Morgunblaðið - 12.06.2018, Qupperneq 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2018
✝ VilhjálmurFriðþjófsson
fæddist á „Norður-
pólnum“ á Akur-
eyri 19. ágúst
1947. Hann lést á
heimili sínu, Gull-
smára 7 í Kópa-
vogi, 26. maí 2018.
Foreldrar hans
voru Friðþjófur
Gunnlaugsson skip-
stjóri, f. 7.5. 1914,
d. 8.5. 2008, og Steinunn Kon-
ráðsdóttir húsmóðir, f. 5.10.
1914, d. 21.10. 1988. Systkini
Vilhjálms eru Vignir, f. 2.6.
1941, d. 21.4. 1997. Sigurður
til sjós og lands, var lengi sölu-
maður fyrir Samhjálp og „Fæði
fyrir alla“ en lauk síðan námi
sem vímuefnaráðgjafi og vann
sem umsjónarmaður og ráð-
gjafi á Hlaðgerðarkoti og
áfangaheimilinu á Miklubraut
20 frá 2004 og til 2011 er hann
lét af störfum vegna heilsu-
brests.
Vilhjálmur var trúaður frá
barnæsku, sótti sunnudaga-
skóla og var virkur í starfi
æskulýðsfélags Akureyrar-
kirkju sem unglingur.
Í kringum 1982 kynntist
hann starfi Hvítasunnusafn-
aðarins og tók skírn árið 1984.
Árið 2015 fluttust þau hjón í
Gullsmára 7 í Kópavogi þar
sem Vilhjálmur lést.
Útför Vilhjálms fer fram frá
Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu
í dag, 12. júní 2018, og hefst at-
höfnin kl. 13.
Anton, f. 4.8. 1942,
d. 3.6. 1980. Gísli,
f. 14.2. 1946, d. í
júní sama ár. Stein-
unn Erla, f. 28.9.
1950. Hallveig, f.
19.3. 1955.
Vilhjálmur
kvæntist 10.6. 1995
Herdísi Eyþórs-
dóttur, f. 7.8. 1950,
en þau hófu sam-
búð í Reykjavík
1987.
Vilhjálmur ólst upp á Akur-
eyri og lauk þar skyldunámi frá
Gagnfræðaskóla Akureyrar.
Hann vann við ýmis störf bæði
Í dag kveðjum við Villa móð-
urbróður okkar sem lést af
slysförum fyrir stuttu. Villi var
vel gefinn og víðlesinn. Hann
vissi allt milli himins og jarðar
eða svo fannst okkur.
Væntingar til hans voru
örugglega miklar í æsku en
ekki fara alltaf saman gæfa og
gjörvuleiki. Ungur að árum
villtist hann af beinu brautinni
og náði ekki áttum fyrr en
mörgum árum seinna. Honum
tókst þó að snúa við blaðinu og
hans gæfa var að kynnast Sam-
hjálp, Hvítasunnusöfnuðinum
og ekki síst henni Dísu sinni.
Hann sagði að í raun hefði
hann endurfæðst um fertugt.
Villi og Dísa voru í ham-
ingjusömu hjónabandi, það
leyndi sér ekki, þau voru mjög
samrýnd og miklir vinir. Gátu
þau nú alveg strítt hvort öðru
en það var alltaf í góðu enda
bæði húmoristar. Í sumarfríun-
um fóru þau oft akandi um
landið og þekkti Villi hvert
krummaskuð frá því í söluferð-
um fyrir Samhjálp. Alltaf var
okkur Akureyringunum boðið
uppá hangikjöt og ísblóm 19.
ágúst, en þá voru þau iðulega
stödd norðan heiða. Til Dan-
merkur fóru þau í tvær
ógleymanlegar ferðir og alltaf
stóð til að fara aftur í utan-
landsferð en sjúkdómar settu
strik í reikninginn svo ekkert
varð úr því.
Alltaf var gott að kíkja í
heimsókn og ófáum kleinum
höfum við systkinin sporðrennt
við eldhúsborðið og ófáum
Bensunum höfum við klappað.
Villi tók öllum vel, fór ekki í
manngreinarálit og var ekkert
að dæma aðra enda fannst okk-
ur við alltaf velkomin. Hann
var alltaf að fræða mann um
eitthvað tengt sögu eða landa-
fræði, verst hvað maður tók illa
eftir. Hann átti líka ótrúlegan
fjölda bóka sem hægt var að
fletta upp í ef á þurfti að halda.
