Morgunblaðið - 12.06.2018, Side 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2018
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratuga
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
Fjölbreytt úrval af gæða viftum frá Vent-Axia fyrir eldhúsið, baðherbergið, skrifstofuna,
verkstæðið eða hesthúsið. Við aðstoðum ykkur við rétta valið.
Lo-Carbon Silhouette 125 Centrif-duo Silent
12in Wall fan Hi-line Sabre Plate
DALVEGI 10-14 | 201 KÓPAVOGI | SÍMI 540 7000 | FALKINN.IS
Hreint loft og vellíðan
Það borgar sig að nota það besta
VENT–AXIA VIFTUR
Utanríkisráðherrar Þýskalands,
Frakklands, Rússlands og Úkraínu
hittust í gær í Berlín, höfuðborg
Þýskalands, en fundinum var ætlað
að vera nýtt upphaf að friðarferli í
Úkraínudeilunni, sem nú hefur
geisað í um fjögur ár. Meira en
10.000 manns hafa látið lífið í deil-
unni og enn eru nær daglega skær-
ur á milli úkraínska stjórnarhersins
og rússneskumælandi uppreisnar-
manna í austurhluta landsins.
Vladimír Pútín Rússlandsforseti
og Petró Porosjenkó, forseti Úkra-
ínu, töluðust við í síma á laugardag-
inn til þess að undirbúa jarðveginn
fyrir fundinn. Ræddu forsetarnir
meðal annars möguleikann á að
skipst yrði á föngum.
Fundurinn í gær markaði nokkur
tímamót, þar sem þetta var fyrsti
fundur fulltrúa þessara fjögurra
ríkja í um 16 mánuði, en saman
stóðu Þjóðverjar og Frakkar að
hinu svonefnda Minsk-samkomulagi
á milli Rússa og Úkraínumanna,
sem í orði kveðnu átti að tryggja
vopnahlé í deilunni. Samkomulagið
hefur hins vegar verið þverbrotið af
báðum deiluaðilum og ríkti því lítil
bjartsýni fyrir fundinn í gær um ár-
angur. Sagði Heiko Maas, utan-
ríkisráðherra Þýskalands, að enn
væri mjög langt á milli Úkraínu-
manna og Rússa, og því mætti gera
ráð fyrir erfiðum viðræðum. Jean-
Yves Le Drian, utanríkisráðherra
Frakklands, tók í sama streng fyrir
helgi og sagði að trúverðugleiki
Minsk-samkomulagsins væri að
veði.
Frakkar kynntu í síðustu viku
nýja ályktun í öryggisráði Samein-
uðu þjóðanna, þar sem brot á
vopnahléinu voru fordæmd. Var
ályktunin samþykkt samhljóða, þar
á meðal af Rússum. sgs@mbl.is
Reynt að endurræsa ferlið
Porosjenkó og Pútín ræddust við í síma um helgina
Fundur Bílar ráðherranna skörtuðu
flöggum ríkjanna líkt og vera ber.
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Leiðtogafundur Donalds Trumps,
forseta Bandaríkjanna, og Kim
Jong-un, leiðtoga Norður-Kóreu,
átti að hefjast í Singapúr klukkan
eitt í nótt að íslenskum tíma. Morg-
unblaðið var þá farið í prentun.
Viðræður í aðdraganda fundarins
hafa gengið mun hraðar en búist var
við, að því er fram kemur í tilkynn-
ingu frá Hvíta húsinu. Í frétt á vef
BBC kemur fram að Trump og Kim
muni verða einir á fundinum, og ein-
ungis túlkar viðstaddir. Strax að
fundi loknum mun Trump yfirgefa
Singapúr og halda til Washington.
Vivian Balakrishnan, utanríkis-
ráðherra Singapúr, segir í samtali
við BBC að eftir samtal við Kim og
Trump sé ljóst að leiðtogarnir séu af-
ar öruggir með sig. Vivian hitti bæði
Trump og Kim á sunnudagskvöld, en
leiðtogarnir dvelja á sitthvoru hót-
elinu í Singapúr.
Markmið leiðtoganna fyrir fund-
inn eru afar ólík, en talið er að
Trump líti á fundinn sem tækifæri til
að semja um afvæðingu kjarnorku-
vopna Norður-Kóreu og endanlegan
frið á Kóreuskaga. Kim telur hins
vegar að á fundinum geti honum tek-
ist að fá viðskiptaþvingunum gagn-
vart Norður-Kóreu aflétt og um leið
styrkja stöðu sína sem leiðtogi þar í
landi.
Ýmsar niðurstöður mögulegar
Í frétt á vef ABC fer Andrea
Berger, fræðimaður við Middlebury-
háskólann í Kaliforníu, yfir nokkrar
mögulegar niðurstöður leiðtoga-
fundarins. Þar kemur fram að nið-
urstaða fundarins geti verið allt frá
afvæðingu kjarnorkuvopna í Norð-
ur-Kóreu til hugsanlegra stríðsátaka
milli landanna.
