Morgunblaðið - 26.06.2018, Side 30

Morgunblaðið - 26.06.2018, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 2018 Secret Solstice 2018 AF MÁLMI Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Hafi einhvern tíma verið viðhæfi að himnarnir opnuðustvar það á laugardaginn þeg- ar Slayer heiðraði okkur, auma þjóð á útjaðri siðmenningarinnar, með nær- veru sinni. Að vísu rigndi ekki blóði að þessu sinni heldur beiskum tárum enda harmar almættið brotthvarf þessa þéttasta málmbands sögunnar ugglaust af sama þunga og við dauð- legir menn. Þetta er sem kunnugt er kveðjutúrinn. Ekki svo að skilja að bragur þeirra félaga sé einhverjar biblíusögur. Öðru nær. Mest fjallar hann um vígaferli, blóðsúthellingar og almennan hrylling, svo sem af völdum ómenna á borð við dr. Josef Mengele og Ed Gein. En þeir eru líka partur af sköpunarverkinu. Hvort sem okkur líkar það betur eða verr. Nema þetta hafi verið gleðitár hjá himnaföðurnum en Slayer sendi sem kunnugt er frá sér skífuna God Hates Us All hinn örlagaríka dag 11. sept- ember 2001. Til að gæta fyllstu sanngirni þá hafði stytt upp þegar Delusions of Saviour, forleikurinn að nýjustu plötu Slayer, tók að óma um Laugardalinn, vettvang Secret Solstice-hátíð- arinnar. Kapparnir birtust einn af öðrum og hlaðið var beint í titillag sömu plötu, „Repentless“. Tónninn var gefinn og jarðsamband rofnaði hjá gömlum málmhundi sem beðið hafði þessarar stundar í meira en þrjá áratugi. Næstu níutíu mín- úturnar var ekki gott að átta sig á því hvar mér sleppti og Slayer tók við. Það á eflaust við um fleiri af minni kynslóð. Annars runnu kynslóðirnar saman þetta kvöld; sjálfur stóð ég hjá þremur mönnum sem allir eru fæddir eftir að fyrsta plata Slayer, Show No Mercy, kom út árið 1983. Og sá yngsti kunni textana betur en ég – og þá er talsvert sagt. Ég er ennþá rám- ur eftir þá hörðu rimmu. Ánægjulegt var að sjá svona margt ungt fólk á svæðinu og enda þótt sumir hafi ef- laust verið þangað komnir af forvitni frekar en fylgispekt við goðin þá veit maður aldrei hvenær neistinn kvikn- Slayið í gegn! ar. Og af honum verður oftar en ekki mikið bál. Talandi um bál þá hafði Tom Araya, söngvari og bassaleikari, orð á því að svalt væri hér í fásinninu. Hefði sjálfsagt þegið myndarlegan varðeld, kappinn, upp á yl í sigldan kroppinn. „Þetta er í fyrsta sinn sem við komum til Íslands. Og því miður það seinasta líka,“ mælti Araya og Dalurinn gat ekki falið angist sína. Menn náðu þó fljótt vopnum sínum þegar Araya bætti við: „En nú skul- um við skemmta okkur!“ Söngvarinn hafði raunar tak- markaða trú á tungumálakunnáttu gesta og þurfti að fá staðfestingu á því hvort við botnuðum yfir höfuð eitthvað í því sem hann var að segja. Bandið var betur tengt á öðrum svið- um og það hlýtur að fara á topp 10 yf- ir óvæntustu uppákomur í mínu lífi þegar Slayer hlóð í hina nýju þjóðar- íþrótt okkar Íslendinga, búmm, búmm, húh, á Valbjarnarvellinum. Óborganlegt stöff!    Annars er Tom Araya ekkimikið fyrir „small talk“; kýsað láta verkin tala. Það kom best í ljós þegar ég sóttist eftir viðtali við sveitina í tilefni af heimsókn hennar hingað. Kurteist svar barst um hæl frá umboðsskrifstofunni. „Því miður hefur Slayer ekki og mun ekki veita nein viðtöl í ár.