Morgunblaðið - 12.06.2018, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 12.06.2018, Qupperneq 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2018 ✝ SólveigÓlafsdóttir fæddist í Stóra- gerði, Óslands- hlíð í Skaga- firði, 7. janúar 1948, en ólst upp á Siglufirði frá 1949. Sól- veig lést á kvennadeild Landspítalans 1. júní 2018. Foreldrar hennar voru Ásta Jónsdóttir, húsmóðir og síðar matráðskona í Reykjavík, f. 10.10. 1909, d. 30.6. 1975, og Ólafur Halldór Jónsson, bóndi og búnaðarráðunautur, f. 25.12. 1907, d. 21.7. 1949. Fósturfor- eldrar hennar voru Guðrún Jóns- dóttir, húsmóðir, f. 9.8. 1900, d. 19.3. 1979, og Ingólfur Krist- jánsson, yfirtollvörður á Siglu- firði, f. 12.10. 1902, d. 15.5. 1998. Sólveig giftist þann 8.5. 1971 Jónatan Þórmundssyni, laga- prófessor við Háskóla Íslands, f. 19.12. 1937. Sonur þeirra er Þór- mundur, sagnfræðingur, f. 1972, unnusta hans er Gyða Valdís Guðmundsdóttir, barnahjúkr- unarfræðingur og flugfreyja, f. 1982. Dætur Þórmundar eru: Sigurveig, f. 1997, sambýlis- maður Ólafur Bjarni Bergsson, f. 1997, og Sólveig, f. 2006. Móðir þeirra er Sóley Halldórsdóttir, 1971-1975 og starfsmaður fjár- málaráðuneytisins 1975-1976. Hún sat í stjórn Starfsmanna- félags RÚV og í samninganefnd BSRB 1971-1975. Sólveig lauk laganámi við Há- skóla Íslands 1982. Hún hlaut Frank Boas-styrk til laganáms í Harvardháskóla og lauk þar meistaranámi (LL.M.) 1983. Vet- urinn 2001-2002 stundaði hún laganám við Kaupmannahafnar- háskóla. Sólveig var fulltrúi í safna- og listadeild menntamála- ráðuneytis 1983-1984. Hún var framkvæmdastjóri Sambands ís- lenskra auglýsingastofa (SÍA) 1984-2001. Hún sat í ýmsum op- inberum nefndum og samtökum evrópskra auglýsingastofa sem tengdust störfum hennar. Sólveig var í stjórn Kvenrétt- indafélags Íslands frá 1972 og formaður 1975-1981. Hún er enn yngsta konan til að gegna emb- ætti formanns. Á fyrsta for- mannsári sínu tók hún virkan þátt í skipulagningu kvennafrí- dagsins 24. október 1975. Hún sat í yfirstjórn 85-nefndarinnar, sem stýrði viðburðum á lokaári kvennaáratugar SÞ. Hún var formaður útgáfunefndar um Sögu Kvenréttindafélags Íslands og sat í stjórn Hlaðvarpans um árabil, síðast sem formaður. Sól- veig var kjörin heiðursfélagi KRFÍ á 100 ára afmæli félagsins 2007. Útför Sólveigar fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 12. júní 2018, kl. 15. hjúkrunarfræðingur, f. 1975. Börn Gyðu Valdís- ar eru Stefán Gunnar, f. 2005, og Hildur Guð- laug, f. 2009. Sonur Jónatans af fyrra hjóna- bandi er Sigurður Freyr, trygginga- stærðfræðingur, f. 1969, eiginkona hans er Sig- ríður Hjördís Jörunds- dóttir, doktorsnemi í sagnfræði, f. 1968. Börn þeirra eru Skarphéðinn Ísak, f. 1996, og Helena Rós, f. 2000. Sólveig var yngst fjögurra systkina: Anna Sólveig Simha, búsett í París, f. 1940; Hólm- fríður Sólveig, búsett í Garði, f. 1941, d. 2001; Jón Leifur, búsett- ur í Bergen, f. 1943. Fóstur- systkini hennar eru: Agnar Kristján Ingólfsson, f. 1927, d. 1962, og Anna Jóna Ingólfs- dóttir, f. 1931. Sólveig ólst upp hjá