Morgunblaðið - 03.07.2018, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 03.07.2018, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2018 Er stærsti framleiðandi sportveiðarfæra til lax- silungs- og sjóveiða. Trilene XL nylon línur til lax- silungs- og sjóveiða í fjölbreyttu úrvali einnig taumaefni. Fjölbreyt úrval af hjólum og stöngum, til sportveiða fyrirliggjandi. Vöðluskór með skiptanlegum sóla, filt, gúmmí og negldir sólar. Tvennir sólar fylgja. Þessir skór voru valdir bestu Vöðlu skórnir á Efftex veiðisýningunni 2016. Ugly Stik kaststang- irnar eru sterku stangir á mark- aðnum. Gott úrval af kast- stöngum og hjólum, strandveiðstangir, Combo strand- veiðistöng og hjól, sjóstangir. Stærsta úrval stanga og hjóla til sjóveiði. Þekktustu veiðivörumerkin eru seld í öllum „Betri sportvöruverslunum landsins“ Helstu Útsölustaðir eru: Veiðivon Mörkinni Vesturröst Laugavegi Veiðiportið Granda Veiðiflugur Langholtsvegi Kaupfélag Borgfirðinga Borgarnesi Kassinn Ólafsvík Söluskáli ÓK Ólafsvík Skipavík Stykkishólmi Smáalind Patreksfirði Vélvikinn Bolungarvík Kaupfélag Steingrímsfjarðar Hólmavík Kaupfélagi V-Húnvetninga Hvammstanga Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki SR-Bygginavöruverslun Siglufirði Útivist og Veiði Hornið Akureyri Veiðiríkið Akureyri Hlað Húsavík Ollasjoppa Vopnafirði Veiðiflugan Reyðarfirði Krían Eskifirði Veiðisport Selfossi Þjónustustöðvar N1 um allt land. Dreifing: I. Guðmundsson ehf. Nethyl 1, 110 Reykjavík. Nánari upplýsingar um þessar vörur má fá á eftirfarandi vefsíðum: www.purefishing.com - www.abugarcia.se - www.kuusamonuistin.fl - www.coghlans.com. Hulda Ingadóttir fæddist í nóvem- ber 2008 og er yngsti keppandinn á landsmóti í ár. Knapar í barnaflokki eru yngstir 10 ára og er þetta því fyrsta mót hennar. Annar heldur reyndari knapi, Sigurbjörn Bárð- arson, er 66 ára og telst elsti kepp- andinn á mótinu. Hulda kemur úr mikilli hestafjölskyldu en systir hennar hefur t.d. verið í afrekshópi knapa. Sigurbjörn segir lykilinn að langlífi í hestaíþróttinni vera mikla æfingu. „Lykillinn er að æfa og æfa meira. Telja sig aldrei vera búinn að ná toppnum. Þú verður alltaf að trúa á að hægt sé að gera betur.“ Sigurbjörn keppti fyrst á Lands- móti árið 1966, þá 14 ára gamall. Hann hefur tekið þátt í öllum lands- mótum síðan þá. „Í þá daga var þetta ekki barnasport. Maður fékk uppáskrifað leyfi frá foreldrum til að vera með þegar maður var að byrja, fjórtán til sextán ára. Þannig að maður varð að kynnast þessu með því að stússa í kringum fullorðna fólkið.“ Hann segir jafnframt að aðaláherslan hafi verið á kappreiðar í þá daga. „Mesta sportið var að fara á stökk en þá voru kappreiðar vin- sælasta keppnisíþróttin á Íslandi og lengi fram eftir, alveg fram til 1980.“ En hver ætli sé uppáhalds- gangtegund Huldu? Jú, það er stökk. Sigurbjörn hlær og segir að það komi sér ekki á óvart „Það skipt- ir ekki máli hvaða ár það er; það er mesta spennan að hlaupa og taka á stökk,“ segir Sigurbjörn og tekur Hulda undir það. Sigurbjörn er á besta aldri og því liggur beinast við að spyrja af hverju hann sé elstur á mótinu? „Þetta er keppnin, það er keppt um að ná ákveðnu skori inn á mótin og þá verðurðu að eiga möguleika. Ég lít bara á þetta sem áskorun.“ ninag@mbl.is Morgunblaði/Arnþór Birkisson Reynslan Hulda er 10 ára gömul og keppti í gær á sínu fyrsta landsmóti. Sigurbjörn hefur verið með frá árinu 1966. Reynslan og ungviðið  56 ár skilja að elsta og yngsta knapa á landsmótinu Annar dagur Landsmóts hesta- manna í Víðidal hófst á keppni í B-flokki klárhesta. Eftir jafna og skemmtilega keppni var ljóst að Nökkvi frá Syðra-Skörðugili varð hæstur með 8,988 stig, en hann var einnig landsmótssigurvegari árið 2016. Rétt á eftir honum varð Ljósvaki frá Valstrýtu með 8,926 og þriðji Hátíð frá Forsæti II með 8,838. Má því ætla að milliriðla- keppnin í B-flokki á miðvikudag verði æsispennandi. Eftir hádegi var úrhellisrigning og litaðist áhorfendabrekkan af regnhlífum og litríkum regn- stökkum. Margir kusu að sitja í útilegustólum í brekkunni og létu rigninguna ekkert á sig fá. Einnig kusu margir að sitja inni í reiðhöll þar sem keppnin var sýnd á stórum skjáum. Áfram voru mat- söluvagnarnir vinsælir og höfðu einhverjir orð á því að þetta væri veður fyrir kjötsúpu, en kjötsúpu- angan lagði um reiðhöllina (nú mathöllina). Síðdegis í gær fór einnig fram forkeppni í ungmennaflokki, sem eru 18-21 árs knapar. Alls kepptu 89 ungmenni í dag. Niðurstöður liggja ekki enn fyrir en þær verða birtar eftir að þær hafa verið gerðar ljósar. ninag@mbl.is Stemning þrátt fyrir rigningu Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Bleyta Það rigndi duglega á landsmótsgesti, sem voru við öllu búnir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.