“ Þar höfum við það. Efnisskráin kom ekki á óvart; var nákvæmlega sú sama og á Ameríkutúr sveitarinnar, sem gert var stutt hlé á til að fljúga hingað. Forsvarsmenn Secret Solstice fá sveran plús fyrir það afrek. Um er að ræða óð til ferilsins frá upphafi og fengu lög af öllum hljóðversplötum Slayer með frumsömdu efni að hljóma, fyrir utan Diabolus in Musica sem almennt þykir ómstríðust platn- anna ellefu. Veglegastan sess fengu að von- um Reign in Blood (1986), South of Heaven (1988) og Seasons in the Abyss (1990) enda er sú heilaga þrenning almennt talin ramma inn gullöld Slayer. Níu af nítján lögum sem flutt voru í Dalnum eru af þess- um plötum; titillögin (teljum „Rain- ing Blood“ þar með), „Blood Red“, „Dead Skin Mask“, „War Ensemble“, „Mandatory Suicide“, „Postmortem“ og svo lauk veislunni á „Angel of Death“ sem margir myndu segja að væri besta þrasslag allra tíma. Og Tom lét meira að segja vaða í málm- öskrið fræga í upphafi, sem tók af öll tvímæli um það að þessir tónleikar væru spari. Hann sleppir öskrinu að Morgunblaðið/Árni Sæberg Grjótharður Menn verða ekki mikið myndrænni en Kerry King enda er hann og verður holdgervingur þrassins. Hér brýnir hann vopn sitt af kostgæfni. Ekki hoppa með regnhlífar mennilegur kraftur næðist í fram- komuna. Talsverður fjöldi fólks fylgdist með leik Íslands og Nígeríu á hátíð- arsvæðinu á föstudag. Úrslit leiksins ollu talsverðum vonbrigðum en komu þó ekki í veg fyrir að hátíðargestir tækju gleði sína á ný á tónleikum helstu rappara Íslands, Alviu Islandia, Flóna, Arons Can og Gísla Pálma. Á meðan fjöldi fólks fylgdist með blóti og dólgslátum Gísla Pálma í Val- höll færðu aðrir sig yfir á tónleika Valdimars á sviðinu Gimli. Strákarnir í Valdimar fluttu lög sín af snilld og rödd söngvarans geðþekka var upp á sitt allra besta, sem og básúnuleik- urinn. Þeir tóku sín vinsælustu lög og frumfluttu nýtt efni sem væntanlegt er í spilun á næstu vikum. Aðdáendur »Meðal þeirra varíslenski rapparinn GKR, en skafa þurfti vatnið af Gimli-sviðinu áður en hann steig á það og tryllti lýðinn ásamt vel völdum félögum. AF SOLSTICE Þorgerður Anna Gunnarsd. thorgerdur@mbl.is Tónlistarhátíðin Secret Solsticevar haldin í fimmta sinn núum helgina, en hátíðarhald- arar halda ótrauðir áfram ár hvert þrátt fyrir gagnrýni íbúa Laugardals og foreldra sem hafa áhyggjur af ungviði sínu á hátíðinni. Líkt og undanfarið var hátíðin sett á fimmtudegi og stigu þá á svið Sylvia, Reykjavíkurdætur, Steve Aoki og Jet Black Joe. Aðalnúmer kvöldsins var síðan goðsögnin Bonnie Tyler. Flestir muna líklega eftir seið- andi viskírödd velsku söngkonunnar en fæstir gætu ímyndað sér ná- kvæmlega hversu rám hún er orðin, enda 67 ára gömul. Söngkonunni tókst að ná upp ágætri stemningu með helstu slögurunum sínum, svo sem „Total Eclipse of the Heart“, „It’s a Heartache“ og „Holding Out for a Hero“. Hún var þó dugleg að rétta míkrófóninn í átt að áhorf- endaskaranum þegar kom að hæstu nótunum. Tónleikarnir voru almennt ánægjulegir þrátt fyrir að raddleysi söngkonunnar kæmi í veg fyrir að al- Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Miklu meira en bara ódýrt! Lyklahús Sláttuorf 3.495 5.495 rrulás 1.995 1.995 7.995 4.995 3.995 3.995 Kerrulás Hjólastandur á bíl 1.995 Tjaldstæðatengi Tengi 12v í 230v Hraðsuðuketill 12v USB 12v tengi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.