Morgunblaðið - 26.06.2018, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 2018
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Mér fannst kominn tími til að
færa mig nær ferðamönnunum,“
segir Gylfi Þór Valdimarsson, ann-
ar eigenda ísbúðarinnar Valdísar.
Gylfi og Anna Svava Knútsdóttir
eru nú að leggja lokahönd á nýja
Valdísarverslun sem opnuð verður
á næstu dögum. Nýja verslunin er
að Laugavegi 42b, við Frakkastíg,
þar sem áður var hárgreiðslustofan
Hár Expo.
Furðu lítið hefur verið af ísbúð-
um í miðborginni hin síðustu ár og
víst er að margir munu fagna komu
Valdísar, en Valdís hefur notið mik-
illa vinsælda síðan hún var opnuð
árið 2013 við Grandagarð. Gylfi
viðurkennir þó fúslega að sú rign-
ingartíð sem höfuðborgarbúar hafa
mátt þola sé ekki gott veganesti
fyrir ísbúð.
„Og þó, þetta er í raun svipað
sumar og fyrsta sumarið okkar úti
á Granda. En það er alveg stað-
reynd að salan er veðurtengd. Við
erum eins og bændur þar sem
rigningin ræður því hvenær er
hægt að fara út að slá grasið. Svo
kemur sól og þurrkur á milli, það
eru sveiflur í þessu. Sólin kemur í
júlí, ég hef trú á því,“ segir Gylfi
bjartsýnn.
Hann segir að Íslendingar setji
veðrið ekki eins mikið fyrir sig og
erlendu ferðamennirnir. „Útlend-
ingurinn kaupir sér bara ís þegar
það er sól. Ég þekki það sjálfur frá
Danmörku þar sem ég bjó í tólf ár.
Ísbúðunum þar er lokað í lok
september og þær opnaðar aftur í
mars. Ég vona bara að útlending-
unum finnist við hafa nógu spenn-
andi vörur, lakkrísísinn og fleira
sem vakið hefur athygli í sjón-
varpsþáttum og á netinu.“
Gylfi segir aðspurður að nýja ís-
búðin sé svipuð þeirri fyrri. „Þetta
er skemmtileg búð í skemmtilegu
húsnæði. Þetta er í raun sama
konsept og úti á Granda, hér er allt
gert frá grunni og fólk getur fylgst
með framleiðslunni. Hérna bjóðum
við auk þess upp á nýbakaðar belg-
ískar vöfflur og kaffi.“
Þau Gylfi og Anna Svava hafa oft
velt því fyrir sér að opna aðra
verslun en um leið gert sér grein
fyrir því að það væri erfitt.
„En svo datt ég á hausinn í jan-
úar. Krakkarnir okkar litlu, þriggja
og eins árs, eru komnir í dagvistun
og allt er byrjað að virka. Nú erum
við með sjö klukkutíma á dag sem
foreldrar fá án þess að vera með
krakkana í fanginu. Mér bauðst
þetta hús og ætlaði í fyrstu ekkert
að gera þetta. En því meira sem ég
fór að horfa á húsið, þeim mun bet-
ur sá ég möguleikana. Mig langaði
líka að opna svona flaggskipsbúð
niðri í bæ. Rétt eins og vinir mínir
í Brauð & co. sem eru hérna aðeins
ofar.“
Morgunblaðið/Valli
Ný ísbúð í bænum Gylfi Þór Valdimarsson opnar nýja Valdísi við Frakka-
stíg. Valdís hefur notið mikilla vinsælda úti á Granda síðustu fimm árin.
Opnar nýja ísbúð í
miðri rigningartíð
Valdís kemur með sumarið á
Frakkastíginn Salan veðurtengd
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
Í dag og á morgun leggja hjólreiða-
kappar út í stærstu götuhjólreiða-
keppni á Íslandi, WOW Cyclothon,
sem haldin hefur verið árlega frá
árinu 2012, og verður ræst klukkan
þrjú í dag og sex og sjö á morgun.