Andrea segir að í fullkomnum
heimi Trumps og bandamanna hans
muni Norður-Kórea verða við kröf-
um um algjöra óafturkallanlega af-
vopnun kjarnorkuvopna. Flestir sér-
fræðingar eru þó sammála um að ef
svo ólíklega vilji til að það takist sé
langur vegur þar til Norður-Kórea
hefur afvopnast algjörlega. Trump
hefur þess utan sagt að nær engar
líkur séu á því að endanlegt sam-
komulag náist á fundinum, enda hafi
það aldrei verið ætlunin. „Þetta er
fyrsta skrefið. Við munum ekki hitt-
ast og skrifa um leið undir samning á
fyrsta fundi enda hefur það aldrei
verið stefnan. Ég er hins vegar
bjartsýnn á að þetta verði skref í
rétta átt,“ sagði Trump við blaða-
menn í gær.
Andrea segir að það sem geri
fundinn áhættusaman séu hugsan-
legir fylgifiskar mistaka sem leiðtog-
arnir gætu gert á fundinum. Hætta
er á því að fundurinn byrji illa og það
geti þróast mjög hratt yfir í persónu-
legar árásir milli leiðtoganna. Eins
og fram kom í fréttum fyrr á árinu
hefur Trump m.a. kallað Kim „lítinn
og feitan“ og Kim svarað því með því
að kalla Trump „elliæran“. Andrea
segir að versta mögulega niðurstaða
fundarins sé sú að leiðtogarnir gangi
frá samningaborðinu ósáttir. Með
því gætu samskipti ríkjanna snar-
versnað, sem á endanum gæti leitt til
stríðsátaka.
Flestir sérfræðingar eru þó á því
að útkoma fundarins verði talsvert
hófsamari en fyrrgreindar niður-
stöður. Mestar líkur séu á því að
fundinum ljúki með sameiginlegri
yfirlýsingu leiðtoganna eftir góðar
samræður. Þá verði viðræðum emb-
ættismanna ríkjanna haldið áfram.
Eiga ýmislegt sameiginlegt
Þrátt fyrir að Kim Jong-un og
Trump geti vart verið ólíkari er
ýmislegt sem sameinar leiðtogana.
Báðir krefjast leiðtogarnir mikill-
ar tryggðar bandamanna sinna og
hika ekki við að láta fólk fara sem
ekki er hliðhollt þeim. Síðustu mán-
uði hefur Trump rekið fjölda starfs-
manna Hvíta hússins sem ekki hafa
fylgt stefnu hans. Ber þar helst að
nefna Rex Tillerson, fyrrv. utanrík-
isráðherra, og Hope Hicks, fyrrv.
samskiptastjóra Hvíta hússins, auk
annarra háttsettra embættismanna.
Í Norður-Kóreu hefur svipað ver-
ið upp á teningnum, en fjöldi hátt-
settra embættismanna hefur verið
látinn fara undanfarin misseri. Nú
síðast rak Kim þrjá æðstu embætt-
ismenn norður-kóreska hersins og
setti í þeirra stað menn hliðhollari
sér.
Þá hafa báðir leiðtogarnir mikla
þörf fyrir viðurkenningu á alþjóða
sviðinu. Ef fundurinn verður til þess
að ríkin færast nær samkomulagi
styrkja báðir leiðtogar stöðu sína
heima fyrir. Þess utan veitir það leið-
togunum eftirsótta viðurkenningu á
alþjóðlegum vettvangi.
Að því er fram kemur á vef AFP
er þó eitt atriði sem sameinar leið-
togana fremur en önnur. Fjölskyldu-
tryggð leiðtoganna er afar mikil, en
báðir setja þeir fjölskyldur sínar
framar öllu. Það hefur sýnt sig í
ráðningum leiðtoganna í embættis-
stöður heima fyrir, en þar hafa þeir
báðir sett sína nánustu í háttsettar
stöður. Í Norður-Kóreu nýtur Kim
liðsinnis systur sinnar, Kim Yo-jong,
en Trump hefur ráðið dóttur sína,
Ivönku Trump, og tengdason, Jared
Kushner, sem ráðgjafa innan Hvíta
hússins.
Þrátt fyrir að leiðtogana greini á
um margt er ljóst að ýmislegt sam-
einar þá. Spurningin er hins vegar
hvort það geti nýst á leiðtogafund-
inum í dag.
Margt getur gerst á leiðtogafundi
Mikil spenna vegna fundar Trumps og Kim Jong-un Ýmsar misgóðar niðurstöður mögulegar
AFP
Mættur Donald Trump við komuna til Singapúr seint í fyrrakvöld. Í dag fer fram fundur hans og Kim Jong-un.