Morgunblaðið - 03.07.2018, Page 14

Morgunblaðið - 03.07.2018, Page 14
Landsmót hestamanna 201814 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2018 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf FALLEG OG VÖNDUÐ LEIKFÖNG Kíktu á netverslun okkar bambus.is Borgartún 3, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14 úr náttúrulegum efnivið, tré og silki VANTAR ÞIG STARFSFÓLK? Suðurlandsbraut 6, 108 Rvk. | SÍMI 419 9000 | info@handafl.is | handafl.is Við útvegum hæfa starfskrafta í flestar greinar atvinnulífsins Handafl er traust og fagleg starfsmannaveita með margra ára reynslu á markaði þar sem við þjónustum jafnt stór sem smá fyrirtæki. VIÐTAL Nína Guðrún Geirsdóttir ninag@mbl.is Vilfríður Sæþórsdóttir er meistara- nemi í íþróttum og þjálfun við Há- skólann í Reykjavík. Hún er einnig mikil hestakona og hafði nýlokið keppni þegar blaðamaður hitti hana á landsmótssvæðinu í Víðidal. Í gær flutti hún erindi á mótinu um lokaverkefni sitt sem fjallar um líkamlegar mælingar knapa og ávinning þess að nýta slíkar mæl- ingar betur. Vilfríður segir nauð- synlegt að mæla líkamlega og hug- ræna burði knapa, líkt og gert er með íþróttamenn í öðrum greinum. „Við eigum engar upplýsingar um knapana. Þetta skiptir máli og eru sífellt fleiri íþróttagreinar að inn- leiða slíkar mælingar,“ segir Vil- fríður. Faglega þekkingu vantar Landslag íþróttaþjálfunar byggist í æ meira mæli á tölulegum upplýs- ingum og mælingum að sögn Vil- fríðar og því liggur beinast við að innleiða það einnig í hestaíþróttina. „Markmiðið er að að fá auknar upp- lýsingar um íþróttamanninn til að geta gert betur. Takmarkið er líka að auka faglega þekkingu í kringum afrekshópana í hestaíþróttinni sem hefur vantað í gegnum tíðina,“ segir Vilfríður. Rannsókn hennar felst í að mæla hvernig íslenskt afreksfólk í hestaíþróttinni er á sig komið lík- amlega og andlega og hvað megi bæta. „Í grunninn skiptir þetta máli. Þetta eru íþróttamenn og hugsa eins og íþróttamenn. Við þurfum bara að innleiða meiri íþróttahugsun í alla umgjörð sports- ins.“ Vilfríður segir jafnframt þessa hlið íþróttarinnar lítið hafa verið skoðaða í rannsóknum áður. „Við búum ekki að rannsóknum um þetta efni. Ég rakst þó á eina erlenda rannsókn þar sem er skoðað hvort knapar þurfi að æfa aukalega. Þar var sýnt fram á að knapar þurfi í raun að æfa aukalega utan við út- reiðartúra. Það gefur vísbendingar.“ Hugræn færni líka mikilvæg Vilfríður notast við staðlaðar mælieiningar í prófunum þar sem knaparnir eru prófaðir í bæði lík- amlegri og hugrænni getu. Hún hef- ur þegar mælt tvo hópa; afrekshóp ungmenna á aldrinum 16-21 árs og hóp A-liðs, sem er eldri hópur og meirihlutinn karlmenn. „Líkamlegu mælingarnar mæla styrk en við mælum einnig hæð, þyngd og fitu. Hugrænu mælingarnar snúa að hugrænni færni knapans, t.d. hvern- ig hann bregst við pressu, hvaða áhrif streita og álag hafa á frammi- stöðu hans og svo framvegis. Í framhaldi af þessu er hægt að útbúa æfingaplan sem þjálfar upp veik- leika hans, t.d. með markmiðasetn- ingu og jákvæðu sjálftali.“ Gott jafnvægi lykilatriði Vilfríður segir knapa þurfa að búa að ákveðnum styrk til að geta beitt hestinum rétt. „Knapar þurfa t.d. að vera stöðugir í mjöðmum. Þeir þurfa að vera með rétta líkamsstöðu og í jafnvægi til að geta beðið hest- inn að vera í réttri líkamsstöðu og beitt sér af fullum krafti.“ Hún segir enn fremur að knapar geti öðlast betri líkamsstöðu og form með því að stunda ákveðnar íþróttir, t.d. sund, jóga, pílates og dans. „Dans- inn æfir taktinn og hreyfingu með annarri manneskju. Jóga og pílates snúast um að æfa jafnvægi og lík- amsmeðvitund, sem er svo mikilvæg á hestbaki,“ segir Vilfríður og segist vita af mörgum hestamönnum sem stundi jóga og pílates að staðaldri. Að sögn Vilfríðar þurfi í auknum mæli að betrumbæta umgjörð í kringum afrekshópana: „Við þurfum að innleiða meiri íþróttahugsun í alla umgjörð sportsins. Þeir fá litla sem enga fræðslu um líkamlega jafnt sem andlega hlið íþróttarinnar. En þetta eru íþróttamenn og hugsa eins og íþróttamenn og því ætti að aðstoða þá meira.“ Formið tengist frammistöðu Að sögn Vilfríðar bendir allt til þess að knapar í góðu líkamlegu formi nái betri árangri. „Ég get ekki fullyrt það en ég tel að líkam- legt atgervi tengist að einhverju leyti frammistöðu í hestaíþróttinni, líkt og það gerir í öðrum íþróttum. Auðvitað verður það þó aldrei jafn mikið. Aukin þyngd knapa hefur t.d. áhrif á jafnvægi hestsins. En hesta- íþróttin er í grunninn fagurfræðileg íþrótt líkt og fimleikar og því hefur form áhrif á heildarmyndina.“ Morgunblaðið/Eggert Líkamsbeiting Vilfríður segir að allt bendi til þess að rétt líkamsstaða og gott líkamlegt form geti skipt miklu máli þegar kemur að frammistöðu. Líkamleg heilsa knapa skiptir máli Hestakona Vilfríður er vanur knapi og keppti á landsmótinu.  Lokaverkefni sem snýr að líkamlegum mælingum knapa Í dag er þriðji dagur Landsmóts hestamanna í Víðidal og keppni heldur áfram. Á aðalvellinum verð- ur forkeppni í A-flokki sem byrjar kl. 8:30 og stendur til 15:15. Eftir hlé hefjast milliriðlar í barnaflokki sem standa yfir fram á kvöld. Á kynbótavellinum hefst dagskrá 8:45 með framhaldi á kynbótasýn- ingum sex vetra hryssa. Eftir hádegi verða sýningar á sjö vetra hryssum og síðar um daginn verður sýning á fjögurra vikna stóðhestum. Um kvöldið hefst fyrri umferð 150 og 250 metra skeiðs á kynbótavelli. Í Horses of Iceland-tjaldinu verð- ur opið frá 10 til 18 og þar er boðið upp á lifandi tónlist fyrir gesti og gangandi ásamt öðrum uppá- komum. Þriðji dagur Landsmóts hestamanna FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.