Morgunblaðið - 26.06.2018, Side 12
Unglistahópurinn Hermikrákurnar
opnaði myndlistarsýningu síðast-
liðinn fimmtudag í Borgarbókasafn-
inu við Tryggvagötu í Reykjavík. Þar
lét hópur kornungra myndlistar-
kvenna ljós sitt skína ásamt þaul-
reyndum listamönnum Artóteksins.
Í tilkynningu kemur fram að í júní-
hafi hópur ungra listaspíra, Auður
Erna Ragnarsdóttir, Ása Melkorka
Daðadóttir, Birna Dís Baldursdóttir,
Bríet Mjöll Þorsteinsdóttir, Drauma
Bachmann, Eik Emilsdóttir, Fía Jóns-
dóttir, Kristín Guðrúnardóttir og
Mirra Emilsdóttir, setið sumarsmiðju
í Borgarbókasafninu og útbúið stór-
fengleg myndlistarverk.
„Verkin unnu stúlkurnar eftir verk-
um listamanna Artóteksins, aðferðin
var frjáls og skáldaleyfið algjört. Mik-
ill sköpunarkraftur einkenndi hópinn
og útkoman var glæsileg. Augljóst er
að myndlistarlíf Reykjavíkurborgar á
bjarta framtíð fyrir sér.“
Sýningin ber nafnið Hermikrákur í
höfuðið á hópnum og stendur hún frá
21. júní til 15. ágúst á fyrstu hæð
Borgarbókasafnsins í Grófinni.
Hermikrákur ásamt Artóteki með sýningu
Mikill sköpunarkraftur ein-
kenndi ungu listakonurnar
Myndlist Fjölbreytt málverk Hermikrákanna eru til sýnis í Grófinni til 15. ágúst.
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 2018
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími 554 4300 • solskalar.is
Hentar mjög vel
íslenskri veðráttu
Við höfum framleitt viðhaldsfría
glugga og hurðir í yfir 30 ár
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Frábært skjól gegn vindi og regni
Sólskálar
-sælureitur innan seilingar
198
4 - 2016
ÍS
LEN
SK FRAML
EI
ÐS
LA32
Yfir 90 litir í boði!
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
Hanna Friðriksdóttir
Þetta er fyrir þetta landslagsem ég skapaði í Vallanesi.Þetta var náttúrulega auðjörð, engin tré, engir akrar
og ekki neitt þegar ég kom 1979,“
segir Eymundur Magnússon, bóndi í
Vallanesi á Fljótsdalshéraði. Um
helgina vann hann til verðlauna á við-
burði á Norður-Ítalíu fyrir störf sín
við lífræna ræktun í Vallanesi.
Þrenn verðlaun voru veitt á við-
burðinum, sem ber nafnið „Bylting
matjurtagarðsins“. Viðburðurinn var
haldinn í Piemonte á Ítalíu dagana
22.-23. júní. Fyrir honum stóðu
Matarvísindaháskólinn Pollenzo í
Piemonte, Slow Food-samtökin og
Ceretto-víngerðin í Alba á Ítalíu.
Fyrirmynd á sviði
landbúnaðar
Eymundur hlaut verðlaun fyrir
ræktun skógar og skjólbelta í land-
búnaði auk þess að hafa skapað skil-
yrði fyrir sjálfbæra matvælafram-
leiðslu. „Það er nýtt að veita
framleiðendum verðlaun og ég verð
fyrir valinu sem þessi skrítni bóndi á
Íslandi.“ Verðlaunin, sem heita „Pre-
mio Langhe Ceretto“, hafa undan-
farin ár verið veitt rithöfundum fyrir
verk sem tengdust matarmenningu
en hin nýju verðlaun beina sjónum
sínum að þeim sem skara fram úr á
sviði sjálfbærrar ræktunar og eru
öðrum til fyrirmyndar á sviði land-
búnaðar.
Í samtali við Morgunblaðið segir
Eymundur verðlaunin hafa komið sér
á óvart. „Þetta gerðist þannig að
Carlo Petrini, einn af stofnendum
Slow Food, kom til Íslands og ferðað-
ist um landið í fyrra og kom við hjá
okkur,“ segir Eymundur.
