Morgunblaðið - 26.06.2018, Blaðsíða 27
í sagnfræði frá Queen Mary, Univers-
ity of London.
Árin 2013-2016 var Guðni kennari í
sagnfræði við Háskóla Íslands, lektor,
dósent og síðast prófessor. Áður var
hann lektor við Háskólann í Reykjavík
og stundakennari við Háskóla Íslands,
Háskólann á Bifröst og University of
London. Jafnframt vann hann um ára-
bil við afleysingar á fréttastofu Ríkis-
útvarpsins.
Guðni hefur skrifað fjölda sagn-
fræðirita, meðal annars um sögu
þorskastríðanna, um forsetaembættið,
um embættistíð Kristjáns Eldjárns,
forseta Íslands, ævisögu Gunnars
Thoroddsens og bókina Óvinir ríkisins
en tvær þær síðastnefndu voru til-
nefndar til Íslensku bókmenntaverð-
launanna. Að auki hefur Guðni skrifað
fjölda fræðigreina um sögu Íslands og
samtíð og hefur hann hlotið ýmsar við-
urkenningar fyrir fræðistörf sín. Árið
2017 var hann sæmdur nafnbót heið-
ursdoktors við Queen Mary, Univers-
ity of London.
Guðni var kjörinn forseti Íslands í
forsetakosningunum 25.6. 2016 með
39% atkvæða og tók við embættinu
1.8. 2016. „Þetta er ábyrgðarmikið
embætti og einstakur heiður að fá að
gegna því. Starfið er annasamt og fjöl-
breytt og einna skemmtilegast að hitta
fjölda fólks hvaðanæva af landinu og
fólk að utan líka.“
Guðni hefur alltaf haft mikinn áhuga
á íþróttum og hreyfingu og spilar fót-
bolta einu sinni í viku með vinum sín-
um. „Ég fagnaði því að tvö ár eru liðin
frá því að ég var kjörinn forseti með
því að hlaupa frá Bessastöðum að Víf-
ilsstaðavatni og til baka, reyni að fara
þá fallegu leið öðru hvoru. Afmælinu
verður fagnað með göngu upp á
Helgafell. Ég reyni líka að vera eins
mikið og ég get með börnunum okkar
og svo veit ég fátt skemmtilegra en að
lesa hnausþykkar ævisögur. Lestur
góðra bóka er líf mitt og yndi. Á nátt-
borðinu er ég með bók eftir Timothy
Snyder sem heitir Bloodlands og einn-
ig Jón forseti allur? eftir Pál Björnsson
sagnfræðing. Svo var ég að ljúka við
Eins og ég er, endurminningar Önnu
Kristjánsdóttur.“
Í dag verður stórleikur hjá íslenska
karlalandsliðinu á HM. „Ég er hóflega
bjartsýnn en veit að liðið mun leggja
sig allt fram. Maður biður ekki um
meira en það og svo sjáum við til
hversu langt það dugar okkur. Hvern-
ig sem fer megum við vera stolt af
strákunum sem hafa vakið athygli víða
um heim og fólk hefur orðið vitni að
þeim krafti og seiglu sem getur búið í
Íslendingum.“
Fjölskylda
Eiginkona Guðna er Eliza Reid, f.
5.5. 1976, annar framkvæmdastjóra
Iceland Writers Retreat, ritlistarbúða
á Íslandi. Hún sinnir auk þess marg-
víslegum verkefnum og skyldum sem
fylgja því að vera maki forseta Íslands.
Foreldrar hennar: Allison Jean Reid
(f. Brown), f. 20.4. 1947, dagmóðir og
húsmóðir, og James Hugh Campbell
Reid, f. 14.2. 1948, kennari í enskum
bókmenntum við framhaldsskóla og
Carleton University í Ottawa. Bæði
sest í helgan stein. Fyrri maki er Elín
Haraldsdóttir, f. 3.8. 1969, listakona og
viðskiptafræðingur.
Börn: Rut Guðnadóttir, með Elínu,
f. 12.8. 1994, meistaranemi í ritlist við
Háskóla Íslands; með Elizu: Duncan
Tindur Guðnason, f. 2.10. 2007; Donald
Gunnar Guðnason, f. 18.9. 2009; Sæþór
Peter Guðnason, f. 9.7. 2011, og Edda
Margrét Reid, f. 20.8. 2013.
Bræður Guðna eru Patrekur Jó-
hannesson, f. 7.7. 1972, íþróttafræð-
ingur og handboltaþjálfari, og Jóhann-
es Jóhannesson, f. 19.12. 1979,
þjónustu- og rekstarsviðsstjóri hjá
WuXi NextCODE Genomics.
Foreldrar Guðna: Hjónin Margrét
Thorlacius, f. 28.5. 1940, fyrrverandi
kennari og ritstjóri, bús. í Garðabæ, og
Jóhannes Sæmundsson, f. 25.7. 1940,
d. 10.4. 1983, íþróttakennari og
þjálfari.
Guðni Th.
