Morgunblaðið - 20.06.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JÚNÍ 2018
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
samfélaginu. Málsmeðferðartillaga
meirihluta borgarstjórnar um að vísa
tillögunni til borgarráðs var sam-
þykkt með tólf atkvæðum gegn ellefu
eftir um 50 mínútna langa umræðu.
Var það jafnan niðurstaðan með
tillögur frá flokkum í minnihluta
borgarstjórnar að þær voru sendar í
borgar- eða velferðarráð.
Undanskilin er tillaga borgarfull-
trúa Miðflokksins, Vigdísar Hauks-
dóttur, um niðurfellingu byggingar-
réttargjalds, en Vigdís dró tillöguna
til baka áður en kom til atkvæða-
greiðslu.
fulltrúi minnihlutans yrði í nýju um-
hverfis- og heilbrigðisráði.
Afnám þóknunar rædd í þaula
Tillaga borgarfulltrúa Sósíalista-
flokks Íslands um afnám þóknunar
fyrir nefndarsetu starfsmanna borg-
arinnar fyrir fundi á vinnutíma gat af
sér langa umræðu. Sanna Magda-
lena Mörtudóttir, borgarfulltrúi
Sósíalistaflokks Íslands, sagði þókn-
unina m.a. vera óþarfa sóun á al-
mannafé og ýta undir sjálftöku
stjórnenda hjá hinu opinberu, sem
væri orðin að vaxandi vandamáli í
Axel Helgi Ívarsson
Gunnlaugur Snær Ólafsson
Sú kátína sem var meðal borgarfull-
trúa í borgarstjórn Reykjavíkur við
upphaf fyrsta fundar borgar-
stjórnar varaði ekki lengi, en tals-
verður hiti og nokkuð harðar um-
ræður sköpuðust á fundinum í gær,
sem hófst klukkan 14. Alls voru 54
mál á dagskrá fundarins, þ.m.t. 17
tillögur ef talin er með tillaga um
sumarleyfi borgarstjórnar, og lauk
dagskrá sjö mínútur í ellefu í gær-
kvöldi.
Yngsti forseti frá upphafi
Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti
og borgarfulltrúi Pírata, var kosin
forseti borgarstjórnar. Er Dóra sú
yngsta til að gegna því hlutverki frá
upphafi, en hún varð 30 ára í gær.
Hlaut Dóra 12 atkvæði, en 11 skil-
uðu auðu. Pawel Bartoszek, borg-
arfulltrúi Viðreisnar, var kosinn
fyrsti varaforseti borgarstjórnar.
Dagur B. Eggertsson var endur-
kjörinn í embætti borgarstjóra með
12 atkvæðum á móti 11 auðum.
Þegar um klukkustund var liðin
af fundinum var meirihluti borgar-
stjórnar sakaður um trúnaðarbrest.
Í ljós kom í máli Lífar Magneu-
dóttur, borgarfulltrúa vinstri
grænna, í umræðum um breytingu
á skipulagi nefnda að hún vissi hver
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Umræða Dóra Björt Guðjónsdóttir, Pawel Bartoszek, Helga Björk Laxdal og Marta Guðjónsdóttir ræða saman.
Hart deilt á maraþon-
fundi borgarstjórnar
Yfir 50 mál rædd í borgarstjórn í yfir átta klukkustundir
Oddvitar Dagur B. Eggertsson og Eyþór Arnalds heilsast fyrir fundinn.
Nína Guðrún Geirsdóttir
ninag@mbl.is
„Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
keppinautar á auglýsingamarkaði
kvarta yfir þátttöku RÚV á mark-
aðnum. Það er búið að fjalla um það
af hálfu stjórnvalda áður,“ segir Páll
Gunnar Pálsson forstjóri Sam-
keppniseftirlitsins. Títtnefnd staða
RÚV á auglýsingamarkaði hefur
verið gagnrýnd af öðrum fjölmiðlum
að undanförnu, sér í lagi í aðdrag-
anda HM þar sem aðrir miðlar segja
að RÚV hafi í valdi stöðu sinnar
sópað til sín auglýsingamarkaðnum.
Að sögn Páls Gunnars hefur Sam-
keppniseftirlitinu borist formleg
kvörtun frá Símanum á markaðnum
ásamt óformlegum ábendingum frá
öðrum aðilum. „Við leitum nú upp-
lýsinga og sjónarmiða frá RÚV, og á
þessu stigi er verið að skoða hvort
forsendur séu til staðar til að hefja
formlega rannsókn vegna málsins á
grundvelli samkeppnislaga. Það
liggur ekki fyrir sem stendur.“
Hann segir eftirlitið einnig hafa
verið í samstarfi við Fjölmiðlanefnd,
en það er hlutverk nefndarinnar að
fylgja eftir þeim lögum og reglum
sem RÚV ber að fylgja á auglýs-
ingamarkaði. Páll Gunnar segir að
Samkeppniseftirlitið hafi „ítrekað
vakið athygli á þeirri mismunun
sem leiðir af núgildandi lögum, og
felst í þátttöku RÚV á auglýsinga-
markaði, samhliða tekjum þess af
skattfé. Við höfum bent á þessa
samkeppnislegu mismunun sem
leiðir af gildandi lögum, en það ligg-
ur hins vegar ekki fyrir hvort það
séu forsendur til að taka þetta mál
upp sérstaklega enn sem komið er,“
segir Páll Gunnar.
