Morgunblaðið - 30.06.2018, Page 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2018
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
V
ið ætlum að blanda sam-
an kuldameðferð og önd-
unaræfingum á þessu
námskeiði. Þetta er fyrir
alla, fólk þarf ekki að
hafa einhverja sérstaka hæfileika eða
búa yfir tækni, það þarf bara að gera.
Við ætlum að blanda inn í þetta því
sem við köllum „waves“, sem er spuni
þar sem fólk getur tjáð sig á frjálsan
hátt, opnað líkama sinn með hreyf-
ingum. Til að tjá sig með líkamanum,
þarf ekki að vera í sérstöku formi,“
segir Vilhjálmur Andri Einarsson
lífsþjálfi (Life Coach), en hann og
unnusta hans, Tanit Karolys jóga-
kennari, ætla að bjóða upp á námkeið
í júlí sem þau kalla Hættu að væla og
komdu að kæla.
„Eins og nafnið gefur til kynna
snýst þetta um kulda, en kulda-
meðferð er ekki ný af nálinni, hún
hefur sannað sig og gerir fólki gott
bæði líkamlega og andlega, það hefur
verið sýnt fram á það með virtum
rannsóknum. Ég hef reynt þetta á
eigin skinni, en ég byrjaði sjálfur í
kuldameðferð fyrir nokkrum árum og
það gjörbreytti öllu hjá mér. Ég vil
bera boðskapinn áfram því mér finnst
yndislegt að verða vitni að breytingu
til batnaðar hjá fólki,“ segir Andri og
bætir við að fólk þurfi ekki að óttast
kuldann. „Þetta snýst um að taka
skrefið, að vilja breyta. Ég var sjálfur
með afsakanir á reiðum höndum í
meira en tuttugu ár, með viðhorfið
„aumingja ég“, sem var minn sann-
leikur og veruleiki þá. En við sitjum
föst ef við tökum ekki skrefið til að
breyta. Og enginn gerir það fyrir
okkur, við verðum að breyta sjálf.
Eina sem stoppar okkur, er hausinn á
okkur. Sjálfur er ég með mænuskaða,
var þunglyndur, með mígreni og allt-
af fullur. Svona var ég, alltaf væl-
andi.“
Þessi ruglaði úti í frostinu?
Við það að ná botni í sínu heilsu-
leysi og þunglyndi ákvað Andri að
taka skrefið og fara að hreyfa sig.
„Ég rakst á færslu frá lækni sem
sagði: „Hættið að væla, farið að
hreyfa ykkur,“ og það varð til þess að
ég tók skrefið. Ég henti út öllum lyfj-
um og byrjaði að hreyfa mig mark-
visst og byggja upp. Ég var 105 kíló,
allt of þungur. Líkaminn er ein keðja
og það þarf að smyrja alla þessa
keðju og ekki hlífa neinu, annars fær-
ist álagið yfir á næsta stað,“ segir
Andri og bætir við að þar sem hann
stundaði sína líkamsrækt hafi hann í
fyrsta sinn kynnst kuldameðferð.
„Ég heyrði af Ísmanninum Wim-
hof, en ég man að ég sagði um hann:
„Eruð þið að tala um þennan ruglaða
á stuttbuxunum úti í frostinu?“
En vinir mínir hvöttu mig til að
prófa, sem ég og gerði, og þetta var
akkúrat það sem ég þurfti. Ég losnaði
strax á fyrstu vikunum við mígrenið
sem hafði þjakað mig í 20 ár. Og við-
varandi bólgan í bakinu hvarf að
mestu, sem varð til þess að ég gat far-
ið að hreyfa mig meira. Þunglyndið
sem hafði þjakað mig í tvo áratugi
vék fyrir jákvæðni, gleði og drif-
krafti,“ segir Andri og bætir við að
kuldinn sé magnað tól til að kenna
okkur að sleppa tökum.
„Þetta snýst ekki aðeins um að
líða betur í líkamanum, heldur að
sigrast á andlegum hindrunum. Tak-
markanir okkar liggja alltaf hjá okk-
ur sjálfum. Fólk talar oft í sig veikindi
og ég gerði það sjálfur. Ég trúði því
til dæmis að ég fengi mígrenikast og
stillti mig inn á það. Núna er ég laus
við það, en ég skil svo vel að vera á
þessum stað, að vorkenna sér, ég
gerði það sjálfur í tvo áratugi.“
Snýst ekki um að vera hetja
Andri segir kuldameðferð snú-
ast um að gefa eftir. „Þegar maður
fer í kalda karið þá fer taugakerfið á
fullt að segja okkur að fara upp úr,
flýja aðstæðurnar, sem er nátt-
úrulegt varnarkerfi. En maður þarf
að gefa eftir, á sama hátt og við slök-
um þegar við förum í heitan pott. Við
kúplum í raun yfir á annað tauga-
kerfi, sigrumst á náttúrulega flótta-
viðbragðinu með því að taka stjórn-
ina. Við verðum okkar eigin efna-
fræðingar með því að ná stjórnun á
eigin hugsunum. Á sama hátt eigum
við ekki að bíða eftir gleðinni, heldur
eigum við að kalla á hana sjálf,“ segir
Andri sem hefur verið duglegur að
breiða út boðskapinn, hann vill hjálpa
öðrum sem eru í svipuðum sporum og
hann sjálfur var og þess vegna býður
hann upp á þetta námskeið.