Stundum horfðum við saman á
leiki í sjónvarpinu, hann var
ManUtd maður en samt var
hann mest ÞÓRSARI. Akur-
eyrarliðið Þór var hans lið og
hélt hann með þeim í blíðu og
stríðu. Við spjölluðum líka um
ættfræði og var Villi stoltur af
að bera nafn langafa síns. Hann
var ekki eins sáttur við að hafa
erft hárvöxtinn hans líka. Hann
bætti sér upp hárleysið með því
að láta sér vaxa myndarlegt yf-
irskegg. Við sögðum að hann
minnti helst á þýska klám-
myndastjörnu með þetta skegg
en Villi hló nú bara að því,
snéri uppá skeggið og sagði að
sér fyndist það gefa sér heim-
spekilegt útlit.
Síðustu árin voru honum erf-
ið. Heilsunni hrakaði og undir
lokin fór hann lítið út úr húsi.
Okkur fannst honum stundum
líða eins og kálfinum, í laginu
sem hann hélt svo mikið uppá,
sem fjötraður er á vagni og
horfir löngunaraugum eftir
svölunni sem flýgur frjáls um
loftin blá.
En nú er hann Villi okkar
floginn á braut, frjáls eins og
svalan. Við vitum að honum
hefur verið vel fagnað af öllum
ástvinunum sem farnir eru og
ekki síst þeim ferfættu.
Elsku Dísa, missir þinn er
mestur. Við vottum þér okkar
dýpstu samúð og biðjum Guð
að styðja þig og styrkja.
Blessuð sé minning þín,
elsku Villi.
Stella, Daníel og Anton.
Ég var að versla í Nettó þeg-
ar hún Dísa hringdi í mig til að
segja mér að hann Villi væri
dáinn. Það var eins og tíminn
stöðvaðist smástund. Þurfti
tíma til að átta mig á þessu.
Það eru margar minningar sem
eru tengdar honum Villa. Við
hittumst fyrst fyrir tæpum 40
árum þar sem við vorum á
sjúkrahúsi að glíma við sameig-
inlegan óvin, Bakkus.
Nokkru síðar lágu leiðir okk-
ar saman hjá Samhjálp, þar
sem okkur auðnaðist að fóta
okkur í tilverunni eftir margra
ára ólgusjó, og þar urðum við
nánir vinir og félagar og hélst
sú vinátta alla tíð.. Villi var
svona klettur, alltaf til taks,
traustur og tryggur og eftir að
hann og Dísa hófu búskap var
ég alltaf velkominn í heimsókn.
Var eiginlega heimagangur þar
á tímabili.
Það er margs að minnast, og
ekki rúm til að rifja það allt
upp hér. Það væri hægt að fylla
heila bók um alla skemmtilegu
hlutina,og minna skemmtilegu
hlutina sem við gengum saman
í gegnum. Við ræddum oft hér
áður að skrifa bók sem átti að
heita „Fyrr var oft í Koti“, ætl-
uðum að gefa hana út árið 2012,
en þá var það ártal í órafjar-
lægð. Ef til vill er Villi að
skrifa þessa bók á himnum,
hann var allavega góður penni,
bæði á laust og bundið mál. En
einhvern veginn vinnur tíminn
þannig að allflestar minningar
verða skemmtilegar. Árið 1985
fórum við að ferðast um landið
og selja bækur, Villi eignaðist
bíl sem við skírðum Hannibal,
óttaleg drusla, en á þessum far-
kosti ferðuðumst við um allt
land. Í þessum ferðum gerðist
margt skemmtilegt sem við
rifjuðum oft upp og skemmtum
okkur við minningarnar. Ég
komst að því í þessum ferðum
að sölumennska er ekki mín
fjöl í lífinu, en Villi var sölu-
maður í þónokkur ár. Seinna
fór hann að starfa aftur í Hlað-
gerðarkoti sem umsjónarmað-
ur, og seinustu árin á Miklu-
braut 20 þar til hann veiktist
síðla árs 2011.
Ég vil með þessum línum
sýna honum Villa þakklætisvott
fyrir áratuga vináttu, og votta
henni Dísu og öðrum aðstand-
endum mína dýpstu samúð.
