Morgunblaðið - 12.06.2018, Page 18

Morgunblaðið - 12.06.2018, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Fáum klukku- stundum eftir að þetta blað fór í prentun stóð til að fyrsti fundur þeirra Donalds Trump forseta og Kim Jong-un, erfðavaldhafa kommúnista- flokks Norður-Kóreu, hæfist. Þessi fundur kemur ekki til af góðu. Þrír síðustu forsetar Bandaríkjanna settu sér það markmið og hétu kjósendum sínum því að koma í veg fyrir að Norður-Kórea kæmi sér upp kjarnorkuvopnum. Sú ætlun ríkisins stangaðist á við alþjóðlega sáttmála og álykt- anir Sameinuðu þjóðanna. Það voru að auki margar ríkulegar ástæður til þess að komið yrði í veg fyrir að þessi áform gengju eftir. Bandamenn Bandaríkjanna í þessum heimshluta, svo sem Suður-Kórea, Japan og Taív- an, búa ekki yfir kjarnorku- vopnum og er sú staða undir- strikuð í stjórnarskrá Japan, þar sem bannað er að landið eigi slík vopn í fórum sínum. Nái Norður-Kórea að koma sér upp kjarnorkuvopnum og flaugum til að flytja þau landa á milli væri hin hernaðarlega staða á svæðinu gjörbreytt og orðin óþolandi fyrir framan- talin ríki. En fyrir aðeins fá- einum misserum vaknaði ver- öldin upp við þann vonda draum að einvaldurinn í Pyongyang hafði náð því markmiði sem afi hans Kim Il- sung og faðir hans Kim Jong- il höfðu stefnt að og unnið að með leynd. Bandaríkin og bandalags- ríki þeirra höfðu beitt Norð- ur-Kóreu efnahagsþvingunum til að koma í veg fyrir að þetta gæti gerst. En grunsemdir voru uppi um það að mörg ríki gerðu sitt til að gera stjórnvöldum í Norður-Kóreu auðveldara að komast í kringum þær aðgerð- ir. Og stjórnvöld í Bandaríkj- unum grófu einnig sjálf undan eigin þvingunum, því í tvígang eftir að samningalotum lauk með frómum yfirlýsingum valdamanna í Pyongyang var slakað á refsiaðgerðum. Þetta var gert gegn loforðum yfir- valda um að þau myndu láta af öllum áformum um smíði kjarnorkuvopna og burðar- flauga. Til viðbótar komu rausnarlegir gjafagerningar í vörum, þjónustu og beinhörðu fé og þess ekki beðið að sann- reyna mætti loforðin. Banda- ríkin vöknuðu svo upp við þann vonda draum að þau höfðu verið blekkt. Þá sprengdu Norður-Kóreumenn ekki aðeins eina smásprengju, heldur nokkrar sí- fellt öflugri. Hin öflugasta þeirra er talin vera 10 sinn- um öflugri en sprengjan sem varpað var á Hiro- sima. Og flaugarnar, sem skotið var á loft í tilraunskyni, náðu ekki aðeins til nágrannaríkja í viðkvæmri stöðu. Nú er ekki lengur neinn vafi á því, að þetta fátæka og fámenna ríki ræður yfir flaugum sem geta borið sprengjur inn á megin- land Bandaríkjanna. Enn er ekki fullljóst hvort fullhann- aður sé búnaður til að koma slíkum sprengjum fyrir með öruggum hætti á langdrægar flaugar, en ástæðulaust er að vona að langt sé í að þeirri hindrun verði rutt úr vegi. Donald Trump hefur, eftir að hann varð forseti, haldið miklu þéttar um þetta mál en fyrirrennararnir. Hann sendi þrjú risaflugmóðurskip með tilheyrandi flota í átt að ströndum Kóreu og hann beitti Kína mun ákafari þrýst- ingi en gert hafði verið áður um að taka fullan og undan- bragðalausan þátt í að fylgja ályktunum Öryggisráðsins eftir. Trump lét varpa ofur- sprengju á Afganistan. Þetta er stærsta sprengja sem heiminum hefur verið sýnd, þeirra sem ekki lúta lögmálum kjarnorkunnar. Vafalítið er talið að sprengjan, sem ekki var varpað á eiginleg skot- mörk, hafi ásamt flugmóður- skipunum þremur verið áhrifamikið viðvörunarskot ætlað Kim Jong-un. Kóreustríðinu, sem hófst 25. júní 1950, er enn ekki formlega lokið. Hinn 27. júlí 1953 var gert vopnahlé í því stríði. Trump var þá 6 ára og langur vegur í að Kim Jong-un liti augum afa sinn, hinn dýrð- lega, elskaða og virta leiðtoga þessarar þjóðar, sem heldur betur hefur fengið að svitna í þágu hans, sonar hans og sonarsonar. Fréttaskýrendur