Morgunblaðið - 03.07.2018, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Reyktur lax
í brunchinn
Söluaðilar:
10-11, Hagkaup, Iceland verslanir,
Kvosin, Melabúðin, Nettó, Samkaup,
Sunnubúðin, Pure Food Hall flug-
stöðinni Keflavík.
Með því að velja
hráefnið af kostgæfni,
nota engin aukaefni og
hafa verkhefðir fyrri tíma
í hávegum, framleiðum við
heilnæmar og bragðgóðar
sjávarafurðir.
Unnið eftir aðgerðaáætlun
Uppsagnir ljósmæðra á Landspítalanum hafa mikil áhrif Útskriftum
mæðra og nýbura verið flýtt Valkvæðum keisaraaðgerðum beint til Akraness
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Stjórnendur og sérfræðingar á
Landspítala funda á átta tíma
fresti vegna stöðunnar sem upp er
komin á kvenna- og barnasviði
spítalans, en tólf uppsagnir ljós-
mæðra vegna kjaradeilu ljós-
mæðra og ríkisins tóku gildi í gær.
Mun færri ljósmæður eru því á
vakt á meðgöngu- og sængurlegu-
deild en lágmarksmönnun deildar-
innar gerir ráð fyrir.
Útskriftum mæðra og nýbura
hefur verið flýtt og valkvæðum
keisaraaðgerðum er beint til Heil-
brigðisstofnunar Vesturlands á
Akranesi til að draga úr álagi á
Landspítalanum. Þá hafa stjórn-
endur deildarinnar bætt við sig
vöktum.
30 hafa sagt upp störfum
Linda Kristmundsdóttir, fram-
kvæmdastjóri kvenna- og barna-
sviðs Landspítalans, segir að þetta
sé allt gert samkvæmt aðgerða-
áætluninni sem var unnin vegna
uppsagna ljósmæðra. Samtals hafa
nú 30 ljósmæður sagt upp störfum
og dreifast uppsagnirnar á næstu
þrjá mánuði. Ljósmæður sam-
þykktu á sunnudaginn yfirvinnu-
bann með 90 prósentum greiddra
atkvæða og mun það taka gildi um
miðjan júlí. Næsti fundur í kjara-
deilunni er boðaður á fimmtudag-
inn.
Til viðbótar við sumarálagið
Von er á 250 til 270 börnum á
Landspítalanum í júlí og segir
Linda að yfirleitt sé meira álag á
fæðingardeildinni í þeim mánuði,
m.a. vegna lokana á öðrum heil-
brigðisstofnunum vegna sumar-
leyfa.
„Gærdagurinn gekk þokkalega
og framan af degi hefur gengið
þokkalega,“ sagði Linda síðdegis í
gær. „Við höfum verið að meta
ástandið frá vakt til vaktar, á átta
tíma fresti. Það hefur verið frekar
rólegt en við vitum að það getur
breyst mjög hratt.
Á meðgöngu- og sængurlegu-
deild keyrum við á 60 prósenta
mannskap miðað við lágmarks-
mönnun deildarinnar,“ segir Linda
og bætir við að stjórnendur deild-
arinnar, yfirljósmóðir og aðstoð-
aryfirljósmóðir, hafi bætt við sig
vöktum.
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
Lögreglumaðurinn Jón Kristinn
Þórsson hyggst þreyta þá þrekraun
að synda yfir Ermarsund frá Dover
til Calais í vikunni. Jón er mikill
sundgarpur og kýs frekar að synda
í söltum sjó en sundlaugum. „Mér
finnst þetta bara skemmtilegra í
sjónum,“ segir hann. Jón synti
Drangeyjarsundið frá Drangey að
Reykjanesi árið 2014 og frá Vest-
mannaeyjum til lands árið 2016.
Sundið yfir Ermarsund hefur verið
í bígerð hjá Jóni síðan þá.
34 kílómetrar
skilja að Bret-
land og Frakk-
land þar sem
Ermarsund er
þrengst og Jón
segist vonast til
að geta synt þá
vegalengd á 15
til 16 klukku-
stundum.
