Morgunblaðið - 20.06.2018, Page 22

Morgunblaðið - 20.06.2018, Page 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JÚNÍ 2018 ✝ Birgir Einars-son fæddist í Reykjavík 17. maí 1947. Hann lést á dvalarheimilinu Grund 9. júní 2018. Foreldrar Birgis voru Einar Gísla- son og Esther Þor- finnsdóttir. Systk- ini hans eru Róbert Lauritsen, Sigurð- ur Dagsson, Gísli, Einar Emil og Emilía Hildur. Birgir fluttist með foreldrum sínum og systkinum til Kefla- víkur og dvaldi þar til 14 ára aldurs er þau fluttu til Nes- kaupstaðar. Fjölskyldan flutti til Keflavíkur ári síðar en Birg- ir varð eftir í Neskaupstað og lærði prentiðn hjá Haraldi Guð- mundssyni prentsmiðjustjóra. Birgir lærði á trompet hjá Har- aldi og spilaði með ýmsum hljómsveitum í gegnum árin, m.a. um tíma í Lúðrasveit Reykjavíkur, stórhljómsveit FÍH, hljómsveitinni Galdrakörl- um o.fl. Í Neskaupstað eignaðist hann dóttur, Hólmfríði, með Jónu Ólafsdóttur. Birgir flutti til Reykjavíkur og síðar til Kefla- skóla á Akranesi, Réttarholts- skóla, Brúarskóla og Laug- arnesskóla og var skólastjóri Lágafellsskóla um tveggja ára skeið. Birgir kvæntist Hrafnhildi Kristjánsdóttur árið 1972 og eignuðust þau tvo syni saman, Börk Hrafn og Daða. Fyrir átti Birgir Hólmfríði og Hrafnhild- ur átti soninn Kristján Björn Þórðarson sem Birgir gekk í föðurstað. Maki Hólmfríðar er Ómar Sverrisson og eru börn þeirra Örn, Hilmir Johansen og Gígja. Maki Kristjáns Björns er Berglind Rán Ólafsdóttir. Af fyrra sambandi á Kristján Björn Móeiði og Hrafnhildi með Nönnu Hlíf Ingvadóttur. Dóttir Berglindar frá fyrra sambandi er Andrea Lóa Guðnadóttir. Maki Barkar Hrafns er Ragn- heiður Þorleifsdóttir og eru börn þeirra Brynhildur og Kol- finna. Af fyrra sambandi á Börkur Hrafn Börk Þór með Önnu Christinu Rosenberg. Börn Ragnheiðar af fyrra sam- bandi eru Kristófer Axel og Ingibjörg Emelía. Maki Daða er Rún Ingvars- dóttir og eru dætur þeirra Lóa, Rut og Fríða. Útför Birgis fór fram í kyrr- þey 14. júní 2018 að ósk hins látna. víkur þar sem hann vann sem setjari í prentsmiðjunni Gu- tenberg í Reykja- vík og Prentsmiðju Keflavíkur auk þess sem hann var ritstjóri Suður- nesjatíðinda um tíma. Birgir var mikill íþróttamaður, spil- aði fótbolta með Val og varð m.a. Íslandsmeist- ari með Keflavík. Birgir keppti einnig í frjálsum íþróttum og setti ófá héraðsmet í hlaupa- tengdum greinum. Birgir lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1972 og kenndi við Kirkju- bæjarskóla á Síðu sem leiddi til náms við Kennaraháskóla Ís- lands þaðan sem hann lauk kennaranámi með handmenntir sem aðalfag árið 1985. Birgir lauk meistaranámi í uppeldis- og menntunarfræðum frá Há- skóla Íslands árið 2000. Birgir hafði mikinn áhuga á uppeldis- og menntamálun og ritaði greinar og erindi um mála- flokkinn. Birgir kenndi m.a. í Grunda- Hann Birgir mágur minn hef- ur kvatt okkur, Birgir þessi frá- bæri drengur kveður allt of snemma, aðeins 71 árs. Ég kynntist Bigga þegar ég fór að stíga í vænginn við bróður hans Sigga. Biggi bjó heima hjá Sigga og því vorum við þrjú mikið sam- an. Seinna varð hann svaramaður í brúðkaupinu okkar og bjó hjá okkur fyrstu árin þegar við byrj- uðum að búa sem var yndislegt því Biggi hafði svo ótrúlega góða nærveru. Biggi og Siggi áttu margt sameiginlegt enda albræð- ur, töluvert líkir og miklir vinir. Þegar Biggi og Habba fóru að búa