Morgunblaðið - 03.07.2018, Side 13
styrkur til sundlaugarbyggingar í
Reykjarfirði og lofaði Vilmundur að
hann myndi gera sitt besta í málinu
hvort sem hann kæmist á þing eða
ekki. Þriðja sundnámskeiðið stóð yf-
ir þegar fréttist að Vilmundur hefði
komist á þing. Sagði Jóhannes sund-
kennari þá nemendum sínum að
ekki yrði langt að bíða þar til þeir
fengju betri sundlaug, en tveimur
dögum áður hafði jökuláin vaxið svo
mikið að kvísl úr henni rann í sund-
laugina. Jóhannes og nemendur
hans byggðu þá vegg og grófu niður
þar sem steypta laugin síðar kom en
þessa vinnu hófu þeir að morgni og
luku henni um miðjan dag og var sú
laug vígð um kvöldið. En í ágúst
þetta sama ár, 1937, barst bréf frá
Vilmundi þingmanni þar sem hann
tilkynnti að búið væri að útvega 600
krónur til sundlaugarbyggingar-
innar ásamt því að útvega teikningu
af sundlaug.
Nokkrum dögum síðar fór Jó-
hannes til Ísafjarðar og samdi um að
vitabáturinn Hermóður flytti 30
tunnur af sementi og steypujárni í
Reykjarfjörð um leið og báturinn
færi í strandferð austur. Á tvítugs-
afmæli Jóhannesar, 29. ágúst, barst
frétt um að Hermóður kæmi daginn
eftir og sjálfur þingmaðurinn væri
um borð. Var efninu skipað í land og
flutt heim.
Mest unnið endurgjaldslaust
Landeigendur gáfu land undir
sundlaugina og nokkrum dögum síð-
ar var byrjað að grafa fyrir lauginni,
tók það þrjá daga en það verk unnu
bræðurnir Jóhannes og Guðfinnur
ásamt Jakobi föður þeirra en Ragn-
ar sjö ára bróðir þeirra hafði það
hlutverk að teyma hestinn við flutn-
ingana.
„Sundlaugin var byggð með það
í huga að efla menningu sveitarfé-
lagsins og vekja þrótt og samstarf
meðal unga fólksins í nágrenninu.
Fyrir sérstakan áhuga og mikið
vinnuframlag heimilisfólks og nokk-
urra áhugasamra manna á Strönd-
um tókst að ljúka við veggi að mestu
leyti um haustið en tíðin var góð.
Næsta vetur fékkst einnig
ríkisstyrkur, 300 krónur til að full-
gjöra sundlaugina. Keypt var sem-
ent fyrir styrkinn og þá hægt að
steypa það mikið að hægt var að
hafa sundnámskeið í maí og júní
sama ár. Eftir sundnámskeiðið var
síðan haldið áfram og lokið við veggi
og steyptur botn. Við verkið unnu 15
manns, sem útheimti 150 dagsverk
og 23 hestadagsverk. Mest var unn-
ið endurgjaldslaust en þau vinnu-
laun sem greidd voru greiddi Jó-
hannes sjálfur, því styrkurinn fór
allur til efniskaupa.“
Hún er perla í eyðimörkinni
Eins og fyrr segir var sund-
laugin vígð 2. júlí 1938 og hófst þá
fyrsta námskeiðið með 25 nem-
endum. Á vígsludaginn voru sam-
ankomnir 73 gestir, verður það að
teljast fjölmennt mót á jafn af-
skekktum stað. Matthildur og Jakob
buðu öllum gestum í mat og kaffi og
einhverjir gistu. Seinna voru byggð-
ir búningsklefar og stökkpallur en
allt er það löngu horfið. Sumarið
1986 var sundlaugin endurbyggð og
máluð í fyrsta sinn og var það hægt
vegna framlaga frá velunnurum
sundlaugarinnar, m.a. gömlum nem-
endum Jóhannesar og skátum frá
Ísafirði, gekk það bæði fljótt og vel.
Sundlaugin er 8 x 20 m og
mesta dýpi er 1,70 m. Hveravatnið
sem rennur í sundlaugina er um 52
gráða heitt en ekkert kalt vatn renn-
ur í hana.
Árið 1990 var hafist handa við
að byggja „Baðhúsið,“ sem eru klef-
ar með sturtu- og snyrtiaðstöðu fyr-
ir ferðafólk. Skátar frá Ísafirði að-
stoðuðu við byggingu Baðhússins til
minningar um Jóhannes. Fyrir
nokkrum árum var settur heitur
pottur og smíðaður pallur.
Enn heillar sundlaugin alla sem
koma í Reykjarfjörð. Margur ferða-
maðurinn hefur látið líða úr þreytt-
um líkamanum og endurnærst á sál
sem líkama. Segja má að sundlaugin
sé perla í eyðimörkinni, þannig eru
viðbrögð og undrun ferðafólks þegar
það nýtur þessarar heilsulindar á
svo afskekktum stað. Landeigendur
sjá um að þetta afrek Reykjarfjarð-
arfjölskyldunnar sé enn sú perla
sem það var fyrir áttatíu árum og
vinna stöðugt að endurbótum og við-
haldi. Sælureitur Magnað útsýni er úr lauginni sem ófáir hafa notið í gegnum tíð.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2018
Sundlaugin var stór þáttur í lífi fjölskyldunnar í Reykjarfirði, fyrir henni var
barist og oft þurfti að hlaða aftur stífluna sem myndaði gömlu moldarlaugina,
þegar Ósinn, jökuláin, hljóp fram og yfir sundlaugina, því þá brast stíflan.
Eflaust hefur verið gaman fyrir systkinin á bænum sem bjuggu svo afskekkt
að fá hópa af krökkum reglulega á sundnámskeið. Gera má ráð fyrir að oft hafi
mikið gengið á og ævintýri verið við hvert horn. Hér eru hjónin Matthildur Her-
borg Benediktsdóttir og Jakob Kristjánsson sem eignuðust 14 börn (13 lifðu).
Efri röð f.v: Magnús, Ragnar, Guðmundur, Benedikt, Guðfinnur, Hermann,
Kjartan og Jóhannes (faðir Erlu). Neðri röð f.v: Valgerður, Jóhanna, Guðrún,
Matthildur, Jakob, Sigríður og Ketilríður.
Í heimildum segir frá því að unga fólkið í Reykjarfirði á heimilum þeirra
Matthildar og Jakobs, sem og Alexandrínu Benediktsdóttur og Jónasar Guð-
jónssonar, hafi oft gert sér að leik að baða sig í heitum uppsprettum sem eru
víða í firðinum.
Líf og fjör á stóru heimili
Barnalán Matthildur og Jakob með öllum börnunum sínum þrettán sem lifðu.
Systkinahópurinn var stór
hjá fjölskyldunni í Reykjarfirði
)553 1620
Laugarásvegi 1, 104 Reykjavík
laugaas@laugaas.is • laugaas.is
Veisluþjónusta
Lauga-ás
Afmæli
Árshátíð
Gifting
Ferming
Hvataferðir
Kvikmyndir
Íþróttafélög
Við tökum að okkur að skipuleggja
smáar sem stórar veislur.
Lauga-ás rekur farandeldhús í hæsta
gæðaflokki og getur komið hvert sem
er á landinu og sett upp gæða veislu.
Er veisla framundan hjá þér?
Hafðu samband við okkur og við
gerum þér tilboð.