móður- systur sinni og eiginmanni á Siglufirði frá eins árs aldri. Sól- veig varð stúdent frá Verzlunar- skóla Íslands 1968. Hún bjó hjá móður sinni á námsárunum en var á Siglufirði öll sumur og vann við síldarsöltun og versl- unarstörf. Eftir stúdentspróf vann Sólveig á skrifstofu Verzl- unarskóla Íslands, var flugfreyja í sumarstarfi, aðstoðarstarfs- mannastjóri hjá Ríkisútvarpinu Elsku hjartans mamma var einstök kona og fyrirmynd mín í einu og öllu – hjartagóð, ynd- isleg, réttsýn og baráttuglöð. Mamma var fædd í Stóra- gerði í Skagafirði en ólst upp á Siglufirði hjá móðursystur sinni og eiginmanni frá eins árs aldri eftir skyndilegt fráfall föður síns. Upp frá því var hún bæði Siglfirðingur og Skagfirðingur. Síldarstúlkan fór nýfermd á mölina til náms og fagnaði í vor fimmtíu ára stúdentsafmæli frá Verzlunarskóla Íslands. Á námsárunum bjó hún hjá Ástu móður sinni í Eskihlíð á veturna og hjá Guðrúnu og Ingólfi á Siglufirði á sumrin. Fljótlega eftir að foreldrar mínir kynnt- ust komu þau sér vel fyrir í Vesturbænum og hafa alla tíð búið á sama stað, á æskuheimili mínu á Bræðraborgarstíg. Mamma stóð fremst meðal jafningja í námi og starfi og stóð oft í fararbroddi í fé- lagsmálum. Kornung var hún komin á kaf í jafnréttis- og mannréttindabaráttu og var formaður Kvenréttindafélags Íslands í mörg ár, m.a. þegar kvennafrídagurinn var haldinn í fyrsta sinn árið 1975. Ég tók þátt í þessu með henni sem barn og varði mikl- um tíma með henni í höfuð- stöðvum KRFÍ á Hallveigar- stöðum. Sérstakt áhugamál mitt var þó að selja tímarit félagsins, 19. júní, hús úr húsi í Vest- urbænum. Samhliða kvenfrels- isbaráttunni skellti mamma sér í laganám í Háskóla Íslands og lauk síðar framhaldsnámi við lagadeild hins virta Harvardhá- skóla. Þar hlotnaðist mér sá heiður, ellefu ára gamall, að standa vaktina á barnum í útskriftarathöfninni. Ömmu- hlutverkið var henni afar dýr- mætt og hún var dýrkuð af dætrum mínum, Sigurveigu og Sólveigu, sem alltaf gátu leitað til hennar til að stússast og spjalla, leika og fíflast en síðast en ekki síst að fá aðstoð við lær- dóminn eða stoppa í sokkana. Fyrir það er ég óendanlega þakklátur. Mamma var dáð í stórfjölskyldunni og hrókur alls fagnaðar í einstaklega nánum saumaklúbbum og vinahópum. Til hennar gat fólk alltaf leitað og hún reyndist mörgum vel þegar á reyndi í lífinu. Mamma og pabbi höfðu dá- læti á ferðalögum um heim allan og höfðu sérstakt yndi af því að skipuleggja ferðir sínar í marg- ar vikur eða mánuði fyrir brott- för. Ítalía var þeim sem annað heimaland og þau þekktu þar hvern krók og kima. Einnig lögðu þau í margar spennandi langferðir en ferðir til Ástralíu og Nýja-Sjálands annars vegar og ferðir á Íslendingaslóðir í Vesturheimi voru þeim sérstak- lega kærar. Sem strákur flengdist ég með þeim um allar trissur og lærði að meta áhuga þeirra á sögu og menningu þjóða og smekk þeirra á vand- aðri ítalskri matargerð. Enn ein Ítalíuferðin var ein- mitt komin á kortið fyrir ári síð- an, að fullu skipulögð og bókuð, þegar mamma greindist með krabbamein. En hún