Morgunblaðið - 30.06.2018, Síða 10

Morgunblaðið - 30.06.2018, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2018 BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Seldar gistinætur á hótelum á höfuð- borgarsvæðinu til þýskra ferða- manna eru 26,3% færri en í fyrra. Þá hefur eftirspurn frá Svíum og Norð- mönnum dregist saman. Þetta má ráða af nýjum tölum Hagstofunnar yfir seldar gistinætur á fyrstu fimm mánuðum ársins. Þær ná til hótela sem eru opin allt árið. Samanlagt fjölgaði seldum gisti- nóttum um rúmt prósentustig á landinu öllu. Þeim fækkaði í þremur landshlutum. Samdrátturinn var 0,7% á höfuðborgarsvæðinu, 2,5% á Suðurnesjum og 3,3% á Austurlandi. Rímar þetta við upplýsingar um að bókanir á Austurlandi hafi verið undir væntingum. Seldum nóttum fjölgaði hins vegar um 12,9% á Vest- urlandi og Vestfjörðum og um 6,3% á Norðurlandi og 5,6% á Suðurlandi. Tölur Hagstofunnar eru sem áður segir sundurgreindar eftir þjóðerni. Benda þær til að eftirspurn frá einstökum þjóðum sé að breytast. Til dæmis voru seldar 27,9% fleiri gistinætur til Ítala á landinu öllu fyrstu fimm mánuði ársins en í fyrra. Á hinn bóginn dróst salan saman um 28,7% til Japana á sama tímabili. Bretar og Bandaríkjamenn keyptu langflestar gistinætur á fyrstu fimm mánuðum ársins (sjá graf hér til hliðar). Breytingar á eftirspurn frá þessum þjóðum vega því þungt í stóra samhenginu. Eftir- spurnin frá Bretlandi minnkaði um 5,6% milli ára en jókst um 6,3% frá Bandaríkjunum. Löndin voru nær jöfn 2017. Á þessu ári eru Banda- ríkjamennirnir hins vegar 50 þúsund fleiri en Bretarnir í janúar til maí. Stóraukin eftirspurn frá Kína Athygli vekur að eftirspurn Kín- verja eftir gistinóttum jókst um 33,7% fyrstu fimm mánuði ársins. Kínverjar keyptu 81.345 gistinætur, sem skipar þeim í fjórða sætið á eftir Þjóðverjum, Bretum og Bandaríkja- mönnum, sem kaupa flestar nætur. Eftirspurn frá Kína á því þátt í að heildareftirspurnin eykst milli ára. Samkvæmt Hagstofunni seldust 4,29 milljónir gistinátta á hótelum frá júní 2017 til maí 2018, eða 3% fleiri en sama tímabil árið áður. Þá var herbergjanýting í maí 2018 58,4%, sem er lækkun um 3,8% frá maí 2017. Alls hafi verið seldar 725.000 gistinætur á öllum gististöð- um í maí. Þar af 430.300 nætur á hót- elum og gistiheimilum, 120.800 næt- ur í gegnum vefsíður eins og Airbnb og 173.900 nætur á öðrum tegundum gististaða, svo sem farfuglaheimil- um, hostelum og íbúðahótelum. Hrun í gistinóttum Þjóðverja  Keyptu um fjórðungi færri gistinætur á hótelum fyrstu fimm mánuði ársins en sömu mánuði í fyrra  Stærsti hópurinn, Bandaríkjamenn, kaupir hins vegar fleiri nætur  Stóraukin sala til Kínverja Fjórar stærstu þjóðirnar Breyting jan.-maí 2017-2018 (%) Bandaríkin Kína Bretland Þýskaland Bandaríkin Bretland Þýskaland Kína Frakkland Holland Kanada Svíþjóð Danmörk Spánn Noregur Japan Ítalía Sviss** Ástralía Írland Finnland Belgía 402.255 352.504 98.096 81.345 55.783 32.426 30.568 28.464 27.654 27.573 25.467 23.552 18.440 18.401 17.256 14.452 12.707 10.097 6,3% -5,6% -16,5% 33,7% 7,5% -16,6% 13,4% -9,9% 9,8% 7,7% -3,7% -28,7% 27,9% 12,6% 29,3% 3,6% 3,9% 13,9% Seldar gistinætur á hótelum í janúar til maí* 1.500 1.250 1.000 750 500 250 0 300 250 200 150 100 50 0 +80% +60% +40% +20% 0% -20% Allt landið Höfuð- borgar- svæði Lands- byggð Suðurnes Vesturl. og Vestfirðir Norður- land Austur- land Suður- land Þúsundir gistinátta í janúar-maí 2014-2018 Fjöldi gistinátta í jan.