„Ég vil koma þessum boðskap
áfram, að hætta að væla og fara að
kæla, þetta snýst um sannfæra fólk
um að það getur þetta, farið í kuld-
ann, geti sigrast á sér, þetta snýst
ekki um að vera einhver hetja, heldur
að tengjast sjálfum sér og vinna í
sjálfum sér. Við þurfum að taka sjálf
stjórnina á því hvernig okkur líður,
við getum kosið að vera í fýlu en við
getum líka valið að vera glöð. Ég er
ekki stöðugt á bleiku skýi, en ég get
tekið vonda hugsun sem kemur upp í
huga minn og ákveðið að henda henni
og setja í staðinn góða hugsun. Ég
kýs að dvelja frekar í gleði en reiði.
Við ráðum okkar eigin hugsunum
meira en við höldum. Þetta er það
sama sem við gerum til að sigrast á
kula í kuldameðferð. Við tökum í raun
stjórn á taugakerfi okkar.“
Andri tekur fram að hver og
einn geri þetta á sínum eigin for-
sendum, til að ná betri heilsu.
„Öndunaræfingarnar sem við
ætlum að kenna skipa stóran sess á
námskeiðinu, því rannsóknir hafa
sýnt hvað þær gera fyrir líkamann.
Fyrir leikmann er það eins og að
smyrja allt kerfið og búa til aukaorku.
Fólk þarf að leyfa sér að vera það
sjálft, við erum alin upp við að það sé
skömm að elska sjálfan sig, en því
meira sem við hlúum að okkur sjálf-
um, því meira getum við verið til stað-
ar fyrir þá sem eru í kringum okkur.“
Tanit segir að þau Andri ætli að
blanda saman ólíkum aðferðum við
öndun, en megintilgangurinn með
öndunaræfingum sé slökun, að losa
um streitu, því fólk í nútímasamfélagi
sé undurlagt af streitu, án þess að
gera sér endilega grein fyrir því.
„Þegar fólk hefur náð góðri slökun þá
er það meira tilbúið til að fara í kulda-
meðferð. Við leiðum fólk inn í þetta,“
segja þau Andri og Tanit sem ætla að
fara hringinn í kringum um landið í
sumar og bjóða upp á stutt kulda-
námskeið í sundlaugum landsins.
Gaman Tanit og Andri kunna vel við að synda meðal jökla. Góð stund Kuldameðferð er mikið stunduð úti í náttúrunni. Spjall Andri sló Íslandsmet í ísbaði 2017, var í 20 mín. ofan í.
Hættu að væla og komdu að kæla
Kuldameðferð varð til
þess að Vilhjálmur Andri
losnaði við bakverki,
mígreni og þunglyndi.
Hann segir kuldameðferð
magnað tól til bættrar
heilsu og nú býður hann
fólki upp á námskeið.
Úti að leika Andri nýtur þess að baða sig upp úr hreinu íslensku vatni úti í náttúrinni, hvar og hvenær sem er.
Fjögurra vikna námskeið hefst eftir helgi og stendur frá 3. júlí - 28. júlí
Kuldaþjálfun fyrir þá sem vilja út fyrir rammann
Ísbað Tanit einbeitir sér ofan í ísbaði um hávetur.
Námkeiðið sem Andri og Tanit bjóða upp á, HÆTTU AÐ
VÆLA OG KOMDU AÐ KÆLA (Cold Therapy, Breath and
Joy), er 4 vikna námskeið sem hefst nk. þriðjudag 3. júlí.
Í viðburðarauglýsingu kemur þetta fram: „Kuldaþjálfun
(Cold Therapy) hefur verið notuð um aldaraðir, allt frá
munkunum í Himalaya-fjöllunum til leikskólabarnanna í
Rússlandi, í þeim tilgangi að viðhalda hollum og heil-
brigðum lífsstíl. Með blöndu af meðvitaðri öndunartækni
og fókus opnast dyrnar að óendanlegum möguleikum. Á
þessu námskeiði munu Andri og Tanit fara yfir eftirfarandi
atriði: Leiðina til að ná stjórn á eigin huga og líkama.
Vinna með og læra á meðvitaða öndun. Kuldaþjálfun, að
ná stjórn við erfiðar aðstæður. Hreyfiflæði, listin við að
sleppa tökunum.
Kuldameðferð er tilvalin fyrir alla þá sem vilja komast
út úr þægindaramma sínum og taka aftur yfir stjórnina á
eigin lífi. Kuldaþjálfun er líka öflugt tól til að vinna með
eftirfarandi: þyngdarstjórnun, streitulosun, andlega
heilsu, langvinna verki. Byrjendur eða aðeins lengra
komnir í kuldaþjálfun (s.s. í sjósundi eða með ástundun
köldupotta) munu taka æfingu sína á næsta stig með
þessu námskeiði. Í lok námskeiðs verður hópævintýri ut-
andyra, lokaáskorunin.
Hvenær: 3.-28. júlí, þriðjudaga og fimmtudaga.
Hvar: Sólir jóga & hjóla stúdíó, Fiskislóð 53-55, Granda,
og úti í náttúrunni.
Skráning: solir@solir.is og í síma: 571-4444
www.andriiceland.com
facebook:andri.iceland.therapy“
RAFVÖRUR
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Amerísk
gæða heimilistæki
Þvottavél tekur 17 kg og
þurrkari tekur 10 kg