Morgunblaðið - 20.06.2018, Side 16

Morgunblaðið - 20.06.2018, Side 16
BAKSVIÐ Steingrímur Eyjólfsson steingrimur@mbl.is Í Fjármálainnviðum, riti Seðla- banka Íslands um greiðslumiðlun og fjármálainnviði sem nýlega kom út, kemur fram að um þessar mundir standi yfir endurnýjun á helstu grunninnviðum sem notaðir hafa verið í íslenska fjármálakerf- inu um áratugaskeið. Heildarfjár- festingin í upplýsingatækni fjár- málakerfisins verður sú stærsta frá upphafi og löngu tímabær, að mati Seðlabankans. Endurnýjunin verður í innlána- og innra greiðslukerfi bankanna, millibankagreiðslukerfi Seðlabank- ans og verðbréfauppgjörskerfi Nasdaq-verðbréfamiðstöðvar. Með endurnýjuninni verður horfið frá „heimasmíð“ yfir í stöðluð alþjóðleg kerfi. Löngu tímabær endurnýjun „Þetta er ferli sem er löngu tíma- bært,“ segir Guðmundur Kr. Tóm- asson, framkvæmdastjóri fjármála- innviða hjá Seðlabankanum. „Allar innlánastofnanir hafa verið að nota sama gunninnviðakerfið um ára- tugaskeið. Þessi kerfi eru öll í grunninn orðin 30-40 ára gömul.“ Með endurnýjun á helstu fjármálainnviðum sem notaðir eru í íslensku fjármálakerfi munu staðl- aðar lausnir leysa gamla kerfið af hólmi og tæknileg skil ólíkra inn- viða verða ljósari. Búist er við því að tækniumhverfið verði sveigjan- legra og öruggara, og leiði þannig til aukinnar rekstrarhagkvæmni. Seðlabankinn telur þessa endur- nýjun hafa verið löngu tímabæra og nauðsynlega, þó að endurnýjunar- ferlinu fylgi tímabundin áhætta. Erfiðleikar við endurnýjun Landsbankinn reið á vaðið í nóv- ember í fyrra, en bankinn endur- nýjaði innlána- og innra greiðslu- miðlunarkerfi sitt. Gangsetning nýrra kerfa bankans fór fram eftir margar prófanir og neyðaræfingu. Við innleiðinguna og í kjölfar henn- ar voru ýmiss konar ófyrirséð atvik sem höfðu áhrif á virkni mikil- vægra greiðslu- og uppgjörskerfa. Orsakir atvikanna voru yfirleitt samskiptalegs eðlis, þ.e. villur vegna tengingar eldri kerfanna og nýrra. Mörg eldri kerfanna inni- halda tímabundnar lausnir, og þekking bankanna og RB á sam- spili þessara kerfa hefur minnkað undanfarin ár. Guðmundur segir að árið 2001 hafi RB þróað millibankakerfi fyrir Seðlabankann og jöfnunarkerfi ári síðar, ofan á þessa gömlu innviði. „Þessi kerfi voru mjög sérstök því erlendis var ekki þekkt að öll greiðslumiðlun ætti sér stað í raun- tíma. Það voru þessir gömlu inn- viðir sem gerðu þetta mögulegt og voru bylting á sínum tíma. En nú eru þessi kerfi orðin úrelt og forrit- unarmál þeirra ekki lengur notað, svo það er löngu orðið nauðsynlegt að skipta þeim út með vísun til áhættu og aðlögunarhæfni.“ Í lok ársins ætlar Íslandsbanki að ráðast í sömu endurnýjanir og Landsbankinn og Seðlabankinn hefur ákveðið að gangsetja nýtt millibankagreiðslukerfi á fyrri hluta ársins 2019. Álag og áhætta við innleiðingu Innleiðingu nýrra fjármálainn- viða fylgir bæði álag og áhætta. Áhætta við gangsetningu nýrra fjármálainnviða gæti haft í för með sér smitáhrif á virkni mikilvægra greiðslumiðla, millibankagreiðslu- kerfa og verðbréfauppgjörskerfa. Því er mikilvægt að undirbúa gang- setningu vel, með prófunum og áhættustýringu. Líklegt er að við endurnýjun kjarnainnviðanna geti komið upp atvik sem geta haft áhrif á samspil eldri og nýrri innviða, líkt og í innleiðingu Landsbankans á sínum kerfum síðasta haust. Bráðnauðsynleg fjárfesting sem hleypur á milljörðum Morgunblaðið/Ómar Innviðir Seðlabanki Íslands telur endurnýjun innviða bráðnauðsynlega. Fjármálainnviðir » Fjármálainnviðir eru ein af þremur meginstoðum fjár- málakerfisins. Hinar tvær eru fjármálastofnanir og fjár- málamarkaðir. » Seðlabankinn lýsir fjár- málainnviðum sem pípulögn- um eða vegakerfi fjármála- kerfisins. » Í riti Seðlabankans segir að það skipti miklu máli fyrir þjóðarbúskap og stöðugleika fjármálakerfisins að innvið- irnir séu öruggir, skilvirkir og hagkvæmir í rekstri. » Fjármálainnviðir landsins eru margir byggðir ofan á gömul og úrelt kerfi.  