Morgunblaðið - 26.06.2018, Side 19

Morgunblaðið - 26.06.2018, Side 19
19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 2018 Sundahöfn Það var stillt á sundunum þegar grænlenski frystitogarinn Svend C kom til hafnar í Reykjavík á sunnudag. Togarinn var smíðaður í Tyrklandi og afhentur í desember 2016. Hafþór Hreiðarsson Fyrir frjálsan raf- orkumarkað er afar mikilvægt að laga- ramminn sé rétt hann- aður eftir aðstæðum, einkum þar sem vatns- orka er ráðandi. Nokk- ur dæmi eru um að óheppilegur laga- rammi valdi slæmum verðsveiflum á slíkum mörkuðum og jafnvel hruni. Þetta er alþekkt. Leiður misskilningur er í grein Skúla Jóhannssonar í Morgun- blaðinu 23.6., en þar eru eftirfarandi gagnrýnisorð í minn garð: „Helstu rök hans eru að verðlagning raforku í Evrópu, sem mótist af „steinrunnu eldsneyti“, mundi ráða of miklu í verðlagningu raforku á Íslandi.“ Skoðun mín er hins vegar sú, að hönnun þriðja orkupakka ESB, sem er rammi um markað fyrir raforku úr gasi og kolum, sé óheppileg fyrir okkar vatnsorkukerfi og veiti hvorki raforkumarkaði hér rétt aðhald né tryggi nauðsynlega hvata. Þetta get- ur bæði valdið hærra orkuverði en ella og kallað á óhagkvæmar fjár- festingar og annan kostnað hjá not- endum. Ekki er tímabært að skoða málin eftir komu sæstrengs. Staðan nú Síðan 2003 höfum við tekið þátt í innri mark- aði ESB án þess þó að hafa komið upp skammtíma uppboðs- markaði í formi kaup- hallar eins og stefnt var að með setningu þeirra laga. Við höfum fengið frið til að haga málum okkar á þann veg, en lög ESB hafa ekki verið okkar raf- orkugeira sá rammi sem heppileg- astur er og því höfum við þurft og fengið ýmsar undanþágur. Nú lítur út fyrir að sá friður sé úti. Forsendur þriðja orkupakkans Tilskipun ESB nr. 72/2009 leggur grunninn að reglugerð um stofnun ACER og öðrum reglugerðum um markaðinn. Í forsendukafla tilskip- unarinnar kemur eftirfarandi fram (lauslega þýtt): „Enn eru þó í sam- félaginu hindranir í vegi fyrir sölu rafmagns á jafnstöðugrunni og án mismununar eða erfiðleika. Sér- staklega vantar jafnan aðgang að netinu og samstillt reglugefandi eft- irlit í ríkjum sambandsins.“ Þetta og fleira í forsendukaflanum gefur til kynna að ESB hafi ekki gengið sem skyldi að ná saman eins- leitum virkum samkeppnismarkaði með rafmagn í löndum Evrópu að því marki að nægileg hagkvæmni hafi náðst. Helst hafi staðið í veg- inum tilhneiging einstakra ríkja til að hygla sér og sínum. Umrædd til- skipun og stofnun ACER er í og með svar við þessari tregðu sumra ríkja í sambandinu og fremur sennilegt að þau ríki mundu reyna að skjóta sér bak við undanþágur fyrir Ísland. Landsreglarinn Samkvæmt tilskipuninni skal skipa reglugefandi eftirlitsaðila sem sé fulltrúi landsins í ACER (hvað Ís- land varðar án atkvæðisréttar) og hafa ýmis verkefni sem talin eru í til- skipuninni. Þessi aðili er hér eftir nefndur landsreglari. Ríkið skal tryggja að landsregl- arinn sé óháður og í reglugerðar- störfum þeim sem tilskipunin felur honum sé bæði hann sjálfstæður gagnvart öllum og starfsfólk hans leiti ekki eftir eða taki við beinum fyrirmælum frá neinum, hvort sem er opinberum stofnunum eða einka- aðilum. Markmið landsreglarans skulu fyrst vera þau, að stuðla að sam- keppni, öryggi og umhverfislegri sjálfbærni á innri markaði ESB í nánu samstarfi við ACER og for- sætisnefnd EBE. Þá skal hann þróa virkan heimamarkað, ryðja úr vegi hindrunum fyrir hæfilegum teng- ingum yfir landamæri og aðstoða við þróun ýmissa reglna og kerfa sem bæta hag notenda, eða virkni hins frjálsa markaðar. Skyldur landsreglarans eru tald- ar upp í 21 staflið, þar á meðal að setja eða samþykkja gjaldskrár fyr- ir flutning og dreifingu ásamt því að tryggja að rafmagnsfyrirtæki fari að ákvæðum tilskipunarinnar. Hann skal fylgjast náið með raforkugeir- anum og gefa árlega skýrslu um at- hafnir innan allra stafliðanna (a til u) til ríkisins, ACER og forsæt- isnefndarinnar. Landsreglarinn skal hafa vald til að kveða upp bindandi úrskurði yfir raforkufyrirtækjum. Einnig vald til að rannsaka virkni raforkumarkaða ásamt því að ákvarða viðurlög til að efla frjálsa samkeppni og tryggja eðlilega markaðsstarfsemi. Hið opinbera, væntanlega Alþingi, skal tryggja landsreglar- anum nægar fjárveitingar til mannahalds og vinnu verkefna sam- kvæmt tilskipuninni. Landsregl- arinn er sjálfráður um meðferð fjár- munanna. Niðurstaða Í raun verður ACER eina stofn- unin sem landsreglaranum er bæði heimilt og skylt að ræða við um beit- ingu valds síns vegna lögbundinna verkefna. Hann verður því eins kon- ar trójuhestur með reglusetning- arvald ásamt rannsóknar- og úr- skurðarvaldi til að fylgja eftir lagaramma ESB með aðferðum ACER. Við Skúli Jóhannsson virðumst sammála um að hér á landi þurfi að byggja frjálsan markað á því sem ég hef nefnt vatnafærni. Þá getur þurft að krefjast samræmds áhættumats allra vatnsorkuvera og það mundi seint falla undir frjálsa samkeppni og eðlilega markaðsstarfsemi. Taka þarf á mögulegri yfirburðastöðu vatnsorku gagnvart jarðvarma, auk þess sem tryggja þarf að nýfjárfest- ingar eigi sér stað með öruggum hætti þrátt fyrir hækkandi kostnað á nýjum virkjunum. Hér dugar hvorki sjónarmið né lagarammi raforku- kerfis sem byggist á brennslu elds- neytis og landsreglarinn sækir til ACER. Nauðsynleg þekking er að- eins hér innanlands. Því ber að hafna 3. orkupakk- anum. Eftir Elías Elíasson »Umrædd tilskipun og stofnun ACER er í og með svar við þessari tregðu sumra ríkja í sambandinu. Elías Elíasson Höfundur er sérfræðingur í orkumálum. eliasbe@simnet.is Lög og raforkumarkaður

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.