Morgunblaðið - 30.06.2018, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2018
Axel Helgi Ívarsson
axel@mbl.is
Eyjan Vigur í Ísafjarðardjúpi var
auglýst til sölu í byrjun júní og hafa
áhugasamir kaupendur ekki látið á
sér standa, segir Davíð Ólafsson hjá
Borg fasteignasölu í samtali við
Morgunblaðið. „Ég hef fundað með
áhugasömum kaupendum nánast í
hverri viku en þetta er ekki verk-
efni sem stokkið er á í fyrstu viku,“
segir Davíð og bætir við að fyrir-
spurnum hafi fækkað þá daga sem
Ísland átti leik á heimsmeistara-
mótinu í Rússlandi.
Áhugi einnig frá útlöndum
Áhuginn fyrir kaupum á Vigur er
bæði frá innlendum og erlendum að-
ilum, en þó mestur hjá Íslendingum
og nokkrum hópum að sögn Davíðs.
„Það eru hópar sem vilja sameinast
um verkefnið og þá þarf nokkuð
langan tíma til að ná niðurstöðu um
hvað og hvernig, verkaskiptingu
o.s.frv. Svo eru líka stórir aðilar
sem eru að skoða þetta með áfram-
haldandi rekstur í huga,“ segir
Davíð.
Miklir möguleikar eru til að efla
ferðaþjónustu í eyjunni en árlega
heimsækja Vigur um 10 þúsund
gestir. Er kaffihús á staðnum, sem
er þó ekki í rekstri að svo stöddu,
og þá eru tækifæri til að bæta við
smáhýsum og gistiþjónustu, en eng-
in slík þjónusta er í boði á eyjunni.
Yfir sumarið eru daglegar báts-
ferðir út í Vigur frá Ísafirði.
Sprenging varð í fjölda fyrir-
spurna frá útlendingum eftir að
tímaritið Iceland Reivew birti grein
um að Vigur væri til sölu. „Það urðu
rosaleg viðbrögð eftir greinina í Ice-
land Review frá fólki sem vill kaupa
og flytja þangað; dálítið rómantískt
en kannski ekki alveg raunhæft, en
það eru ofboðslega margar fyrir-
spurnir af því tagi,“ segir Davíð.
Aðspurður um verðmiðann svarar
Davíð að miðað við fyrstu viðbrögð
verði hann ekki undir 300 milljónum
króna. Selst eyjan í heild sinni með
öllum húsakosti og hlunnindum.
Ljósmynd/Davíð Ólafsson
Til sölu Vigur, stundum kölluð Perlan í Djúpinu, er næststærsta eyjan í Ísa-
fjarðardjúpi. Núverandi eigendur ætla að selja eyjuna eftir 40 ára veru þar.
Margir spurst fyrir
um eyjuna Vigur
Sögufræg eyja
» Vigur dregur nafn sitt af
langri og mjórri lögun sinni, en
orðið vigur merkir spjót.
» Í Vigur er vindmylla, var hún
byggð um 1860 og er sú eina
sem er enn uppistandandi hér
á landi.
» Elsti bátur landsins, áttær-
ingurinn Vigur Breiður, er í Vig-
ur. Er hann um 200 ára gamall
og var notaður til fjárflutninga.
Fjársýsla ríkisins hefur samið við
tölvufyrirtækið Fjölnet á Sauðár-
króki um hýsingu á fjárhagsáætl-
unarkerfi ríkisins en samningurinn
kemur í kjölfar útboðs Fjársýslunar
í gegnum Ríkiskaup þar sem Fjöl-
net var valið. Alls munu 40 stofn-
anir og ráðuneyti nýta sér kerfið
sem ætlað er til að samræma og
einfalda verklag við ársáætlana-
gerð.
„Tilgangurinn með innleiðingu á
áætlanakerfi er að ná betri yfirsýn
og markmiðum um breytt verklag
við áætlanagerð, sem leiðir af ný-
legum lögum um opinber fjármál. Í
þeim er að finna ákvæði sem ætlað
er að stuðla að virkara eftirliti með
stjórn og ráðstöfun opinbers fjár og
leiða til aukins aga við framkvæmd
fjárlaga með því að ábyrgð og
skyldur eru skýrar og gagnsæjar,“
er haft eftir Sigurði Pálssyni,
framkvæmdastjóra Fjölnets, í
fréttatilkynningu.
Að auki sé markmið ríkisins að
bæta áætlanagerð til lengri tíma,
skilvirkara verklag muni einfalda
vinnu og auka gæði við gerð áætl-
ana.
Ljósmynd/Fjölnet
Tölvugögn Styrkár Hendriksson, fyrir hönd Fjársýslu ríkisins, og Sigurður Pálsson,
framkvæmdastjóri Fjölnets, til hægri, handsala samninginn.
Fjölnet hýsir fyrir Fjársýslu ríkisins
Allt um sjávarútveg
Buxum
Kjólum
Bolum
Toppum
afsláttur af
Opið kl. 11-15 í dag
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
ÚTSALAN ER HAFIN
30-50% afsláttur
Smíðum stóla og borð í sumarbústaðinn eða á pallinn.
www.smidakot.is | s 660 3830
Stólar á pallinn
Lokað í dag, laugardag.
Útsalan hefst mánudaginn 2. júlí.
Suðurlandsbraut 30 • sími 553 3755