lét það ekki stoppa sig. Við skyldum nú samt fara í fjölskylduferðina. Hreint yndis- lega ferð sem reyndist okkur öllum svo mikils virði og færði okkur einstakar minningar. Mamma hefur reynst mér og mínum ómetanleg á ferðalaginu um lífið. Dætrum mínum og okkur Gyðu. Ég þakka þér fyrir samfylgdina, elsku mamma, og fyrir að kenna mér að njóta lífs- ins. Þórmundur. Það er óskiljanlegt og afar sárt að Sólveig skuli hafa þurft að láta í minni pokann fyrir erf- iðum veikindum. Í mínum aug- um var Sólveig nefnilega sú sem allt gat, fann lausn á öllum verkefnum og vandamálum og fylgdi sinni sannfæringu. Ég kveð þessa mætu konu með miklum söknuði en á sama tíma ylja ég mér við hafsjó minninga um yndislega tengdamóður, ömmu og vinkonu. Sólveig og Jónatan hafa bæði reynst dætrum okkar Þór- mundar einstaklega vel og fyrir það er ég ólýsanlega þakklát. Það var alveg sama hvað þær systur fengust við hverju sinni, alltaf voru amma og afi á Bræðraborgarstígnum boðin og búin að hjálpa þeim, gefa þeim góð ráð og eiga með þeim gæðastundir. Sigurveig horfir með söknuði á eftir ömmu sinni sem m.a. las með henni skóla- bækurnar, hjálpaði henni að sauma, skutlaði henni á æfingar og kenndi henni að standa með sjálfri sér. Sólveig saknar ömmu stuð, eins og hún oft kallaði hana, mjög sárt. Þær nöfnur gátu hlegið endalaust saman, mallað eitthvað í eld- húsinu, dansað barnadansana, spilað og rætt heima og geima, svo eitthvað sé nefnt. Fyrir sjálfa mig var Sólveig fyrir- mynd, víðsýn og klár, hjálpsöm og góð og sérlega hress og skemmtileg. Samverustundir fjölskyldunnar, bæði heima og á ferðalögum okkar hérlendis og um Ítalíu eru dýrmætar og fyrir þær er ég þakklát. Minn- ingin um Sólveigu mun fylgja okkur öllum um ókomna tíð. Takk fyrir samfylgdina, elsku Sólveig. Sóley Halldórsdóttir. Af hafi ertu komin og af hafi muntu aftur snúa. Það er vögguljóð öldunnar fyrir endilanga manneskju í áralaus- um bát. Þar sem undirdjúpin eru fyrirheitið land og hún fær að fljóta með silfursílum. (Steinunn Sigurðardóttir) Stórfjölskylda okkar Sólveig- ar móðursystur er dreifð um heiminn og hittist því sjaldnar en gaman væri. En þegar þau tækifæri gefast er glatt á hjalla, hlegið og spjallað eins og við hefðum síðast hist í gær. Þar var Sólveig frænka ávallt í ess- inu sínu og hrókur alls fagn- aðar. Raunar var hægt að mæla hlátrasköll systranna Önnu, Hólmfríðar og Sólveigar á skjálftamælum. Bróðir þeirra Jón Leifur tók þátt í gleðinni á sinn hátt. Nú er enn höggvið skarð í hópinn, Sólveig farin á vit hins ókunna, leiðina sem móðir okk- ar fór fyrir rúmlega sautján ár- um. Hvar sem þær eru núna systurnar erum við vissar um að þær eru skellihlæjandi. Hvíl í friði, kæra frænka. Ásta, Jóhanna, Þóra Björg og Sólveig Ólöf. Nú sit ég á krossgötum, ráð- villt. Eitt af mínum lífsakkerum er horfið á braut – og kemur ekki til baka á þetta hnattkorn okkar. Það er sárara en tárum taki. Mesta lán lífs míns er að hafa ratað veginn í Verzlunar- skóla Íslands hausið 1962 og við útskrift 1968 verða hluti af al- gjörlega frábærum hópi kvenna