Morgunblaðið - 20.06.2018, Blaðsíða 19
19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JÚNÍ 2018
Sigling Skútan Xena lagði af stað í gær vestur um land áleiðis til Færeyja. Þaðan heldur skútan 6. júlí og tekur þátt í Viking Offshore Race siglingakeppninni frá Færeyjum til Íslands.
Árni Sæberg
Flestir ef ekki allir
segjast styðja frjálsa
fjölmiðlun. Þeir eru að
minnsta kosti fáir
stjórnmálamennirnir
sem ekki hafa strengt
þess heit að standa
vörð um frelsi fjölmiðla
– lagt áherslu á að
frjáls fjölmiðlun sé ein
grunnstoð frelsis og
lýðræðis. Þeir eru hins
vegar í minnihluta sem benda á þá
mótsögn sem felst í því að berjast
fyrir sjálfstæðum fjölmiðlum og
standa vörð um ríkisrekna miðlun
frétta og upplýsinga.
Í gegnum árin hefur verið áhuga-
vert að fylgjast með umræðum á Al-
þingi um stöðu fjölmiðla og ekki síst
umræðum um fjárlög og Ríkis-
útvarpið. Af og til er lýst yfir
áhyggjum af stöðu frjálsra fjölmiðla,
en þær áhyggjur hafa aldrei rofið
skarð í varnarmúrinn sem byggður
hefur verið um ríkisrekstur fjöl-
miðla. Fáar ef nokkrar stofnanir eru
kærari í hugum meirihluta þing-
manna en Ríkisútvarpið.
Ríkisútvarpið hefur notið þess að
vera í mjúkum og hlýjum faðmi
stjórnmálamanna. Á sama tíma og
frjálsir fjölmiðlar berjast flestir í
bökkum hefur fjárhagslegur hagur
Ríkisútvarpsins stöðugt vænkast og
dagskrárvaldið orðið öflugra. Nú er
svo komið að fáir stjórnmálamenn
treysta sér að fara gegn ægivaldi
ríkisrekinnar fjölmiðlunar. Þess
vegna er leikreglunum ekki breytt
til að jafna stöðuna. Stjórnmála-
maður sem berst fyrir breytingum
veit hversu auðvelt það er að taka
gagnrýnendur út af sakramentinu
og takmarka aðgang þeirra að ljós-
vaka ríkisins.
Listamenn og sjálf-
stæðir dagskrár- og
kvikmyndagerðar-
menn, sem öðrum
fremur ættu að vera
gagnrýnendur valds-
ins, hafa flestir valið
þögnina eða tekið varð-
stöðu með ríkisrekstr-
inum. Velvilji í Efsta-
leiti getur skipt
sköpum fyrir þá sem
þurfa að koma verkum
sínum á framfæri. Þá
er best að styggja ekki
valdið.
Afleiðing þessa alls er lítil um-
ræða og sinnuleysi gagnvart því
hvort þeim gríðarlegu fjármunum
sem eiga að renna á hverju ári til að
efla listir og menningu sé vel varið.
Þó eru helstu rökin fyrir tilvist Rík-
isútvarpsins mikilvægt hlutverk
þess að styðja við sögu lands og
þjóðar, menningu og listir. Þegar
pólitíska markmiðið er fyrst og síð-
ast að tryggja öfluga skjaldborg um
Efstaleiti, skiptir meðferð þeirra
milljarða sem skattgreiðendur láta
af hendi á hverju ári ekki mestu.
Strandhögg ríkisins
Um það verður ekki deilt að staða
Ríkisútvarpsins er sterk. Á liðnu ári
fékk stofnunin liðlega 4,1 milljarð
króna frá skattgreiðendum í formi
útvarpsgjalds og 2,3 milljarða í
tekjur af auglýsingum. Heildar-
tekjur voru því rúmlega 6,4 millj-
arðar króna.
Á sama tíma og fjárhagslegur
styrkur Ríkisútvarpsins hefur auk-
ist hefur staða sjálfstæðra fjölmiðla
verið að veikjast. Hækkun virðis-
aukaskatts á áskriftir blaða og tíma-
rita úr 7% í 11% í ársbyrjun 2015 var
þungt högg – ég hef líkt hækkuninni
við strandhögg ríkisins í rekstur
frjálsra fjölmiðla. Lögþvingaðar
áskriftartekjur – útvarpsgjald –
Ríkisútvarpsins – bera ekki virð-
isauka. Enginn getur sagt upp
áskrift að ríkisrekinni fjölmiðlun, en
allir eru frjálsir að eiga viðskipti við
einkarekna fjölmiðla.
Á sama tíma og samkeppnis-
staðan var skekkt enn frekar með
skattlagningu áskrifta hafa sjálf-
stæðir fjölmiðlar þurft að glíma við
aukna samkeppni við erlenda aðila;
Facebook, Google og aðrir net- og
samfélagsmiðlar sækja inn á auglýs-
ingamarkaðinn.
Frjáls fjölmiðlun á Íslandi stend-
ur höllum fæti. Frammi fyrir for-
réttindum ríkisrekins fjölmiðils og
afli alþjóðlegra stórfyrirtækja mega
sjálfstæðir íslenskir fjölmiðlar sín
lítils. Ekki síst þess vegna hef ég
dáðst að þeim einstaklingum sem
hafa haslað sér völl í fjölmiðlun og
lagt allt sitt undir í ójöfnum leik.
