Morgunblaðið - 20.06.2018, Blaðsíða 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JÚNÍ 2018
Dreifingardeild Morgunblaðsins
leitar að dugmiklu fólki 13 ára og
eldra, til að bera út blöð.
Allar nánari upplýsingar
í síma 569 1440
eða dreifing@mbl.is
Hafðu samband í dag
www.mbl.is/laushverfi
Hressandi
morgunganga
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Myndin, sem er búin að vera nokkur
ár í vinnslu, varð til sökum þess að við
gátum ekki annað en gert þessu efni
skil með þessum hætti – enda ein-
staklega spennandi efniviður,“ segir
rithöfundurinn Vibeke Nørgaard
Nielsen um heimildarmyndina Saga-
færden sem fjallar um ferðir danska
málarans Johannesar Larsen um
íslenskar söguslóðir. Myndin verður
frumsýnd í Norræna húsinu annað
kvöld kl. 20 þar sem höfundar segja
frá tilurð hennar og er aðgangur
ókeypis. Myndina vann Nørgaard
Nielsen í samvinnu við kvikmynda-
tökumanninn Erik Skibsted.
„Okkur fannst viðeigandi að frum-
sýna hana á Íslandi og færa hana Ís-
lendingum að gjöf á aldarafmæli full-
veldisins og 50 ára afmæli Norræna
hússins. Þetta er okkar leið til að
þakka fyrir allt sem Ísland hefur gef-
ið okkur,“ segir Nørgaard Nielsen
sem frá 1990 hefur alls lagt leið sína
til Íslands 75 sinnum. Danmerk-
urfrumsýningin verður í Árósum
fljótlega og í framhaldinu verður
myndin sýnd víðs vegar um landið.
Markmiðið að varpa ljósi á afrek
Johannesar Larsen
Nørgaard Nielsen rifjar upp að
Gunnar Gunnarsson rithöfundur og
vinur hans, danski rithöfundurinn
Johannes V. Jensen, hafi átt frum-
kvæði að veglegri útgáfu Íslendinga-
sagnanna í Danmörku í tilefni þúsund
ára afmælishátíðar Alþingis árið
1930. „Til að gera veg sagnanna sem
mestan fengu þeir hinn þekkta list-
málara Johannes Larsen til að túlka
sögusviðið í myndum,“ segir Nørga-
ard Nielsen og rifjar upp að Larsen
hafi farið í tvær erfiðar ferðir um Ís-
land 1927 og 1930, en aðal-
fylgdarmaður hans var Ólafur Tú-
bals, bóndi og listmálari í Múlakoti.
„Í tvö sumur fór Larsen um landið
með Ólafi og lauk alls við rúmlega 300
svart/hvítar teikningar, en 188 þeirra
rötuðu í útgáfuna á vegum Gylden-
dal,“ segir Nørgaard Nielsen og
bendir á að Larsen hafi haldið dag-
bækur á ferðalögum sínum. Með eft-
irrit þeirra í höndum kom Nørgaard
Nielsen hingað og þræddi fótspor
Larsen í alls fimm sumur. Að því
loknu skrifaði hún bók um
Íslandsferðir Larsen, Sagafærden,
sem út kom í Danmörku 2004 og var
endurútgefin í fyrra þegar 150 ár
voru liðin frá fæðingu Larsen.
Íslensk þýðing bókarinnar, Lista-
maður á söguslóðum – Johannes
Larsen á ferð um Ísland 1927 og
1930, kom út hérlendis 2015.
Að sögn Nørgaard Nielsen sýna
bréf milli þeirra Larsen-hjóna að
Alhed Larsen, sem líka var málari,
dreymdi um að ferðast með eigin-
manni sínum um Ísland. „En þau
höfðu ekki efni á því,“ segir Nørgaard
Nielsen og bendir á að þegar Larsen
var kominn til Stykkishólms sumarið
1927 hafi hann fengið símskeyti þess
efnis að eiginkona hans lægi fyrir
dauðanum. „Hann flýtti sér heim með
næsta skipi, en á miðri leið hitti hann
son sinn, sem kom með skipi frá Dan-
mörku með þær fréttir að Alhed væri
þegar látin,“ segir Nørgaard Nielsen
og tekur fram að Larsen hafi ávallt
verið sparsamur í dagbókarlýsingum
sínum og því hafi það reynst henni
ómetanlegt að komast yfir dagbækur
Ólafs til að setja hlutina í samhengi.
„Eftir andlát Alhed sneri Larsen sér
að því að teikna blómamyndir,“ segir
Nørgaard Nielsen og bendir á að
Alhed Larsen hafi aðallega málað
blómamyndir.
„Markmið mitt bæði með bókinni
og myndinni var að varpa ljósi á af-
rekið sem Larsen vann fyrir útgáf-
una. Sjálfur hreykti hann sér aldrei af
því sem helgast sennilega af því að
honum fannst hann hafa verið á röng-
um stað, það er fjarri konu sinni þeg-
ar hún lá fyrir dauðanum og and-
aðist,“ segir Nørgaard Nielsen og
tekur fram að sér þykir vænt um að
sífellt fleiri öðlist vitneskju um afrek
Larsen á sínum tíma.
„Þakka fyrir allt sem
Ísland hefur gefið“
Ný mynd um Johannes Larsen sýnd í Norræna húsinu
Morgunblaðið/Einar Falur
Fræðikona Vibeke Nørgaard Nielsen með teikningar Larsen í bakgrunni.