sem hafa haldið hópinn óslitið síðan. Hist næstum því einu sinni í mánuði í tæp 50 ár – hlýtur að vera mjög sjaldgæft? Farið saman í ferðalög utan- og innanlands og m.a. haldið árlegt jólaball fyrir fjölskyldur og vini, þar sem fjöldinn hefur stundum verið á annað hundrað. Stutt hver aðra á erfiðum stundum og glaðst saman á gleðistundum. Þessi hópur er og mun alltaf verða mitt lífsakkeri. Nú er enn eitt þeirra horfið á braut. Vinátta okkar Sólveigar hef- ur verið óslitin í 56 ár. Við bjuggum ekki langt hvor frá annarri. Sólveig í Eskihlíðinni og ég á Bollagötunni. Má segja, að tónlistin hafi verið neistinn að okkar vináttu. Dag einn þeg- ar við vorum að ganga heim úr skólanum, þá spyr Sólveig hvað ég ætli að gera þá um kvöldið og sagði ég þá svona frekar treg að ég ætlaði á sinfóníutónleika. Það voru nefnilega aðrir en þeir Mozart og félagar sem voru á stalli hjá skólafélögunum mín- um, þannig að ég þorði seint og illa að viðurkenna að ég væri nú lítið fyrir aðra en þessi gömlu brýni. En Sólveig stoppaði snöggt, greip í handlegginn á mér og sagði: „Má ég ekki koma með þér?“ Eftir þetta fórum við mjög oft á alls konar klassíska tónleika. Ekki er langt síðan ég fór með þeim hjónum í Hörpuna enda öll miklir tónlistaraðdá- endur. Þessi spor á heimleið úr skóla voru mikil gæfuspor. Sólveig var afar ráðagóð og gott að leita til hennar með vandamál og spurningar. Þar var ekkert „udenomsnak“ held- ur tekið á málum með hrein- skilni, ákveðni og fyrst og fremst rökfestu. Ég bar mikla virðingu fyrir skoðunum hennar og hlustaði alltaf á það sem hún hafði fram að færa, enda var Sólveig afburðagreind, ráðagóð og víðsýn. Sólveig var ákaflega kær- komin á heimili foreldra minna og töluðu þau um hana sem hún væri ein af fjölskyldunni. Hún var með í öllu mögulegu – veisluundirbúningi, uppvaski, ökuferðum með nesti og heitt á brúsa, á góðum stundum uppi í sumó við próflestur m.a. Mér fannst alltaf afar slæmt þegar hún fór norður á Siglufjörð sumarlangt. Mikið gæfuspor steig Sólveig þegar hún fann ástina í lífi sínu, hann Jónatan, elskulegan, og var yndislegt að fylgjast með því. Hef ég borið gæfu til að geta kallað þessi frábæru hjón mína bestu vini. Þórmundur og fjölskylda hefur alltaf átt stóran sess í hjarta mínu. Ef ég hefði ekki átt þau hjón að stæði ég ekki í þeim sporum sem ég send í í dag. Þakklæti mitt er tak- markalaust. Nú sit ég eftir á krossgötum ráðvillt, hnípin og döpur. Ég bið þann sem allt gefur og allt tek- ur að umvefja ykkur sem nú horfið á eftir Sólveigu yfir móð- una miklu og gefa ykkur styrk. Ég votta öllum aðstandendum nær og fjær mína dýpstu sam- úð. Brynja Runólfsdóttir. Höggvið er stórt skarð í Siglósystrahópinn eins og við nefnum saumaklúbbinn okkar. Sólveig vinkona okkar hefur kvatt allt of fljótt en minning- arnar um hana munu ylja okkur um ókomna tíð. Við Siglósystur erum jafnöldrur og stofnuðum klúbbinn 9 ára stelpuskottur í heimabæ okkar Siglufirði og höfum hist nær samfellt þessi 60 ár sem liðin eru. Margt hefur gerst öll þessi ár en alltaf hefur vináttan verið