vestra hafa þegar reiknað út að Kim Jong-un muni reyna að sleppa billega eins og hinir elskuðu og virtu dásemdarmenn, faðir hans og afi. Og takist það, sem þeir reikna með að sé líkleg- ast, þá muni staða Trumps veikjast verulega heima fyrir. Óvissuþátturinn í þessum út- reikningum er sennilega eink- um sá að Trump er sagður óútreiknanlegur, sem sé reyndar ófyrirgefanlegur galli. En hitt er þó viðurkennt að það er almennt séð mun erfið- ara að reikna út óútreiknan- lega menn en hina. Nú beinast augu að Singapúr og hvað verði úr þegar óút- reiknanleg ólík- indatól hittist loks} Mikið undir Þ egar einstaklingur með örorku- eða ellilífeyri er undir ákveðnu tekjumarki að teknu tilliti til greiðslna frá Tryggingastofnun ríkisins og annarra tekna getur hann átt rétt á uppbót á lífeyri, sbr. 1. mgr. 9. gr. laga um félagslega aðstoð, nr. 99/2007. Með því er komið til móts við þann kostnað sem viðkomandi einstaklingur ber og fæst ekki greiddur eða bættur með öðrum hætti. Það öfugsnúna er þó að þessi svonefnda upp- bót á lífeyri myndar stofn til tekjuskatts sam- kvæmt lögum um tekjuskatt nr. 90/2003. Þannig er það óumdeilt að þessar uppbætur á lífeyri eru í flestum tilvikum algjör bjarnar- greiði þeim sem þær þiggja, með tilheyrandi sköttum og skerðingum á skerðingar ofan. Það er skemmst frá því að segja að nú hefur Flokkur fólksins lagt fram þingsályktunartillögu sem felur í sér að fjármála- og efnahagsráðherra leggi fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt sem tryggi skattleysi uppbóta á lífeyri, enda flestir sammála um hversu óeðlilegt það sé að einstaklingar séu skattlagðir vegna greiðslna sem ætlað er að standa undir kostnaði þeirra vegna örorku, hreyfihömlunar eða sjúkdóma. Ráðherra er jafnframt falið að hafa samvinnu við félags- og jafnréttismálaráðherra til þess að tryggja að skatt- leysið leiði ekki til skerðinga á greiðslum almannatrygg- inga til þeirra sem eiga rétt á uppbótum á lífeyri. Ég hef gjarnan kallað eftir samvinnu í þinginu, „tök- um saman höndum hvar í flokki sem við stöndum“ hef ég marghrópað úr öflugasta ræðupúlti landsins. Nú er ljóst að við höfum unnið áfangasigur og að þverpólitísk samstaða hefur náðst um þetta réttlætismál Flokks fólksins. Bar- áttujaxlinn Guðmundur Ingi Kristinsson er fyrsti flutningsmaður tillögunnar og með honum er gjörvallur Flokkur fólksins ásamt flutningsmönnum úr öllum flokkum á Al- þingi. Ég get varla lýst þeirri gleði og eftir- væntingu sem hríslaðist um mig þegar fulltrúar flokkanna stigu í pontu Alþingis hver á fætur öðrum og óskuðu okkur til ham- ingju með málið okkar. Öllum bar saman um, að hér væri á ferðinni réttlætismál sem gleði- legt væri að fá að styðja og fylgja alla leið. Nú er boltinn kominn til fjármála- og efna- hagsráðherra og megum við vænta þess að hann komi fram með frumvarpið eigi síðar en 1. nóv. 2018. Ég er þakklát öllum þeim sem lögðust á árar með Flokki fólksins svo að þetta sanngirnis- og réttlætismál megi ná fram að ganga. Þau sýndu öll kærleika og velvild gagnvart þeim sem þurfa á hjálp okkar að halda. Þessi áfangasigur er því ómetanlegur og gerir þetta allt þess virði. Ég trúi, að þetta sé fyrsta skrefið á þeirri vegferð Flokks fólksins að útrýma fátækt á Íslandi og að við munum gera það öll saman. ingasaeland@althingi.is Inga Sæland Pistill Áfangasigur Höfundur er alþingismaður og formaður Flokks fólksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is Í skólum þar sem stjórnendur hafa meira svigrúm til að semja um ábyrgð, vinnuskilyrði og laun kenn- ara er auðveldara að fá hæfa kenn- ara í krefjandi bekki. Þar virðist námsárangur nemenda einnig vera betri en þar sem minna er um svig- rúm og ábyrgð skólastjórnenda við ráðningar og samninga við kennara. Þetta er meðal niðurstaðna