Morgunblaðið - 26.06.2018, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 26.06.2018, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 2018 fyrir öll tölvurými og skrifstofur Rafstjórn tekur út og þjónustar kæli- og loftræstikerfi Kæling Stangarhyl 1A • 110 Reykjavík • Sími 587 8890 • rafstjorn.is Verð frá kr. 181.890 m/vsk úrslit heimsmeistaramótsins. „Við gerum okkar allra besta til að hjálpa þeim með stuðningi svo við komumst upp úr riðlinum. Við höfum fulla trú á að það takist,“ segir Hilmar. Trúir því að liðið komist áfram Upphitun Tólfunnar hefst klukk- an 15 að staðartíma eða um sex klukkustundum fyrir leik. Að því er fram kemur á heimasíðu Tólfunnar er ráðgert að gengið verði ásamt öðrum stuðningsmönnum Íslands á völlinn um þremur klukkustundum fyrir leik. „Við ætlum að hittast við gosbrunninn á stuðningsmanna- svæðinu þar sem við verðum með trommur og tólfutrall. Við vonum að sem flestir láti sjá sig þar og gangi svo með okkur syngjandi og trallandi á völlinn,“ segir Hilmar sem kveðst feginn að hafa fengið hvíld eftir langt flug í gær. „Það er mikilvægt að fá góðan nætursvefn áður en átökin hefjast í dag, enda ferðalagið langt. Þetta verður erf- iður leikur og strákarnir þurfa á miklum stuðningi að halda gegn sterku liði Króata,“ segir Hilmar. Takist íslenska liðinu að sigra Króatíu og komast áfram í 16-liða úrslitin eru líkur á að fjölmargir meðlimir Tólfunnar verði sendir út að nýju. Hilmar segir þó að enn sé of snemmt að hugsa um slíka hluti enda óvíst hvort liðið komist áfram. „Þetta verður allt skoðað í framhald- inu ef við komumst áfram. Það sem við erum að hugsa um núna er bara að reyna að búa til eins góða stemn- ingu á vellinum og mögulegt er,“ segir Hilmar sem er bjartsýnn á að leikur liðsins í dag fari í sögubæk- urnar sem enn eitt afrek landsliðs- ins. „Við höfum mikla trú á því að ótrúlegir hlutir geti gerst. Vonandi getum við litið til baka og hugsað að þetta hafi verið leikurinn sem kom okkur áfram. Við höfum allavega mikla trú á því að liðið muni halda áfram að koma á óvart og þátttöku þess sé hvergi nærri lokið,“ segir Hilmar. við að hlutverk Tólfunnar sé fyrst og fremst að reyna að auka líkur lands- liðsins á að komast áfram í 16-liða Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Þetta er ekki búið fyrr en dómarinn hefur flautað leikinn af,“ segir Hilm- ar Jökull Stefánsson, meðlimur stuðningsmannasveitarinnar Tólf- unnar. Hann flaug til Rostov í Rúss- landi í gær og verður viðstaddur leikinn mikilvæga gegn Króatíu í kvöld. Auk hans voru níu aðrir Tólfumeðlimir með í för en sveitin hefur skipt leikjum í mótinu á milli sín. „Við erum tíu núna sem förum út í boði KSÍ. Ég fór einnig á fyrsta leikinn gegn Argentínu en flaug síð- an beint heim eftir hann og aðrir komu út í staðinn. Við skiptum þessu á milli okkar,“ segir Hilmar og bætir Þátttöku landsliðsins er hvergi nærri lokið  Meðlimir Tólf- unnar bjartsýnir fyr- ir leik liðsins í dag Morgunblaðið/Eggert Stuðningsmenn Hilmar Jökull telur að möguleikar íslenska landsliðsins á að komast upp úr riðli sínum á heimsmeistaramótinu í Rússlandi séu góðir. stoppuð þrisvar á leiðinni því lög- reglan vildi skoða alla stuðnings- mannapassa gaumgæfilega. „Þetta er þrátt fyrir allt auðveld- ara ferðalag en þegar ég fór á EM í Frakklandi; þá flaug ég beint frá Vancouver til Parísar og keyrði þaðan í níu klukkutíma til Mars- eille!“ Eftir viðureignina við Ungverja í Marseille hélt Árni Þór heim á leið á ný og fannst það ekki mikið mál að skreppa þetta! „Það kom aldrei annað til greina en að fara á HM. Við Jói gengum frá því fyrir mörgum mánuðum,“ segir Árni aðspurður. „Það var löngu áð- ur en vissum við hverja Ísland myndi spila, og við keyptum meira að segja líka miða í 16-liða úrslitin.