Morgunblaðið - 12.06.2018, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 12.06.2018, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2018 Honeywell borðviftur, gólfviftur og turnviftur – gott úrval. Hljóðlátar viftur í svefnherbergi. Viftur sem gefa gust á vinnustaði. Sími 555 3100 www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Gott úrval af gæðaviftum frá Honeywell. Margar stærðir og gerðir. Nánari upplýsingar hjá Donna ehf. vefverslun www.donna.is Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook Kr. 5.990 Str. S-XXL Nanni svartar ökklabuxur Ranglega var farið með nafn Guð- bjarts Guðbjartssonar, eins eigenda bakarís í Prag, í blaðinu í gær, bæði í myndatexta og inngangi á bls 12, og hann óvart sagður Guðbrandur Guð- brandsson. Hlutaðeigandi eru beðn- ir velvirðingar á mistökunum. LEIÐRÉTT Guðbjartur í Prag Hafnasamlag Norðurlands tók á sunnudag á móti nýjum og öfl- ugum dráttarbáti, sem smíðaður var í skipasmíðastöðinni Armon í norðurhluta Spánar. Guðný Sverrisdóttir, fyrrverandi sveitar- stjóri í Grýtubakkahreppi og stjórnarmaður í Hafnasamlaginu, gaf skipinu nafnið Seifur við mót- tökuathöfnina. Báturinn er með 42 tonna togkraft og því fjórfalt öfl- ugri en sá sem fyrir er. Kaup- verðið er um 490 milljónir króna og er það á pari við kostnaðar- áætlun, segir á heimasíðu Vega- gerðarinnar. Báturinn hefur verið inni á sam- gönguáætlun og er smíði hans styrkt um tæp 60% af hafnabóta- sjóði. Hann er 22 metra langur og níu metra breiður. Báturinn er búinn azimuth-skrúfubúnaði og verður öflugasti dráttarbátur landsins. Hann er með tveimur Cummins- vélum 1193 kW og er m.a. búinn sprautu til að slökkva eld og 25 tonnmetra þilfarskrana. Svara kalli nýrra tíma „Með því að festa kaup á svo öflugum dráttarbát er svarað kalli breyttra tíma, skipin stækka og núverandi dráttarbátar hafa ekki verið nógur öflugir fyrir Hafna- samlagið. Með tilkomu nýja báts- ins eykst öryggið til muna og þjónustugildið eykst gríðarlega. Einnig opnast möguleikar á að þjónusta aðrar hafnir á Norður- landi eins og t.d. Húsavíkurhöfn en mikil þörf er á þjónustu dráttarbáts þar eftir að stóriðjan á Bakka opnaði,“ segir á heima- síðu Vegagerðinnar. Innan vébanda Hafnasamlags Norðurlands eru hafnirnar á Akureyri, Hjalteyri, Svalbarðs- eyri, Grenivík, Hrísey og Grímsey. Pétur Ólafsson er hafnarstjóri. aij@mbl.is Gamli og nýi tíminn Með auknum umsvifum, meðal annars með fjölgun skemmtiferðaskipa, var talin þörf á öflugri dráttarbát. Myndin er tekin í Fiskihöfninni á Akureyri og sýnir bátakost Hafnasamlags Norðurlands. Öflugur dráttarbátur eykur öryggi og þjónustu  Seifur kostar um hálfan milljarð  Sá öflugasti á landinu Þrjú íslensk uppsjávarskip voru í gær á kolmunnaveiðum, Guðrún Þorkelsdóttir frá Eskifirði var í færeyskri lögsögu og Grandaskip- in Venus og Víkingur við lögsögu- mörk suðaustur af landinu. Kol- munnaskipin héldu til veiða eftir sjómannadagshelgina en árangur- inn varð lítill og undir lok vik- unnar komu flest þeirra til hafn- ar. Í Neskaupstað lágu í gær Börk- ur NK, Beitir NK, Margrét EA, Bjarni Ólafsson AK og græn- lenska skipið Polar Amaroq. Skip- in munu hafa leitað í Rósagarð- inum en afar lítið fundið og því þótti ráðlegast að gera hlé á veið- unum, segir