Kveðja,
Þórir, Björg og fjölskylda.
Vilhjálmur Friðþjófsson, eða
Villi eins og ég þekkti hann,
var vinur minn. Hann var lítt
langskólagenginn, en þó ein
mest menntaða manneskja,
sem ég hef nokkru sinni hitt.
Áhugamál Villa á þessum síð-
ustu árum voru sérstaklega
saga seinni heimstyrjaldarinn-
ar, sem og stjórnmálasaga eft-
irstríðsáranna; sömu áhugamál
og ég hef lengi haft. Heimsókn-
ir til Villa og Dísu voru ógleym-
anlegar. Fyrst dásamlegasti ís-
lenski maturinn sem
fyrirfinnst: Dísa að elda uppá-
haldsmatinn minn (saltkjöt með
rófum, lamb og brún sósa, salt-
fiskur með hamsatólg) og svo
komu fleiri klukkutíma sam-
ræður – já, og stundum deilur –
um viðfangsefni þess dags. Ég
lærði mikið af Villa, t.d. að
skoða orsakir og afleiðingar
stríðsins á Kóreuskaga frá
sjónarhóli Kínverja frekar en
frá hinum niðurnjörvaða vest-
ræna hóli.
Virðing Villa fyrir staðreynd-
um var einfaldlega aðdáunar-
verð. En það var túlkun hans
og greining á þessum sömu
staðreyndum, sem gerðu Villa
svo einstakan. Hann rannsak-
aði ekki aðeins báðar hliðar
sama peningsins, heldur einnig
hliðarröndina. Þessi opna nálg-
un á viðfangsefnum leiddi Villa
oft til að draga ályktanir, sem
voru á skjön við hefðbundnari
niðurstöður. Dæmi: fyrir tæp-
um tveimur árum, þegar kosn-
ingabaráttan í Bandaríkjunum
stóð sem hæst, lýsti Villi yfir
mér algjörum og skilyrðislaus-
um stuðningi við framboð
Trumps. Rökfærsla Villa var
hrein: „Clinton er órjúfanlegur
hluthafi í valdakerfi yfirstétt-
arinnar; kerfi þar sem innvígðir
gefa hver öðrum stuðning til að
dafna og njóta. Með Clinton í
fararbroddi eru engar breyt-
ingar fyrir óbreytta þegna
mögulegar. Með Trump í
stjórasætinu fáum við að sjá
breytingar. Breytingar eru af
hinu góða, því stöðnun er
dauðadómur vinnandi manna.“
Ég kallaði Villa stundum
„síðasta róttæklinginn í daln-
um“. En í raun var Villi fyrst
og fremst óþreytandi baráttu-
maður fyrir réttlátari skiptingu
auðs veraldar; fyrir jafnrétti og
bræðralagi fólksins; og gegn
valdakerfi yfirstéttanna.
Nú er síðasti róttæklingur-
inn fluttur úr dalnum. Farðu í
ferð þína í friði, vinur minn.
Magnús Ólafsson,
New York.
Það er aldrei auðvelt að
kveðja fallinn vin. Aldrei auð-
velt að finna rétt orð. Orð. Og
það má reyndar spyrja, hvaða
orð eru rétt orð? Vinátta er yf-
irleitt jákvætt orð. Táknar eitt-
hvað gott. Oftast. Spekingar
fyrri tíma hafa sett á bækur
hugleiðingar sínar um vináttu.
Greint hana og flokkað eftir rót
hennar og markmiði.
Orðræður eru ekki alltaf lífg-
andi. Margar þeirra myrkva.
Aðrar lífga og græða. Auka von
í samfélagi manna og yl og geta
verið upphaf vináttu. Sumar
orðræður höfða til dýpri hugs-
unar. Mannskilnings og breyta
fólki. Þegar slík orðræða vitjar
fólks, karla og kvenna, þá er
hagkvæm tíð. Og margir hefja
sitt „Shemoth“ til betra lífs og
æja á leiðinni í svala við „sjö
vatnslindir og sjötíu pálma“.
Til er undursamleg orðræða.
