Morgunblaðið - 20.06.2018, Side 19

Morgunblaðið - 20.06.2018, Side 19
19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JÚNÍ 2018 Sigling Skútan Xena lagði af stað í gær vestur um land áleiðis til Færeyja. Þaðan heldur skútan 6. júlí og tekur þátt í Viking Offshore Race siglingakeppninni frá Færeyjum til Íslands. Árni Sæberg Flestir ef ekki allir segjast styðja frjálsa fjölmiðlun. Þeir eru að minnsta kosti fáir stjórnmálamennirnir sem ekki hafa strengt þess heit að standa vörð um frelsi fjölmiðla – lagt áherslu á að frjáls fjölmiðlun sé ein grunnstoð frelsis og lýðræðis. Þeir eru hins vegar í minnihluta sem benda á þá mótsögn sem felst í því að berjast fyrir sjálfstæðum fjölmiðlum og standa vörð um ríkisrekna miðlun frétta og upplýsinga. Í gegnum árin hefur verið áhuga- vert að fylgjast með umræðum á Al- þingi um stöðu fjölmiðla og ekki síst umræðum um fjárlög og Ríkis- útvarpið. Af og til er lýst yfir áhyggjum af stöðu frjálsra fjölmiðla, en þær áhyggjur hafa aldrei rofið skarð í varnarmúrinn sem byggður hefur verið um ríkisrekstur fjöl- miðla. Fáar ef nokkrar stofnanir eru kærari í hugum meirihluta þing- manna en Ríkisútvarpið. Ríkisútvarpið hefur notið þess að vera í mjúkum og hlýjum faðmi stjórnmálamanna. Á sama tíma og frjálsir fjölmiðlar berjast flestir í bökkum hefur fjárhagslegur hagur Ríkisútvarpsins stöðugt vænkast og dagskrárvaldið orðið öflugra. Nú er svo komið að fáir stjórnmálamenn treysta sér að fara gegn ægivaldi ríkisrekinnar fjölmiðlunar. Þess vegna er leikreglunum ekki breytt til að jafna stöðuna. Stjórnmála- maður sem berst fyrir breytingum veit hversu auðvelt það er að taka gagnrýnendur út af sakramentinu og takmarka aðgang þeirra að ljós- vaka ríkisins. Listamenn og sjálf- stæðir dagskrár- og kvikmyndagerðar- menn, sem öðrum fremur ættu að vera gagnrýnendur valds- ins, hafa flestir valið þögnina eða tekið varð- stöðu með ríkisrekstr- inum. Velvilji í Efsta- leiti getur skipt sköpum fyrir þá sem þurfa að koma verkum sínum á framfæri. Þá er best að styggja ekki valdið. Afleiðing þessa alls er lítil um- ræða og sinnuleysi gagnvart því hvort þeim gríðarlegu fjármunum sem eiga að renna á hverju ári til að efla listir og menningu sé vel varið. Þó eru helstu rökin fyrir tilvist Rík- isútvarpsins mikilvægt hlutverk þess að styðja við sögu lands og þjóðar, menningu og listir. Þegar pólitíska markmiðið er fyrst og síð- ast að tryggja öfluga skjaldborg um Efstaleiti, skiptir meðferð þeirra milljarða sem skattgreiðendur láta af hendi á hverju ári ekki mestu. Strandhögg ríkisins Um það verður ekki deilt að staða Ríkisútvarpsins er sterk. Á liðnu ári fékk stofnunin liðlega 4,1 milljarð króna frá skattgreiðendum í formi útvarpsgjalds og 2,3 milljarða í tekjur af auglýsingum. Heildar- tekjur voru því rúmlega 6,4 millj- arðar króna. Á sama tíma og fjárhagslegur styrkur Ríkisútvarpsins hefur auk- ist hefur staða sjálfstæðra fjölmiðla verið að veikjast. Hækkun virðis- aukaskatts á áskriftir blaða og tíma- rita úr 7% í 11% í ársbyrjun 2015 var þungt högg – ég hef líkt hækkuninni við strandhögg ríkisins í rekstur frjálsra fjölmiðla. Lögþvingaðar áskriftartekjur – útvarpsgjald – Ríkisútvarpsins – bera ekki virð- isauka. Enginn getur sagt upp áskrift að ríkisrekinni fjölmiðlun, en allir eru frjálsir að eiga viðskipti við einkarekna fjölmiðla. Á sama tíma og samkeppnis- staðan var skekkt enn frekar með skattlagningu áskrifta hafa sjálf- stæðir fjölmiðlar þurft að glíma við aukna samkeppni við erlenda aðila; Facebook, Google og aðrir net- og samfélagsmiðlar sækja inn á auglýs- ingamarkaðinn. Frjáls fjölmiðlun á Íslandi stend- ur höllum fæti. Frammi fyrir for- réttindum ríkisrekins fjölmiðils og afli alþjóðlegra stórfyrirtækja mega sjálfstæðir íslenskir fjölmiðlar sín lítils. Ekki síst þess vegna hef ég dáðst að þeim einstaklingum sem hafa haslað sér völl í fjölmiðlun og