Jóhannesson
Þórdís Bogadóttir
húsfr., f. á Brennistöðum
Ólafur S. Guðmundsson
bóndi í Hjörsey á Mýrum og smið-
ur í Rvík, f. á Hítardalsvöllum
Margrét Ó. Thorlacius
húsfreyja í Garðabæ
Guðni Thorlacius
skipstjóri í Reykjavík
Margrét Thorlacius
kennari og fv. ritstjóri
Guðfinna Guðnadóttir
húsfr., f. í Reykjavík
Sigmundur Þorleifsson
sjómaður á Bíldudal og í Rvík, f. í Trostansfirði
Patrekur
óhannesson
handbolta-
kempa og
þjálfari Guðmundur
Kjærnested
skipherra
MargrétAðalgeirs-
dóttir kennari á
Akureyri
J
JóiPé
rappari,
var með
lagið
B.O.B.A Margrét Halldóra Guðmunds-
dóttir húsfr. í Reykjavík
GuðfinnaAðalgeirs
dóttir prófessor í
jarðeðlisfræði við HÍ
Kristjana
Aðalgeirsdóttir
arkitekt í Finnlandi
Ólafur Þór Thorlacius sjóteiknari
og handbolta- og körfuboltakempa
Guðfinna Thorlacius
hjúkrunarfr. og
kennari áAkureyri
Álfheiður
Katrín
Jónsdóttir
kennari hjá
Símenntun á
Suðurnesjum
Jóhannes Ó.
Jóhannesson
rekstrarsviðsstjóri
Guðrún Sæmundsdóttir
skrifstofukona í Hafnarfirði
Gullveig Sæmundsdóttir
kennari í Hafnarfirði
Hólmfríður Margrét Björnsdóttir
húsfr., f. á Siglufirði
Guðmundur Hjaltason
kennari og lýðháskólafrömuður, f.
á Ásbjarnarstöðum í Borgarfirði
Sigurveig Guðmundsdóttir
kennari og félagsmálafrömuður í Hafnarfirði
Sæmundur Jóhannesson
stýrimaður og verkamaður í Hafnarfirði
Guðrún Guðmundsdóttir
húsfreyja, f. á Hamri í
Múlasveit
Jóhannes Sæmundsson
b. á Vaðli á Barðaströnd, frá Krossi
Úr frændgarði Guðna Th. Jóhannessonar
Jóhannes Sæmundsson
íþróttakennari í MR
og þjálfari
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 2018
Þorsteinn Björn Gíslason fædd-ist í Forsæludal í Vatnsdal,A-Hún., 26. júní 1897. For-
eldrar hans voru Gísli Guðlaugsson,
f. 1850, d. 1906, bóndi þar, síðar í
Sunnuhlið í sömu sveit, og seinni
kona hans, Guðrún S. Magnúsdóttir,
f. 1870, d. 1953, húsfreyja.
Þorsteinn varð stúdent í Reykja-
vík árið 1918 og guðfræðiprófi lauk
hann frá Háskóla Íslands árið 1922.
Þorsteinn var settur prestur í
Þingeyraklaustursprestakalli og
skömmu síðar var honum veitt kall-
ið. Gegndi hann embættinu til nóv-
emberloka 1967 er hann fékk lausn.
Hafði hann þá gegnt prestsstörfum í
rúm 45 ár í Þingeyraklausturs-
prestakalli. Hann var prófastur
Húnavatnsprófastsdæmis frá 1951
til 1967. Þorsteinn bjó í Ási í Vatns-
dal sumarið 1922, á Akri veturinn
1922-1923 en síðan í Steinnesi. Um
árabil var Þorsteinn með unglinga-
skóla í Steinnesi sem var vel sóttur.
Eftir að Þorsteinn fékk lausn frá
embætti fluttist hann til Reykjavík-
ur og bjó þar til æviloka.
Þorsteinn gegndi mörgum trún-
aðarstörfum í sveit sinni. Hann
stundaði kennslu um langt árabil,
starfaði í fræðsluráði, var í stjórn
sýslubókasafns, Sögufélags Hún-
vetninga, sýslunefndarmaður og
stjórnarmaður í Kaupfélagi Hún-
vetninga. Þá átti hann sæti í stjórn
Guðbrandsdeildar Prestafélags Ís-
lands, í stjórn Prestafélags Hóla-
stiftis og var kirkjuþingsmaður um
margra ára skeið.
Kona Þorsteins var Ólína Bene-
diktsdóttir, f. 2.11. 1899, d. 26.2.
1996, húsfreyja og organisti.
Börn Þorsteins og Ólínu eru
Sigurlaug Ásgerður, f. 1923, fv.
bankagjaldkeri, bús. í Reykjavík;
Guðmundur Ólafs, f. 1930, fv.
dómprófastur, bús. í Garðabæ, og
Gísli Ásgeir, f. 1937, geðlæknir, bús.
í Reykjavík. Barnabarn Þorsteins og
sonur Gísla er Jón Ármann Gíslason,
prófastur í Eyjafjarðar- og
Þingeyjarprófastsdæmi.
