Morgunblaðið - 12.06.2018, Page 16

Morgunblaðið - 12.06.2018, Page 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2018 Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is Ekki bara jeppar 2013 - 2017 ota, Hyundai, Nissan, , og fleiri gerðir bíla ER BÍLLINN ÞINN ÖRUGGUR Í UMFERÐINNI? Varahlutir í... 12. júní 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 105.61 106.11 105.86 Sterlingspund 141.0 141.68 141.34 Kanadadalur 81.23 81.71 81.47 Dönsk króna 16.691 16.789 16.74 Norsk króna 13.081 13.159 13.12 Sænsk króna 12.117 12.187 12.152 Svissn. franki 106.93 107.53 107.23 Japanskt jen 0.9592 0.9648 0.962 SDR 149.85 150.75 150.3 Evra 124.35 125.05 124.7 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 150.5368 Hrávöruverð Gull 1299.2 ($/únsa) Ál 2287.0 ($/tonn) LME Hráolía 77.39 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands lækkaði um 1,25% í tæplega 2 millj- arða króna við- skiptum á fyrsta viðskiptadegi vik- unnar. Mest lækkaði gengi hlutabréfa í Högum, um 2,2% í rúmlega 420 millj- óna króna viðskiptum. Þá lækkaði gengi hlutabréfa í Regin um 1,58% í tæplega 100 milljóna króna viðskiptum. Eimskip var eina félagið í Kauphöll- inni sem hækkaði í viðskiptum gær- dagsins. Gengi bréfa í Eimskipi hækkaði um 0,26% í 68 milljóna króna við- skiptum. Mest voru viðskipti með bréf Haga í gær, en einnig var umtalsverð velta með bréf Heimavalla, fyrir 401 milljón króna, og N1, 343 milljónir króna. Rauður dagur í hluta- bréfum í Kauphöllinni Lækkun Gengi flestra félaga féll. STUTT BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Gera má ráð fyrir að þátttaka lífeyr- issjóða verði takmörkuð í yfirstand- andi útboði á fjórðungshlut í Arion banka ef útboðsgengið verður í efri mörkum þess sem gefið hefur verið upp. Um nýliðin mánaðamót var gef- in út skráningarlýsing á bankanum og því lýst yfir um leið að Kaupskil og félag sem stýrt er af Attestor Capital stefndu að því að losa um all- stóran hluta eignar sinnar í Arion banka, sem nú nemur 68%, á geng- inu 0,6-0,7 af bókfærðu eigin fé bank- ans. Endanlegt sölugengi mun ráð- ast af eftirspurn í útboðinu en þar geta fjárfestar lagt inn pantanir fyrir hlutum í bankanum og tilgreint hvar, innan fyrrnefnds verðbils, þeir eru tilbúnir til að ganga að viðskiptum með hlutafé Arion. Sjóðirnir enn á ný að borðinu Á undanförnum vikum hafa fulltrúar seljenda róið öllum árum að því að koma hlutafé bankans á fram- færi, ekki síst við erlenda fjárfesta. Bankinn verður skráður á markað í lok vikunnar og verður það gert með tvöfaldri skráningu í Kauphöllum Nasdaq OMX, í Reykjavík og í Stokkhólmi. Hin tvöfalda skráning var talin forsenda fyrir því að draga erlenda fjárfesta að borðinu. En þá hafa einnig væntingar stað- ið til þess að fá stóra íslenska fjár- festa að bankanum. Þar hljóta lífeyr- issjóðirnir að vega þungt en að minnsta kosti tvær tilraunir hafa verið gerðar til þess að fá þá að borð- inu án árangurs. Síðari tilraunin hleypti illu blóði í samskipti sjóðanna og forsvarsmanna Kaupskila en fulltrúar lífeyrissjóðanna töldu að Kaupskil hefðu leikið tveimur skjöld- um í þeim viðræðum. Urðu málalykt- ir þær, í kjölfar þess að í ljós kom að Kaupskil hefðu haldið viðræðum við sjóðina áfram nokkru eftir að félagið hafði skuldbundið sig til að selja eig- endum sínum hluti í bankanum, að félagið bauðst til þess að greiða út- lagðan, tugmilljóna kostnað sjóð- anna, vegna viðræðnanna sem endað höfðu í harkalegu strandi. Liggja enn yfir ákvörðuninni Heimildir Morgunblaðsins innan úr lífeyrissjóðakerfinu