Um er að ræða ræsingar fjögurra
flokka sem taka þátt í hjólreiða-
keppninni og munu hjóla hringinn
um landið.
„Í ræsingunni í dag leggja kepp-
endur í einstaklingsflokki af stað og
Hjólakraftsflokkurinn, sem er félag
fyrir börn og unglinga,“ segir Sverr-
ir Falur Björnsson, upplýsinga-
fulltrúi WOW Air, sem stendur fyrir
keppninni. „Síðan á morgun verða
A-flokkur og B-flokkur, sem eru
fjögurra og tíu manna lið, ræstir.“
Sverrir segir skráningu fyrir
keppnina góða í ár en slakari en í
fyrra. „Það eru alls konar þættir
sem spila inn. Bæði HM og svo er
veðrið ekki búið að vera eins gott og
maður býst við á íslensku sumri. En
engu að síður er skráningin góð.
Núna í ár erum við með sjö erlend
lið, öll frá Bandaríkjunum. Málefnið
er Slysavarnafélagið Landsbjörg
eins og í fyrra. Öll áheit sem kepp-
endur safna fara þangað. Í fyrra
söfnuðum við rúmum 20 milljónum.
Mætt til að sigra
Það eru þónokkur lið sem mæta til
að sigra; lengra komnir hjólreiða-
menn með hugann allan við að skila
sér sem hraðast í mark. Þau lið eru
ekkert að fíflast. Svo er líka mikið af
vinahópum og æfingahópum úr lík-
amsrækt. Þeir eru bara þarna til
þess að hafa gaman af því. Tíminn er
kannski aukaatriði fyrir þá þótt allir
líti á keppnina sem áskorun.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hjólað Keppendur hjóla í mark í WOW Cyclothoninu árið 2017. Margir þeirra etja eflaust kappi á nýjan leik í ár.
Ræst út í WOW Cyclo-
thon í dag og á morgun
Allir líta á keppnina sem áskorun, segir talsmaður WOW
WOW Cyclothon
» Keppnin varð til að undirlagi
Skúla Mogensen, stofnanda
WOW Air, og Magnúsar Ragn-
arssonar, forseta sölu- og
markaðssviðs hjá Símanum.
» Áætlað er að fyrstu kepp-
endur komi í mark klukkan átta
að föstudagsmorgni og önnur
lið komi í mark út daginn.
Bjart er fram undan fyrir verslun og viðskipti í mið-
borg Reykjavíkur, að mati Guðrúnar Jóhannesdóttur,
kaupmanns í Kokku og stjórnarmanns í Miðborginni
okkar. Eins og kom fram í Morgunblaðinu á laugardag
er Jakob Frímann Magnússon, sem hefur verið fram-
kvæmdastjóri Miðborgarinnar okkar, að hætta þar
störfum.
„Jakob er að hætta eftir níu farsæl ár með okkur.
Við erum í kjölfarið búin að vera að horfa á skipuritið
og munum á næstu dögum auglýsa eftir verkefna-
stjóra sem fær meðal annars það verkefni að horfa
meira á stafræna markaðssetningu en verið hefur. Það er fínt að nota
þetta tækifæri til að endurskoða markaðssetningu á miðborginni, í
þessu síbreytilega samfélagi,“ segir Guðrún.
Hún segir að góður andi sé í bænum um þessar mundir. „Það er
margt skemmtilegt að gerast hér. Miðborgin hefur stækkað eftir að
Hverfisgatan var endurnýjuð og Grandinn varð eins öflugur og hann er
orðinn. Það er mikil gróska og gaman að taka saman höndum.“
Hefur veðurfarið í sumar ekkert skemmt stemninguna?
„Júní hefur verið merkilega fínn, alla vega hjá mér í Kokku. Og
stemningin sömuleiðis merkilega góð miðað við veðrið. En við erum
búin að panta góða veðrið, það varð bara smá seinkun á afhendingu.“
Endurskoða markaðssetningu
miðborgar Reykjavíkur
MIÐBORGIN OKKAR AUGLÝSIR EFTIR VERKEFNASTJÓRA
Guðrún
Jóhannesdóttir