Morgunblaðið - 20.06.2018, Qupperneq 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JÚNÍ 2018
Breiðumörk 1c, 810Hveragerði / www.hotelork.is / booking@hotelork.is / sími: +354 4834700 / fax: +354 4834775
Fallegt umhverfi og fjölmargir möguleikar
til afþreyingar tryggja betri fundarhlé.
Fundarfriður áHótelÖrk
ÁHótel Örk er öll aðstaða til fundahalda til fyrirmyndar. Starfsfólk okkar býr
yfir mikilli reynslu og metnaði til að aðstoða stóra og litla hópa, fyrirtæki og
félagasamtök við skipulagningu og undirbúning á fundum og ráðstefnum.
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Forðastu að eiga viðskipti við þá
sem þú getur ekki treyst. Taktu þér tíma til
þess að íhuga stöðu þína í tilverunni.
20. apríl - 20. maí
Naut Eftir rólega siglingu á lygnum sjó
dregur allt í einu til tíðinda hjá þér. Skyld-
urnar hvíla á þér eins og mara og þér finnst
þær íþyngjandi.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þótt ábyrgð þín sé mikil og krefj-
ist langra vinnudaga máttu ekki gleyma
sjálfum þér í öllum önnunum. Viðskipti
dagsins munu færa þér hagnað og ánægju í
framtíðinni.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú verður að sýna þolinmæði þegar
nota þarf tækni á vinnustað þínum. Hafðu
stjórn á tilfinningum þínum þótt eitthvað
verði til að róta upp í þeim.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú sérð heiminn með augum vina
þinna núna og þeir gera það sama gegnum
þig. Aðrir öfunda þig af því að allt skuli vera
þér í hag núna.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Sýndu foreldrum þínum og nánum
vinum sérstaka þolinmæði í dag. Einhvern
misskilning þarf að leiðrétta strax svo ekki
hljótist af skaði.
23. sept. - 22. okt.
Vog Veltu áföllum lífsins fyrir þér, sama
hversu óþægileg eða vandræðaleg þau eru.
Spurðu bara réttu spurninganna.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Lífið er til þess að lifa því.
Hafðu í huga að þú ert hluti af fjölskyldu
sem er mannkynið, það þrá allir ást og
hamingju.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er eitt og annað í þínum
eigin garði sem þarfnast athugunar og úr-
bóta. Vertu raunsær og þá leysast málin
farsællega.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Allar breytingar eru eðlilegur
þáttur af tilverunni svo taktu þeim fagnandi.
Bíddu í nokkra daga og sjáðu hverju fram
vindur.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þér finnst þú hafa komið ár þinni
vel fyrir borð og átt því að eiga eitthvað af-
lögu handa öðrum. Hristu upp í hlutunum
og leyfðu hugmyndafluginu að njóta sín.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú ert óvenju uppreisnargjarn í dag
og ákveðinn í að fara þínu fram. Gerðu það
að forgangsverkefni að gera eitthvað
skemmtilegt.
Ólafi Stefánssyni þykir gaman aðsetja svipmyndir úr fortíðinni í
óvænt samhengi:
Ég krotaði’ á bréfspjald til Krítar,
þó kynni’ekki letrið til hlítar.
En suður í Róm
á sunnudagsskóm,
sást til hans Nerós með sítar.
Helgi R. Einarsson sendi mér
tölvupóst þar sem hann segist á leið í
labbitúr um eyjuna Jersey og komi
ekki heim fyrr en eftir hálfan mán-
uð, ef guð lofar. Hér eru limrur, sem
urðu óvart til. Fyrst um „fram-
kvæmdamanninn“:
Jónmundur keypti sér kú
kl. u.þ.b. þrjú.
Svo arkaði heim
í áföngum tveim
og er að mjólka ’ana nú.
Síðan kemur „sjálfsvorkunn, fyrst
hans og síðan hennar“:
Syndugar hugsanir sveima,
í sjálfsvorkunn ligg ég nú heima
í rúminu einn
mér yljar ei neinn,
en úti’ eru kettir að breima.
Eðlið það gerir mig óða,
einnig í vöngunum rjóða.
Nú þumbast úr – ill
því enginn mig vill,
en úti’ eru tíkur að lóða.
Og að lokum „Bænheyrslan“:
Séra Böðvar á Barði
var bænheyrður fyrr en varði.
Þrívegis stundi
á stofnbúnaðsfundi
með Stínu’ út í kirkjugarði.