til staðar. Við hittumst reglulega í saumaklúbbum og fundum upp á ýmsu þess á milli, til dæmis að ferðast saman innanlands og utan. Margar ferðir koma upp í hugann: Stelpuferðin til Kaup- mannahafnar á aðventunni þeg- ar Sólveig, sem dvaldi þar um tíma, sá til þess að Jónatan kom út til að leiðsegja okkur um Ís- lendingaslóðir og vera þjónn í saumaklúbbnum fyrsta kvöldið. Þá ferð skipulagði Sólveig svo vel að við munum hana sem eina af okkar skemmtilegustu ferð- um. Lundúna-stelpuferðin þeg- ar við framkvæmdum gjörning í nýja Tatesafninu í veðurverki Ólafs Elíassonar. Við lögðumst á gólfið í hring undir „sólinni“ og sungum leikskólalagið okkar, „Nú erum við á leiðinni heim“. Fórum á ABBA söngleikinn um kvöldið, stóðum allar upp í lokin og sungum hástöfum með. Ma- dridarferðin með mökum, þar sem listasöfn voru heimsótt og Grappaklúbburinn stofnaður eftir smakk á mörgum tegund- um og tilheyrandi skoðana- skipti. Þar var Sólveig í far- arbroddi eins og svo oft í ferðum okkar saman. Innanlandsferðir okkar voru ekki síðri. Rangá og Fljótshlíðin þar sem þau hjónin fræddu okk- ur um kirkjusögu og ættir sem sum okkar gátu tengt sig við. Óteljandi sumarbústaðaferðir með gönguferðum, pútti, grilli og miklum hlátrasköllum. Að- ventuhádegin okkar Siglósystra á Holtinu síðastliðin 25 ár eru ógleymanleg. Alltaf var byrjað á Kir Royal og þegar kaffið kom pantaði Sólveig sína sérstöku tegund af koníaki, enda var hún okkar sérfræðingur um mat og drykk, var sjálf snilldarkokkur. Svo tók við búðaráp og innkaup jólagjafa í miðbæ Reykjavíkur þar sem Sólveig var oft dugleg- ust að nota tækifærið. Sólveig var sannkallaður sól- argeisli og bar því nafn með rentu. Hún fékk góðar vöggu- gjafir, var eldklár, skemmtileg, hreinskiptin, ákveðin en alltaf sanngjörn og sérlega réttsýn. Það munaði um að hafa Sól- veigu með sér í liði. Hún hafði létta lund og var með eindæm- um bóngóð og gaf okkur góð ráð þegar eftir þeim var leitað. Það var sannarlega ómetanlegt að eiga vináttu Sólveigar K. Ólafsdóttur í öll þessi ár og fyr- ir það erum við fullar þakklætis. Elsku Jónatan, Þórmundur, Sigurveig, Sólveig „nafna“ og fjölskylda, við samhryggjumst ykkur af öllu hjarta. Við kveðj- um Sólveigu með söknuði, vænt- umþykju og virðingu, blessuð sé minning hennar. Árdís, Dagný, Edda, Jóhanna, Júlíana, Krist- björg, Lilja, Soffía, Sólveig St. og Þórdís. Leið okkar allra lá í Versló. Af ólíkum ástæðum. Við komum úr ýmsum áttum og þekktumst flestar lítið þegar við settumst í fyrsta bekk. Síðan höfum við átt samleið í 56 ár. Fyrst í sex ógleymanleg ár í skólanum og svo áfram í þá hálfu öld sem lið- in er frá stúdentsprófi. Sauma- klúbburinn hefur verið fastur liður en samskiptin hafa verið á mörgum fleiri sviðum. Leikhús- ferðir, utanlandsferðir, ömmu- jólaböll ofl. Oft höfum við orðað það hvað við ættum gott að eiga hver aðra að, saumasysturnar. Núna þegar við kveðjum okkar elskulegu Sólveigu skynjum við það enn sterkar og um leið það skarð sem hún skilur eftir. Sól- veig kom frá Siglufirði og talaði norðlensku og enga