Álag og áhætta gæti fylgt endurnýjun helstu fjármálainnviða að mati Seðlabankans 16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JÚNÍ 2018 Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is PLUSMINUS | OPTIC 20. júní 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 109.34 109.86 109.6 Sterlingspund 143.94 144.64 144.29 Kanadadalur 82.37 82.85 82.61 Dönsk króna 16.937 17.037 16.987 Norsk króna 13.303 13.381 13.342 Sænsk króna 12.231 12.303 12.267 Svissn. franki 109.74 110.36 110.05 Japanskt jen 0.9949 1.0007 0.9978 SDR 153.83 154.75 154.29 Evra 126.25 126.95 126.6 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 151.9632 Hrávöruverð Gull 1281.25 ($/únsa) Ál 2238.5 ($/tonn) LME Hráolía 73.06 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Útlán til heimila í erlendum gjald- miðlum eru nánast engin eða um 0,1% af vergri landsfram- leiðslu, en hlutfallið fór hæst upp í 22,4% í lok árs 2008. Þetta kemur fram í mark- aðspunktum grein- ingardeildar Arion banka. Þar sem heimilin hafa stýrt hjá beinni gengisáhættu getur Seðlabankinn brugðist við samdrætti með því að lækka stýrivexti. Lægri vextir ættu að öllu öðru óbreyttu að veikja gengið en það hefur ekki jafn neikvæð áhrif og fyrir hrun þar sem heimilin eru ekki jafn ber- skjölduð fyrir gengisáhættu og þá. Þá bendir mun betri skuldastaða heimila og lægra vægi einkaneyslu til þess að betri forsendur séu fyrir „mjúkri lendingu“ nú en fyrir hrun, að mati Arion banka. Lán til heimila í erlend- um myntum nær engin Mynt Heimilin skulda í krónum. STUTT Fjórir stærstu lífeyrissjóðir landsins báru lítið úr býtum í hlutafjárútboði í Arion banka sem lauk á fimmtudag og tilkynnt var um á föstudaginn síð- asta. Þannig er heildareign sjóðanna rétt undir 1,8% af útgefnu hlutafé bankans. Sjóðirnir fjórir sem um er að ræða eru Lífeyrissjóður starfsmanna rík- isins, en hrein eign sjóðsins (ásamt Lífeyrissjóði hjúkrunarfræðinga sem rekinn er undir sama hatti) nam 825,7 milljörðum króna um nýliðin áramót, Lífeyrissjóður verslunarmanna, sem átti 665 milljarða í hreina eign til greiðslu lífeyris um áramótin síðustu, Gildi, sem átti 517,4 milljarða, og Birta lífeyrissjóður, sem átti rúmlega 348 milljarða. Samtals áttu sjóðirnir því um síðastliðin áramót um 2.356 milljarða króna. Ekki hefur verið gefið upp hversu miklu hlutafé sjóðirnir skráðu sig fyr- ir í útboðinu en heimildir Morgun- blaðsins herma að áskriftir lífeyris- sjóða hafi verið skornar niður um 84%. Mest er hlutdeild Gildis eða 0,65% af útgefnu hlutafé bankans. Þá er LSR með 0,53%. Lífeyrissjóður versl- unarmanna er með 0,4% og Birta 0,185%. Við lokun markaða síðdegis í gær var markaðsvirði Arion banka um 172 milljarðar króna. Eignarhlutdeild sjóðanna í Arion banka nemur því rétt ríflega þremur milljörðum króna, eða sem nemur 0,013% af heildar- eignum þeirra. ses@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Arion Bankinn var skráður á hluta- bréfamarkað á föstudaginn. Stærstu fjárfestar landsins með 1,8%  Fjórir stærstu lífeyrissjóðirnir með litla hlutdeild í Arion banka

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.