Morgunblaðið - 20.06.2018, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 20.06.2018, Blaðsíða 36
MIÐVIKUDAGUR 20. JÚNÍ 171. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Svikin um miða á leikinn 2. Messi búinn að eiga það erfitt 3. Sérsveitin kölluð út í Stigahlíð 4. Rúrik vekur athygli … »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM Fyrstu kórtónleikar orgelsumarsins í dag  Kammerkór Hallgrímskirkju, Schola cantorum, syngur á fyrstu kórtónleikum orgelsumarsins undir stjórn Harðar Áskelssonar í dag kl. 12. Á efnisskránni eru kórperlur eftir Jón Nordal, Sigvalda Kaldalóns, Byrd, Mendelssohn, Bruckner og Händel í bland við íslensk þjóðlög.  Tónleikaröðin Reykjavík Class- ics hefur göngu sína þriðja sum- arið í röð í Eld- borg Hörpu á morgun og stend- ur til 6. ágúst. Á þeim tíma verður daglega boðið upp á hádegistónleika kl. 12.30. Flutt verða verk eftir m.a. Mozart, Beethoven, Schumann og Mendelssohn. Listrænn stjórnandi er Nína Mar- grét Grímsdóttir píanóleikari. Reykjavík Classics hefst í þriðja sinn  Fólk, staðir og hlutir eftir Duncan Macmillan í leikstjórn Gísla Arnar Garðarssonar sem sýnt var á Litla sviði Borgarleikhússins í vor fyrir fullu húsi snýr aftur á svið í febrúar 2019. Nína Dögg Filippusdóttir hlaut nýverið Grímuna sem leikkona ársins í aðal- hlutverki fyrir frammi- stöðu sína í sýning- unni og Sigrún Edda Björnsdóttir Grímuna fyrir leik sinn í aukahlutverki. Fólk, staðir og hlutir sýnd aftur á næsta ári Á fimmtudag Gengur í sunnan 8-15 m/s með rigningu vestantil á landinu. Hægari og léttskýjað um landið austanvert, en þykknar upp síðdegis. Hiti 9 til 18 stig, hlýjast norðaustanlands. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Víða verður léttskýjað á landinu í dag. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast syðra. VEÐUR Breiðablik er í toppsæti Pepsí-deildar kvenna í knattspyrnu eftir sex um- ferðir en fjórir leikir fóru fram í gær. Blikar eru með fullt hús eftir frábæra byrj- un en núverandi meistarar í Þór/KA eru tveimur stigum á eftir. Akureyringarnir töp- uðu sínum fyrstu stigum í gær þegar liðið gerði markalaust jafntefli á Sel- fossi. Valur er ekki langt undan í 3. sætinu. »2-3 Blikar með fullt hús stiga Hægt að gera betur í föstum leikatriðum Stjarnan lyfti sér upp í toppsæti Pepsi-deildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi með sigri á lánlausu liði ÍBV, 2:1. Eyjamenn, sem sitja í næst- neðsta sæti, vörðust vel býsna lengi og hefðu getað siglt heim með gott stig í farteskinu en þeir möguleikar voru að lokum eyðilagðir þegar heimamenn skoruðu sigurmarkið undir lok leiks úr hornspyrnu. »3 Stjarnan fór á toppinn með sigri á ÍBV ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Nína Guðrún Geirsdóttir ninag@mbl.is Þýsku hjónin Christin Irma Schröder og Torsten Ullrich urðu hlutskörpust í matvælasamkeppni þar sem kepptu hugmyndir er varða nýtingu jarð- varma til framleiðslu matvæla. Verk- efni þeirra snýr að nýtingu jarðhita til ræktunar á skordýrum og hlutu þau m.a. tvær milljónir króna í verð- laun. Að sögn Christin varð hug- myndin að verkefninu til á ferðalagi um Ísland. „Við vorum að keyra um landið og spjalla um allar þessar auð- lindir sem finnast á Íslandi og okkur fannst vera hægt að nýta t.d. jarð- varma betur. Ég hef alltaf verið áhugamanneskja um skordýr og hef oft pælt í því hvernig væri hægt að nýta þau í framtíðinni.