-maí 2018, landið allt Breyting 2017-2018 Breyting milli ára eftir landshlutum (%) 2014 2015 2016 2017 2018 2014 2015 2016 2017 2018 202 605 278 694 391 902 550 1.030 575 1.023 Höfuðborgarsvæði Landsbyggð Höfuðborgarsvæði Landsbyggð Jan.-maí 2016-2018 Jan.-maí 2017-2018 Suðurnes Vesturland og Vestfirðir Norðurland Austurland Suðurland 807 972 1.294 1.580 1.598 111 62 89 22 291 53,7 4,1 18,612,9 36,2 82.6 46,8 13,4 23,5 5,1 9,0 -4,5 -9,8 3,1 -26,3 1,1 -0,7 4,4 -2,5 6,3 -3,3 5,6 *Eingöngu hótel sem opin eru allt árið. Tölur fyrir árið 2018 eru bráðabirgðatölur. **Ásamt Liechtenstein Heimild: Hagstofa Íslands Alls 1.597.525 gistinætur Íslendingar Annað þjóðerni Janúar-maí 2018 88% 12% 31,6 35,1 Skarphéðinn Berg Steinarsson ferðamálastjóri segir aukin umsvif erlendra bókunarvefja í ferðaþjón- ustu á Íslandi vera áhyggjuefni. Al- gengt sé að vefsíðurnar taki 15-35% þóknun af söluverðinu. Sú sneið af kökunni fari beint til erlendra eig- enda umræddra bókunarvefja. Tilefnið er umfjöllun um ferða- þjónustuna í Morgunblaðinu í gær. Þar var m.a. rætt við fulltrúa bók- unarsíðunnar Expedia sem sagði bókunum hafa fjölgað um rúman fimmtung milli ára. „Vöxtur sölusíðna hefur mikil áhrif á afkomu gististaða og í afþrey- ingu. Þetta er hlutur sem ferðaþjón- ustan verður að huga að. Sum fyrirtækin hafa reyndar gert það með góðum ár- angri,“ segir Skarphéðinn Berg sem telur vert að hafa þessa þóknun í huga þegar arð- semi ferðaþjón- ustu er annars vegar. Samtímis því sem slíkir vefir taki meira til sín sé innlendur kostnaður ferðaþjónustu- fyrirtækja að aukast mikið. Þá fyrst og fremst laun. Þau séu jafnvel orðin helmingur tekna sem sé alltof hátt hlutfall. Þessi þróun eigi þátt í að af- koma ferðaþjónustufyrirtækja hafi versnað mikið milli ára 2016 og 2017. Árið 2016 hafi verið eitt það besta í ferðaþjónustu en árið 2017 mun lak- ara. Nýja nálgun þurfi til að endur- heimta arðsemi bestu áranna. Meðalverðið að lækka Þá bendir Skarphéðinn Berg á að fjölgun seldra gistinátta á milli ára segi ekki alla söguna. Vísbendingar séu um að meðalverð hafi lækkað. Með teknu tilliti til kostnaðarhækk- ana hafi framlegð margra gististaða því að líkindum minnkað. Skarphéðinn Berg segir jafnframt þurfa að taka til umræðu hversu hátt hlutfall sæta hjá flugfélögunum er vegna flugs til og frá landinu. „Hvað ræður því á hverjum tíma hversu stóran hluta af sætunum flugfélögin setja í Atlantshafsflugið og hversu stóran hluta í flug til og frá landinu? Tekjustýringin ræður miklu um það. Hún ræður miklu um hversu margir ferðamenn koma til landsins,“ segir Skarphéðinn Berg. Hann segir Ferðamálastofu lítið vita um hlutfall flugfarþega sem koma inn í landið á leið yfir hafið. Flugfélögin hafi verið treg að upp- lýsa hvað hlutfallið hefur verið. Stóri hluti teknanna fer úr landi  Ferðamálastjóri segir aukin umsvif netfyrirtækja í bókunum hafa mikil áhrif  Telur þörf á nýrri nálgun til að ferðaþjónustufyrirtækin geti bætt arðsemina Skarphéðinn Steinarsson Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.