Óvíst er ná-
kvæmlega hvenær Jón leggur í
sundið. Sund yfir Ermarsund er
skipulagt þannig að sundköppum
er skipað í röð innan tímamarka
sem hefjast þegar veðrið er ákjós-
anlegt. Jón er þriðji í röð sund-
kappa sem leggja af stað á bilinu
3. til 10. júlí.
Með Jóni í för verða á báti skip-
stjóri og aðstoðarmaður hans sem
fulltrúar Ermarsundsfélagsins auk
tveggja sundkappa sem hafa áður
synt yfir sundið. Þau munu fylgja
Jóni á sundinu, beina honum rétta
leið, gefa honum að borða og
bjarga honum upp úr ef illviðri
skellur óvænt á. „Skipstjórinn á
síðasta orðið,“ segir Jón. „Ef hann
vill mig upp úr verður bara að
hlýða því.“
„Mér finnst þetta bara
skemmtilegra í sjónum“
Jón Kristinn Þórsson hyggst synda yfir Ermarsundið
Jón Kristinn
Þórsson
Bergþóra Þor-
kelsdóttir var í
gær skipuð for-
stjóri Vegagerð-
arinnar. 25 sóttu
um starfið en
tveir drógu um-
sóknir til baka.
Bergþóra er
dýralæknir að
mennt en hefur
einnig lokið
námi í markaðsfræðum og starfað
sem framkvæmdastjóri fyrirtækj-
anna Líflands, Kornax og Fastus.
Í greinargerð hæfnisnefndar eru
tilgreindir fjórir umsækjendur
sem nefndin telur hæfasta til að
gegna umræddu starfi og var
Bergþóra ein þeirra. Í hlutlægu
hæfnismati nefndarinnar, þar sem
vægi ólíkra hæfnisþátta var metið,
fékk Bergþóra flest stig.
Lilja Alfreðsdóttir, settur sam-
göngu- og sveitarstjórnarráðherra
í málinu, skipaði Bergþóru í emb-
ættið eftir að Sigurður Ingi Jó-
hannsson samgöngu- og sveitar-
stjórnarráðherra sagði sig frá
meðferð og töku ákvörðunar í því
vegna vanhæfis.
Horfa átti til
fagþekkingar
„Við teljum að það hefði þurft
að horfa til fagþekkingar og
reynslu í tengslum við verkefni
Vegagerðarinnar við auglýsingu
og ráðningu forstjórans,“ segir
Páll Gíslason, formaður Verkfræð-
ingafélags Íslands, í samtali við
Morgunblaðið.
Stjórn félagsins hafði gert skrif-
lega athugasemd við auglýsingu
samgöngu- og sveitarstjórnarráðu-
neytisins eftir nýjum forstjóra
Vegagerðarinnar í apríl sl. og
lagði til að staðan yrði auglýst upp
á nýtt. VFÍ vildi að gerð yrði
krafa um viðeigandi háskóla-
menntun umsækjenda. Ekki var
gerð krafa um sérstaka menntun.
„Ef ekki er gerð krafa um fag-
þekkingu í auglýstri stöðu sem
þessari, þá byrjar ráðningin að
lykta pólitískt og margir hæfir
einstaklingar halda sig þá til
hlés,“ segir Páll. ernayr@mbl.is
Bergþóra
Þorkels-
dóttir
nýr vega-
málastjóri
Bergþóra
Þorkelsdóttir
Vinnubrögð við
ráðningu gagnrýnd
Þeir voru vel búnir í rigningunni þessir er-
lendu ferðamenn sem gerðu stuttan stans á
göngu eftir Laugaveginum til að fá sér hress-
ingu og líta á kort til að ná betur áttum í höf-
uðborginni. Ekki er hægt að vera án hlífðar-
fatnaðar í vætutíðinni miklu sem staðið hefur
nær óslitið frá því í byrjun maí. Rigningin
reynir mjög á stemninguna meðal borgarbúa
sem eru margir farnir að trúa því að þetta
verði sólarlausa sumarið.
Aftur á móti hefur vætan lítil áhrif á er-
lendu ferðamennina enda eru þeir ekki hing-
að komnir til að sóla sig heldur kynnast landi
og þjóð og hafa flestir klæðnað við hæfi í far-
teskinu.
Spáð í áttir í rigningunni á Laugaveginum
Morgunblaðið/Ómar
Erlendir ferðamenn láta vætuna ekki slá sig út af laginu