skýrslu sem OECD birti í gær, en hún byggist á greiningu og meðal- tali niðurstaðna alþjóðlegrar kennarakönnunar PISA sem gerð var árin 2006 og 2015. Segir stofn- unin að niðurstöður könnunarinnar geti nýst til að auka gæði og bæta innviði menntunar og tryggja öllum nemendum hágæða kennslu. Skóla- stjórar hafi í könnuninni gefið í skyn að skortur á hæfum kennurum sé stór hindrun í að sigrast á ójöfnum tækifærum nemenda og bæta náms- árangur. Flest lönd höndli erfiða skóla með því að fækka í bekkjum og/eða auka hlutfall kennara á hvern nemanda í stað þess að ráða kennara sem valda starfinu. Í yfir þriðjungi landanna sem þátt tóku í könnun PISA voru kenn- arar í fátækustu skólum þó ekki minna hæfir eða reyndir en að með- altali. Meira sé hægt að gera í upp- hafi þjálfunar kennara, með leið- beiningum og faglegri þróun til að gera þá hæfa til að vinna í skólum hverfa sem standa illa efnahagslega. Góð kennarastefna eigi þrennt sameiginlegt: Í fyrsta lagi lengra skyldunám í praktík áður en starfs- ferill kennara hefst, í öðru lagi tæki- færi kennara til faglegrar starfsþró- unar, eins og t.d. verkleg námskeið, og í þriðja lagi hvatakerfi með mikla áherslu á símenntun og starfsþróun kennara. „Þetta er mjög áhugaverð niðurstaða, kennarar hafa sjálfir verið að kalla eftir meira sjálfstæði í sínu starfi. Umræðan almennt hefur verið að ekki megi breyta rekstrar- formi skóla, þó það auki sjálfstæði og dragi úr miðstýringu. Rökin eru m.a. að tryggja verði jöfnuð í skóla- kerfinu, en starfsumhverfið verður of ósveigjanlegt,“ segir Sara Dögg Svanhildardóttir, formaður Sam- taka sjálfstæðra skóla, í samtali við Morgunblaðið. „Sjálfstæðir skólar hafa, þrátt fyrir að vera háðir framlögum sveit- arfélaga, miklu meira vald yfir fag- legri stjórnun og hvernig þeir ráða til sín kennara en almennt gerist í opinberum skólum.“ Sara Dögg seg- ir hafa verið erfitt að hefja umræðu um að umbuna kennurum sem hafa getu og vilja til að standa sig vel og þróa sig í starfi, ennfremur séu hendur stjórnenda og kennara bundnar þegar kemur að nýsköpun í kennslu. Hún vill hvetja Kennara- samband Íslands til að eiga frum- kvæði að samtali um þessi mál, en kerfið sé letjandi fyrir hæft fólk því hvatinn til að standa sig vel í erf- iðum verkefnum sé varla til staðar. Bákn um starfið veldur stöðnun „Sveitarfélögin virðast þramma í takt við þá samninga sem Sam- band íslenskra sveitarfélaga gerir fyrir þeirra hönd, en það er í raun ekkert sem bannar sveitarfélög- unum að semja beint við sína kennara. Möguleikarnir á að þróast og vaxa í starfinu eru fyrir hendi en þeir eru of fáir og tak- markandi og kjarasamningar hafa ekki tekið nægilegt tillit til nýsköpunar í kennarastarfinu. Gríðarlegt bákn utan um kenn- arastarfið er að valda stöðnun í kennslu.“ Tækifæri eru til úr- bóta í skólakerfinu Morgunblaðið/Hari Frá kennaraþingi Skýrsla OECD mælir með meira svigrúmi við ráðningar og í starfsumhverfi kennara til að tryggja öllum nemendum góða kennslu. Lök frammistaða nemenda með erfiðan félags- og efnahagslegan bakgrunn er almennari þar sem skólar í fátækum hverfum réðu færri hæfa og reynda kennara en ef það var gert í ríkari hverfum, skv. skýrslunni. „Í flestum löndum er póst- númer nemanda eða skóla ennþá ein af bestu vísbendingunum um velgengni í menntamálum,“ sagði Andreas Schleicher, fram- kvæmdastjóri menntunar hjá OECD, er skýrslan var kynnt. „Niðurstaðan sýnir að lönd geta jafnað tæki- færi nemenda í fram- tíðinni ef þeir ráða hæfari kennara í stað fleiri kennara í erfið- ustu skólana,“ og bætir við að kennara- stefna geti haft úrslitaáhrif fyrir millj- ónir nemenda upp á framtíðina. Jafnari tæki- færi barna KENNARASTEFNA GETUR HAFT ÚRSLITAÁHRIF Sara Dögg Svanhildardóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.