Morgunblaðið - 03.07.2018, Side 16

Morgunblaðið - 03.07.2018, Side 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2018 Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is Stýrðu birtunni heima hjá þér MYRKVA GLUGGATJÖLD Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu Íslensk framleiðsla eftir máli Hringdu núna og bókaðu tíma í máltöku OPIÐ: VIRKA DAGA FRÁ 10-18 alnabaer.is 3. júlí 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 106.08 106.58 106.33 Sterlingspund 139.6 140.28 139.94 Kanadadalur 80.49 80.97 80.73 Dönsk króna 16.568 16.664 16.616 Norsk króna 12.992 13.068 13.03 Sænsk króna 11.816 11.886 11.851 Svissn. franki 106.85 107.45 107.15 Japanskt jen 0.9572 0.9628 0.96 SDR 149.07 149.95 149.51 Evra 123.45 124.15 123.8 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 151.8337 Hrávöruverð Gull 1250.55 ($/únsa) Ál 2182.5 ($/tonn) LME Hráolía 77.79 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Nýskráðum fólksbílum á götum lands- ins fækkaði mikið í júní síðastliðnum frá sama mánuði árið 2017. Þannig voru skráðir 2.597 nýir bílar í nýliðnum mánuði, samanborið við 3.146 bíla fyrir ári. Sam- drátturinn nemur 17,5% eða 549 bílum. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Bíl- greinasambandið sendi frá sér í gær. Þar er einnig bent á að nýskráningum á fyrstu sex mánuðum ársins hefur einnig fækkað frá fyrri hluta árs í fyrra. Þannig hafa verið nýskráðir 11.884 fólksbílar frá því í upphafi árs en það er 13,2% færri bílar en á fyrri hluta árs í fyrra. Í gögnum yfir nýskráða fólksbíla má greina breytta kauphegðun fólks. Þannig voru nýskráðir bílar fyrstu sex mánuði síð- asta árs í 90,1% tilvika knúnir áfram ein- göngu af bensíni eða dísel. Á fyrstu sex mánuðum yfirstandandi árs eru hins veg- ar 82% skráðra fólksbíla knúin slíkum orkugjöfum. Bendir Bílgreinasambandið á að þessar tölur vitni um töluverða breyt- ingu á vali á orkugjöfum í bílakaupum fólks. Talsverður samdráttur í sölu nýrra bíla í júní STUTT BAKSVIÐ Steingrímur Eyjólfsson steingrimur@mbl.is Verðbólguvæntingar stærstu fyrir- tækja landsins til eins árs hafa tæp- lega tvöfaldast frá júní í fyrra. Þetta kemur fram í Hagvísum Seðlabanka Íslands, sem er yfirlit um þróun efnahagsmála á Íslandi. Karen Á. Vignisdóttir, forstöðu- maður greiningar og útgáfu á hag- fræði- og peningastefnusviði Seðla- banka Íslands, segir bankann þó líta meira á langtímaverðbólguvænting- ar, fimm eða tíu ár fram í tímann, við mótun peningastefnunnar. Væntingar heimila viðkvæmari Aðspurð af hverju verðbólgu- væntingar heimilanna séu gjarnan meiri en fyrirtækja og markaðsaðila segir Karen að þau séu yfirleitt við- kvæmari fyrir nýliðinni verðbólgu. „Heimilin finna til dæmis töluvert fyrir breytingum á bensínverði sem hefur hækkað mikið að undan- förnu.“ Karen segir einnig að kannanir markaðsaðila og heimila hafi ekki verið framkvæmdar á nákvæmlega sama tíma, sem gæti haft einhver áhrif á niðurstöðurnar. „Þessar kannanir voru ekki allar gerðar á sama tíma, könnun markaðsaðila var framkvæmd í maí. Það á þó ekki að breyta miklu því það er verið að spyrja um væntingar eitt ár fram í tímann.