þá fórum við fyrst að ferðast um landið, alltaf var vel tekið á móti okkur hjá Bigga og Höbbu, þau opnuðu heimilið sitt fyrir okkur. Fyrst var það Neskaup- staður áður en hringvegurinn var opnaður, Kirkjubæjarklaustur margsinnis öll árin og Akranes, mjög eftirminnilegar heimsóknir og góðar minningar. Það var fjöl- breytt í gegnum árin að heim- sækja þau hjón austur á Klaustur á þann fallega stað, fyrst í hjúkrunaríbúð, svo í glæsilegt bjálkahús sem þau reistu og var þeim mjög kært, síðan fallega sumarhúsið þeirra sem Biggi var endalaust að byggja og bæta og Habba endalaust að planta trjám. Tíminn leið og fjölskyldan stækkaði, þau ólu upp sína þrjá frábæru stráka sem passaði vel þegar við mættum til þeirra með þrjá stráka, þá var alltaf mjög glatt á hjalla. Biggi var sonum okkar afskaplega kær. Biggi var mikill pabbi og strákarnir hans fengu kennslu í mörgu hjá pabba sínum, t.d. veiði margskonar, fjöl- breyttri tónlist, smíðum og íþróttum. Bigga var margt til lista lagt, hann var mikill veiði- maður, hann var einnig mjög lag- hentur og mikill smiður og hönn- uður í leðri. En músíkin var hans líf og yndi. Biggi með trompetinn var alltaf jafn skemmtilegt, hann elskaði djass. Biggi var ótrúlega góður tónlistarmaður. Biggi stundaði íþróttir af lífi og sál, sem ungur maður stundaði hann frjálsar og fótbolta, ótrú- lega snöggur og snjall svo eftir var tekið og það var gaman þegar Biggi gekk í Val og þeir bræður spiluðu saman fótbolta í meist- araflokki og nutu þess alveg í botn. Biggi velti fyrir sér á sínum tíma hvað við hjónin eyddum allt í einu miklum tíma í golfið, hann las sér til um það og kynnti sér það vel, síðan byrjaði hann að æfa sjálfur golf. Biggi féll alveg fyrir golfinu og Habba sá að ef hún ætlaði vera með Bigga sínum þá væri ekkert í boði annað en að byrja að æfa golf, sem hún gerði. Þau áttu margar yndislegar stundir saman í golfinu bæði á höfuðborgarsvæðinu og fyrir austan þegar þau dvöldu í sum- arhúsinu sínu fallega á Kirkju- bæjarklaustri og erlendis. Allar minningar um Bigga eru mér mjög dýrmætar, Biggi var gull af manni, hjartahlýr, sannur vinur, gleðigjafi og ótrúlega hjálpsamur. Eitt af mörgum áhugamálum hans var rauðvín og það var mjög fróðlegt og gaman að drekka rauðvínsglas með þeim hjónum, dásamlegt. Elsku Habba, Daði, Börkur Hrafn, Kristján Björn, Hólmfríð- ur og fjölskyldur, Guð gefi ykkur öllum styrk. Hvíl í friði kæri mágur, Ragnheiður Lárusdóttir. Ég vil með þakklæti og virð- ingu minnast Birgis Einarssonar félaga míns og vinar. Það er nefnilega margt sem við Birgir eigum sameiginlegt. Minningar um samverustundir okkar eru mér dýrmætar, þó stuttar væru og stopular; aðeins sem örskots- blik á krossgötum langrar veg- ferðar. Dýrmætastar eru sameig- inlegir afkomendur okkar; tvær yndislegar stúlkur, Brynhildur og Kolfinna Barkardætur. Við Birgir vorum báðir trompetleik- arar og prentarar. Leiðir okkar lágu fyrst saman í Lúðrasveit Reykjavíkur, síðan í Ríkisprent- smiðunni Gutenberg og að lokum í Stórsveit öðlinga. Þá er ótalið hvernig við um síðir tengdumst fjölskylduböndum sem voru okk- ur báðum afar ánægjuleg og dýr- mæt, og verða það sem upp úr stendur og vara um ókomin ár. Birgir hóf ungur prent- og tón- listarnám í Neskaupstað hjá Har- aldi Guðmundssyni, prentsmiðju- stjóra og tónlistarkennara, en lauk námi í Reykjavík. Hann kaus síðar