Morgunblaðið - 30.06.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2018
Í nýju hefti Þjóðmála er rætt viðdr. Eamonn Butler, fram-
kvæmdastjóra Adam Smith-
stofnunarinnar, sem var aðalgestur
á ársfundi Samtaka atvinnulífsins í
vor.
Hann er meðalannars spurð-
ur út í skatta og að
ýmsir stjórn-
málamenn tali með
þeim hætti að lækk-
un skatta sé í raun
gjöf til þeirra sem
afla þeirra tekna
sem skattlagningin byggist á.
Vegna þessa sagði Butler rétt að
rifja upp „að Calvin Coolidge, John
Kennedy og Ronald Reagan lækk-
uðu allir skatta þegar þeir voru for-
setar Bandaríkjanna. Í öllum til-
vikum jukust tekjur ríkisins. Þessi
þróun hefur líka átt sér stað í þau
fáu skipti sem skattar hafa verið
lækkaðir í Evrópu.“
Af þessum sökum sé hæpið aðtala um skattalækkun sem gjöf
ríkisins og vandamálið sé ekki að
skattar séu of lágir heldur að rík-
isvaldið sé orðið of stórt og þurfi of
mikið fjármagn og sinni of mörgum
verkefnum.
Butler hefur áhyggjur af því aðvið séum „því miður búin að
búa til atvinnustjórnmálamenn sem
eru með minni hugmyndafræðileg-
an bakgrunn en áður. Þá eru menn
bara að tala um daglegt amstur en
ekki hugmyndafræði. Síðan búa
menn til lög til að laga vandamál
dagsins í stað þess að horfa á stærri
myndina; frjálsa markaði, tjáning-
arfrelsi, eignarrétt og svo fram-
vegis.“
Það skyldi þó ekki vera að tölu-verð merki um þetta sjáist ein-
mitt hér á landi?!
Eamonn Butler
Stjórnmálamenn
eða embættis-
menn?
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 29.6., kl. 18.00
Reykjavík 11 skýjað
Bolungarvík 8 alskýjað
Akureyri 15 rigning
Nuuk 8 skýjað
Þórshöfn 10 þoka
Ósló 22 heiðskírt
Kaupmannahöfn 21 léttskýjað
Stokkhólmur 15 heiðskírt
Helsinki 14 skýjað
Lúxemborg 27 heiðskírt
Brussel 27 heiðskírt
Dublin 23 heiðskírt
Glasgow 21 heiðskírt
London 26 heiðskírt
París 28 heiðskírt
Amsterdam 21 heiðskírt
Hamborg 24 heiðskírt
Berlín 26 heiðskírt
Vín 25 skýjað
Moskva 25 heiðskírt
Algarve 21 léttskýjað
Madríd 30 léttskýjað
Barcelona 26 léttskýjað
Mallorca 30 heiðskírt
Róm 26 léttskýjað
Aþena 28 léttskýjað
Winnipeg 22 skýjað
Montreal 26 léttskýjað
New York 29 léttskýjað
Chicago 28 heiðskírt
Orlando 30 þrumuveður
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
30. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:05 23:59
ÍSAFJÖRÐUR 1:37 25:37
SIGLUFJÖRÐUR 1:20 25:20
DJÚPIVOGUR 2:21 23:42
Í rekstraráætlun Alþingis fyrir þetta
ár er gert ráð fyrir að hátíðarfundur
Alþingis á Þingvöllum 18. júlí næst-
komandi muni kosta 45 milljónir
króna. Á fundinum verður þess
minnst að þennan dag árið 1918 und-
irrituðu Danir og Íslendingar samn-
ing um fullveldi og sjálfstæði Íslands
sem tók gildi 1. desember það ár.
Þetta kemur fram í svari Stein-
gríms J. Sigfússonar, forseta Alþing-
is, við fyrirspurn frá Birni Leví
Gunnarssyni, þingmanni Pírata.
Fram kemur í svarinu að við af-
greiðslu áætlunarinnar í upphafi
þessa árs lágu ekki fyrir nákvæmar
upplýsingar um kostnað við þing-
fundinn, en áætlað var að kostnaður
við sjálfan þingfundinn yrði um 35
millj. kr. og dvöl erlendra gesta,
móttökur og annar kostnaður var
áætlaður 10 millj. kr. Nú þegar um-
fang viðburðarins hefur skýrst nán-
ar sé ljóst að kostnaður geti orðið
eitthvað meiri en að framan greinir.
Ýmis kostnaður bætist við
Í þessu sambandi er nefnt að í
starfi samráðshóps skrifstofu Al-
þingis, Framkvæmdasýslu ríkisins,
ríkislögreglustjóra og annarra lög-
regluembætta, þjóðgarðsins á Þing-
völlum, Ríkissjónvarpsins, ráðu-
neyta (einkum utanríkisráðuneytis),
Vegagerðarinnar o.fl. hafi komið
fram að við bætist ýmis kostnaður er
tengist þingfundinum, einkum vegna
undirbúnings á vegum þjóðgarðsins
á Þingvöllum (rafmagn, bílastæði,
gæsla, göngustígar og viðhald), en
ekki liggur enn fyrir hver slíkur við-
bótarkostnaður gæti endanlega orð-
ið, segir í svarinu.
gudmundur@mbl.is
Aukinn kostnaður við hátíðarfund
Þingfundur á Þingvöllum kostar meira en þær 45 milljónir sem áætlaðar voru
David Beckham, fyrrverandi knatt-
spyrnumaður og áður fyrirliði enska
landsliðsins í knattspyrnu, var við
veiðar í Norðurá í Borgarfirði í gær.
Hann var þar staddur ásamt leik-
stjóranum Guy Ritchie og Björgólfi
Thor Björgólfssyni kaupsýslumanni,
en Beckham hefur áður komið hing-
að til lands í fylgd Björgólfs. Það var
árið 2016 og þá var eiginkona Beck-
hams, Victoria Beckham, með í för.
Af myndum á instagramsíðu
Beckhams má ráða að hann hafi ver-
ið nokkuð fengsæll og að hann uni
sér vel hér á landi, en á síðunni lýsir
hann m.a. yfir ást sinni á Íslandi.
Á veiðum David Beckham var við
veiðar í Norðurá í Borgarfirði.
Beckham
veiddi
í Norðurá
Skjáskot/Instagram
Sölustaðir: Flest apótek, heilsuhús og heilsuhillur
• Eplakjarni, elfting og hirsi
• Tocotrienol örvar hársrótina
• Amínósýrur, bíótín og sink
• Procyanidin B2 úr eplum
stórmarkaða Nánar á artasan.is
Hair Gro stuðlar að
eðlilegum hárvexti
Er hárið að þynnast