Skiptir engu þótt mér falli ekki allt í
geð sem þar er gert. Frjálsir fjöl-
miðlar eru forsenda opinnar lýðræð-
islegrar umræðu og veita nauðsyn-
legt aðhald stjórnvöldum,
atvinnulífinu og helstu stofnunum
samfélagsins.
Leikreglurnar eru óréttlátar
Á síðustu dögum hafa forráða-
menn sjálfstæðra ljósvakamiðla
komið fram og gagnrýnt Ríkis-
útvarpið fyrir að nýta sér yfirburða-
stöðu á markaði með því að „ryk-
suga upp“ allt auglýsingafé í
tengslum við HM í knattspyrnu. Út-
varpsstjóri hefur svarað og haldið
því fram að farið sé að öllum leik-
reglum. Engin ástæða er til að efast
um staðhæfingu útvarpsstjóra.
Vandinn er sá að leikreglurnar eru
óréttlátar – hygla þeim sterka sem
lifir góðu lífi í krafti lögverndaðrar
stöðu á meðan aðrir þurfa að sætta
sig við brauðmola sem falla af borði
forréttinda.
Í stað þess að ráðast að rót vand-
ans – sem er forréttindi ríkisrek-
innar fjölmiðlunar – virðast stjórn-
völd fremur ætla að velja flókið kerfi
millifærslna og ríkisstyrkja (þrátt
fyrir ömurlega reynslu okkar Ís-
lendinga). Í Morgunblaðinu síðast-
liðinn mánudag er haft eftir mennta-
málaráðherra að verið sé að skoða
stofnun fjölmiðlasjóðs sem styrki
gerð menningar- og fréttaefnis,
blaðamannasjóðs sem styrki rann-
sóknarverkefni óháð miðlum og
dreifbýlissjóðs fyrir miðla í dreifbýli.
Þá kemur einnig til greina að inn-
leiða þróunar- og nýsköpunarstyrki
og beina rekstrarstyrki.
Galin hugmynd
Fátt er hættulegra fyrir frjálsa
fjölmiðlun en að vera háð opinberum
styrkjum og nefndum á vegum hins
opinbera sem skammta úr hnefa
fjármuni til að standa undir ein-
stökum þáttum í rekstrinum. Fjöl-
miðlun sem er háð hinu opinbera
með beinum hætti verður aldrei
frjáls nema í orði.
Ég hef ekki lagt það í vana minn
að nota stóryrði en nauðsyn brýtur
regluna. Það er galin hugmynd að
reyna að stuðla að frjálsri og óháðri
fjölmiðlun með umfangsmiklum
millifærslum og ríkisstyrkjum.
Verst er að með millifærslum og
styrkjum er í raun verið að réttlæta
ranglætið á fjölmiðlamarkaði og
komast þannig hjá því að fjarlæga
meinið sjálft.
Undir lok síðasta árs vakti ég,
einu sinni sem oftar, athygli á erfiðri
stöðu sjálfstæðra fjölmiðla. Í viku-
legum pistli hér á síðum Morgun-
blaðsins hélt ég því fram að stjórn-
málamenn ættu að plægja
jarðveginn fyrir fjölbreytta flóru
fjölmiðla enda tryggi ekkert betur
að réttar upplýsingar séu dregnar
fram og að ólík sjónarmið fái að
heyrast. Engin töfralausn sé til en
því miður séu engar líkur á því að
pólitísk samstaða náist um að draga
ríkið út úr fjölmiðla- og afþreying-
arrekstri. Leikreglunum verði því
ekki breytt að þessu leyti.
Það er hins vegar gleðilegt að
menntamálaráðherra virðist ætla að
vinna að því að draga Ríkisútvarpið
út af samkeppnismarkaði að einu
leyti; samkeppni um auglýsingar.
Auðvitað mun það skipta miklu ef
bönd eru sett á ríkisfyrirtæki á sam-
keppnismarkaði en það er hægt að
jafna leikinn meira og styðja við
sjálfstæða fjölmiðla, ýta undir fjöl-
breytileikann og byggja undir
frjálsa miðlun upplýsinga:
„Afnám virðisaukaskatts af
áskriftum prent-, ljósvaka- og net-
miðla getur orðið mikilvægt skref í
átt að því að styrkja rekstur sjálf-
stæðra fjölmiðla. Og um leið leið-
rétta – þó ekki sé nema að litlu leyti
– stöðuna gagnvart Ríkisútvarpinu.
Afnám virðisaukaskattsins væri ekki
aðeins viðurkenning á mikilvægi
frjálsra fjölmiðla heldur einnig yf-
irlýsing um nauðsyn þess að leið-
rétta lítillega samkeppnisstöðu á
fjölmiðlamarkaði – gera hana örlítið
sanngjarnari og heilbrigðari.“
Eftir Óla Björn
Kárason » Fátt er hættulegra
fyrir frjálsa fjöl-
miðlun en að vera háð
opinberum styrkjum og
nefndum á vegum hins
opinbera sem skammta
úr hnefa fjármuni.
Óli Björn Kárason
Höfundur er þingmaður Sjálfstæð-
isflokksins.
Þversagnir um frelsi fjölmiðla og ríkisrekstur