Morgunblaðið - 26.06.2018, Blaðsíða 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú gætir þurft að annast einhvern
annan eða láta þínar þarfir mæta afgangi
vegna þess að einhver þarf á hjálp þinni að
halda.
20. apríl - 20. maí
Naut Gerðu sjálfum þér eitthvað til góða í
dag því það er fyrir öllu að þú sért ánægð/
ur með sjálfa/n þig. Hentu leiðanum út um
gluggann og verkið klárast á hálftíma.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Sum verkefni eru þess eðlis að
þau þarf að leysa í samráði við aðra. Haltu
áfram að fylgja hugmyndum þínum eftir,
sama hvort þær heppnast að þínu mati
eða ekki.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Orka sem leyst var úr læðingi í
gær gæti farið úr böndunum í dag. Þú ert
með nýja vinnu í sigtinu. Taktu stökkið.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Gefðu þér tíma til að stofna til nýrra
kynna sem og að rækta samband við
gömlu félagana. Láttu einkamálin hafa for-
gang.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er engin ástæða fyrir þig til
þess að bera ábyrgð á öllum sem í kring-
um þig eru. Tæmdu vasana áður en þú
stingur fötum í þvottavélina.
23. sept. - 22. okt.
Vog Yfirmenn verða einstaklega ráðríkir í
dag og þetta er ekki dagurinn til þess að
biðja um launahækkun. Þér vefst tunga um
tönn þegar þú hittir fyrrverandi.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Varastu að dæma hlutina við
fyrstu sýn því það er oft ómögulegt að sjá
það á yfirborðinu hvað undir býr. Þú stend-
ur á krossgötum í lífinu.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er í mörgu að snúast
þessa dagana og væri óvitlaust að skrifa
tossalista svo ekkert verði nú útundan.
Peningar streyma til þín.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þér finnst þú geta sigrað allan
heiminn og það er sjálfsagt að nota þá til-
finningu til hins ýtrasta. Þú stóðst próf
sem þú fórst í og ættir að halda upp á
það.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þótt þú hafir í mörg horn að
líta máttu ekki láta það verða til þess að
þú missir sjónar á markmiðum þínum.
Treystu innsæi þínu.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú þarft ekki að gera allt sem ætl-
ast er til af þér. Næstu vikurnar er tilvalið
að sækja um lán eða styrki. Vertu
óhrædd/ur við að biðja um hjálp.
Eftir leikinn við Nígeríu, sem Ís-land tapaði 2-0, orti Friðrik
Steingrímsson:
Að úrslitunum lengist leið
landann þetta amar
nú fer ekki nokkur skreið
til Nígeríu framar
En á Boðnarmiði kvað Guð-
mundur Arnfinnsson:
Í Volgógrað feyskinn og fúinn
hver fótur var lúinn og snúinn,
drengjunum á
og depurð á brá,
en draumurinn er ekki búinn.
Og enn kvað hann:
Tap við þoldum þetta sinn
– en því skal bráðum linna –
drengjum hleypur kapp í kinn –
og Króatana vinna!
Allt getur gerst:
Ýmsu hef um ævi kynnst
ótta milli og vonar,
leikur tapast, leikur vinnst,
líf manns er þess konar.
Halldór Kristján Ragnarsson
segir: „Hmmm … veislan er ekki
búin!“:
Með trúnni skulum flytja fjöll
fyrir liðs oss anga.
Svo langflest muni lukkutröll
í lið með þeim nú ganga.
Ef upp úr riðli snörumst snjöll
með sniði hrauns og dranga,
þá mun nótt hér ekki öll
úti „drykkjarfanga“
Magnús Geir Guðmundsson
stappar í sig stálinu:
Það gengur lítt að gráta það sem glat-
ast hefur.
Opnast dyr þá aðrar lokast,
Undan ljósi myrkrið þokast.
