Morgunblaðið - 03.07.2018, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2018
Glæsilegur veitingastaður á Hótel Örk. Vandaður matseðill og hlýlegt umhverfi.
Pantaðu borð í síma 483 4700 eða á hverrestaurant.is
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Katrín Sif Sigurgeirsdóttir, formaður
kjaranefndar Ljósmæðrafélags Ís-
lands, segir meginkröfu félagsmanna
þá „að fá leiðréttingu á launasetning-
unni“.
„Krafan er að við stöndum jafnfæt-
is öðrum stéttum með svipaða mennt-
un og ábyrgð í starfi,“ segir Katrín
Sif, sem kveðst bundin trúnaði við
ríkissáttasemjara um launakröfur
ljósmæðra.
Hún segir kröfu ljósmæðra þá að
launasetningin verði leiðrétt þannig
að ljósmóðir geti lifað sómasamlega
af því að vinna dagvinnu. Könnun
sem gerð var meðal ljósmæðra bendi
til að margar telji eðlilegt að miða við
671 þúsund í grunnlaun á mánuði.
Um 70-80% ljósmæðra hafi tekið þátt
í könnuninni. Hún ítrekar að ljós-
mæður séu ekki að leggja þetta fram
sem kröfu í samningaviðræðunum.
Margar með styttra nám
„Við erum að horfa til annarra
stétta sem eru með fimm til átta ára
háskólanám. Þar undir falla lögfræð-
ingar, verkfræðingar, læknar, dýra-
læknar og fjölmargar aðrar stéttir.
Margar eru með styttra nám en tals-
vert hærri grunnlaun. Það er engin
stétt sem við getum beint samsamað
okkur við. Læknar eru ansi nærri
þegar þeir eru búnir með sín sex ár í
grunnnámi og hafa jafnvel bætt við
sig einu, tveimur árum í viðbót, eins
og við ljósmæður höfum margar
gert,“ segir Katrín Sif.
Samkvæmt vef stjórnarráðsins
voru heildarlaun lækna að meðaltali
1,5 milljónir á mánuði í fyrra. Katrín
Sif segir aðspurð að ljósmæður standi
framangreindum stéttum alltof langt
að baki í þessu efni.
Þá gagnrýnir hún að í samanburði
á launum ljósmæðra og annarra
stétta skuli ekki tekið meira tillit til
vinnuálags ljósmæðra. „Við vinnum á
þrískiptum vöktum, allan ársins
hring, og erum þar með að skila 13
fleiri vinnudögum en þeir sem vinna
aðeins dagvinnu. Þetta er verið að
bera saman. Heildarlaun okkar og
heildarlaun stétta sem vinna aðeins
frá kl. 8 til 16 eða 9 til 17 virka daga.
Það gefur augaleið að þarna er verið
að bera saman epli og appelsínur.
Samanburðurinn verður aldrei rétt-
ur,“ segir Katrín Sif.
Lækka í launum
„Við þyrftum líka að fá bindingu
við til dæmis kjarasamninga hjúkr-
unarfræðinga. Við erum hjúkrunar-
fræðingar í grunninn en lækkum í
launum við að bæta við okkur tveim-
ur árum í námi. Það er ótrúlegt en
satt,“ segir Katrín Sif.
Hún segir ljósmæður langflestar
vinna á þrískiptum vöktum, frá kl. 8
til 16, frá kl. 16 til miðnættis og frá
miðnætti til 8.30 að morgni. Algengt
sé að vaktirnar verði mun lengri.
Dæmi séu um 16 tíma vaktir. Hins
vegar séu hvíldartímaákvæðin ekki í
neinu samræmi við hvíldartíma-
ákvæði fjölda stétta, svo sem atvinnu-
ökumanna og flugáhafna. Líkt og
ekki sé jafn rík þörf á árvekni í starfi
heilbrigðisstétta og þeirra fyrr-
nefndu.
Hún segir ljósmæður hafa glímt
við manneklu og lélegan aðbúnað á
síðustu árum. Landspítalinn hafi um
langt skeið keyrt ljósmæðradeildir á
neyðarmönnun. „Við erum stanslaust
undirmönnuð,“ segir hún.