lagt allt sitt undir í ójöfnum leik. Skiptir engu þótt mér falli ekki allt í geð sem þar er gert. Frjálsir fjöl- miðlar eru forsenda opinnar lýðræð- islegrar umræðu og veita nauðsyn- legt aðhald stjórnvöldum, atvinnulífinu og helstu stofnunum samfélagsins. Leikreglurnar eru óréttlátar Á síðustu dögum hafa forráða- menn sjálfstæðra ljósvakamiðla komið fram og gagnrýnt Ríkis- útvarpið fyrir að nýta sér yfirburða- stöðu á markaði með því að „ryk- suga upp“ allt auglýsingafé í tengslum við HM í knattspyrnu. Út- varpsstjóri hefur svarað og haldið því fram að farið sé að öllum leik- reglum. Engin ástæða er til að efast um staðhæfingu útvarpsstjóra. Vandinn er sá að leikreglurnar eru óréttlátar – hygla þeim sterka sem lifir góðu lífi í krafti lögverndaðrar stöðu á meðan aðrir þurfa að sætta sig við brauðmola sem falla af borði forréttinda. Í stað þess að ráðast að rót vand- ans – sem er forréttindi ríkisrek- innar fjölmiðlunar – virðast stjórn- völd fremur ætla að velja flókið kerfi millifærslna og ríkisstyrkja (þrátt fyrir ömurlega reynslu okkar Ís- lendinga). Í Morgunblaðinu síðast- liðinn mánudag er haft eftir mennta- málaráðherra að verið sé að skoða stofnun fjölmiðlasjóðs sem styrki gerð menningar- og fréttaefnis, blaðamannasjóðs sem styrki rann- sóknarverkefni óháð miðlum og dreifbýlissjóðs fyrir miðla í dreifbýli. Þá kemur einnig til greina að inn- leiða þróunar- og nýsköpunarstyrki og beina rekstrarstyrki. Galin hugmynd Fátt er hættulegra fyrir frjálsa fjölmiðlun en að vera háð opinberum styrkjum og nefndum á vegum hins opinbera sem skammta úr hnefa fjármuni til að standa undir ein- stökum þáttum í rekstrinum. Fjöl- miðlun sem er háð hinu opinbera með beinum hætti verður aldrei frjáls nema í orði. Ég hef ekki lagt það í vana minn að nota stóryrði en nauðsyn brýtur regluna. Það er galin hugmynd að reyna að stuðla að frjálsri og óháðri fjölmiðlun með umfangsmiklum millifærslum og ríkisstyrkjum. Verst er að með millifærslum og styrkjum er í raun verið að réttlæta ranglætið á fjölmiðlamarkaði og komast þannig hjá því að fjarlæga meinið sjálft. Undir lok síðasta árs vakti ég, einu sinni sem oftar, athygli á erfiðri stöðu sjálfstæðra fjölmiðla. Í viku- legum pistli hér á síðum Morgun- blaðsins hélt ég því fram að stjórn- málamenn ættu að plægja jarðveginn fyrir fjölbreytta flóru fjölmiðla enda tryggi ekkert betur að réttar upplýsingar séu dregnar fram og að ólík sjónarmið fái að heyrast. Engin töfralausn sé til en því miður séu engar líkur á því að pólitísk samstaða náist um að draga ríkið út úr fjölmiðla- og afþreying- arrekstri. Leikreglunum verði því ekki breytt að þessu leyti. Það er hins vegar gleðilegt að menntamálaráðherra virðist ætla að vinna að því að draga Ríkisútvarpið út af samkeppnismarkaði að einu leyti; samkeppni um auglýsingar. Auðvitað mun það skipta miklu ef bönd eru sett á ríkisfyrirtæki á sam- keppnismarkaði en það er hægt að jafna leikinn meira og styðja við sjálfstæða fjölmiðla, ýta undir fjöl- breytileikann og byggja undir frjálsa miðlun upplýsinga: „Afnám virðisaukaskatts af áskriftum prent-, ljósvaka- og net- miðla getur orðið mikilvægt skref í átt að því að styrkja rekstur sjálf- stæðra fjölmiðla. Og um leið leið- rétta – þó ekki sé nema að litlu leyti – stöðuna gagnvart Ríkisútvarpinu. Afnám virðisaukaskattsins væri ekki aðeins viðurkenning á mikilvægi frjálsra fjölmiðla heldur einnig yf- irlýsing um nauðsyn þess að leið- rétta lítillega samkeppnisstöðu á fjölmiðlamarkaði – gera hana örlítið sanngjarnari og heilbrigðari.“ Eftir Óla Björn Kárason » Fátt er hættulegra fyrir frjálsa fjöl- miðlun en að vera háð opinberum styrkjum og nefndum á vegum hins opinbera sem skammta úr hnefa fjármuni. Óli Björn Kárason Höfundur er þingmaður Sjálfstæð- isflokksins. Þversagnir um frelsi fjölmiðla og ríkisrekstur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.