Morgunblaðið - 26.06.2018, Side 1

Morgunblaðið - 26.06.2018, Side 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 6. J Ú N Í 2 0 1 8 Stofnað 1913  148. tölublað  106. árgangur  Alltaf til staðar ÍSLENSKUR BÓNDI HEIÐR- AÐUR Á ÍTALÍU FORSETINN ER FIMM- TUGUR Í DAG ÞRASSAÐ MEÐ ÞRUMANDI GNÝ Í RIGNINGUNNI GUÐNI TH. JÓHANNESSON 26 SLAYER 30EYMUNDUR MAGNÚSSON 12 Stuðningsmenn íslenska landsliðsins hituðu upp fyrir leikinn í gær í miklu stuði á hóteli í Rostov þar sem Jón Jónsson og Friðrik Dór létu ekki sitt eftir liggja. Í dag kl. 18.00 tekur al- varan við og stuðningsmenn íslenska landsliðsins gefa allt sem þeir eiga og meira til í baráttuna eins og strákarnir okk- ar munu gera í leiknum við Króata. Ísland á möguleika á að komast í 16 liða úrslit á sínu fyrsta heimsmeistaramóti. Móti sem hefur verið ævintýri heillar þjóðar þar sem þjóðin sam- einast og upplifir HM-drauminn. »4,6 og íþróttir Þjóðin stendur saman sem einn maður í baráttunni í dag Morgunblaðið/Eggert  „Þarna sjáum við dæmi þess að það er verið að þrengja möguleika einstaklings til áframhaldandi náms vegna þess að hann er ekki með hefð- bundið stúdents- próf en hann er ekki með síðri menntun.“ Þetta segir Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sam- taka iðnaðarins, í ljósi frétta þess efnis að maður með sveinspróf í húsasmíði og nokkurra ára reynslu af störfum fyrir lögregl- una fékk ekki inni í lögreglunámi við Háskólann á Akureyri þar sem hann hafði ekki lokið stúd- entsprófi. » 18 Segir litið á iðnnám sem síðri menntun Guðrún Hafsteinsdóttir Baldur Arnarson baldura@mbl.is Róbert Aron Róbertsson, fram- kvæmdatjóri Festis, segir félagið íhuga að hætta við 160 herbergja hót- el á Suðurlandsbraut 18. Félagið hefur m.a. rætt við erlend- ar hótelkeðjur um rekstur hótels. Aðaleigendur Festis eru hjónin Ólafur Ólafsson, gjarnan kenndur við Samskip, og Ingibjörg Kristjánsdótt- ir. Félagið er að ljúka við byggingu hótels á Tryggvagötu sem Keahótelin taka yfir í lok júlí. Festir hefur jafnframt fallið frá hugmyndum um hótel á Héðinsreit. Róbert Aron segir rekstrar- umhverfið hafa breyst að undanförnu. „Ég met stöðuna þannig að á undanförnum sex mánuðum hafi allt þyngst. Ég er þó ekki dómbær á hvort eitthvað hafi breyst í rekstrar- umhverfinu. Við erum ekki að reka hótel. Maður heyrir að menn eru áhyggjufyllri en áður og það smitast hratt út í allt sem tengist þessu.“ Ester Björnsdóttir, sölustjóri Kea- hótela, segir töluvert minna um bók- anir frá hópum en í fyrrasumar. Hins vegar sé bókunum frá einstaklingum alltaf að fjölga, en þær komi með styttri fyrirvara. Keahótelin verða 11 í sumar. Endurmeta áform um borgarhótel  Festir íhugar að hætta við hótel  Aðstæður séu breyttar MTelja sig geta … »10 Dæmi eru um að útsendir starfs- menn séu á allt að 50% lægri laun- um í gistiríkjum á Evrópska efna- hagssvæðinu en staðbundnir starfsmenn. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn. „[…] útsendir starfsmenn fá oftast greitt eftir lág- markslaunum í þeim löndum sem þeir fara til, en staðbundnir starfs- menn fá töluvert hærri laun fyrir sömu vinnu,“ segir Alexandra K. Arnarsdóttir sem ritað hefur loka- ritgerð við HR um efnið en þar er sjónum m.a. beint að regluverki Evrópusambandsins sem gerir þessa mismunun mögulega. »16 Helmingi lægri laun  Útsendir starfs- menn mun verr settir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.