“ Væntingar fyrirtækja aukast Aðspurður um auknar verðbólgu- væntingar stjórnenda fyrirtækja milli ára segir Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, fjóra þætti liggja þar að baki. „Í fyrsta lagi eru fram undan stórir kjarasamningar og óvissa sem þeim fylgir. Við þekkjum það að óvissa er yfirleitt túlkuð á neikvæðan hátt og ég tel að það komi ótvírætt fram í því hvern- ig menn meta verðbólguhorfur. Einnig höfum við séð að krónan er komin á annað ról en hún hefur ver- ið að undanförnu. Hægt er að gera ráð fyrir að áframhaldandi styrking krónunnar muni fela innlendar kostnaðarhækkanir. Þróun olíuverðs hefur einnig ýtt undir verðbólgu undanfarið og er áhrifavaldur. Síðan erum við óumdeilanlega komin á topp hagsveiflunnar og þar af leið- andi mun eftirspurnin til framtíðar mögulega fara að gefa eftir, hvort sem það er ferðaþjónustan eða á öðrum sviðum. Samhliða miklum kostnaðarhækkunum er ekkert óeðlilegt að þetta geti haft áhrif til hækkunar verðbólgu. Ég tel að þetta séu stærstu þættirnir.“ Blikur á lofti Þegar Halldór Benjamín er spurður hvort auknar verðbólgu- væntingar fyrirtækja séu áhyggju- efni segir hann að svo sé. „Ég held það, svo sannarlega. Ef við skoðum bara hagsögu Ís- lands, þá er það áhyggjuefni fyrir bæði fyrirtæki og heimili landsins þegar verðbólga fer á flug. Hags- aga Íslands sýnir að við förum reglulega fram úr okkur við end- ann á hagsveiflunni. Það er of snemmt að fullyrða að það sé að gerast núna, en það eru blikur á lofti og við verðum að taka mark á þeim. Við verðum að læra af þeirri reynslu.“ Verðbólguvæntingar stærri fyrirtækja landsins versna Verðbólga og verðbólguvæntingar til eins árs 5% 4% 3% 2% 1% 0% júní 2013 júní 2014 júní 2015 júní 2016 júní 2017 júní 2018 Verðbólguvæntingar heimila Verðbólguvæntingar stærstu fyrirtækja Verðbólguvæntingar markaðsaðila Verðbólga  „Blikur á lofti,“ segir Halldór Benjamín, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins „Við munum leita að íslenskum rót- grónum rekstrarfélögum til að fjár- festa í, félögum sem eru með sterka markaðsstöðu. Þá munum við einnig horfa til stjórnenda þessara félaga og meðfjárfesta,“ segir Hannes Frímann Hrólfsson, framkvæmdastjóri eigna- stýringar Kviku, í samtali við Morgun- blaðið um nýjan sjóð, Freyju, sem Kvika hefur hleypt af stokkunum. Hannes segir að fjárfestingartímabil sjóðsins sé þrjú ár, sem þýðir að næstu þrjú ár verði notuð til að skoða fjárfest- ingartækifæri. Sjóður eins og Freyja hefur ákveðnar takmarkanir að sögn Hannesar, en til að mynda má einstök fjárfesting ekki vera meira en 30% af stærð sjóðsins. Heildaráskriftarloforð nema 6,2 milljörðum króna og mun sjóðurinn í upphafi vera 3,5 milljarðar. Freyja er þriðji framtakssjóðurinn í rekstri Kviku og segir Hannes ánægjulegt að allir helstu fjárfestar í sjóðnum hafi jafnframt fjárfest í fyrri tveimur framtakssjóðunum, en hlut- hafar Freyju eru flestir af stærstu líf- eyrissjóðum landsins og aðrir fagfjár- festar. „Það er merki um tiltrú þeirra á þeim árangri sem við höfum náð sem elsti rekstraraðili framtakssjóða á Ís- landi.“ Á aðalmarkað eftir 6-12 mánuði Í gær tilkynnti Kvika einnig að fé- lagið stefndi á skráningu á aðallista Kauphallar Íslands á næstu 6-12 mán- uðum. Hlutabréf Kviku voru tekin til viðskipta á Nasdaq First North Ice- land hinn 16. mars 2018, en Kvika verður fyrsta félagið á Íslandi sem fer af First North yfir á aðalmarkað. tobj@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Skráning Framtakssjóðir geta flýtt fyrir skráningu félaga á markað. Vill rótgróin fé- lög í nýjan sjóð  Kvika stefnir á aðalmarkað Kaup- hallar Íslands

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.