Morgunblaðið - 12.06.2018, Side 25

Morgunblaðið - 12.06.2018, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2018 Atvinnuauglýsingar Blaðberar Upplýsingar veitir í síma  Morgunblaðið óskar eftir   blaðbera   Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16. Bónusbíllinn fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.30. Handavinna með leið- beinanda kl. 12.30-16. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40- 12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. Velkomin, s. 535-2700. Boðinn Brids og kanasta kl. 13. Dalbraut 18-20 Félagsvist kl. 14. Garðabær Jónshúsi / félags- og íþróttastarf: 512-1501. Opið í Jóns- húsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl. 9.30-16. Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá kl. 14-15.30. Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 11.45. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 14.45. Gerðuberg Kl. 8.30-16 opin handavinnustofa. Kl. 9-12 keramikmálun (sumarfrí). Kl. 13-16 glervinnustofa (sumarfrí). Kl. 10-10.45 leikfimi Maríu (sumarfrí). Kl. 10-10.30 leikfimi gönguhóps. Kl. 10.30 göngu- hópur um hverfið. Kl. 12.20-13.30 qigong (sumarfrí). Kl. 13 tölvu- fræðsla hjá Helgu. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Opin handavinna kl. 9-14. Hádegismatur kl. 11.30. Bónusbíllinn kl. 12.15. Félagsvist kl. 13.15. Kaffi kl. 14.15. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, dagblöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45, hádegismatur kl. 11.30, brids í handavinnustofu kl. 13 og eftirmið- dagskaffi kl. 14.30. Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnuð kl. 8.50, við hringborðið kl. 8.50, listasmiðjan opin fyrir alla kl. 9-16, brids kl. 13, enskunámskeið tal kl. 13, bókabíll kl. 14.30, Bónusbíll kl. 14.55, síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir óháð aldri, nánari uppl. í síma 411-2790. Seltjarnarnes Vatnsleikfimi Sundlaug Seltjarnarness kl. 7.15. Pútt á Eiðistorgi kl. 10.30. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Ganga frá Skóla- braut kl. 15. Sumargleði félagstarfsins verður haldin hátíðleg mið- vikudaginn 13. júní kl. 15. Skemmtum okkur saman, grillum pylsur, syngjum og tröllum. Verð 1000 krónur. Léttvín og bjór selt gegn vægu verði á staðnum. Sléttuvegi 11-13 Selið er opið frá kl. 10-16 og upp úr kl. 10 er boðið upp á kaffi þar sem fólk kemur saman í spjall og kíkir í blöðin. Hádegisverður er kl. 11.30-12.15 og kaffi og meðlæti er selt á vægu verði kl. 14.30-14.55. Bónusbíll kl. 14.40 og bókabíll kl. 13.15. Allir eru hjartanlega velkomnir í Selið. Nánari upplýsingar hjá Maríu Helenu í síma 568-2586. Vantar þig fagmann? FINNA.is Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Olíuskiljur - fituskiljur - einagrunnarplast CE vottaðar vörur. Efni til fráveitulagna. Vatnsgeymar 100-50.000 lítra. Borgarplast.is, sími 5612211, Mosfellsbæ. Til sölu KRISTALS LJÓSAKRÓNUR Opnunar tilboð í Glæsibæ. Glæsilegar kristalsljósakrónur fyrir- falleg heimili. Handskornar kristals- ljósakrónur, veggljós, matarstell, kristalsglös til sölu. BOHEMIA KRISTALL Glæsibær Sími 7730273 Bókhald NP Þjónusta Annast bókanir, reikningsfærslur o.f.l. Upplýsingar í síma 649-6134. Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. Ýmislegt Bátar      Flatahrauni 25 - Hafnarfirði Sími 564 0400 www.bilaraf.is Mikið úrval í bæði 12V og 24V. Bílaþjónusta GÆÐABÓN Stofnað 1986 • Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Húsviðhald FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994 atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á ✝ ÞorvaldurMagnússon fæddist á Bakka- velli í Hvolhreppi 12. ágúst 1958. Hann lést á gjör- gæsludeild Land- spítalans við Hringbraut 5. júní 2018. Hann var sonur hjónanna Magn- úsar Gunnars Sig- urjónssonar frá Bakkavelli í Hvolhreppi og Viktoríu Þor- valdsdóttur úr Reykjavík. Systkini Þorvaldar: Margrét Magnúsdóttir, maki Einar B. Steinmóðsson, búsett á Selfossi, Sigurjón Magnússon, d. 1975, Vilhjálmur Magnússon, maki, Kristín Þ. Sigurðardóttir, bú- sett á Stokkseyri, Gunnar Magnússon, maki Guðrún R. Erlingsdóttir, búsett í Reykja- vík, Bjarni Magnússon, búsett- ur á Stokkseyri, Signý Magnús- dóttir, maki Arnar