tæpitungu. Hún var björt yfirlitum, hlát- urmild og hress, opin, rökföst og ákveðin í sínum pólitísku skoðunum. Á þeim lá hún aldr- ei. Jafnrétti kynjanna var henn- ar baráttumál og því var hún rétt kona á réttum stað þegar hún kornung tók að sér for- mennsku í Kvenréttindafélagi Íslands. Hún lét okkur allar ganga í félagið. Síðar settist hún í háskólann og nam lög- fræði, hér heima og í Bandaríkj- unum og þar sem hún var eini lögfræðingurinn í hópnum nut- um við hinar sannarlega góðs af hennar faglegu þekkingu hve- nær sem á þurfti að halda. Rétt rúmlega tvítug hitti Sólveig manninn í lífi sínu og allar göt- ur síðan höfum við upplifað ein- læga vináttu og gagnkvæma virðingu ákaflega samhentra hjóna sem deildu áhugamálum og starfsvettvangi. Jónatan fór létt með að smita Sólveigu af áhuga sínum á öllu sem ítalskt er enda eru Ítalíuferðirnar þeirra orðnar margar. Áhrifin hafa svo teygt sig til okkar í saumaklúbbnum í gegnum bragðgóða rétti með Gorgonsol- andi nöfnum. Þótt nöfnin vilji brenglast munum við bragðið og eigum ekki bara minninguna heldur líka margar uppskriftir. Sonurinn Þórmundur var svo sannarlega mikið óskabarn og sama er um dætur hans, Sig- urveigu og Sólveigu, sem hafa skipað algjöran heiðurssess í lífi Sólveigar ömmu. Þær hafa misst mikið. Sólveig var amma af lífi og sál. Reyndar á það við um allt sem Sólveig tók sér fyr- ir hendur. Það var almennilega gert og ekkert vol eða víl. Tíð- indunum um ólæknandi sjúk- dóm tók hún af ótrúlegri yf- irvegun og æðruleysi. Sjálfsvorkunn var þar víðs- fjarri. Hún nýtti tímann vel og naut þess sem hún gerði. Þrátt fyrir veikindin fórum við saumasysturnar í aðventuferð til Kaupmannahafnar fyrir jólin og síðan héldu þau Jónatan upp á stórafmælin sín á milli jóla og nýárs með glæsilegri og skemmtilegri veislu. Í djúpri sorg og með sárum söknuði kveðjum við okkar kæru Sól- veigu um leið og við þökkum fyrir ómetanlega vináttu og samleið í meira en hálfa öld. Hugurinn er hjá Jónatan og fjölskyldunni allri. Þeim send- um við okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Saumaklúbburinn Verzló 68, Brynja, Elín, Erna, Esther, Guðrún, Inga, Margrét, María, Sigrún, Þórunn. Sólveig Ólafsdóttir leiddi Kvenréttindafélag Íslands á gróskutímum í baráttunni fyrir kvenfrelsi. Sólveig tók sæti í stjórn Kvenréttindafélagsins 1972 og var kjörin formaður fé- lagsins 1975, aðeins 27 ára að aldri. Er hún enn í dag yngsta kon- an til að gegna embætti for- manns Kvenréttindafélagsins og er einnig meðal þeirra kvenna sem hvað lengst hafa gegnt formennsku. Árið 2007 var hún kjörin heiðursfélagi í Kvenréttindafélagi Íslands. Sólveig tók við formennsku á Sólveig Ólafsdóttir Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR, lést föstudaginn 1. júní. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum hlýhug og auðsýnda samúð. Hörður Eiríksson Helga Björk Harðardóttir Sigurjón Árnason Eygló Harðardóttir Ríkharður H. Friðriksson Sóldís Harðardóttir Þórbjörn Sigurðsson Sævar Harðarson Laufey Guðmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.