Morgunblaðið - 26.06.2018, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 26.06.2018, Blaðsíða 36
ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 177. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Hjörtur sendur heim frá Rússlandi 2. Sofnaði væntanlega undir stýri 3. Læknar gerðu mistök í Rússlandi 4. Sagður ábyrgur fyrir vísindalegu … »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Píanóleikarinn Árni Heiðar Karls- son treður upp í menningarhúsinu Mengi í kvöld með kvartetti sínum sem hann skipar ásamt finnska saxó- fónleikaranum Joakim Berghall, bandaríska trymblinum Scott McLe- more og kontrabassaleikaranum Valdimar K. Sigurjónssyni. Tónleik- arnir hefjast kl. 21 og verður húsið opnað hálftíma fyrr. Kvartett Árna Karls- sonar leikur í Mengi  Hljómsveitin Move heldur tón- leika í Edinborgar- húsinu á Ísafirði annað kvöld kl. 20 og flytur bestu lög gullaldarára djassins, auk frumsamins efnis. Move skipa Eyþór Gunnarsson píanóleikari, Matthías Hemstock trommari, Valdimar K. Sig- urjónsson kontrabassaleikari og Ósk- ar Guðjónsson saxófónleikari. Move leikur í Edinborgarhúsinu  Sumardagskrá djassklúbbsins Múlans heldur áfram og næstu tón- leikar fara fram annað kvöld kl. 21 á Björtuloftum í Hörpu. Þá leikur kvartett saxó- fónleikarans Ólafs Jónssonar tónlist af diski Ólafs, Tími til kominn, sem kom út í fyrra, lög eftir aðra meðlimi sveitarinnar og djassstand- arda. Tími til kominn með Ólafi og félögum Á miðvikudag Suðvestlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og bjartviðri austantil, en dálítil rigning vestanlands. Hiti 8 til 16 stig að deg- inum, hlýjast um landið austanvert. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Heldur hægari og stöku skúrir um landið vestanvert, en víða bjart fyrir austan. Hiti 8 til 16 stig að deginum, hlýjast norðaustanlands. VEÐUR Íslandsmeistarar Vals eru úr leik í Mjólkurbikarnum í knattspyrnu karla eftir tap fyrir Breiðabliki á heima- velli í gærkvöldi. Arnór Gauti Ragnarsson tryggði Blikum sigurinn. Stjarnan lenti í kröppum dansi gegn Þór á Akureyri en tókst að knýja fram sigur í framleng- ingu með tveimur mörkum. FH-ingar mörðu Skagamenn með marki snemma leiks á Akranesvelli. »3 Blikar, Stjarnan og FH fara áfram Spánn mætir Rússlandi og Portúgal og Úrúgvæ eigast við í 16-liða úrslit- um heimsmeistaramótsins knatt- spyrnu í Rússlandi. Þetta varð ljóst eftir að úrslitin í A- og B-riðli réðust í gær. Spennan var mikil í B-riðli þar sem Spánn, Íran og Portúgal börðust um tvö laus sæti allt fram í uppbót- artíma. Íranar voru hársbreidd frá að senda Evrópumeistarana heim. »4 Íranar velgdu Portúgöl- um undir uggum ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Stutisheel Oleg Lebedev er einn af 40 einstaklingum í heiminum sem hefur tekist að ljúka við Sri Chinmoy, 4.989 km hlaupakeppnina. Keppnin fer fram í New York-borg í Bandaríkjunum og þurfa hlauparar að ljúka við langhlaupið sitt á 52 dögum sem þýðir að hlaupari þarf að hlaupa að meðaltali 95,95 km á dag. Til samanburðar við 4.989 má nefna að hringvegurinn á Íslandi er 1.332 km. Lebedev, sem 48 ára gamall og fæddur í Úkraínu, hefur lokið við hlaupið 9 sinnum en afar fáir hafa leikið það afrek eftir. Lebedev var á Íslandi á dögunum og segir í samtali við Morgunblaðið að hlaupið snúist langmest um and- legu hliðina en