Eymundur er menntaður bú-
fræðingur og hóf búskap í Vallanesi
árið 1979. Í dag rekur hann þar fyrir-
tækið Móður Jörð ásamt eiginkonu
sinni, Eygló Björk Ólafsdóttur við-
skiptafræðingi. „Ég byrjaði að planta
skjólbeltum, nema land og búa til
akrana 1983 og svo 1989 byrjaði
skógræktin. Það sem er sérstakt á Ís-
landi er þetta skjólbeltakerfi og skóg-
urinn í kringum það. Svo er ég búinn
að búa til þarna sérstakan heim með
ökrum, skógbeltum og skógi í kring-
um það.“ Athygli vekur að í Vallanesi
var fyrsta húsið byggt sem er alfarið
úr íslenskum viði, úr öspum sem Ey-
mundur plantaði 1986, að hans sögn.
Hann segir ræktunina alla snú-
ast um líffræðilegan fjölbreytileika
og að breyta ásýnd ábúnaðar öðrum
til eftirbreytni.
„Uppáhaldsfrasinn minn er að
ég er búinn að flytja Vallanes sunnar
á hnöttinn. Ég gerði Ítalina svolítið
ánægða með mig þegar ég sagði að
ég væri búinn að flytja Vallanes að-
eins nær Ítalíu.“
Grænmetisfæðið vinsælt
Spurður hvort margir hafi heim-
sótt Vallanes í sumar svarar Ey-
mundur játandi: „Það hafa margir
verið að koma austur og svo margir
útlendingar. Þeir segja að þetta sé
besta grænmetisfæðið á hringnum.
Hérna fær fólk eins íslenskan mat og
það getur.“
Meðal þeirra matvæla sem þau
Eymundur og Eygló í Vallanesi
framleiða eru bygg og heilhveiti,
ferskt grænmeti, sultur og ber, sýrt
grænmeti og hrökkbrauð.
Fleiri fengu verðlaun á viðburð-
inum á Ítalíu um helgina. Mohamid
Abdikadir hlaut verðlaun fyrir að
samhæfa almenna matjurtagarða-
ræktun í heimalandinu sínu, Sómalíu,
og Nicola del Vecchio fyrir að leiða
saman staðbundna framleiðendur og
endurvekja fornar ræktunaraðferðir
í Molise. Þá hlaut Alice Waters, eig-
andi veitingastaðarins Chez Panisse í
Berkeley, heiðursnafnbót sem pró-
fessor við háskólann, en hún hefur
um árabil unnið að verkefninu
„Edible Schoolyards“. Þar hefur hún
miðlað gildi holls mataræðis til kyn-
slóða barna í skólum San Francisco í
gegnum matjurtagarðrækt.
Bóndi í Vallanesi
heiðraður á Ítalíu
Eymundur Magnússon
bóndi í Vallanesi hlaut
verðlaun á viðburðinum
„Bylting matjurtagarðs-
ins“ á vegum Matarvís-
indaháskóla á N-Ítalíu,
Slow Food-samtakanna
og Ceretto-víngerðar-
innar í Alba.
Ljósmynd/Áslaug Snorradóttir
Vallanes Eygló og Eymundur á ökrunum í Vallanesi. Saman eiga þau fyrirtækið Móðir Jörð.
Ljósmynd/Hanna Friðriksdóttir
Verðlaunaafhending Bruno Ceretto, eigandi Ceretto-víngerðarinnar,
Carlo Petrini, forseti Slow Food-samtakanna og stofnandi Matvísindahá-
skólans, og Eymundur Magnússon ásamt Eygló Ólafsdóttur.
Í Vallanesi í Fljótsdalshéraði reka hjónin Eymundur Magnússon og Eygló
Björk Ólafsdóttir fyrirtækið Móður Jörð ehf. Á svæðinu fer fram lífræn
ræktun á korni og grænmeti sem er síðan selt undir vörumerkinu Móðir
Jörð. Fullvinnsla og framleiðsla matvælanna fer fram á staðnum auk
ræktunarinnar. Markmið framleiðslunnar er að rækta og nýta hráefni úr
nánasta umhverfi staðarins, að því er fram kemur á heimasíðu fyrirtæk-
isins. Einnig er þar umfangsmikil skógrækt þar sem fjölda trjáa og skjól-
belta hefur verið plantað. Eymundur hlaut landbúnaðarverðlaunin árið
2004 fyrir notkun á skjólbeltum og skógrækt í landbúnaði og árið 2011
hlaut hann fálkaorðuna fyrir frumkvæði á sviði búskaparhátta og mat-
vælamenningar. Eygló Björk er einn af stofnendum Slow Food-hreyfing-
arinnar á Íslandi og formaður VOR – Verndun og ræktun, sem er félag líf-
rænna framleiðenda.
Hráefni úr nánasta umhverfi
LÍFRÆN RÆKTUN Á KORNI OG GRÆNMETI