“ Sjálflærð í skordýraræktun Christin segir að eftir að sam- keppnin var auglýst hafi tekið við mikil rannsóknar- og undirbúnings- vinna en þau eru ekki menntuð í auð- lindagreinum: „Við erum sjálflærð í þessu, við lásum mikið af faglegum greinum og vísindatímaritum til að kynna okkur þetta nánar.“ Christin segist jafnframt bjartsýn á fram- haldið, þótt verkefnið sé á byrjunar- stigi: „Við erum mjög spennt núna þar sem við fáum ekki bara pen- ingastyrk heldur einnig aðstoð við að koma fyrirtækinu af stað.“ Nýsköp- unarmiðstöð Íslands mun útvega þeim faglega aðstoð og munu þau m.a. sitja námskeið í viðskiptaþróun á vegum NÍ. Ýmsir möguleikar í stöðunni Að sögn Christin þarf fyrst og fremst að kanna markaðinn áður en farið er af stað. „Við vitum nú þegar að hægt er að gera ýmislegt með skordýrin. Núna þurfum við að skoða hvort einhver hafi áhuga, hvort þörf- in sé fyrir hendi og svo framvegis. Við erum t.d. að spá í möguleika á skor- Tvær milljónir í skordýr  Nýta jarðhita til ræktunar á skordýrum Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Skordýraáhugafólk Þýsku hjónin Christin Irma Schröder og Torsten Ullrich ætla að nýta jarðhita til ræktunar á skordýrum. Þau eru spenntust fyrir því að þróa prótínpillur úr hráefninu eða nota skordýrin til fiskeldis. dýrum fyrir fiskeldi. Við gætum ein- beitt okkur að því að framleiða lifandi dýr, en einnig unnið úr þeim, t.d. þró- að lyf, nú eða prótín. Vonandi þróast þetta út í eitthvað meira, út í vöruþró- un á skordýrum,“ segir Christin og bætir við að þau séu spenntust fyrir því að þróa prótínpillur úr hráefninu. Christin og Thorsten hafa verið búsett á landinu í rúm tvö ár, en Christin kom fyrst til Íslands fyrir 13 árum sem skiptinemi. Draumurinn er að þróa fyrirtækið á Húsavík. „Við erum mjög ánægð hér. Okkur finnst mikilvægt að samhliða því að náttúruauðlindir séu nýttar sé líka verið að styðja við samfélagið. Hér á Húsavík eru aðallega störf í ferða- þjónustu í boði og þau eru mjög árs- tíðabundin.“ Úrslit matvælasamkeppni Eims og samstarfsaðila undir yfirskriftinni „Gerum okkur mat úr jarðhitanum“ voru kynnt á dögunum. 20 tillögur bárust í samkeppnina, en leitað var að hugmyndum er snúa að nýtingu jarðhita við framleiðslu á mat- vælum og næringarefnum. Dóm- nefnd valdi fjórar tillögur sem kynntar voru við athöfn í menning- arhúsinu Hofi á Akureyri, þar sem keppendur komu fram og kynntu verkefni sín. Urðu þýsku hjónin um- ræddu hlutskörpust og í öðru sæti varð hugmynd Magnúsar Þ. Bjarna- sonar og Þorgerðar Þorleifsdóttur um ræktun heitsjávarrækju á Hjalt- eyri. Eimur er samstarfsverkefni sem snýr að bættri nýtingu orku- auðlinda og aukinni nýsköpun í orkumálum á Norðurlandi eystra. Aðrir samstarfsaðilar voru Nýsköp- unarmiðstöð Íslands, Matarauður Íslands og Íslensk verðbréf. 20 tillögur bárust um nýtingu NÝSKÖPUNARSAMKEPPNI EIMS UM MATVÆLAFRAMLEIÐSLU „Ég er hins vegar ekki alveg nógu ánægður með föstu leikatriðin gegn Argentínu. Mér finnst eins og við hefðum getað notað þau betur,“ sagði miðvörðurinn Kári Árnason þegar Morgunblaðið spjallaði við hann í Kabardinka í gær. Löng inn- köst Arons Einars Gunnarssonar gætu nýst vel gegn Nígeríu en Kára þótti úrvinnslan ekki hafa heppnast nægilega vel eftir löngu innköstin gegn Argentínu. »1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.