Ein þeirra er sú sem rituð er af
Jóhannesi Sebedeussyni í Nýja
testamentinu. Hún hefur mark-
mið og hún gefur svör. Und-
ursamleg er hún af því að hún
umlykur fólk með mann-
elskandi anda. Græðandi anda
sem býr í speki og visku ald-
anna. „Því að spekin er mann-
elskur andi.“ Spekin sem mótuð
er með orðum. Og Orðinu. Orð-
inu sem kom „og bjó með oss“.
Orðræða Jóhannesar fjallar
um umbreytingu á sál og anda
manna. Þeirra sem taka vilja
við henni. Umbreytingunni.
Endurfæðingunni. Sú orðræða
er háheilög. Hún fjallar um
Jesúm Krist sem Orðið tók sér
bólfestu í og gekk um og vék
skýlunni frá leyndum dómum.
Boðaði andlegt yfirfljótandi líf.
Vilhjálmur Friðþjófsson var
einn af þeim sem tóku við
þessu Orði. Hann tileinkaði sér
það, þáði af græðandi
smyrslum þess og ilmi. Á þeim
slóðum hittumst við fyrir ótal
mörgum árum síðan. Á vett-
vangi Orðsins. Þá var hagkvæm
tíð. Við áttum margt saman að
sælda á árunum þeim. Ánægju-
legt samfélag. Svo kom Herdís
Eyþórsdóttir inn í myndina og
þau gáfust hvort öðru, Vil-
hjálmur og hún, og hafa saman
tekist á við sætt og súrt eins og
gengur í flestra lífi. En nú er
hann fallinn frá. „Silfurþráður-
inn slitnaður, moldin horfin til
jarðarinnar og andinn til Guðs
sem gaf hann.“
Við minnumst margra góðra
daga og samverustunda með
honum og Herdísi.
Vilhjálmur Friðþjófsson lést
af slysförum 26. maí síðastlið-
inn. Í dag verður hann jarð-
sunginn frá Fíladelfíu í Reykja-
vík. Við kveðjum hann með
þessum fátæklegu orðum sem
engin vissa er fyrir að séu réttu
orðin.
Vottum Herdísi Eyþórsdótt-
ur, eiginkonu hans og öðrum
aðstandendum einlæga samúð
okkar.
Óli Ágústsson og
Ásta Jónsdóttir.
Vilhjálmur
Friðþjófsson
Nú er hún Ragna
amma mín dáin og
ég sakna hennar
mikið.
Það er svo stutt
síðan við vorum saman á Flórída.
Amma kallaði mig alltaf blóma-
rósina sína og þegar ég kom í
heimsókn til hennar gaf hún mér
kökur og kókómjólk. Ég man
þegar amma var að gefa fuglun-
um rúsínur þá kallaði hún þá rús-
ínubelgina sína.
Hún amma mín er mamma hennar
mömmu
og mamma er það besta sem ég á
en gaman væri að gleðja hana ömmu
og gleðibros á vanga hennar sjá.
Í rökkrinu hún segir mér oft sögur
og svæfir mig er dimma tekur nótt.
Syngur við mig sálmakvæðin fögur,
sofna ég þá bæði blítt og hljótt.
(Björgvin Jörgensson)
Sofðu vært, elsku amma,
Þín
Eydís Lára.
Elsku Ragna systir er farin,
allt of fljótt frá okkur öllum sem
elskuðum hana. Ragna tengdist
mér ekki bara sem stóra systir,
hún var líka minn uppalandi,
vinnuveitandi og vinkona, og um
hana á ég óteljandi góðar og
skemmtilegar minningar.
Unglingurinn Ragna er mér í
fersku minni og þar kemur fyrst í
hugann Ragna í skátabúningi á
leið á fund eða í útilegu. Svo
Ragna í rokkbuxum að tjútta við
vinkonu sína heima á Varmá.
Líka Ragna að fara í bíó og að
safna kvikmyndaprógrömmum.
Ragna með vinkonum sínum á
leið á skverinn, sem þýddi að
hanga úti á kvöldin með öðrum
unglingum.
Ragna niðursokkin að lesa
Eros og Sannar sögur og þá
mátti alls ekki trufla hana. Ragna
að sýna okkur flottu, árituðu
myndina af Harry Belafonte, sem
hún hafði fengið senda eftir að
hafa sent aðdáandabréf. Hún
dýrkaði og dáði þennan söngvara
alla tíð og myndin var geymd sem
dýrgripur í skjóli frá litlum óvit-
um. Ragna var uppalandi minn
við hlið mömmu og ömmu eftir að
pabbi dó og hún kunni að setja
reglur.
