Morgunblaðið - 03.07.2018, Page 25

Morgunblaðið - 03.07.2018, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2018 25 Smáauglýsingar 569 1100 Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Til sölu Lok á heita potta og hitaveitu- skeljar Stærðir í cm: 200x200, 210x210, 220x220, 235x235, 235x217, 217x174, 8 hyrnd lok. Lokin þola 1000 kg jafnarðarþunga af snjó. Vel ein- angruð og koma með 10 cm svuntu. Sterkustu lokin á markaðnum. Litir: Brúnt eða grátt. Opnarar til þess að auðvelda opnun á loki. www.heitirpottar.is Sími 777 2000 Haffi og 777 2001 Grétar Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. Ýmislegt Ýmislegt Eco-Si 1.650kr M-XXL Eco-Vi 1.650kr M-XXL Eco-Fi 1.650kr M-XXL Tahoo Maxi 1.650kr S-3XL Laugavegi 178, sími 551-3366. Opið mán. - fös. kl. 10–18, Lokað á laugardögum í sumar. Bátar      Flatahrauni 25 - Hafnarfirði Sími 564 0400 www.bilaraf.is Mikið úrval í bæði 12V og 24V. Bílaþjónusta GÆÐABÓN Stofnað 1986 • Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Húsviðhald FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994 Raðauglýsingar Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Aðalstræti 5, Vesturbyggð, fnr. 212-3626, þingl. eig. Blakkur ehf, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 10. júlí nk. kl. 13:00. Sýslumaðurinn á Vestfjörðum 27. júní 2018 Félagsstarf eldri borgara Árskógar Bónusbíllinn, fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.30. Handavinna með leiðb. kl. 12.30-16. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40- 12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. s: 535- 2700. Boðinn Bridge og Kanasta kl. 13. Garðabær Jónshús/félags- og íþróttastarf, sími: 512-1501 virka daga kl. 9-16. Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá 9.30 - 16. Hægt er að panta hádegismat með dagsfyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá 14-15.30. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10, Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 14.45. Gjábakki Kl. 9 Handavinna, kl. 9.10 Boccia-æfing, kl. 13.30 Alkort. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, dagblöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45, samverustund kl. 10.30, hádegismatur kl. 11.30, bridge í handavinnu- stofu kl. 13 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50, við hringborðið kl. 8.50, listasmiðjan opin fyrir alla kl. 9-16, brids kl. 13, enskunámskeið tal kl. 13, bókabíll kl. 14.30, bónusbíll kl. 14.55, síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir óháð aldri nánari í síma 411-2790. Seltjarnarnes Vatnsleikfimi Sundlaug kl. 7.15, kaffispjall í króknum kl. 10.30, pútt á golfvellinum kl. 13.30, bridge í Eiðismýri kl. 13.30, ganga frá Skólabraut kl. 15. Vitatorg Sumarferð til Friðheima þann 4. júlí frá 9.30-15. Skoðum gróðurhúsið og fáum Friðheima tómatsúpu í hádegisverð. Rúta með gott aðgengi fyrir fólk sem notast við hjólastóla og göngugrindur. Verið velkomin með. Ferðin er opin öllum óháð aldri og búsetu. Verð 5500 krónur. Skráning og greiðsla á Vitatorgi, sími 411-9450. atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á Elsku litli bróðir minn. Hvernig get ég verið að skrifa minningargrein um þig? Þú, þessi fallegi, bráðgáfaði bróðir minn átt ekki að vera dáinn, aðeins 26 ára! Frá því að ég sá þig fyrst elskaði ég þig alveg skilyrðislaust. Mér fannst ég alltaf þurfa að vernda þig fyrir öllu því slæma í heim- inum og ég gerði það eftir bestu getu. Auðvitað gerði ég stundum grín að þér en þú vissir alltaf að það væri ekki illa meint. Enda fannst okkur ekkert leiðinlegt að djóka svolítið í elsku mömmu. Ég plataði þig líka stundum, ok oft! T.d. lét ég