Ólafi Þóri Auðunssyni datt þessi
vísa í hug á undan leiknum móti
Argentínu:
Guðni leik ei ætlar á
og ekki „húið“ hljóðar.
Myndar þannig mikla gjá
milli sín og þjóðar.
Eins og þessi staka ber með sér
hefur Ingólfur Ómar reynt sitt af
hverju:
Örðug þó sé ævitíð
elju lífið gaf mér.
Marga villu stapp og stríð
staðið hef ég af mér.
Ármann Þorgrímsson spyr sjálf-
an sig og aðra hvort hér sé kenn-
araskortur:
Er í menntun engin björg
ef að vitið þrýtur
við eigum vopn í eldi mörg
en ekkert þeirra bítur.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Söguskoðun, sjálfsvorkunn
og bænheyrsla
„ÉG NÁÐI EKKI AÐ LJÚKA SÖLUNNI.
HINS VEGAR GAT ÉG FRELSAÐ ÞRJÁ
GÍSLA Í VIÐBÓT.“
„LEIÐINLEGT MEÐ AUGAÐ. SÁSTU HVERT
KÚLAN FÓR?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... uppátækjasöm!
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ELÍN, AUGU ÞÍN
ERU EINS OG
STÖÐUVÖTN TIL
FJALLA
UNDUR SAMLEGUM
LJÚF FENGUM
SILUNGI
EN
INDÆLT!
NÚ ERTU
FARINN AÐ
GERA MIG
HRÆDDA
MEÐ
SYNDANDI
TORFUM AF
SILUNGI...
ÖH...
ÉG ER VIRKILEGA LANGT LEIDDUR! MAMMA MÍN BANNAÐI MÉR
ALLTAF AÐ HLAUPA MEÐ SKÆRI!
Víkverji lendir stundum í þýðinga-vanda og frekar en að lyppast
niður reynir hann að finna lausn.
Fyrir margt löngu sat hann yfir
fréttaskeyti um slagsmál eftir fót-
boltaleik í evrópskri stórborg. Á
ensku var orðið hooligans notað yfir
þá sem slógust, en Víkverja vantaði
þýðingu þannig að hann lagðist í
orðabækur. Að endingu datt hann
niður á orðið bulla og ákvað að kalla
slagsmálahundana fótboltabullur.
x x x
Fyrir skömmu var Víkverji aðskrifa um rithöfund og blaða-
mann, sem nýlega féll frá. Framan
af ferlinum var blaðamennskan ofan
á en síðan tók skáldskapurinn við. Á
ensku er talað um non-fiction og
fiction. Fiction merkir vitaskuld
skáldsaga, en hvernig á að þýða
non-fiction? Talað er um bækur al-
menns eðlis, en það segir í raun
ekki neitt. Í heilabrotum Víkverja
skaut upp orðinu skáldleysa. Logn-
ar sögur væru þá skáldsögur og
sannar skáldleysur. Ekki var hann
þó alls kostar ánægður, fannst að
orðið kynni að hafa of neikvæðan
hljóm, enda talað um mannleysur.
Fólki gæti dottið í hug að skáldleysa
merkti lélegt skáld frekar en sönn
saga. Sem Víkverji var að þusa um
þessar raunir sínar lagði kunningi
hans til orðið raunsaga, sem hljóm-
ar öllu betur.
x x x
Ekki hafa allir jafn miklar áhyggj-ur af því að vinna þýðingar á ís-
lensku og Víkverji. Vinur Víkverja á
snjáldru greindi frá því nýlega að
hann hefði rekist á nýjan stað í mið-
bænum sem héti Bastard upp á
ensku. Þessi nafngift væri ekkert
einsdæmi því á leið hans að heiman
í vinnuna gengi hann fram hjá The
Drunk Rabbit, City Center Hotel,
Iceware, American Bar, Dirty
Burgers and Ribs, The Laundromat
Café, The English Pub, Shooters
Coyote Club, Ginger, The Hot Dog
Stand, Nordic Store, Mountaineers
of Iceland, 66 North, Icemart Sou-
venirs, What’s On, Pride of Iceland,
Joe & The Juice, Guide to Iceland,
Center Hotels, Flying Tiger, Ice-
landic Red Cross, Booking Centre,
Woolcano, Scandinavian … Er þetta
ekki orðið ágætt? vikverji@mbl.is
Víkverji
Lát ekki hið vonda sigra þig en sigra
þú illt með góðu.
(Rómverjabréfið 21.21)