Morgunblaðið - 20.06.2018, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 20.06.2018, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JÚNÍ 2018 bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar Enn einn dagur í Paradís Bez t á lambið Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Landlæknisembættið hefur nú birt tilmæli á heimasíðu sinni þess efnis að nú sé sá árstími þegar landsmenn flykkjast út til að njóta útiveru og sólar. Þá þyrfti fólk að hafa í huga að gæta sín á sólinni. Athygli vekur að tilmælin skuli birtast nú, þegar sól- skinsdagarnir á höfuðborgarsvæðinu hafa ekki verið margir það sem af er sumri. Sveinbjörn Kristjánsson, verk- efnastjóri hjá Landlækni, segir að þótt sólin hafi ekki skinið skært í Reykjavík að undanförnu sé full ástæða til að minna fólk á að fara var- lega. „Við erum dálítið sjálfmiðuð. Í Reykjavík er ekki gott veður en það er búið að vera mjög fínt fyrir norðan og austan, bara sól og blíða. Og í heiminum öllum náttúrlega, – það eru Íslendingar úti um allt, t.d. í Rússlandi.“ Á vef landlæknis er skjalið Verum klár í sólinni þar sem finna má ýmis góð ráð um hvernig megi verjast sterkum geislum sólarinnar. Í skjal- inu kemur fram m.a. að ung börn ættu aldrei að vera óvarin í sól, að forðast beri sólina frá 11-15 því þá séu geislar hennar sterkastir og minnt á að nota alltaf sólaráburð. Þar er einnig bent á að sitja í skugganum og verjast þannig sólinni. Þá er einn- ig varað við notkun ljósabekkja þar sem geislunin getur skaðað húðina og augun. Vert er að minna á þau varnaðarorð, þar sem ljósabekkja- notkun hefur aukist talsvert á Ís- landi, sem má m.a. rekja til slæms veðurfars á höfuðborgarsvæðinu í sumar. Landlæknisembættið leggst gegn því að fólk liggi á ljósabekkjum. Um birtingu tilmælanna segir Sveinbjörn: „Við birtum þetta yfir- leitt fyrr á árinu en af því að veðrið hefur verið leiðinlegt drógum við það. En svo er auðvitað sól annars staðar en í Reykjavík. Fólk er bara minnt á að vera varkárt, passa börnin fyrst og fremst og fá ekki of mikla geislun á sig.“ Landlæknir varar við sólinni í vætutíð Morgunblaðið/Ómar Sólskin Íslendingar sækja á Austurvöll þegar veðrið er gott.  Tilmæli birt á vefsíðu Landlæknis  Fólk hvatt til að nota sólarvörn og varast ljósabekki Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Enn virðist vera algengt að ferða- menn gangi örna sinna á almanna- færi. Dóra Sigurðardóttir, bóndi á Vatnsdalshólum í Vatnsdal, Austur- Húnavatnssýslu, kom að ferða- manni, konu, að ganga örna sinna á túni skammt frá bæ Dóru á dögun- um. „Þetta gekk það mikið fram af mér að ég keyrði að henni og talaði við hana. Ég sagði henni að mér þætti þetta ekki kurteisisleg fram- koma við land mitt og fór svo.“ Dóra benti einnig konunni á að það væri salernisaðstaða 100 metrum frá, við Ólafslund. Konan brást ekki vel við, að sögn Dóru, og sagði henni að fara. Hún segir þetta vera vandamál hjá sér og um land allt. Þá fylgi klósett- ferðum ferðamanna fjárhagslegt tjón. „Ef þeir gera þetta inni á tún- unum þá getum við ekki slegið túnin vegna smithættu í fóður handa skepnunum. Heyið verður bara ónýtt.“ Dóra hefur áður orðið vitni að slíkum athöfnum, þrátt fyrir að sal- ernisaðstaðan í Ólafslundi sé skammt frá hennar bæ. Dóra segir svokallaða svefnbíla eiga stóran þátt í vandanum en það eru fólksbílar sem eru notaðir bæði sem farartæki og svefnstaður. „Þetta væri ekki svona mikið vandamál ef það væri minna af þessum svefnbíl- um. Ég myndi segja að þeir væru að- alvandamálið.“ Keyrt yfir túnin Í þau þrjú ár sem Dóra hefur búið á Vatnsdalshólum hefur hún tekið eftir því að ferðamenn hafa verið að keyra inn á túnin. Síðasta sumar var ágangur ferðamanna svo mikill að stundum var ófært að slá túnin. Ferðamenn keyra gjarnan yfir túnin og valda skemmdum á þeim, að sögn Dóru. „Þeir hafa ekkert erindi þarna nið- ur eftir. Þetta er svo mikið vandamál á Íslandi, þeir fara bara á allskonar vegi og allskonar slóðir og ég held að þeir geri sér ekki grein fyrir því að þetta er einkaland. Ef við værum ekki með læst og lokuð hlið sums staðar þá væri ástandið miklu verra.“ Dóra lendir einnig gjarnan í því að fólk berji að dyrum og spyrji hvar Vatnsdalshólarnir séu. „Ég vísa þeim alltaf á stóra hólinn sem er hjá vatn- inu. Þetta er nú oftast mjög indælt og kurteist fólk.“ Ferðamaður gekk örna sinna rétt hjá salerni  Veldur bændum fjárhagstjóni, segir Dóra Sigurðardóttir í Vatnsdal Dóra Sigurðardóttir Héraðssaksóknari hefur ákært tvo karlmenn fyrir að halda tveimur konum í gíslingu í fjórar til sex klst. á heimili annarrar konunnar og annars mannsins í júnímánuði fyrir tveimur árum. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í vikunni. RÚV greindi frá. Mun árásin að- allega hafa beinst að annarri kon- unni sem var þá sambýliskona ann- ars árásarmannsins, en í ákæru kemur fram að hinn maðurinn hafi verið einn með konunum í fyrstu. Er honum gefið að sök að hafa ítrekað hótað þeim líkamsmeið- ingum og svo ráðist á sambýliskonu hins árásarmannsins með því slá hana og halda henni á gólfinu. Hann á að hafa slegið konuna tvisv- ar í andlitið og margoft með krepptum hnefa, skóhorni eða kylfu víðsvegar um líkamann, tekið hana kverkataki og þrengt að, klip- ið með töng í fingur hennar og skorið hár hennar með eggvopni. Báðir mennirnir eru svo ákærðir fyrir að hafa troðið peysu í og yfir munn hennar. Samkvæmt ákær- unni er sambýlismaður konunnar sagður hafa hótað konunum ofbeldi og kynferðisofbeldi í gegnum síma. Hann kom svo á vettvang þar sem hann mun ítrekað hafa hótað þeim líkamsmeiðingum, gripið í hár hinnar konunnar og borið hníf að hálsi hennar og kinn. Hann mun einnig hafa klipið með töng í stóru tá hægri fótar sambýliskonu sinnar. Þá er hann sagður hafa hótað að vinna henni mein, m.a. með því að standa yfir henni með hamar á lofti og koma í veg fyrir að hin konan gæti hringt eftir hjálp. Sambýliskona mannsins krefst þess að mennirnir tveir verði dæmdir til að greiða henni 1,5 m.kr. en hin konan fer fram á 1 m.kr. í skaðabætur. Tveir karlmenn ákærðir fyrir að halda tveimur konum í gíslingu og beita ofbeldi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.