Þorsteinn lést 8. júní 1980.
Merkir Íslendingar
Þorsteinn B.
Gíslason
95 ára
Helga Júlíusdóttir
Sigríður Elíasdóttir
90 ára
Anna Jóhannesdóttir
Beinteinn Sigurðsson
Elsa Heiðdal
85 ára
Birna Baldursdóttir
Erling Jóhannsson
80 ára
Jens Karlsson
Jón Hjartarson
María Magdalena Helgad.
Sólveig B. Halldórsdóttir
75 ára
Guðmundur Tómasson
Gunndís Sigurðardóttir
Halldór Gunnarsson
Hekla Smith
Inga Guðjónsdóttir
Kristín Jónsdóttir
Lilja Bóthildur Alfreðsdóttir
Ragna Brynjarsdóttir
70 ára
Andrés Sigvaldason
Böðvar Halldórsson
Einar Árnason
Eiríkur Einarsson
Erlingur Sigurðarson
Jóhann Hákonarson
Sigrún F. Jónsdóttir
Sigurður Örn Jónsson
Þorleifur Kr. Guðmundsson
Þórey Ásmundsdóttir
60 ára
Áslaug Jóhanna Jensdóttir
Benjamín B. Valgarðsson
Bryndís Sif Guðbrandsd.
Erla Guðmundsdóttir
Eyð Dam
Guðmundur Kr. Þórðarson
Guðrún Gunnarsdóttir
Henryk Adam Chmal
Irena Dapké
Kolbrún Garðarsdóttir
Sigríður Svavarsdóttir
Þorleifur Ingvarsson
50 ára
Anna Janyalert
Ása Hrund Sigurjónsdóttir
Guðni Th. Jóhannesson
Guðrún Margrét Baldursd.
Ingólfur Arnar Stangeland
Jón Atli Portal Gabon
Óli Þór Jónsson
Snorri Páll Einarsson
Svala Guðbjörg Lúðvíksd.
Sveinn Kristján Ingimarss.
40 ára
Anita Karin Guttesen
Anna Dagbjört Gunnarsd.
Auður Inga Þorsteinsdóttir
Baiba Megre
Gunnar Jökull Karlsson
Hafdís Ólafsdóttir
Haukur Már Helgason
Lárus Kjartansson
María Guðrún Gunnarsd.
Piotr Lukasz Klosek
Saul Isac Gutierrez Tapia
Sigursteinn Már Jónsson
Sindri Sigurfinnsson
Þórunn Gyða Hafsteinsd.
Þórunn Pálína Jónsdóttir
30 ára
Arnrún Sæby Þórarinsd.
Edda Ýr Georgsd. Aspelund
Einar Þór Stefánsson
Ellert Sigurþórsson
Guðbjartur Þór Stefánsson
Guðmundur Kr. Jónsson
Ingibjörg Jónsdóttir
Katrín Þorvaldsdóttir
Til hamingju með daginn
40 ára Anna Lára ólst
upp í Grindavík en býr í
Reykjavík. Hún er verk-
efnastjóri hjá Sjúkratrygg-
ingum Íslands.
Maki: Baldvin Orri Þor-
kelsson, f. 1977, deild-
arstjóri hjá Poulsen.
Börn: Ingibjörg Eva, f.
2006, Birgitta Ýr, f. 2010,
og Þorkell Guðni, f. 2012.
Foreldrar: Guðni Gústafs-
son, f. 1939, bús. í Grinda-
vík, og Guðbjörg R. Torfa-
dóttir, f. 1944, bús. í Rvík.
Anna Lára
Guðnadóttir
40 ára Ragga Sveina er
frá Borgarfirði eystra en
býr á Egilsstöðum. Hún er
klinka á tannlæknastofu og
er förðunarfr. að mennt.
Börn: Jón Aðalsteinn, f.
2004, og Árný Birna, f.
2009.
Foreldrar: Árni Björgvin
Sveinsson, f. 1934, d.
2012, gröfustjóri á Borgar-
firði, og Birna Þórunn
Aðalsteinsdóttir, f. 1940, d.
2007, húsmóðir á Borgar-
firði.
Ragnhildur
Sveina Árnadóttir
40 ára Hafdís er Hnífs-
dælingur en býr í Hafnar-
firði. Hún vinnur í farþega-
afgreiðslu hjá Air Iceland
Connect.
Maki: Beka Danelia, f.
1996, boxari og þjálfari í
Mjölni.
Börn: Sverrir Úlfur, f.
1997, Dalía Mist, f. 2008,
og Alexía Mirjam, f. 2010.
Foreldrar: Emil Jóhanns-
son, f. 1958, og Halldóra
Karlsdóttir, f. 1961. Stjúpf.:
Páll Guðjónsson, f. 1956.
Hafdís Vera
Emilsdóttir
56 10 000
TAXI
BSR
Góð þjónusta
yfir 90 ár10%
afsláttur
fyrir 67 ára
og eldri