Larsen Berserkjagata í Berserkja-
hrauni og Bjarnarhafnarfjall.
Myndin var teiknuð 20. ágúst 1927.
Johannes Larsen/Birt með leyfi
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
„Það verður eflaust mikið streymi af
áhorfendum þar sem það er margt
fólk sem sækir Þingvelli heim,“ seg-
ir María Sól Ingólfsdóttir, söngkona
og listrænn stjórnandi tónlistar-
hátíðarinnar Sælugauks sem haldin
verður á morgun.
Hátíðin var stofnuð af Maríu og
Ernu Völu Arnardóttur píanóleikara
vorið 2017 og var haldin í Skálholts-
kirkju í fyrra. Í ár verður hátíðin á
Þingvöllum og þá aðallega í Þing-
vallakirkju. „Skálholtskirkja var
svona svolítið grand og þetta er því
aðeins minna í sniðum þetta árið.
Hljómburðurinn er auðvitað allt
öðruvísi í þessari gömlu timbur-
kirkju og umgjörðin öll. Við erum
samt sem áður mjög spennt fyrir því
að prófa Þingvallakirkju og heyra
hvernig tónlistin muni hljóma þar,“
segir María.
Í fyrra starfaði María sem kirkju-
vörður í Skálholti og uppgötvaði þá
hversu vel sú kirkja tæki við tónlist.
„Þess vegna ákváðum við Erna að
halda þar tónleika og síðan vatt það
upp á sig og varð í raun að viku-
langri tónlistarhátíð. Við tónlistar-
mennirnir bjuggum í Skálholti þessa
viku og unnum í okkar tónlist. Í
raun var þetta mjög gott tækifæri
fyrir okkur til að vera út af fyrir
okkur og vinna að okkar sköpun í
rólegu umhverfi. Svo héldum við
tónleika í þrjá til fjóra daga í kirkj-
unni.“
Tónleikar við Lögberg
Eins og áður segir er hátíðin nú á
Þingvöllum, það er vegna þess að
verið er að gera við glugga Skál-
holtskirkju þessa dagana. Frítt er á
tónlistarhátíðina en í fyrra safnaði
tónlistarfólkið frjálsum framlögum
til viðgerða á gluggum Skálholts-
kirkju. „Það var náttúrlega bara
brotabrot af því sem þurfti til en við
ákváðum að halda tónleikana í fyrra
í samráði við kirkjuna og með þetta
að leiðarljósi.“
Hátíðin verður ekki einungis
haldin í Þingvallakirkju heldur flyt-
ur Anna Jónsdóttir, sópransöng-
kona og raddlistarkona, íslensk
þjóðlög við Lögberg klukkan þrjú
og Rakel Andrésdóttir flytur gjörn-
ing kl. 19 fyrir utan Þingvallakirkju.
Skólinn ríkur að tónskáldum
Flytjendur á hátíðinni eru flestir
nemendur við Listaháskóla Íslands
eða nýútskrifaðir þaðan. „Það eru
mörg tónskáld sem koma að hátíð-
inni og mikið af nýju efni sem verð-
ur frumflutt. Listaháskólinn er afar
ríkur að tónskáldum,“ segir María.
Það sé engin sérstök tónlistarstefna
í forgrunni á Sælugauki en ungt fólk
sé áberandi. „Það má heyra dúett
tveggja stelpna, raftónlist, spuna,
klassískan gítar, Bach og ýmislegt
annað.“
Fjölbreytt og þétt dagskrá
Dagskráin er nokkuð þétt og hefj-
ast fyrstu tónleikar á morgun,
fimmtudag, kl. 15. Þar á eftir eru
tónleikar kl. 16, 18, 19, 20 og 21.
„Tónleikarnir eru allir í styttri
kantinum og svo koma atriði inn á
milli. Hugmyndin er að fólk geti
bara verið á staðnum og notið þess-
arar fjölbreyttu dagskrár sem er
einhverskonar grasrót í klassík ef
svo má að orði komast.“
Ásamt þeim viðburðum sem áður
hefur verið minnst á mun Óskar
Magnússon gítarleikari spila á
klassískan gítar kl. 16 ásamt Brynj-
ari Friðriki Péturssyni, fjölbreyttur
hópur flytjenda og tónskálda mun
flytja tónlist sprottna úr einstökum
hljóðheimi kl. 18, hlýða má á klass-
íska tónlistarsamsetningu sem sam-
anstendur af Bach og nýrri tónlist
kl. 20 og lokatónleikarnir verða svo
gjörningur og spuni í boði K.óla og
S.hel.
María leggur áherslu á að um-
hverfi tónleikanna sé sérstakt og að
Sælugaukur sé einstakt tækifæri til
að upplifa grasrót Listaháskólans.
Finna má frekari upplýsingar um
hátíðina og alla viðburði hennar á
Fésbókarsíðu Sælugauks: www.-
facebook.com/saelugaukur.
Grasrót í klassík á Þingvöllum
Tónlistarhátíðin Sælugaukur haldin
á morgun Flestir flytjendur frá LHÍ
Ljósmynd/Þórgunnur Þórsdóttir
Orgelleikur Birgit Djupedal spilaði á orgel á hátíðinni í fyrra. Hún stígur á
svið Sælugauks á nýjan leik á morgun, fimmtudag, kl. 18 í Þingvallakirkju.