þetta lengsta viður- kennda hlaup í heiminum ber ein- mitt enska heitið Self-Transc- endence 3.100 mílna hlaupið sem þýða mætti lauslega sem Sjálfs- traustshlaupið. Fyrstu dagarnir erfiðastir Spurður um hvaða áhrif svona langhlaup hefur á líkamann segir hann að fyrstu tíu dagarnir séu erf- iðastir. „Þrátt fyrir stífar æfingar fram að hlaupi þá eru fyrstu tíu dag- arnir afar erfiðir. Þreyttir og stífir vöðvar en eftir að þú kemst yfir þann þröskuld verður þetta allt frek- ar eðlilegt. Þú vaknar á morgnana og ferð út að hlaupa. Það eina óeðli- lega er kannski að þetta er breyting frá daglega lífinu en þegar maður byrjar að hlaupa líður manni vel. Það er eitt af kraftaverkunum við þetta hlaup hversu fljótur líkaminn er að jafna sig og maður finnur fal- inn innri styrk til að halda áfram,“ segir Lebedev. Ekki fá allir að taka þátt í hlaupinu en einungis þeir sem hafa sýnt fram á árangur í lang- hlaupi fá boð um að taka þátt frá mótshöldurunum. „Ég hljóp mitt fyrsta maraþon árið 1994 í Moskvu þegar ég var þar í námi. Ég kláraði maraþonið á 2 klukkutímum og 46 mínútum sem er ágætis tími fyrir fyrsta maraþon.“ Í kjölfarið fór Lebedev að hafa áhuga á lengri hlaupum og hljóp hann og vann 76 km hlaup í New York árið 2002. Það var síðan tveim- ur árum seinna sem skipuleggj- endur Sri Chimnoy höfðu samband við hann og spurðu hvort hann hefði áhuga á að taka þátt. „Ég sagði já án þess að hika. Ég vissi ekkert hvað ég þyrfti til að geta tekið þátt, t.d. hversu marga skó ég þyrfti að eiga. Það var líka mjög erfitt að fá upplýs- ingar þar sem einungis örfáir höfðu lokið við hlaupið á þessum tíma. Ég setti mig í samband við nokkra þeirra en fékk bara almennar upp- lýsingar, engin sértæk ráð,“ segir Lebedev sem lét vaða og hefur síð- an tekið þátt 12 sinnum til viðbótar og lokið því 9 sinnum. Hljóp um 5.000 km á 52 dögum  Lebedev hljóp lengsta hlaup í heimi 9 sinnum Ljósmynd/Úr einkasafni Í mark Oleg Lebedev sést hér koma í mark í Sri Chimnoy-hlaupinu árið 2015. Hann hefur klárað hlaupið 9 sinnum. Sri Chimnoy-hlaupið er lengsta viðurkennda keppnis- hlaup í heiminum. Hlaupið fer fram í Jamaica Queens í New York-borg og eru farnir 5.649 hringir á fyrir- fram ákveðinni hlaupaleið um hverfið. Vegalengdin er 4.989 km og hafa hlauparar 52 daga til að ljúka við hlaupið. Keppni fór fyrst fram árið 1996 og var þá 4.345 km en hlaupið var lengt strax árið eftir í 4.989 km. Sri Chinmoy, stofnandi hlaupsins, segist hafa gert það til að skapa tækifæri fyrir hlaupara til að uppgötva takmarkanir á getu sinni og síðan reyna að yfirstíga þær. Madhupran Wolfang Schwerk er sá fljótasti sem klárað hef- ur hlaupið en hann lauk því á 40 dög- um, níu klukkutímum og sex mín- útum, í júlí árið 2015. HLAUPA SAMA HRINGINN 5.649 SINNUM Stutisheel Oleg Lebedev Lengsta keppnishlaup í heimi Kalt mat á möguleikum íslenska landsliðsins í handknattleik karla er það að Guðmundur Þórður Guð- mundsson og lærisveinar hans verði væntanlega í baráttu við Makedóníu- menn um þriðja sæti riðilsins og það síðasta sem veitir keppnisrétt í milli- riðlakeppni HM í Þýskalandi og Dan- mörku í janúar. Evrópumeistarar Spánverja og Króatar munu væntanlega berjast um efsta sætið. Barein og Japan eru sýnd veiði en ekki gefin. »4 Baráttan verður við Makedóníumenn á HM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.