að breyta um starfs- vettvang, yfirgaf prentverkið, fór í Kennaraháskólann og sinnti kennslu síðan. En trompetinn lagði hann aldrei á hilluna þrátt fyrir mörg önnur áhugamál. Hann var góður trompetleikari, hafði mjög fallegan tón, gott tón- eyra og næma tilfinningu fyrir dýrmætum eiginleikum djasstón- listar. Stundum var eins og Chet Baker væri mættur á svæðið. Við í Stórsveit öðlinga nutum liðsinn- is Birgis og góðrar nærveru um stund og fyrir þann tíma erum ég og félagar mínir í öðlingasveitinni afar þakklátir og sendum að- standendum Birgis innilegar samúðarkveðjur. Sverrir Sveinsson. Birgir Einarsson ✝ Þórunn Guðna-dóttir fæddist 3. nóvember 1928 á Lokastíg 13, Reykjavík. Hún lést á hjúkrunarheimil- inu Mörk 2. júní 2018. Foreldrar henn- ar voru hjónin Sig- ríður Sigfúsdóttir Thorarensen ljós- móðir, f. 1894, d. 1982, og Guðni Árnason versl- unarstjóri, f. 1890, d. 1958. Þór- unn átti eina systur, Stefaníu rektors- og bankaritara, f. 1924, d. 1997. Þórunn giftist eftirlifandi eig- inmanni sínum, Axel Kristjáns- syni hæstaréttarlögmanni, 10. apríl 1954. Axel fæddist 20. nóv- ember 1928, sonur hjónanna Vil- helmínu Kristínar Örum Vil- helmsdóttur húsmóður, f. 1904, d. 1976, og Kristjáns Karlssonar forstjóra, f. 1893, d. 1981. Börn Þórunnar og Axels eru: 1) Hann býr með Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur og er dóttir þeirra Nína. 3) Karl hæstaréttardómari, f. 1962, kvæntur Margréti Reynisdóttur, stjórnunar-, markaðs- og mat- vælafræðingi. Dætur þeirra eru: a) Sigríður, f. 1996; b) Stefanía Ásta, f. 1999. 4) Sigríður tann- læknir, f. 30. júlí 1964, gift Ragnari Thorarensen, viðskipta- og landfræðingi. Dætur þeirra eru: a) Ólöf, f. 1997; b) Þórunn, f. 2000; c) Kristín, f. 2004. Þórunn ólst upp í Reykjavík en dvaldist á sumrum í sum- arhúsi fjölskyldunnar, Látalæti á Kjalarnesi, og hjá föðurfólki sínu í Landsveit. Hún varð stúd- ent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1948. Hún starfaði um tíma hjá Útvegsbankanum við Lækjartorg en eftir að hún gift- ist helgaði hún starfskrafta sína heimili og fjölskyldu en sinnti jafnframt margvíslegum sjálf- boðaliðastörfum á vettvangi Rauða krossins um langt árabil. Þau Axel bjuggu á Lokastíg 13 í tíu ár og Skeggjagötu 4 í 52 ár eða þar til Þórunn fluttist á hjúkrunarheimilið Mörk árið 2016. Útför Þórunnar fór fram 15. júní 2018. Guðni, doktor í jarðeðlisfræði, f. 20. júní 1955, kvæntur Svanfríði Sigrúnu Franklíns- dóttur, kennara, upplýsinga- og bókasafnsfræðingi. Börn þeirra eru: a) Egill Árni, f. 1985. Hann býr með Hólmfríði Björk Sigurðardóttur og er sonur þeirra Axel Árni; b) Þórunn Eva, f. 1988. Hún býr með Ólafi Pálssyni og er dóttir þeirra Sóley Harpa; c) Gyða Katrín, f. 1994. Hún býr með Agli Péturssyni. 2) Kristín sér- kennari, f. 27. júlí 1957, gift Sig- urði Haukssyni, tölvunar- fræðingi og flugumferðarstjóra. Synir þeirra eru: a) Daði, f. 1983. Hann er kvæntur Ingunni Tan- gen og eru börn þeirra Gunnar, Herdís og Björg; b) Helgi, f. 1985. Hann býr með Unu Eydísi Finnsdóttur; c) Axel, f. 1987. Í æsku minni var ég svo hepp- inn að fá að dvelja löngum stund- um hjá ömmu og afa á Skeggjó, Skeggjagötu 4. Þar fékk ég frelsi til að vera strákur og taka mér ýmislegt misviturlegt fyrir hend- ur. Allt frá því að ræna ömmu og senda afa fjárkúgunarbréf yfir í að þykjast vera prestur og skíra