Morgunblaðið - 30.06.2018, Page 21

Morgunblaðið - 30.06.2018, Page 21
FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2018 Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is „Eftir þennan Evrópufund sýnir Evr- ópa meiri ábyrgð og samstöðu. Í dag er Ítalía ekki lengur ein.“ Þetta sagði Giuseppe Conte, forsætisráðherra Ítalíu, í kjölfar leiðtogafundar Evr- ópusambandsins sem haldinn var í gær og fyrradag. Innflytjendamál og skipting hælisleitenda milli aðildar- ríkja sambandsins voru í brennidepli á fundinum og mikið í húfi fyrir marga fundargestina. Þrátt fyrir að verulega hafi dregið úr komu flóttamanna og ólöglegra innflytjenda til álfunnar frá árinu 2015 eru mál hælisleitenda enn sem fyrr mikil deilumál, sér í lagi eftir að ríkisstjórn Fimmstjörnuhreyfingar- innar og Norðurbandalagsins tók við völdum á Ítalíu fyrir um mánuði. Eftir um níu klst. viðræður féllust leiðtogar Evrópuríkjanna 28 á að stefna að byggingu svokallaðra brott- fararstöðva fyrir tilvonandi innflytj- endur utan Evrópusambandsins, lík- lega í Norður-Afríku. Því er heitið að unnið verði að stöðvunum í samráði við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna og Alþjóðafólksflutninga- stofnunina. Lýst hefur þó verið yfir efasemdum um þessa áætlun þar sem ekkert Afríkuríki hefur boðist til þess að hýsa þessar stöðvar og Marokkó hefur blátt áfram útilokað það. Auk brottfararstöðvanna utan Evrópu gerir samkomulag leiðtog- anna ráð fyrir að aðildarríki geti byggt innflytjendastöðvar innan eig- in landamæra á kostnað Evrópusam- bandsins. Ætlunin er að hægt verði að koma flóttamönnum fyrir á þess- um stöðvum á meðan hælisbeiðnir þeirra eru metnar, veita þeim síðan hæli á völdum svæðum innan sam- bandsins ef þeir uppfylla réttar kröf- ur en senda þá heim ef þeir uppfylla þær ekki. Emmanuel Macron, forseti Frakk- lands, sagði að þessar innflytjenda- stöðvar kæmu til með að rísa í löndum þar sem flóttamenn koma fyrst til Evrópu, til dæmis á Spáni, Ítalíu, Grikklandi og Möltu. Því hyggist hann ekki byggja þær í Frakklandi. Sebastian Kurz Austurríkiskanslari tók í svipaðan streng og sagði að stöðvarnar þyrfti ekki í Austurríki því flóttamenn kæmu ekki þangað nema í gegnum önnur Evrópuríki, „ekki nema þau stökkvi inn í fallhlífum“. Stjórnarkreppu afstýrt? Í samkomulaginu er einnig tekið á flutningi hælisleitenda sem hafa þeg- ar hlotið hæli í tilteknu ESB-ríki yfir til annarra aðildarríkja sambandsins. Samkvæmt samkomulaginu eiga að- ildarríki nú að beita öllum ráðum og vinna náið saman til að koma í veg fyrir slíka flutninga. Fólksflutningar hælisleitenda innan sambandsins hafa verið eitur í beinum Horsts Seehofer, innanríkisráðherra Þýska- lands, og ágreiningur milli hans og Angelu Merkel Þýskalandskanslara um þá hafa nýlega telft framtíð rík- isstjórnar hennar í tvísýnu. Seehofer hafði gefið Merkel viku til þess að marka stefnu í málinu ásamt öðrum Evrópuleiðtogum en annars sagst munu fara þvert á stefnu hennar og vísa burt innflytjendum sem skráðir hafa verið hjá öðrum Evrópuríkjum við þýsku landamærin. Tíminn mun leiða í ljós hvort niður- staða fundarins sefar Seehofer og stuðningsmenn hans í CSU, flokki kristilegra demókrata í Bæjaralandi, sem er systurflokkur Kristilega demókrataflokksins sem Merkel fer fyrir. Áætlunin er ekki laus við gagnrýni og nú þegar hefur hugmyndinni um móttökubúðirnar verið líkt við fang- elsi. Læknar án landamæra tóku mjög illa í samkomulagið og sögðu Evrópuríkin aðeins hafa fallist á að útiloka hælisleitendur á þröskuldi Evrópu án tillits til hryllingsins sem þeir væru að flýja undan. Donald Tusk, forseti evrópska ráðsins, ráð- lagði leiðtogum Evrópu í gær að vera ekki of fljótir að fagna sigri því enn þyrfti að hrinda áætluninni í fram- kvæmd og til þess þyrfti nána sam- vinnu og mikið þrek. Hyggjast byggja innflytjenda- stöðvar innan og utan Evrópu  Leiðtogar ESB fallast á metnaðarfulla áætlun til að leysa flóttamannavandann AFP Kanslarar Angela Merkel og Sebastian Kurz, kanslarar Þýskalands og Austurríkis, ræðast við á síðasta degi leiðtogafundarins. Lögreglan í Maryland í Bandaríkjunum hefur handtekið mann í tengslum við árás sem gerð var á skrif- stofu fjölmiðla- fyrirtækisins Capital Gazette í fyrradag. Frá þessu er sagt á fréttavef BBC. Maðurinn í haldi lögreglunnar heitir Jarrod Ramos og er sagður hafa átt í útistöðum við dagblaðið The Capital, sem Capital Gazette gefur út. Ramos lögsótti ritstjóra blaðsins fyrir meintar ærumæðingar vegna um- fjöllunar blaðsins um kynferðis- áreitni sem hann var sakaður um árið 2012. Í árásinni sem gerð var á fimmtudaginn réðst maður inn á skrifstofuna í Annapolis, höfuð- borg Marylandríkis, vopnaður haglabyssu og reyksprengjum. Í árásinni létust fimm manns og tveir særðust. Donald Trump Bandaríkjaforseti var látinn vita af árásinni. Hann sagði að hugur hans og bænir væru með fórnar- lömbunum og aðstandendum þeirra. Átti í úti- stöðum við blaðið  Maður handtek- inn fyrir skotárás á dagblað í Maryland Jarrod Ramos Við óskum Landsvirkjun til hamingju með Búrfellsstöð II

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.