Þór Diego, búsett í Danmörku. Þorvaldur stundaði ýmis störf, s.s sjó- mennsku, fisk- vinnslu, vann við virkjanir, í smíða- vinnu, hann var einnig sem ung- lingur í sveit ásamt bræðrum sínum á Minna-Núpi í Gnúpverjahreppi. Hann var í flug- skóla, lærði undir- stöðu í grafík og skiltagerð og stofnaði í fram- haldinu Nýsýn, merkingar og skiltagerð og var Bjarni bróðir hans einnig með honum í því um tíma. Síðustu ár vann Þor- valdur hjá Nýþrif, auk þess að vera í skiltagerðinni og Gróðr- arstöðinni Heiðarblómi, fyrir- tæki Magnúsar og Viktoríu, hann vann einnig við gistiheim- ili fjölskyldunnar, Kvöldstjörn- una. Útför Þorvaldar fer fram frá ríkissal Votta Jehóva í dag, 12. júní 2018, klukkan 13. Jarðsett verður í Stokkseyrarkirkju- garði. Þorvaldur bróðir minn er lát- inn. Það er þyngra en tárum taki að kveðja bróður í annað sinn, en Sigurjón bróðir okkar lést aðeins tæplega átján ára í skelfilegu slysi, missir föður míns er mikill. Við systkinin urðum sjö, öll nema Signý slitu barnsskónum á Bakkavelli í Hvolhreppi. Það var oft líf og fjör í Vall- arkróknum enda margir krakkar á hverjum bæ og reyndum við að hittast við hvert tækifæri. Í minningunni heyri ég hlátra- sköllin rjúfa kyrrðina, allir sem mögulega geta eru úti að leika sér á kvöldin. Tveir bræður eru sjaldan langt hvor frá öðrum, það eru þeir Þorvaldur og Sigurjón, þeir eru eins ólíkir og hugsast getur, annar er glókollur en hinn er dökkur á brún og brá, þeir eru einnig ólíkir á margan annan hátt, Þorvaldur sallarólegur en Sigurjón uppátækjasamur ærsla- belgur. Foreldrar okkar gáfu okkur nokkuð frjálsar hendur og við máttum leika okkur úti að vild. Ég er elst í systkinahópnum og það kom oft í minn hlut að gæta bræðra minna, sérstaklega eftir að pabbi fór að reka verslun á Hvolsvelli, þá var mamma oft að aðstoða hann þar. Árin liðu og alltaf var hópurinn samheldinn í Vallarkróknum. Í skólanum á Hvolsvelli gerðu bræður mínir og Sigurður á Velli mikinn usla fyrsta skóladaginn eitt sinn er þeir ákváðu að elta stelpurnar í frímínútunum og kyssa þær, þetta var fyrsti skóladagur Þor- valdar og fannst honum þetta að vonum mjög spennandi leikur. Þegar inn var komið talaði Trú- mann yfir hausamótum drengj- anna og sagði þeim að svona kæmu þeir ekki fram við dömur og urðu þeir heldur lúpulegir og ekki var þessi leikur endur- tekinn. Þorvaldur bróðir var mikill hugsuður, öll stærðfræði heillaði hann, einnig stjörnufræði og var hann félagi í stjörnuskoðunar- félagi, hann var afar handlaginn og góður teiknari og það nýttist honum vel er hann vann við graf- íska hönnun í eigin fyrirtæki um árabil. Hann hafði áhuga á flugi og var í flugskóla í Keflavík, hann lagði samt flugið aldrei fyrir sig. Á unglingsárum hans fluttu for- eldrar okkar til Reykjavíkur og síðar á Stokkseyri. Þorvaldur gekk þá í skóla á Selfossi. Hann var á sjó um tíma, í frystihúsinu, og við virkjanir á Tungnársvæð- inu, í byggingarvinnu ásamt Gunnari bróður í Reykjavík, vann við gróðrarstöðina Heiðar- blóma, rak um árabil fyrirtækið Nýsýn og á einkarétt á því nafni. Þorvaldur bróðir var rólegur og ljúfur að eðlisfari, hann hafði góðan húmor og mun ég minnast hlátursins og orðaleikjanna sem hann var svo snjall í, hann samdi lög og ljóð og spilaði á gítar og úkúlele. Þorvaldur hafði marga öfunds- verða eiginleika, t.d. þegar allt var á fullu, allir samankomnir til garðvinnu og alls kyns verka þá fannst honum allt of mikill asi á fólki, hann fór inn og í stuttbux- urnar því sólin skein glatt, kom út með einn kaldan, dró sólstól- inn á rólegan stað og naut sólar- innar, það var aldrei að vita hve- nær hún léti sjá sig aftur. Að leiðarlokum þakka ég mínum elskulega bróður fyrir samfylgd- ina. Ég mun sakna þess að koma inn úr rigningunni og rokinu og setjast við kaffiborðið þitt í Há- túni, hlaðið af kræsingum, og segja: Hvað, það er bara veisla? og þú svarar: Hér er alltaf veisla. En nú er veislunni lokið, elsku bróðir minn, þú ert horfinn okkur um sinn. Það einkenndi þig að þú tókst alltaf fagnandi á móti fólk- inu í lífi þínu og áttir alltaf til bros og knús, þess mun ég ávallt minnast. Sofðu rótt. Þín systir, Margrét Magnúsdóttir. Þorvaldur Magnússon Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.