dúkkur Þórunnar Evu frænku minnar. Í vinnukonuherberginu svo- kallaða á Skeggjó átti ég alltaf vísa vinnuaðstöðu og snemma á lífsleið minni stundaði ég þar skrifstofuleik af miklu kappi og síðar á lífsleiðinni lærdóm af litlu kappi. Ef ég vildi gista var amma snögg að búa um mig þar inni. Þegar ég gisti á Skeggjó var mikið spilað á kvöldin og eru það eftir- minnilegar gleðistundir. Sem barn fékk ég að fylgja ömmu þegar hún fór að afgreiða í Rauðakrossbúðinni og að labba með bókavagninn á Borgarspítal- anum. Við fórum saman að kaupa inn og ég man alltaf hversu spar- söm hún var og nýtin. Á matmálstímum fékk ég dásamlegan mat sem amma eldaði af sinni einstöku snilld. Fiskiboll- urnar hennar frægu elskuðu öll börn og ég held að mér hafi þótt allt gott sem var borið fram með makkarónu- og kartöfluuppstúf ömmu. Best af öllu þótti mér lík- legast að fá hjá henni slátur. Í dag hef ég dálæti á öllum mat sem minnir mig á matinn hennar ömmu. Amma var leikin við bakst- urinn líka. Ég hélt mikið upp á súkkulaðikökuna hennar með rab- arbarasultunni og allir héldu upp á hjónabandssæluna hennar og bollurnar. Ég fór í ótal ferðalög, lengri og styttri, með ömmu og afa og alltaf bjó amma til dýrlegt nesti. Oft lá ferðin upp í Látalæti, litla sum- arbústaðinn þeirra, og þar áttum við saman margar gleðistundir. Í Landsveitina fórum við oft saman á sumrin og á veturna á skíði. Alltaf var yndislegt að koma á Skeggjó. Þar voru oft litlar frænk- ur mínar í pössun hjá ömmu og það var dýrmætt fyrir mann sem hefur gaman af börnum að fá að koma þangað að leika við þær. Ég var mikið á Skeggjó fyrsta árið mitt í háskóla. Amma dekraði við mig og eldaði ofan í mig og við spjölluðum og spiluðum þegar ég nennti ekki að læra. Ef ég nennti ekki að fara heim til mín á kvöldin bjó amma um mig inni í vinnu- konuherbergi. Ég átti það til að leggjast á sófann í stofunni og lagði iðulega höfuðið á púða sem ömmu þótti fínn og vildi helst ekki að væri notaður sem koddi. Amma reiddist mér aldrei en tók upp á því að fela kodda við hliðina á sóf- anum. Svo þegar ég lagðist á fína púðann hennar dró hún fram koddann og lagði blíðlega undir höfuðið á mér. Kristín Ragnars- dóttir frænka mín var oft í pössun hjá ömmu á þessum tíma og hún var varla byrjuð að labba þegar hún tók það í sínar hendur að rétta mér koddann ef ég lagðist í sófann án þess að amma væri til staðar. Amma elskaði börn og hafði un- un af því að annast þau. Hún ól upp og annaðist mörg börn á sinni ævi og kunni flest tök þegar kom að börnum. Hún gerði allt með sinni einstöku ást og hlýju. Hún var yndisleg mannvera og þeir sem þekktu hana voru ríkari fyrir vikið. Ég mun alltaf vera þakklát- ur fyrir að hún var amma mín. Helgi Sigurðarson. Yndislega ættarjörð, ástarkveðju heyr þú mína, þakkarklökkva kveðjugjörð, kveð ég líf þitt, móðir jörð. Móðir bæði mild og hörð, mig þú tak í arma þína. Yndislega ættarjörð, ástarkveðju heyr þú mína. (Sigurður Jónsson frá Arnarvatni) Amma okkar, Tóta, er nú lögð af stað í ferðalag eftir langa og far- sæla ævi. Á kveðjustund er okkur efst í huga kærleikur og hlýja sem amma sýndi okkur alla tíð. Svo að ekki sé nú minnst á allan góða matinn! Leið æsku okkar systk- inanna lá ófáum sinnum á Skeggjagötuna, þar sem amma tók iðulega á móti okkur í eldhús- inu, með svuntuna um sig miðja, eitthvað að fást við mat. Þó að