á heimasíðu Síld- arvinnslunnar. Polar Amaroq landaði slatta af kolmunna í Nes- kaupstað á laugardag og er verið að undirbúa skipið til veiða á mak- ríl og síld í grænlenskri lögsögu. „Við gerum ráð fyrir að halda til veiða upp úr 20. júní. Við mun- um partrolla með Polar Princess eins og við höfum gert þrjú síð- ustu sumur. Í fyrra fengum við tæplega 15.000 tonn af makríl og síld. Ég geri ráð fyrir að við byrj- um á að veiða makríl því síldin er seinna á ferðinni vegna hafíss og sjávarkulda,“ er haft eftir Geir Zoëga skipstjóra á heimasíðu Síld- arvinnslunnar. aij@mbl.is Tregt undanfarið á kolmunnaveiðum Opinn kynningarfundur um lands- mót hestamanna verður haldinn í Reiðhöllinni í Víðidal, efri hæð, í dag, þriðjudag, klukkan 17.30 til 18.30. Landsmót hestamanna verður haldið í Reykjavík dagana 1. til 8. júlí næstkomandi. Á fundinum fer Áskell Heiðar framkvæmdastjóri mótsins yfir framkvæmd og skipu- lag, mótssvæðið og þjónustu sem í boði verður. Á fundinum verður tekið við skráningum sjálfboðaliða sem geta unnið sér inn miða með vinnu á mótinu. Kynning á landsmóti Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Grípa þarf til aðgerða til að koma í veg fyrir óeðlileg áhrif á kosningar þar sem stjórnmálasamtök, aðilar tengdir þeim eða aðilar sem draga taum tiltekinna stjórnmálaafla geta beitt sér með óprúttnum hætti án þess að kjósendur geti áttað sig á hver eigi í hlut eða varað sig á annar- legum hvötum og hagsmunum sem kunna að búa að baki. Þetta kemur fram í niðurstöðu- kafla nýrrar skýrslu Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra um aðkomu og hlutdeild hulduaðila í kosningum til Alþingis. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Við- reisnar, auk fleiri alþingismanna, óskaði eftir skýrslunni. Í skýrslunni segir að engar vís- bendingar séu um aðkomu erlendra aðila að kosningabaráttu hér á landi eins og gerst hefur í sumum öðrum ríkjum. Síður hulduaðila ekki ólöglegar Fram kemur að umræða um óeðli- leg afskipti af lýðræðislegum kosn- ingum hafi verið mikil erlendis undanfarin ár, ekki síst á sam- félagsmiðlum. Í Bandaríkjunum standi t.a.m. yfir opinber rannsókn á aðkomu rúss- neskra aðila að forsetakosning- um þar í landi ár- ið 2016. Þar sé grunur um að er- lendir aðilar hafi reynt að hafa áhrif á kosningar með því að dreifa falsfréttum eða magna upp fréttir. Um aðkomu hulduaðila að kosn- ingum hér á landi segir að borið hafi á nafnlausum auglýsingum á sam- félagsmiðlum hér á landi sem beinst hafi gegn tilteknum stjórnmála- flokkum. Á Facebook hafi verið áberandi síðurnar Kosningar 2016 og Kosningar 2017 sem beint hafi spjótum að flokkum á vinstri væng stjórnmálanna og Kosningavaktin sem hafi rekið áróður gegn flokkum á hægri vængnum. Ekki sé ljóst hver eða hverjir hafi staðið að baki þessum síðum. Í skýrslunni segir að ekkert bendi til þess að umræddar herferðir hafi verið ólöglegar miðað við núgildandi lög á Íslandi og að baki rannsóknar- heimildum lögreglu þyrfti að búa grunur eða kæra um refsivert brot. Beinir spjótum að hulduaðilum  Koma í veg fyrir áhrif á kosningar Katrín Jakobsdóttir Fasteignir Ljósmynd/Landsmót Hross Fjölmenni sækir jafnan landsmót íslenskra hestamanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.