Morgunblaðið - 30.06.2018, Side 37

Morgunblaðið - 30.06.2018, Side 37
DÆGRADVÖL 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2018 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þér vinnst ekki tími til þess að fram- kvæma allar þínar hugmyndir. En þolinmæði þrautir vinnur allar og það mun sannast á þér. 20. apríl - 20. maí  Naut Dagurinn í dag hentar vel til hvers kyns samningaviðræðna um kaup og sölu. Láttu það ekki henda þig að láta smáatriði fara framhjá þér. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þér finnast hlutirnir gerast full- hratt í kringum þig. Vertu óhræddur við að segja nei því annars verða afleiðingarnar bara verstar fyrir þig sjálfan. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú þarft að taka mikilvægar ákvarð- anir varðandi skiptingu sameiginlegra eigna og ábyrgðar. Gættu þess að ganga ekki of langt. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það ríður á miklu að þú dreifir ekki kröftum þínum um of. Farðu þér hægt og veldu hvert skref af kostgæfni því ein lítil mistök geta reynst dýrkeypt. Allt á sinn tíma. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Hlutleysi upp að vissu marki hjálpar þér með ótilgreint verkefni. Haltu þínu striki því þú hefur engu að tapa. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú verður að leggja þitt af mörkum ef þú vilt hlutdeild í árangri og umbun. Eitt- hvað gerist sem breytir sýn þinni á veröld- ina. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú skalt ekki vera vonsvikinn þótt eitthvað renni þér úr greipum. Sýndu þolinmæði og umburðarlyndi gagnvart sjónarmiðum sem eru önnur en þín eigin. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Láttu ekki hugfallast heldur gerðu það sem þarf til að koma skipulagi á líf þitt. Reyndu ekki að skerast úr leik heldur leggðu þig allan fram. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þolinmæði þrautir vinnur allar og það munt þú reyna eins og svo margir aðrir. Ef þú undirbýrð þig vel muntu njóta ríkulega í fyllingu tímans. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þetta er lukkudagurinn þinn og þú ættir að gefa stjórnina frá þér. Nú færð þú tækifæri til þess að sjá hve mikill kær- leikur er í þínu lífi dagsdaglega. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú ert fullur af frábærum og skap- andi hugmyndum núna. Hugsun þín er skörp og þú ert tilbúinn til að takast á við hluti sem þú reynir yfirleitt að forðast. Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Margan hrellir Móri sá. Maður, sem er latur víst. Viðarbolur vera má. Á vegi grind í hliði snýst. Guðrún Bjarnadóttir svarar: Á drauginn Móra lítt mér líst, en letidraugur er ég víst, því furudrauginn dreg ég síst um draug í hliði, ef ’ann snýst. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una þannig: Dæll er ekki draugur sá. Draugur letiblóð er víst. Draugur viður vera má. Í vegarhliði draugur snýst. Þá er limra: Í lifandi manna landi mér líkar ei tölvufjandi, að fást við þann draug er fráleitt spaug og megnar vart mennskur andi. Og síðan ný gáta eftir Guðmund: Rok er úti, rýkur sær, rignir nú með látum, máttarvöldin ólmast ær og ekki er lát á gátum: Í vindinn sóar sínu fé. Sjómaður mjög fiskinn er. Hygg að keðjukrókur sé. Kannskı́ á þeirri slaki hér. Við getum öll tekið undir með Guðmundi þegar hann segir á Boðnarmiði: Drengirnir í góðum gír glöddu landa sína, nú er úti ævintýr og allt í þessu fína. Friðrik Dagur Arnarson er nýr á Boðnarmiði og yrkir „Sumar 2018?