Ég átti að koma heim í mat á
Ragna Rósberg
✝ Ragna RósbergHauksdóttir
fæddist 1. desem-
ber 1943. Hún lést
28. maí 2018.
Útförin fór fram
11. júní 2018.
réttum tíma og ég
átti að brjóta saman
fötin mín. Hún bók-
staflega sá í gegn-
um veggi og skynj-
aði gegnum svefn,
ef ég svindlaði eitt-
hvað með fötin.
Fullorðinsár Rögnu
hófust snemma því
hún varð móðir að-
eins 16 ára, ég varð
móðursystir 6 ára
og lítill frændi kom á heimilið.
Svo flutti Ragna norður í
Eyjafjörð með unga bóndanum,
sem var að vinna á heilsuhælinu,
hún giftist honum og þau bjuggu í
Hvassafelli.
Þó ég sæi eftir Rögnu og litla
frænda, þá átti ég eftir að hrífast
af sveitinni hennar og vera
barnapía hjá henni í 3 sumur.
Hún kenndi mér til verka, treysti
mér jafnt fyrir uppvaski og börn-
um. Það var alltaf jafn gaman hjá
Rögnu og líflegt í kringum hana,
hún blandaði geði við alla og við
fórum í heimsóknir, bæði á næstu
bæi og líka hinum megin við
fjörðinn.
Hún var opin fyrir nýjungum,
eignaðist fljótt sjálfvirka þvotta-
vél og pantaði föt úr póstlista
Hagkaupa.
Svo var Ragna dugleg að koma
í heimsóknir suður með Hjalta,
Benna og Jóhönnu. Hjá Rögnu
var alltaf pláss fyrir fólk, hvort
sem það var í Hvassafelli, á Akra-
nesi eða í Vesturhópinu og hvort
sem það var í gistingu eða mat.
Það var ófrávíkjanleg regla að
mæta ekki södd, því Ragna og
Stefán elskuðu að gefa fólki að
borða og á boðstólum var nærri
alltaf eitthvað sem þau höfðu
sjálf aflað, ræktað eða bakað, lax,
silungur, vöfflur og margt fleira.
Maður gat nánast gengið að því
vísu að geta gist á Akranesi ef á
þurfti að halda og áður fyrr fór ég
þangað oft um helgar með son
minn Helga Val, sem var á svip-
uðu reki og Guðný og Sigrún.
Ragna systir var falleg, glað-
vær, opin, hreinskilin, hugrökk,
umhyggjusöm og úrræðagóð.
Það kunnu ekki allir að meta
hreinskilni hennar, því hún átti
það til að tala áður en hún hugs-
aði.
Með sorg í hjarta er ég inni-
lega þakklát fyrir þessa systur
mína, fyrir að hafa fengið að eiga
hlutdeild í lífi hennar, fyrir að
hafa fengið alla þessa ættingja
sem afkomendur hennar eru og
fyrir alla hennar umhyggjusemi
og elsku.
Takk fyrir allt og allt.
Pálína Sigurjónsdóttir
(Pála systir).
Ástkær dóttir, móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
GYÐA SIGURÐARDÓTTIR,
andaðist á heimili sínu fimmtudaginn
30. maí. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni
föstudaginn 15. júní, klukkan 15.
Sigurður Jónsson
Kristjana Barðadóttir Björn Óli Hauksson
Ragnhildur Barðadóttir Sigurður Ringsted
Thor Axel Patriksson Healy
Stefán Barði, Marisa, Valter, Máni, Gunnhildur,
Kristjana Björk og Atli,
Arnar Þór, Steinþór, Eyþór, Frosti
Elskulegur bróðir okkar,
ÞORMÓÐUR SVAFARSSON,
lést á Landspítalanum 8. júní.
Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðrún Svafarsdóttir
Guðmundur Svafarsson Ingibjörg Auðunsdóttir
Margrét Svafarsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
HELGI ÞORMAR SVAVARSSON,
Laugarbökkum,
lést á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki
laugardaginn 9. júní.
Útförin verður auglýst síðar.
Blóm og kransar afþakkaðir, þeim sem vilja minnast hans er
bent á að láta Heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki njóta þess.
Edda Stefáns Þórarinsdóttir
og fjölskylda