Morgunblaðið - 30.06.2018, Page 19
Bjart í Skálholti Listgler Gerðar var einnig hreinsað og að sögn Kristjáns skín meiri birta inn í Skálholtskirkju nú.
gluggana meðan á framkvæmdum
stóð.
„Þá var búin til lýsing á verkinu
og svo voru gerðar tillögur. Ein
kom frá Gerði, önnur frá Nínu
Tryggvadóttur, en í heild voru
þrjár tillögur sem skiluðu sér. Það
var skipuð nefnd og í henni voru
m.a. Björn Th. Björnsson listfræð-
ingur, Kristján Eldjárn frá Þjóð-
minjasafninu og Sigurður Guð-
mundsson sem var fulltrúi
húsameistara ríkisins. Þeir völdu
tillögu Gerðar og fékk hún 25 þús-
und krónur fyrir. Hún var þá að
vinna í París og fór í að útfæra
sínar hugmyndir. Hún gerði módel
á venjulegum litlum pappír, módel
sem var síðan farið með til Linnich
í Þýskalandi og þeir luku við þessa
glugga árið 1959.“
Langt ferli en minni kostn-
aður en búist var við
Eftir úttekt Jóhannesar á ár-
unum 2001 til 2002 var ljóst að
listarnir í gluggunum voru farnir
að fúna og skemmdir í kringum
listglerið og gluggakarmana mikl-
ar. Árið 2009 ritaði Kristján bréf
til Oidtmann-verkstæðisins í
Þýskalandi og komu þeir ári
seinna og gerðu úttekt á ástandi
glugganna. Árið 2014 gerðu þeir
síðan aðra úttekt og í kjölfarið
stofnaði Skálholtsfélagið verndar-
sjóð Skálholtskirkju með
skipulagsskrá og fjáröflun fyrir
viðgerðunum hófst. Húsafrið-
unarsjóður styrkti einnig verkefnið
og í nóvember í fyrra voru fyrstu
fimm gluggarnir sendir í viðgerð.
Ákveðið var að fara í viðgerðirnar
í hlutum og greiða fyrir þær jafnt
og þétt en fyrstu gluggarnir voru
settir upp að nýju í febrúar. Síð-
ustu tíu gluggarnir og stóri glugg-
inn í vesturportinu á framhlið
kirkjunnar voru þeir síðustu sem
teknir voru niður og er von á þeim
í október.
Kristján segist ánægður að sjá
fyrir endann á þessu langa verk-
efni en kostnaðurinn er minni en
talið var í upphafi.
„Upphaflega héldum við að við
yrðum að taka þá alla niður í einu
og ef það hefði verið þannig hefð-
um við þurft að loka á milli meðan
verið væri að vinna. Síðan
ákváðum við að gera þetta í þrem-
ur áföngum þannig að við gætum
alltaf borgað reglulega fyrir það
sem væri búið. Þegar það var
ákveðið þá kom líka í ljós að þá
þyrftum við ekki að loka neinu.
Við vorum að skoða tölur upp á 50
til 60 milljónir í heild en niður-
staðan verður kannski 30 millj-
ónir,“ segir Kristján. „Við erum að
borga fyrir þessa vinnu úti og svo
kostar heilmikið að flytja þetta
fram og til baka en það sem mér
finnst blóðugt er það að við þurf-
um að borga 24% virðisaukaskatt
af vinnunni úti þegar þetta kemur
til Íslands. Það er ekki lengur eins
og það var einu sinni að ef þú
sendir listaverk til útlanda þá
felldu yfirvöldin niður virðis-
aukaskatt sem væri alveg eðlilegt
og myndi muna okkur heilmiklu.“
Viðgerðirnar á listglerinu í
Þýskalandi kosta um 17 milljónir.
Nýtt gler og viðgerðir á glugga-
körmunum ásamt öðrum við-
gerðum kosta á bilinu 8 til 10
milljónir. „Þannig að mér sýnist
við sleppa með innan við 30 millj-
ónir.“
Kristján segist þakklátur öllum
þeim sem styrktu verkefnið og þá
sérstaklega þeim einstaklingum
sem lögðu hönd á plóginn. „Það
komu þarna nokkur fyrirtæki sem
gerðu vel en það sem er gleðileg-
ast eru þeir einstaklingar sem
lögðu til peninga og það eru ekki
endilega ríkustu einstaklingarnar í
landinu, jafnvel fólk á eftirlaunum.
Það skiptir miklu máli og það er
áhugi sem kemur fram í því, og þó
það séu ekki miklir peningar þá
munar okkur um það.“
Hálfnað verk þá hafið er
Kristján segir nauðsynlegt að
halda viðgerðum á kirkjunni
áfram. Nauðsynlegt er að mála
húsið að utan og svo eru einnig
sprungur í altaristöflu kirkjunnar
sem rekja má til Suðurlands-
skjálftans. Þær viðgerðir munu þó
ekki falla í hans hlut þar sem
Kristján lætur biskupskápuna á
gráðurnar 22. júlí næstkomandi.
„Verkefnin halda áfram og það
þarf að gera úttekt á kirkjunni.
Það eru enn skemmdir eftir
skjálftana. Stórar vondar sprungur
eru í austurveggnum. Það eru
sprungur í altaristöflunni þannig
að þegar þeir verða búnir að gera
við gluggana þá vonandi geta þeir
gert við altaristöfluna en í raun
þryfti að vera búið að loka sprung-
um á veggnum á undan en við
verðum að spila úr þessu eftir því
sem peningar eru til staðar.“
Kristján Björnsson, prestur á
Eyrarbakka, verður nýr vígslu-
biskup í sumar og munu þau verk-
efni því falla í hans hlut.
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2018
Nýr veiðivefur á
mbl.is
í umsjón Eggerts Skúlasonar
í samstarfi við