“: Regnið svæfir sólarbál sést hér röðull enginn. Sein mér þykja sumarmál senn er júní genginn. Gunnar J. Straumland orti á þriðjudag: Þó húm sé grátt er nálgast nátt við niflsins gátt á kvöldin mun sólin brátt á himni hátt hylla máttarvöldin. Einar Hjörleifsson orti: Ég er maður lystarlaus, líka nokkuð þunnur, timburmenn minn hamra haus hratt sem beykir tunnur. Gömul vísa í lokin: Bæld er inni búsæl hjörð, bíður allt í dái. Nú er hljótt á heimajörð hvergi kvik á strái. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Fáir eru draugar dagljósir Í klípu „MÉR VAR BOÐIN GISTING HJÁ LÖGREGLUNNI. AUÐVITAÐ SPURÐI ÉG HVORT ÞAÐ VÆRI MÍNÍBAR.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „VILTU HORFA Á BÍÓMYNDINA EÐA EIGUM VIÐ BARA AÐ HLÆJA AÐ FRÉTTUNUM?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... þegar þú veist að hann er að horfa á þig! ÉG ER EKKI SÉR- FRÆÐ INGUR Í NEINU... SVO ÉG HEF EKKERT AÐ SEGJA... ...ALLS EKKERT... EN SAMT HELDURÐU ÁFRAM AÐ TALA! MUNDU, HELGA, VIÐ ERUM Í SAMA LIÐI! ÉG VEIT... LIÐI Í FALLHÆTTU Það er ótrúlegt hvað það er hægt aðeyða miklum tíma í símanum, ekki síst með skrolli á samfélags- miðlum og lestri á ýmsu mismikil- vægu efni sem þar birtist. Warren Buffett var eitt sinn spurður að því hvert væri leyndarmálið á bak við vel- gengni hans. Hann benti á bókastafla og sagði: „Lestu 500 blaðsíður eins og þessar á dag. Þannig virkar þekking. Hún byggist upp, eins og vaxtavextir. Allir geta gert þetta en ég lofa ykkur því að ekki margir munu gera það.“ x x x Þetta hljómar næstum ómögulegtmarkmið svo það er hægt að setja markið kannski aðeins neðar og lesa 200 bækur á ári. Samkvæmt út- reikningum blaðamanns Quartz þarf miðað við meðalleshraða að eyða 417 klukkustundum í þann lestur. Það hljómar mikið en staðreyndin er sú að meðal-Bandaríkjamaðurinn eyðir 608 klukkustundum á ári á sam- félagsmiðlum og 1.642 tímum í sjón- varpsgláp. Víkverji veit að þetta á við marga hérlendis líka. Sjálfur ákvað hann að minnka samfélagsmiðl- anotkun fyrr á árinu og árangurinn varð mun meiri bóklestur en venju- lega. x x x Nú að fótboltatengdu efni. HeimirHallgrímsson, landsliðsþjálfari karlaliðs Íslands í knattspyrnu, hefur heillað fólk rétt eins og landsliðs- mennirnir sjálfir. Hann er yfirveg- aður og hefur líka gefið þau skilaboð að fleira sé mikilvægt en að vinna, eins og til dæmis fjölskyldan. Lands- liðsmennirnir fengu tíma til að hitta fjölskyldur sínar og sjálfur hitti hann sína eigin fjölskyldu skömmu fyrir mikilvægan leik. x x x Núna er hann kominn aftur til Ís-lands. Sumir myndu kannski byrja á því að taka sér frí, fara í sumarbústað og láta renna í heita pottinn en ekki Heimir. Hann er mættur á Orkumótið í Vestmanna- eyjum þar sem hann dæmir leiki í 6. flokki karla í knattspyrnu. Hann er frá Vestmannaeyjum og vanur að dæma á þessu vinsæla fótboltamóti og á virðingu skilið fyrir að mæta nú sem fyrr. vikverji@mbl.is Víkverji Drottinn er góður, athvarf á degi neyð- arinnar, hann annast þá sem leita hælis hjá honum. (Nahúm 1.7) 86 ÁRA Starfsmannafatnaður fyrir hótel og veitingahús Hótelrúmföt og handklæði fyrir ferðaþjónustuna Eigum allt fyrir: • Þjóninn • Kokkinn • Gestamóttökuna • Þernuna • Vikapiltinn • Hótelstjórnandann Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | sími 525 8210 | eddaehf@eddaehf.is | www.eddaehf.is Allt lín fyrir: Hótelið • Gistiheimilið Bændagistinguna • Airbnb Veitingasalinn • Heilsulindina Þvottahúsið • Sérverslunina

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.