heil sextíu ár væru á milli okkar, og rúmlega það, átti amma aldrei í vandræðum með að finna barnið í sjálfri sér, og undi sér best umvaf- in öllum sínum afkomendum. Við höfum fylgst af aðdáun með þeirri umhyggju og kærleika sem fylgdi sambandi ömmu og afa alla tíð. Undir það síðasta var amma okkur að mestu horfin, en nú lifir hún í öllum þeim góðu minningum sem við um hana eigum, og ekki verða frá okkur teknar. Hún lifir í minningum um húsmóðurina myndarlegu á Skeggjagötu 4, og þann veislumat, sem hún ætíð bar á borð. Hún lifir í minningum um stundir á heimili þeirra afa við spil og aðra leiki. Hún lifir í minning- um um ferðalög okkar og sam- verustundir í Látalæti. Og fyrir okkur eru þessar minningar mikil verðmæti. Nú fer vel á því að amma hverfi okkur inn í sumarbjarta nóttina, brosandi og sæl, loksins laus úr fjötrum þess sjúkdóms sem á hana herjaði. Elsku amma, við þökkum af heilum hug fyrir sam- veruna, fyrir kaffisopann, fiski- bollurnar, hjónabandssæluna og allt hitt. Góða ferð og megir þú hvíla í friði. Egill Árni Guðnason, Þórunn Eva Guðnadóttir og Gyða Katrín Guðnadóttir. Þórunn Guðnadóttir Vaktu yfir mér hverja stund hvern dag þegar birta tekur hverja nótt sem dimma þekur haltu í hönd mína hvert spor sem lífið leiðir haltu í hönd mína gegnum gleði og sorgir leyfðu mér að finna ást þína og styrk leyfðu mér að finna sátt þína og kyrrð Í bæn ég bið mér auðnist brot af þér innra með mér Elsku pabbi. Ég var ekki tilbú- in að kveðja þig svona fljótt, ekk- ert okkar sem söknum þín var það. En þú ert samt farinn og það er alveg rosalega sárt. Nú get ég sagt upp heima- símanum því í hann hringir nán- ast enginn núna. En mikið er ég þakklát og glöð að hafa knúsað þig bless sunnu- Sturla Sigtryggsson ✝ Sturla Sig-tryggsson fæddist í Reykjavík 25. mars 1952. Hann lést á Akureyri 15. maí 2018. Útför Sturlu fór fram frá Húsavík- urkirkju 25. maí 2018. daginn 6. maí þegar við Guðný Þóra vorum búnar að vera hjá ykkur mömmu í viku fyrir Tenerifeferðina sem var mikið rædd ykkar Guð- nýjar á milli (heit- asta landið). Það var svo oft þegar maður var að fara eftir dvöl í stuttan eða lengri tíma í Keldunesi að þú varst einhvers staðar úti og ég sagði bara við mömmu þegar ég var að kveðja hana „ég bið bara að heilsa pabba“ en þessi kveðju- stund var okkar síðasta, elsku besti pabbi minn. Takk fyrir að koma við hjá mér á Tenerife þegar þú fórst hinn 15. maí, ég fann það svo sterkt að þú varst nálægt mér eftir að ég fékk símtalið erfiða. Stelpunum mín- um varstu alveg frábær afi og þær sakna þín mjög mikið. Ég mun gera mitt besta til að hjálpa mömmu áfram. Takk fyrir allt sem þú kenndir mér og ég vona að ég fái að faðma þig og leiða seinna. Þín Rakel. Ég er komin heim úr sorgar- og minningarferð til Íslands. Vinkona mín, Guðrún Jóns- dóttir, er ekki lengur á meðal okkar. Ég sit í garðinum mínum og hugsa til þín, elsku Guðrún. Guðrún Ragnheið- ur Jónsdóttir ✝ Guðrún Ragn-heiður Jóns- dóttir fæddist 2. febrúar 1960. Hún lést 15. maí 2018. Guðrún var jarð- sungin 6. júní 2018. Ég mun alltaf sakna þín: Það er svo lítið pláss sem manneskjan tekur á jörðinni. Minna en eitt einasta tré í skógi. Það er svo stórt skarð sem hún skilur eftir sig. Ekkert í veröldinni get- ur fyllt það. (I. Arvidsson) Hillevi Torell, Uppsala, Svíþjóð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.