Morgunblaðið - 26.06.2018, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 2018
jafnaði í seinni tíð. Það höfuð sem
ekki bærði á sér á því augnabliki hef-
ur ekki verið með lífsmarki; Laug-
ardalurinn varð ein flasa.
Vanþakklæti væri að saknaeinhvers en fyrir utan lögeins og „Spill the Blood“,
„Ghosts of War“ og „World Painted
Blood“, sem gaman hefði verið að
heyra, má velta fyrir sér hvort Slayer
hefði ekki átt að flytja Reign in Blood
í heild sinni á þessum kveðjutúr; það
tekur jú ekki nema 28 mínútur og 58
sekúndur.
Tom Araya og Kerry King eru
einu upprunalegu meðlimirnir í þess-
um lokaslag og geggjað hefði verið að
fá sveitina hingað upp eftir meðan
Daves Lombardos og Jeffs Hann-
emans naut ennþá við. Hafandi sagt
það þá stendur Paul Bostaph Lomb-
ardo alveg á sporði við settið og Gary
Holt, Garðar í Holti, er verðugur arf-
taki Hannemans heitins á gítarnum
enda hertur í brennandi eldi málms-
ins. Holt er líflegur á sviði, öfugt við
Hanneman sem var jafnan sem bolt-
aður niður. Yfir honum var þó ótrú-
lega sterk ára.
Ekki nóg með það, af lögunum
nítján, sem leikin voru á Secret Sol-
stice, eru fjórtán eftir Hanneman.
Þar með talin öll þau ástsælustu.
Enda þótt þeir hafi alla tíð skipt laga-
smíðunum með sér hafa lögin hans
Kerrys Kings ekki náð sömu hæðum.
Svei mér ef kappinn er þó ekki að
sækja í sig veðrið ef marka má lögin
tvö af nýjustu plötunni sem flutt voru
á laugardaginn, „Repentless“ og þá
sérstaklega „When the Stillness Co-
mes“. Truflað lag.
Hvað sem því líður er Kerry allt-
af jafnmyndrænn og svalur og þrass-
ið holdgervist ekki eins innilega í
nokkrum manni – nema ef vera
skyldi James Hetfield.
Að leiðarlokum verður Slayer
aldrei fullþakkað; ekki bara fyrir
þessa stórbrotnu tónleika heldur öll
þessi ár, hvorki fleiri né færri en 37,
sem sveitin hefur þrassað af ódrep-
andi eldmóði og veitt óteljandi mörg-
um innblástur, leikum sem lærðum.
Arfleifðin er tryggð.
Slayer mun hér eftir sem hingað
til ríkja í blóði!
» Þetta er í fyrstasinn sem við komum
til Íslands. Og því miður
það seinasta líka.
Verkin tala Tom Araya eyddi ekki miklum tíma í spjall við lýðinn enda ekki sannfærður um að Íslendingar skildu
yfir höfuð hvað hann væri að segja. Hann kom hins vegar hressilega á óvart þegar hann taldi í eitt stykki „húh!“
Hirðin Málmhausar þessa lands létu sig ekki vanta enda Slayer með
áhrifamestu málmböndum sögunnar. Og ófá djöflahorn fóru á loft.
Morgunblaðið/Valli
Vinsæll Rapparinn Aron Can nýtur gríðarlegra vinsælda og flutti meðal annars lög af nýjustu plötu sinni, Trúpíter,
á Valhallarsviðinu á föstudagskvöld. Gísli Pálmi tók við hljóðnemanum að atriði Arons loknu.
hljómsveitarinnar geta því farið að
láta sig hlakka til að heyra nýja slag-
ara Valdimars á útvarpsstöðvum
landsins.
Slayer tryllti lýðinn á laugar-
dagskvöldinu en hægt er að lesa allt
um það í pistli Orra hér að ofan. Á
sunnudegi og síðasta degi hátíðar-
innar rigndi eldi og brennisteini og
dró það úr þeim fjölda sem gerði sér
ferð á svæðið. Þeir sem mættu voru
misvel klæddir, en raunar dugði ekk-
ert minna en pollagalli og stígvél til
að vinna bug á rigningunni. Því má
jafnvel ætla að atvinnuþátttaka ungs
fólks á aldrinum 18 til 25 ára snar-
minnki í vikunni vegna veikinda. Það
tónlistarfólk sem fram kom hrósaði
áhorfendum sínum í hástert fyrir að
mæta þrátt fyrir rigningu og var
þakklátt fyrir dyggan aðdáendahóp-
inn. Meðal þeirra var íslenski rapp-
arinn GKR, en skafa þurfti vatnið af
Gimli-sviðinu áður en hann steig á
það og tryllti lýðinn ásamt vel völdum
félögum.
Það voru svo undrabörnin í
hljómsveitinni Clean Bandit sem lok-
uðu kvöldinu hjá undirritaðri sem
flúði heim úr úrhellinu að tónleikum
þeirra loknum. Himnunum tókst ekki
að rigna niður stemninguna sem
myndaðist þegar þeirra vinsælustu
lög voru tekin og fólk hoppaði og
dansaði. Regnhlífar skyggðu talsvert
á útsýni margra og sköpuðu jafnvel
hættu. Áttu margir fullt í fangi með
að láta ekki pota úr sér augun. Þeir
taki það til sín sem eiga: Ekki hoppa
með regnhlífar.
Morgunblaðið/Valli
Blautt Regnkápur voru staðalbúnaður á hátíðinni í ár sem og undanfarin
ár. Þær dugðu þó skammt í úrhellinu á sunnudagskvöld.
/////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////
///////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////