“ Jóhann tekur boltann á lofti: „Ég talaði um það við Árna í september að fara til Rússlands. Við vorum sannir Íslendingar síðast og fórum með tveggja daga fyrirvara á EM! Það er betra að undirbúa sig aðeins betur.“ Þeir frændur eru yfir sig ánægðir með dvölina í Rússlandi. „Þetta er alveg frábært; stemningin er æð- isleg, Moskva er frábær borg, Vol- gograd var mjög fín, þar sem við skoðuðum okkur talsvert um, og Ro- stov virðist þrælfín líka, það litla sem við höfum getað skoðað. Þetta hefur verið rosalega fín ferð og okk- ur mun líða enn betur eftir að við verðum búnir að vinna Króata og förum til Kazan!“ segir Árni. Þeir eru sem sagt enn jafn bjart- sýnir og fyrir leikinn við Argentínu, þar sem þeir spáðu Íslendingum sigri. „Já, að sjálfsögðu. Við erum ekk- ert að gefast upp. Ég hef trú á að Ís- land vinni Króatíu 1:0 og Argentína vinni Nígeríu líka 1:0 þannig að við förum áfram. Við verðum að nota þessa miða í 16 liða úrslitunum fyrst við eigum þá!“ Hópurinn á að fljúga heim til Ís- lands eftir leikinn við Króatíu, en þeir félagar segjast velta því fyrir sér að sleppa þeirri flugferð en fljúga þess í stað upp til Kazan „og taka okkur smá sólarfrí fram að 16 liða úrslitunum“. Árni segist hafa verið mjög sáttur við frammistöðu íslenska liðsins í fyrsta leiknum, gegn Argentínu. „Í Nígeríuleiknum aftur á móti reikn- aði ég með meiru, okkar menn spiluðu reyndar ágætlega í fyrri hálfleik en mér fannst þeir ekki mæta til leiks á ný í seinni hálfleik. Kannski var búið á batteríunum, en mér fannst að þeir hefðu átt að halda sig við sama kerfi og á móti Argentínu. Mér finnst liðið vera opnara varnarlega þegar tveir menn eru í sóknarlínunni. En ég er svo sem bara stuðningsmaður, Heimir fær borgað fyrir að ráða þessu!“ Frábær ferð og stemn- ingin alls staðar æðisleg  Ákváðu sig snemma en með tveggja daga fyrirvara 2016 Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Ánægðir Frændurnir Jóhann Rúnarsson, t.v., og Árni Þór Árnason ásamt stuðningsmanni Argentínu í Moskvu. Í ROSTOV Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Árni Þór Árnason hefur verið á ferð og flugi síðustu daga. Hann býr í grennd við Vancouver á vestur- strönd Kanada, en dreif sig á HM í Rússlandi. Hefur raunar komið tvisvar hingað austur því eftir fyrsta leikinn í Moskvu skrapp hann til Ís- lands til að fagna þjóðhátíðardeg- inum, 17. júní, í faðmi fjölskyld- unnar. Blaðamaður gekk fyrst í flasið á Árna Þór í miðborg Moskvu 15. júní, daginn fyrir leik Íslands og Argent- ínu. Skemmtileg tilviljun þar sem þúsundir manna voru saman komn- ar á svæðinu, en síðast hittumst við í Marseille við svipaðar aðstæður fyr- ir leik Íslands og Ungverjalands á EM fyrir tveimur árum. Árni var í Moskvu ásamt föður sínum, Árna Gunnarssyni, Rúnari föðurbróður sínum og Jóhanni syni Rúnars. Allir fóru þeir heim á Frón daginn eftir Argentínuleikinn en komu aftur fyrir leikinn við Nígeríu- menn, flugu frá Íslandi til Volgo- grad og óku þaðan hingað til Rost- ov. Keyptu ferðapakkann hjá Tripical og eru þar í stórum hópi fólks. „Við vorum 10 tíma á leiðinni frá Volgograd til Rostov og rútan var Margir safnast daglega saman á sérstökum stuðningsmannasvæðum í keppnisborgunum á HM í Rússlandi. Svæðið í Rostov við ána Don, þar sem Ísland og Króatía mætast í kvöld, er engin undantekning; þar skemmti fólk sér yfir miðjan daginn, horfði á leikina, sem þá fóru fram, á risaskjá, og þar var aftur margt um manninn í gærkvöldi og mikið líf og fjör. Líf og fjör á stuðningsmannasvæðinu Morgunblaðið/Eggert

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.