Hann segir að sérstöku áliti um
málið hafi verið skilað til mennta-
málaráðuneytis fyrir 10 árum, þar
sem eftirlitið leggur til að þátttaka
RÚV verði endurskoðuð. „Svo höf-
um við ítrekað fjallað um þetta í um-
sögnum um frumvörp á þessu sviði,
og í ljósi athugasemda samkeppn-
isyfirvalda og fleiri stofnana þá voru
settar ákveðnar skorður við hátt-
semi RÚV á auglýsingamarkaði,
m.a. með lögum árið 2013,“ en það
eru lögin sem Fjölmiðlanefnd fer
eftir í dag, að sögn Páls Gunnars.
Elfa Ýr Gylfadóttir, fram-
kvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar,
staðfesti við Morgunblaðið að form-
leg kvörtun hefði komið inn á þeirra
borð og væri nú í skoðun.
Leita upplýs-
inga og sjónar-
miða frá RÚV
Síminn hefur kvartað formlega til
Samkeppniseftirlitsins vegna RÚV
Forsætisráð-
herra hyggst,
í samráði við
félags- og
jafnréttis-
málaráðherra
og heilbrigðisráðherra, hefja und-
irbúning að breyttri skipan velferð-
arráðuneytisins. Þetta kemur fram
í tilkynningu frá Stjórnarráðinu.
Tveir ráðherrar eru yfir
velferðarráðuneytinu, félags- og
jafnréttismálaráðherra og heil-
brigðisráðherra en í tilkynningunni
kemur fram að færa megi rök fyrir
að skipting ráðuneytisins í tvö í
samræmi við verkaskiptingu ráð-
herranna geti stuðlað að styrkari
stjórnun og markvissari forystu.
Velferðarráðuneyt-
inu skipt í tvennt
Axel Helgi Ívarsson
axel@mbl.is
Kynjahlutfall í nefndum á vegum
ráðuneytanna hefur aldrei verið
jafnara, bæði hvað varðar hlutfall í
nefndum skipuðum á starfsárinu
2017 og í öðrum starfandi nefndum
árið 2017. Kemur það fram í skýrslu
Jafnréttisstofu sem kom út í gær, en
þetta er í sjötta sinn sem Jafnrétt-
isstofa gefur út skýrslu um stöðu
kynjanna í nefndum, ráðum og
stjórnum á vegum ráðuneytanna.
Samtals störfuðu 3.270 manns í
nefndum ráðuneytanna árið 2017,
1.558 konur og 1.712 karlar. Er hlut-
ur kvenna því 48% á móti 52% hlut
karla.
Öll ná viðmiðunarmarki
Nokkur munur er á hlutföllum
milli ráðuneyta en öll ná þó 40% við-
miðunarmarkinu. Mestur er munur-
inn hjá samgöngu- og sveitarstjórn-
arráðuneyti, eða 59% hlutfall karla á
móti 41% kvenna. Á hinn bóginn er
hlutfallið jafnast hjá umhverfis- og
auðlindaráðuneyti, 51% konur og
49% karlar. Er það ráðuneyti jafn-
framt eitt af þremur sem hafa hærra
hlutfall kvenna en karla. Eru hin tvö
ráðuneytin annars vegar utanríkis-
ráðuneytið (52% konur) og hins veg-
ar velferðarráðuneytið (56% konur).
Sérstaklega er litið til nýskipana í
nefndir á hverju starfsári fyrir sig
þar sem í ýmsum öðrum nefndum
hefur nefndarseta verið óbreytt í
mörg ár. Fleiri konur voru skipaðar
en karlar í nefndir sem tóku til starfa
árið 2017, 483 á móti 473, og er hlut-
ur kvenna því 51% á móti 49% hlut
karla. Er þetta í fyrsta skipti sem
skipaðar voru fleiri konur en karlar.
Jafnasta hlutfallið var hjá mennta-
og menningarmálaráðuneyti, 50%
hlutur karla og kvenna.
Ný jafnréttislög voru sett árið
2008 þar sem kynjakvóti var í fyrsta
sinn leiddur í lög. Skal þess gætt að
hlutfall kynjanna sé sem jafnast og
fari ekki undir 40% þegar um fleiri
en þrjá fulltrúa er að ræða. Jafnrétt-
isstofa hefur eftirlit með fram-
kvæmd jafnréttislaga.
Staða kynjanna að jafnast
Sjötta skýrsla Jafnréttisstofu um kynjahlutfall í nefndum, ráðum og stjórnum
ráðuneytanna Í fyrsta sinn voru fleiri konur en karlar skipaðar í nýjar nefndir