Morgunblaðið - 21.06.2018, Side 7

Morgunblaðið - 21.06.2018, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2018 7ATVINNULÍF kostnaðareftirlit, samningagerð og samskipti við stjórn. Fjármálastjóri tilheyrir stjórnendateymi Nova og heyrir undir forstjóra fyrirtækisins. Nova er markaðsdrifið þjónustufyrirtæki með sterka fyrirtækjamenningu sem einkennist af mikilli þjónustulund og þjónustugæðum. Nova á og rekur eigið 3G/4G og 4,5G fjarskiptakerfi, býður ljósleiðaraþjónustu til heimila og alhliða fjarskiptaþjónustu til fyrirtækja. Hjá Nova starfa 150 manns og voru tekjur félagsins á síðasta ári um 9 milljarðar króna. Nánari upplýsingar veita Þórður S. Óskarsson (thordur@intellecta.is) og Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is), ráðgjafar hjá Intellecta, í síma 511 1225. Umsóknir óskast fylltar út á intellecta.is ásamt starfsferilskrá og kynningarbréfi. Umsóknarfrestur er til og með 6. júlí 2018. Farið er með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál. Við leitum að framúrskarandi fjármálastjóra í stjórnendateymi Nova sem getur lagt sitt af mörkum við að gera stærsta skemmtistað í heimi enn stærri. Draumaumsækjandinn er kraftmikill og skemmtilegur leiðtogi sem býr yfir miklum stjórnunarhæfileikum og getu til að byggja upp öfluga liðsheild. Viðkomandi þarf að vera með háskólamenntun á sviði viðskipta eða sambærilega menntun og hafa yfirgripsmikla þekkingu og reynslu af fjármálastjórnun. Reynsla af framsetningu upplýsinga og yfirferð uppgjöra ásamt þekkingu á IFRS og jafnlaunavottun koma þér framar í röðina. Viðkomandi þarf að búa yfir góðum samskiptahæfileikum ásamt góðri íslensku– og enskukunnáttu. Helstu verkefni eru dagleg fjármálastjórn, áætlanagerð og uppgjör, umsjón með bókhaldi, tekju– og 2017 FJÁRMÁLASTJÓRI NOVA Sæktu um fyrir 6. júlí á intellecta.is Verslanir Nova eru í Kringlunni, Smáralind, Lágmúla, á Selfossi og á Glerártorgi Akureyri Þjónustuver 519 1919 | www.nova.is Talar þú fjármál? „Viðskipta- og stjórnunarfræðin glíma við það vandamál að akademí- an hefur búið til kerfi þar sem fræði- menn skrifa aðallega fyrir aðra fræðimenn. Er varla að nokkur annar komist inn í þessa hringrás eða hafi yfirhöfuð á henni áhuga því að greinarnar eru oft svo tækni- legs eðlis að það er ekki á færi hvers sem er að átta sig á innihaldinu. Kerfið hefur verið sett þannig upp að það sem skiptir mestu máli fyrir launakjör fræðimanna og framgöngu innan háskólanna er að gefa út sem flestar greinar hjá sem virtustum ritum – þeir græða ekkert á því að reyna að ná til almennings. Þannig fer mesta yfirfærsla þekkingar fram í gegnum kennslu frekar en í gegnum rann- sóknarritgerðir.“ Þetta segir dr. Eyþór Ívar Jóns- son, ráðstefnustjóri EURAM 2018 og forstöðumaður rannsóknar- miðstöðvar um stjórnunarhætti hjá Háskóla Íslands. EURAM- ráðstefnan fer fram í Reykjavík dag- ana 19. til 22. júní og eitt af aðal- umræðuefnum viðburðarins er hvaða leiðir má fara til að brúa bilið á milli fræðasamfélags og atvinnulífs. EURAM er einn stærsti við- burður viðskipta- og stjórnunar- fræðaheimsins og laðar að gesti frá öllum heimshornum. „Þetta er tæki- færi fyrir fræðimenn til að hittast, ráða ráðum sínum og fá innblástur fyrir frekari rannsóknir og skrif. Háskólarnir senda líka deildar- forseta sína til ráðstefnunnar, m.a. til að marka betri framtíðarstefnu fyrir kennslu og rannsóknir. Margir nota tækifærið líka til að styrkja tengslanetið innan akademíunnar og láta á sér bera, og koma á tengslum við ritstjóra virtustu vísindarita sem einnig eiga fulltrúa á EURAM,“ upplýsir Eyþór. Fræðimenn fari út af örkinni Yfirskrift EURAM 2018 er „Research in Action – Accelerating Knowledge Creation in Manage- ment“. „Það vísar ekki bara til þess að fræðimenn miðli þekkingu sinni betur út í samfélag og atvinnulíf, heldur líka að þeir stundi þekking- arsköpun á vettvangi frekar en við skrifborðið: að þeir fari út af örkinni og prófi sig þar áfram með ýmsum hætti til að læra af tilraununum og öðlast nýja þekkingu á viðfangs- efnum sínum,“ segir Eyþór og minn- ist orða Snorra Sturlusonar úr Heimskringlu: fátt veit fyrr en reynt er. „Fræðasamfélagið þarf að leita út fyrir háskólana, eiga í samtali við stjórnendur og vinna með þeim að þekkingarsköpun, og reyna að stuðla að því að þekkingin sé nýtt til að taka betri ákvarðanir.“ Eyþór segir yfirskrift ráðstefn- unnar líka tengjast því hversu brýnt það er að fjölmiðlar geti fjallað um viðskipta- og stjórnunarmál á vand- aðan hátt og leitað til fólks sem skýrt getur hlutina á mannamáli. „Það er vandamál sem á við um flestar þjóðir að hörgull er á álitsgjöfum og öðrum sérfræðingum sem þýða fræðin yfir á mál sem stjórnendur, starfsmenn og allur almenningur getur skilið og þannig nýtt sér þekkinguna.“ Að sögn Eyþórs hafa mjög áhuga- verðar umræður farið fram á þinginu um þessi mál og gestir stungið upp á ýmsum lausnum. „Ein af þeim hugmyndum sem njóta tölu- verðs fylgis er að innleiða þau vinnu- brögð að með hverri fræðigrein fylgi 1-2 blaðsíðna samantekt sem kemur efni greinarinnar til skila á þann hátt að leikmenn eigi ekki í neinum vanda með að skilja og tileinka sér.“ Tengi betur fræði og atvinnulíf Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Gestir EURAM 2018- ráðstefnunnar hafa m.a. rætt þann möguleika að gera það að reglu að há- vísindalegum fræðigrein- um á sviði viðskipta og stjórnunar fylgi stutt sam- antekt sem almennir les- endur geta skilið. Morgunblaði/Arnþór Birkisson Frá setningu EURAM 2018. Um 1.700 gestir sækja viðburðinn, og er það ríflega tvöföldun frá síðustu ráðstefnu. Dr. Eyþór Ívar Jónsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.