Katrín Sigurðardóttir, formaður
Félags geislafræðinga, segir félagið
undirbúa kjaraviðræður vegna kjara-
samninga sem renna út í lok mars
2019. Félagsmenn hafi talið heilla-
vænlegast að samþykkja kjarasamn-
inginn síðastliðið vor og nota árið til
frekari undirbúnings.
Álag hjá geislafræðingum
„Við ætlum að setjast niður með
fulltrúum samninganefndar ríkisins
og skoða hvernig okkar starf hefur
þróast og breyst,“ segir Katrín.
Hún segir störf geislafræðinga
hafa tekið „gríðarlegum breytingum“
á síðustu árum.
„Við teljum að þetta þurfi að skoða
með það fyrir augum að leiðrétta
kjörin, þannig að ábyrgð og störf
geislafræðinga séu metin að verðleik-
um. Það er ekki hægt að líkja starfinu
við það sem það var fyrir 20 árum.
Áður voru geislafræðingar eins og að-
stoðarmenn lækna. Þeir gerðu nánast
ekkert án þeirra samþykkis. Nú
vinnum við okkar vinnu sjálfstætt og
erum eins og samstarfsmenn lækna.
Áður voru eingöngu framkvæmdar
venjulegar röntgenrannsóknir. Nú
vinnum við meðal annars með tölvu-
sneiðmyndir, ísótóparannsóknir, óm-
skoðanir og segulómun. Við tökum
þátt í undirbúningi geislameðferðar
og veitum geislameðferð og jáeinda-
skanninn fer að koma í gagnið.“
Hún segir ósanngjarnt að einblína
á heildarlaun geislafræðinga. Horfa
þurfi á hlutina í víðara samhengi.
„Að baki þessum tölum er fólk sem
vinnur ómælda eftirvinnu. Svo er
hluti af stéttinni ekki að vinna
ómælda eftirvinnu og þarf að lifa á
grunnlaunum. Eftir nýjustu kjara-
samninga voru lægstu laun hækkuð í
rúm 420 þúsund. Þar liggur okkar
lægsta fólk. Þetta vinnuálag er mjög
eyðileggjandi eins og rannsóknir
sýna. Það er engin tilviljun að vinnu-
löggjöfin kveður á um 40 stunda
vinnuviku eða minna. Það er ekki
vegna þess að það sé verið að gefa
fólki eitthvað. Það er vegna þess að
það er búið að reikna út að það sé
heilsusamlegast og best fyrir sam-
félagið. Þetta er eitt af því sem þarf
að breyta. Það er mikið álag á fólki.
Margar stéttir eru með óunna yfir-
vinnu. Heilbrigðisstéttir á sjúkrahús-
um þurfa hins vegar að vinna fyrir
hverri einustu krónu.“
Stytta þarf vinnuvikuna
Laufey Elísabet Gissurardóttir,
formaður Þroskaþjálfafélags Íslands,
segir félagsmenn fylgjast náið með
styttingu vinnuvikunnar hjá Reykja-
víkurborg. Þroskaþjálfar telji þó að
borgin hefði átt að horfa meira til
vaktavinnustétta.
Raunar hafi verið kveðið á um slíka
styttingu allt frá fyrstu kröfugerð fé-
lagsins árið 1996.
„Við höfum horft til kollega okkar
annars staðar á Norðurlöndunum
þessi rúm 20 ár. Vaktavinnufólk hef-
ur þar verið með enn styttri vinnu-
tíma en dagvinnufólk. Rannsóknir
sýna að 40 tíma vinnuvika er ansi löng
fyrir fólk í vaktavinnu. Slíkt álag er
mjög slítandi,“ segir Laufey Elísabet.
