hvimleið hvaðan sem þau koma. Þau hafa þó væntanlega minna vægi komi þau frá ótrúverð- ugum heimildum en öðrum sem alla jafna þykja trúverðugar.    Og ætli besta meðalið við missönnumasi á netinu sé ekki að efla áreiðanlega fjölmiðla sem hafa vilja og getu til að veita réttar upplýs- ingar.    Væri þá ekki nær að ljúka vinnu,sem lengi hefur staðið yfir til að bæta stöðu einkarekinna fjöl- miðla, en að elta huldufólk?    Eða eru vinstri flokkarnir sáttirvið að tefja þá vinnu á meðan RÚV með sinn skakka málflutning sækir fram sem aldrei fyrr á kostnað annarra miðla? Katrín Jakobsdóttir Er huldufólk helsti vandinn? STAKSTEINAR Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Veður víða um heim 11.6., kl. 18.00 Reykjavík 8 súld Bolungarvík 9 léttskýjað Akureyri 10 alskýjað Nuuk 8 léttskýjað Þórshöfn 10 léttskýjað Ósló 18 léttskýjað Kaupmannahöfn 17 skýjað Stokkhólmur 19 heiðskírt Helsinki 24 heiðskírt Lúxemborg 17 rigning Brussel 20 rigning Dublin 17 skýjað Glasgow 16 skýjað London 23 heiðskírt París 20 þoka Amsterdam 20 léttskýjað Hamborg 19 léttskýjað Berlín 24 heiðskírt Vín 29 heiðskírt Moskva 19 léttskýjað Algarve 20 léttskýjað Madríd 18 skúrir Barcelona 27 léttskýjað Mallorca 25 léttskýjað Róm 27 heiðskírt Aþena 28 léttskýjað Winnipeg 20 alskýjað Montreal 19 léttskýjað New York 19 heiðskírt Chicago 18 þoka Orlando 29 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 12. júní Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:00 23:56 ÍSAFJÖRÐUR 1:33 25:33 SIGLUFJÖRÐUR 1:16 25:16 DJÚPIVOGUR 2:16 23:39 Sólinni hefur verið misskipt á landinu fyrstu 10 daga júní. Við Mývatn voru sólskinsstundirnar orðnar 118 – eða 11,8 á dag að meðaltali. Í Reykjavík mældust sólskinsstundir aðeins 23,0 og hafa aðeins fimm sinnum verið færri síðan byrjað var að mæla. Þetta kemur fram í bloggi Trausta Jónssonar á Moggablogg- inu. Meðalhiti fyrstu tíu daga júní- mánaðar er 8,6 stig í Reykjavík, +0,1 stigi ofan meðallags sömu daga áranna 1961-1990, en -1,2 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára. Hitinn er í 15. sæti sömu daga á öldinni. Mun hlýrra hefur verið á Norð- ur- og Austurlandi. Á Akureyri er meðalhiti fyrstu tíu dagana 12,0 stig. Þetta er fjórða hlýjasta júní- byrjun þar frá 1936. Á Austurlandi eru dagarnir tíu einnig meðal þeirra hlýjustu sem vitað er um. Miðað við síðustu tíu ár er já- kvæða vikið mest á hálendinu norðaustanlands. Við Upptyppinga, Kárahnjúka og á Eyjabökkum er hitinn 6,5 stigum ofan meðallags. Nú virðist talsverð breyting á veðurlagi vera að eiga sér stað og líklegt að saxist eitthvað á já- kvæðu hitavikin norðanlands og austan næstu tíu dagana, segir Trausti. Sigurðir Þór Guðjónsson veður- sagnfræðingur er einnig á Mogga- blogginu. Hann bendir á að síðast- liðinn föstudag hafi hiti einhvers staðar á landinu farið í 20 stig eða meira samfellt í 11 daga. Það er met í dagafjölda svo snemma sum- ars, a.m.k. frá stofnun Veðurstof- unnar árið 1920. sisi@mbl.is Sólskinsstundum er misskipt Trausti Jónsson Sigurður Þór Guðjónsson A-listi og N-listi í Húnavatnshreppi hafa náð saman um myndun meiri- hluta fyrir komandi kjörtímabil. Var samningurinn undirritaður á sunnu- dag fyrir fyrsta fund nýrrar sveitar- stjórnar. Jón Gíslason, oddviti A- lista, verður oddviti sveitarstjórnar og Ragnhildur Haraldsdóttir, odd- viti N-lista, verður varaoddviti. Sammæltust listarnir jafnframt um að endurráða Einar Kristján Jóns- son sem sveitarstjóra Húnavatns- hrepps. Málefnasamningur listanna verður gerður aðgengilegur á heimasíðu sveitarfélagsins fyrir þá sem vilja kynna sér helstu áherslur nýs meirihluta. Samstarf A-lista og N-lista  Nýr meirihluti í Húnavatnshreppi Oddvitar Jón Gíslason, oddviti A-lista, og Ragnhildur Haraldsdóttir, oddviti N-lista.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.