Morgunblaðið - 21.06.2018, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2018SJÁVARÚTVEGUR
Utanborðsmótorar
Frá 1940
www.velasalan.is
Sími 520 0000, Dugguvogi 4 , 104 Reykjavík
Leitið upplýsinga hjá sölumönnum okkar
Fyrirliggjandi á lager,
skrúfur á flestar gerðir
utanborðsmótora
Verkstæði Vélasölunnar
hefur á að skipa sérhæfum
starfsmönnum til viðgerða
og viðhalds á Mercruiser
bátavélum og Mercury
utanborðsmótorum.
Bátar á sjó og vötn
Ný sending af TERHI bátum
TERHI 475 BR TERHI 475
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Merkingar/grafísk hönnun
TIL SÖLU 16 ára fyrirtæki sem rekur ýmsa merkingarþjónustu,
bæði á fatnað og hluti. Prentun, ísaumur, ígröftur ofl.
Tilvalið til að auka framlegð fyrirtækja í svipaðri starfsemi.
Situr eitt á markaðnum í vinnslu á sumum vörulínum. Ný vörulína er
u.þ.b. að fara í minjagripaverslanir. Mikil fjölbreytni í vöruúrvali. Vinnu
aðferðir byggjast á stafrænni/digital vinnslu, mikill gagnabanki, margir
fastir viðskiptavinir. Eigin innflutningur að mestu. Öflugur hönnunnar
vefur þar sem stór hluti af sölunni fer fram. Í gangi er uppfærsla á
vefnum.
Starfsemin er í eigin húsnæði sem er verslunar/þjónustu húsnæði á
jarðhæð á besta stað miðsvæðis í Reykjavík, Húsnæðið er til sölu
með einkahlutafélaginu, en þó er hægt að kaupa reksturinn sér ef vill.
Starfsmannafjöldi 23 (breytilegt). Mikill vélbúnaður og hugbúnaður er
innifalinn í verðmati einkahlutafélagsins
Óskað er eftir tilboði í fyrirtækið sér. Einnig er möguleiki að kaupa
fasteignina með fyrirtækinu, eða að hægt er að fá leigusamning fyrir
húsnæðinu.
Allar frekari upplýsingar veitir
Óskar Thorberg Traustason, MBA rekstrarhagfræðingur
Löggiltur fasteigna- og fyrirtækjasali
Fasteignasölunni Bæ, sími 659-2555 | netfang oskar@fasteignasalan.is
Íslenski sjávarklasinn og verð-
bréfafyrirtækið Arctica Finance
hyggjast efna til samstarfs sem
miðar að því að greina og þróa
tækifæri í sjávarútvegi, s.s. með
því að liðka fyrir fjármögnun verk-
efna jafnt innanlands sem erlendis,
á sviði fullvinnslu, líftækni og út-
gerðar.
Húni Jóhann-
esson er sér-
fræðingur í fyr-
irtækjaráðgjöf
hjá Arctica og
mun hann hafa
umsjón með
samstarfinu:
„Arctica Finance
hefur verið einn
af bakhjörlum Sjávarklasans og
töldu báðir aðilar að fullt tilefni
væri til að hefja nánari samvinnu
enda mikil tækifæri í sjávarútveg-
inum bæði innanlands og utan.“
Húni segir að tækniþróun í sjáv-
arútvegi hafi verið mjög hröð á
undanförnum árum og vakið at-
hygli út fyrir landsteinana hve
mikil sjávarútvegstengd nýsköpun
á sér stað á Íslandi. „Fjórða iðn-
byltingin er farin á fullt skrið í
sjávarútveginum sem lýsir sér m.a.
í aukinni sjálfvirknivæðingu. Mörg
íslensk fyrirtæki standa í dag
skrefi framar en erlendir keppi-
nautar þeirra, hvort heldur sem er
á sviði kælingar, vinnslu eða full-
nýtingar hráefnis. Fjölbreytnin er
mikil og spannar allt frá full-
komnum vatnsskurðarvélum yfir í
byltingarkenndar sáraumbúðir úr
roði, sem vekja athygli um allan
heim. Það er magnað að sjá hvað
við erum komin langt, þrátt fyrir
að fyrirtækin sem um ræðir séu
mörg ung, og sum þeirra í raun
bara rétt að slíta barnsskónum.