Breyting milli
1. ársfj. 2017-2018Breyting 2016-2017
Meðallaun (heildarlaun) 2015 2016 2017 Í krónum í % 1. ársfj. 2017 1. ársfj. 2018 Í krónum* Í %
BSRB:
Sjúkraliðafélag Íslands 512.528 541.054 660.586 119.532 22,1% 631.556 647.462 15.906 2,5%
BHM:
Félag geislafræðinga 747.237 780.482 804.985 24.503 3,1% 745.053 795.759 50.706 6,8%
Félag ljósmæðra** 771.560 814.376 848.224 33.848 4,2% 805.153 801.816 -3.337 -0,4%
Félag lífeindafræðinga 684.681 723.503 790.451 66.948 9,3% 728.744 753.829 25.085 3,4%
Iðjuþjálfafélag Íslands 485.848 512.479 543.069 30.590 6,0% 519.297 539.677 20.380 3,9%
Sálfræðingafélag Íslands 604.098 638.540 660.586 22.046 3,5% 631.556 647.462 15.906 2,5%
Stéttarfélag sjúkraþjálfara 524.415 554.487 587.396 32.909 5,9% 566.667 576.798 10.131 1,8%
Þroskaþjálfafélag Íslands 516.808 547.420 570.323 22.903 4,2% 555.974 566.193 10.219 1,8%
Í eigin félagi:
Skurðlæknafélag Íslands 1.796.074 1.963.487 2.034.189 70.702 3,6% 2.005.670 1.932.199 -73.472 -3,7%
Læknafélag Íslands 1.378.636 1.474.076 1.500.263 26.187 1,8% 1.529.213 1.428.826 -100.387 -6,6%
Félag íslenskra hjúkrunarfr. 680.231 744.518 806.871 62.353 8,4% 768.206 742.461 25.745 3,5%
Dæmi um launahækkanir hjá heilbrigðisstéttum
Heimild: Vefur stjórnarráðsins
**Dagvinnulaun á 1. ársfj. 2018 voru 582.652 kr. að meðaltali, eða 2,4% hærri en á 1. ársfj. 2017. Heildarlaun lækkuðu hins vegar um 0,4%. Skýringin er m.a. að vaktaálag lækkaði.
*Laun í einstökum mánuðum geta sveiflast
milli ára. Best er að miða við heildarlaun allt árið.Ljósmæður
geti lifað af
daglaunum
Fulltrúi ljósmæðra segir könnun
benda til að þær vilji 671 þús. í daglaun
Morgunblaðið/ÞÖK
Landspítalinn Fulltrúi ljósmæðra segir þær vinna skv. neyðarmönnun.
Guðlaugur Þór Þórðarson utanrík-
isráðherra átti í gær fund með
Zhang Qingli, varaforseta kínverska
ráðgjafarþingsins, sem er staddur
hér á landi. Ráðherra ræddi sam-
skipti ríkjanna við Zhang, þ.m.t.
verslun og viðskipti, væntanlega for-
mennsku Íslands í norðurskauts-
ráðinu, hugmyndir um beint flug
milli landanna og fleira.
Einnig var rætt um málefni Norð-
ur-Kóreu og áætlun Kínverja um
belti og braut (e. Belt and Road Ini-
tiative). Áætlunin er stundum nefnd
hin nýja Silkileið og nær til flestra
sviða samgangna í heiminum. Þá
minntist Zhang á frammistöðu ís-
lenska knattspyrnulandsliðsins á
HM í Rússlandi og sagði að aðdáun-
arvert hefði verið að fylgjast með
samstöðu og samheldni Íslendinga,
krafti liðsins og áræði, að því er fram
kemur í tilkynningu frá utanrík-
isráðuneytinu.
Utanríkisráðherra þakkaði góð
orð og notaði svo tækifærið til að
benda á að Ísland myndi líklega
deila sæti í mannréttindaráði Sam-
einuðu þjóðanna með Kínverjum
næsta árið.
Ljósmynd/Utanríkisráðuneytið
Samskipti Guðlaugur Þór tekur á móti Zhang Qingli, varaforseta kín-
verska ráðgjafarþingsins, og fylgdarliði á tröppum utanríkisráðuneytisins.
Ræddu gengið á HM
Utanríkisráðherra tók á móti vara-
forseta kínverska ráðgjafarþingsins