Og segir næsta dag „ótrúlegt en
satt!“:
Nú Sunnlendingum segja ber,
svolítið af standinu.
Rétt sem snöggvast rignir hér,
röngum megin á landinu!
Og bætir síðan við: „Jamm, sólin
skrapp aðeins frá á Akureyri!“
Hafsteinn Reykjalín Jóhannesson
er frá Hauganesi við Eyjafjörð og
varð hugsað norður á laugardag og
þótti það „traust“:
Nú er sól um Norðurland,
sem nær frá strönd til fjalla.
Gott að tryggja tryggðaband,
því traustið styrkir alla.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af Nígeríuskreið,
fótbolta og veðri
„EF ÉG ER FULLKOMINN LANGAR ENGAN
TIL AÐ LAGFÆRA MIG.“
„HAFÐU AUGUN OPIN. TVEIR FANGAR ERU
HORFNIR!“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar þú veist svarið.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
GELTÁ ÉG AÐ BYRJA
AFTUR?
GEFÐU
MÉR BARA
ÚTDRÁTT
FARÐU ÚT MEÐ
RUSLIÐ!
SÉRÐU EKKI AÐ ÉG ER
MEÐ BÁÐAR HENDUR
UPPTEKNAR?
FYRIRGEFÐU
HVAÐ ÉG ER
SEINN Heimsmeistaramótið í knatt-spyrnu (HM) er skemmtilegra
en Evrópumeistaramótið (EM) að
því leyti að breiddin er meiri; liðin
fleiri og leikstílar fjölbreyttari. Fólk
sem fylgist sæmilega vel með keppni
í helstu deildum Evrópu þekkir
flesta leikmenn á EM en á HM er
meira um óþekktar stærðir enda
þótt margir af fremstu sparkendum
Suður-Ameríku, Asíu og Afríku leiki
vissulega í Evrópu.
HM í Rússlandi hefur farið vel af
stað og það er ekki síst að þakka lið-
um sem koma úr öðrum heimsálfum
en við. Nægir þar að nefna Japan,
Kólumbíu, Senegal, Íran, Mexíkó, að
ekki sé talað um kæra vini okkar Ís-
lendinga, Nígeríumenn.
x x x
Mexíkó hefur heillað marga ámótinu og enda þótt Víkverji
þekki og þyki vænt um marga Svía
vonar hann, knattspyrnunnar vegna,
að sænska liðið sitji fremur eftir í
lokaumferðinni. Útherjinn Hirving
Lozano er klárlega einn af mönnum
mótsins til þessa, 22 ára strákur.
Nágrannar Mexíkó, Panama, hafa
líka vakið óskipta athygli en á allt
öðrum forsendum. Svo virðist sem
leikmenn liðsins séu upp til hópa í
rangri íþrótt; ættu frekar heima í
fjölbragðaglímu eða ruðningi. Eigi
að síður var ekki annað hægt en
gleðjast með þeim þegar þeir settu
sitt fyrsta mark í lokakeppni HM, í
stöðunni 0:6 gegn Englendingum.
Og fögnuðu eins og þeir hefðu unnið
mótið. Ófáir olnbogar höfðu þá flog-
ið.
x x x
Í þeim leik sannaði Harry Kane,miðherji Englands, enn og aftur
markheppni sína. Hann skaut aldrei
að marki í opnum leik en gerði eigi
að síður þrennu. Tvö markanna
komu úr vítum og það þriðja þegar
skotið var í kappann – og inn. Ótrú-
legur maður, Harry Kane.
x x x
Kane er kominn með fimm mörk ífyrstu tveimur leikjunum og
hvíla vonir enskra að miklu leyti á
hans herðum. Fróðlegt verður að sjá
glímuna við Belga. vikverji@mbl.is
Víkverji
Vísa mér veg þinn, Drottinn, að ég
gangi í sannleika þínum, gef mér heilt
hjarta, að ég tigni nafn þitt.
(Sálm: 86.11)
Fasteignir