Grunar mig að við séum að komast
yfir ákveðinn þröskuld og að á
næstu árum geti íslensk sjávar-
útvegstækni sprungið út á al-
þjóðavísu.“
Kostnaðarsamt að vaxa
Sá vöxtur sem Húni væntir mun
samt ekki gerast af sjálfu sér, og
bendir hann á að reikna megi með
alls kyns vaxtarverkjum. „Frum-
kvöðlar og fyrirtæki hafa sýnt fram
á það að hugmyndir þeirra virka,
og eru komin með dýrmætar vörur
á markað, en björninn er ekki þar
með unninn. Ráðast þarf í mark-
aðs- og kynningarstarf og áfram-
haldandi uppbyggingu, og allt er
þetta kostnaðarsamt,“ segir hann.
„Þar kemur Arctica Finance inn í
myndina og aðstoðar við að finna
þá fjármögnun sem hentar best í
hverju tilviki fyrir sig. Við getum
notað sérþekkingu okkar og góð
tengsl við innlenda og erlenda fjár-
festa til að láta góð verkefni ná enn
lengra.“
Húni segir íslenska sjávarútvegs-
sprota glíma við það vandamál, rétt
eins og önnur sprotafyrirtæki hér á
landi, að fjármögnunarmöguleikar
eru takmarkaðir og æskilegt væri
m.a. að reyna að vekja meiri at-
hygli erlendra fjárfesta á áhuga-
verðum tækifærum í greininni. „Til
þessa hafa það einkum verið
sjávarútvegsfyrirtækin sjálf sem
hafa stutt við sprotana og ýmist
lagt þeim til fjármagn með beinum
hætti eða hlúð að vexti þeirra með
því að gera ýmis verkefni og þróun-
arvinnu að veruleika.“
Tækifæri erlendis
Vandinn er alls ekki bundinn við
Ísland og bendir Húni á að hjá
systurklösum Íslenska sjávarklas-
ans erlendis kvarti sprotar einnig
yfir því að aðgengi að fjármagni
mætti vera betra. „Þar er vandinn
einkum sá að þarlend fjármálafyr-
irtæki hafa takmarkaða þekkingu á
sjávarútvegstengdri starfsemi. Því
gætu myndast áhugaverð tækifæri
sem gætu verið fólgin í því að
byggja brýr út í heim, í senn til að
tengja íslenska fjárfesta við erlenda
sjávarútvegssprota og tengja er-
lenda fjárfesta við íslensk fyrir-
tæki.“
Aðspurður hvort íslensku sjávar-
útvegstæknifyrirtækin hugsi nógu
stórt og hreyfi sig nógu hratt, segir
Húni að þó svo að mörg þeirra hafi
alla burði til að verða að alþjóð-
legum stórfyrirtækjum þá verði
þau að vaxa með skynsamlegum
hætti. „Að stækka hratt er flókið
verkefni og kostnaðarsamt og ekki
endilega best ef fyrirtæki stefna að
því að verða sem stærst og á sem
skemmstum tíma. Þá er mikilvæg-
ast að finna réttu samstarfsaðilana
sem bæði geta lagt fyrirtækjum til
fjármagn, þekkingu og sambönd á
erlendum mörkuðum svo þau eigi
auðveldara með að ná þar fótfestu.“
Íslensk sjávarútvegstækni
gæti bráðum sprungið út
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Arctica Finance vonast til
að byggja brýr út í heim til
að leiða saman fjárfesta og
sjávarútvegssprota og
greiða leiðina að áhuga-
verðum tækifærum
Húni
Jóhannesson
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Húni segir mörg ung sjávarútvegstengd tæknifyrirtæki hér á landi standa
skrefinu framar en erlendir keppinautar. Með fullnýtingu tekst að skapa
mikil verðmæti. Mynd úr safni tekin í humarvinnslu á Þorlákshöfn.