herma að fæstir lífeyrissjóðirnir hafi gert end- anlega upp hug sinn um með hvaða hætti þátttöku þeirra verði háttað í útboðinu sem lýkur á fimmtudag en margar sjóðstjórnir munu sitja fundi um málið í dag og næstu daga þar sem þátttakan verður kortlögð og ákvörðuð. Lítið spenntir fyrir hæsta verði Heimildir blaðsins herma hins vegar að sjóðirnir hyggist ekki skrá sig fyrir stórum fjárhæðum í útboð- inu nema við neðri mörk verðbilsins. Því kunni í ákveðnum tilvikum að verða lítið úr þátttöku sjóðanna, verði útboðsgengið nær 0,7 en 0,6 af bókfærðu eigin fé. Meðal þess sem sjóðirnir hafa nú til skoðunar eru þau áhrif sem eign- arhlutdeild í Arion banka kann að hafa á áhættudreifingu þeirra. Þar er verið að kortleggja krosseigna- tengsl í íslensku efnahagslífi og hvernig þær eignir sjóðanna, sem margar hverjar liggja í trygginga- félögum, skuldabréfum útgefnum af bönkunum og beinum lánveitingum til húsnæðiskaupa einstaklinga, kunna að hafa áhrif á fyrrnefnda áhættudreifingu. Þannig segja við- mælendur blaðsins að margt bendi til þess að eignarhlutur í Arion banka auki í litlu áhættudreif- inguna. Hlutdeild lífeyrissjóðanna mun ráðast af útboðsgenginu Morgunblaðið/Eggert Útboð Arion banki verður skráður á markað í lok vikunnar, fyrstur viðskiptabankanna eftir bankaáfallið 2008.  Frumútboði í Arion banka lýkur á fimmtudag  Sjóðirnir meta nú stöðuna Hagnaður samstæðu Ísfélags Vest- mannaeyja á síðasta ári var 4,2 milljónir bandaríkjadala, jafngildi um 446 milljóna króna á núverandi gengi. Til samanburðar var hagn- aður félagsins 20,9 milljónir dala árið 2016. Rekstrartekjur námu 103,6 millj- ónum dala og drógust saman um 5,3 milljónir dala á milli ára. Á sama tíma jukust rekstrargjöld um 4,6 milljónir dala og námu þau 77,8 milljónum dala á síðasta ári. Hagnaður fyrir afskriftir, fjár- magnsliði og skatta nam 25,8 millj- ónum bandaríkjadala. EBITDA- framlegð var 24,9% á síðasta ári, en til samanburðar var hún 32,7% á árinu 2016. Gengismunur var neikvæður um tæpar 9 milljónir dala á síðasta ári, en hann var jákvæður um liðlega 2 milljónir árið á undan. Heildar- eignir Ísfélags Vestmannaeyja námu 293 milljónum dala í lok síð- asta árs. Eigið fé nam 139 millj- ónum dala, jafngildi um 14,7 millj- arða króna á núverandi gengi. Eiginfjárhlutfall var 47,7% um ára- mótin og var nær óbreytt frá ár- mótunum þar á undan. Morgunblaðið/Ófeigur Ísfélag Vestmannaeyja Um 11 milljóna dala sveifla var í gengismun á milli ára. Hagnaður Ísfélagsins dróst saman milli ára Arion banki gerir ráð fyrir því að verðbólga hér á landi aukist á milli mánaða og fari úr 2,0% í maí í 2,4% í júní. Mæling Hag- stofunnar á vísi- tölu neysluverðs fyrir þennan mán- uð verður birt 27. júní. Greiningardeild Arion spáir nú 0,4% hækkun neysluvísitölu í júní. Það er örlítið meiri hækkun en síð- asta spá bankans gerði ráð fyrir og birt var í kjölfar vísitölubirtingar Hagstofunnar í lok maí. Að mati Arion banka eru helstu áhrifaliðir á verðbólguna í júní bensínverð og flugfargjöld. Mæling greiningar- deildarinnar bendir til 2,7% hækk- unar bifreiðaeldsneytis, sem hefur um 0,09% áhrif á vísitöluna til hækkunar. Mæling á þróun flugfar- gjalda bendir til um 5,8% hækkunar fargjaldanna frá því í maí, sem hef- ur 0,08% áhrif á vísitöluna til hækk- unar. Arion banki spáir því að verð- bólga verði í kringum verðbólgu- markmið fram á sumar en fari síð- an í um 3% í haust. Arion banki spáir meiri verðbólgu í júní Dæla Bensínverð hefur hækkað.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.