þig fá eitt vont nammi, sagði auðvitað við þig að þetta væri besta nammið og fékk 2-3 í staðinn fyrir þetta „góða“. Þú varst voða viðkvæmt blóm, hræddur við vatn, hræddur við „Miklaorm“ sem þú vissir að hann væri ekki til. Mér þykir ósköp vænt um minninguna um göngu- túrana okkar pabba, bara við þrjú og nú eru þið báðir farnir frá mér. Ég gleymi því aldrei þegar þú bjóst í Laugargerði hjá ömmu, 7 ára, því þér leið miklu betur þar, í fámennara umhverfi. Mér fannst ég hafa brugðist þér, grét oft yfir því að geta ekki tekið sársaukann frá þér, enda litli bróðir minn. Við grínuðumst svo oft um að þú vær- ir uppáhalds barnið hennar mömmu því þú varst sá eini sem barst bara eitt nafn, við hin systk- inin berum öll tvö nöfn. Kannski vissum við öll án þess að vita það að þú yrðir ekki lengi hjá okkur. Þú nefndir það líka sjálfur. Þú vissir hluti sem enginn „venjuleg- ur“ maður veit. Ég mun aldrei Kristján Steinþórsson ✝ Kristján Stein-þórsson fædd- ist 28. janúar 1992. Hann lést 9. júní 2018. Útför Kristjáns fór fram 20. júní 2018. gleyma augnablik- inu þegar þú tókst lokið af kökunni og nafnið á frumburði mínum kom í ljós á 20 ára afmælisdegi þínum, Kristján Bergmann. Það sem þú varst stoltur og glaður! Þú ætlaðir ekki að trúa þessu, sömuleiðis var ég stolt. KB var auga- steinn þinn. Fyrst þið voruð orðnir tveir Kristjánarnir þá varst þú, KS og hann, KB. Nú er Steinþór Máni minn alltaf að tala um KS. Það er ekki svo langt síð- an við áttum spjall, bara í apríl þegar ég minnti þig á að KB væri nefndur í hausinn á þér. Þú svar- aðir: ég mun aldrei gleyma því. Pabbi hafði orð á því stuttu eftir nafnaveisluna að hann vissi að þú værir mér mjög mikilvægur en fékk það svo staðfest þarna hvað þú virkilega varst mér mikið, fal- legi, bráðgáfaði og góði bróðir minn. Ég tók oft smá pirring yfir því að þú hafir fengið allar gáf- urnar, ég þurfti að hafa svo mikið fyrir því að læra á meðan þú þurftir ekki að opna bók. Þú gast aldrei tjáð tilfinningar þínar, en þér fannst ekkert mál að segja ég elska þig við börnin mín, það þyk- ir mér virkilega vænt um. Ég veit að þú elskaðir okkur öll þó þú hefðir bara getað sagt það beint út við börnin mín. Ég á erfitt með að meðtaka það að þú sért í alvöru farinn, að ég geti aldrei séð þig, talað við þig eða knúsað þig aftur. Það sem huggar mig er að þú hvorki þjáð- ist eða varst hræddur, þú varst nýbúinn að segja við mig að þú vildir ekki og værir hræddur við að deyja. Þar sem þú ert núna er enginn sársauki. Get ekki beðið eftir að hitta þig þegar minn tími kemur. Við elskum þig svo mikið, elsku besti KS okkar. Þín stóra systir, Tinna og börn. Elsku afi minn. Mikið ofsalega held ég að Lappi hafi orðið glaður að sjá þig! Síðustu daga hafa minningarnar streymt, og meira en venjulega því í raun- inni er svo margt í lífinu sem minnir mig stanslaust á ykkur ömmu og tímann í sveitinni. Við Fjóla nutum þeirra forréttinda að fá að alast upp að stórum hluta hjá ykkur ömmu á Skúfsstöðum og fyrir það verð ég ávallt þakk- lát. Ég man svo vel þegar ég, þú, amma og Fjóla settum niður skjólbeltið hjá heimreiðinni að Melum, líklega tveimur árum áð- ur en þið fluttuð þangað, því mér fannst þetta vera það leiðinleg- asta sem ég hafði nokkurn tím- ann gert og sá engan tilgang með þessum trjám, þetta myndi hvort sem er taka heila eilífð að vaxa, það var rok og rigning og ég var að detta í gelgjuna. Núna eru trén löngu orðin stór, melurinn orðinn að paradís og ég fyrir löngu farin að bjóðast til að planta sjálf af einlægum áhuga. Ég er þakklát fyrir góða sam- bandið sem við áttum, bæði sem barn og fullorðin. Ég er þakklát Sigurður Þorsteinsson ✝ Sigurður Ant-on Hjalti Þor- steinsson fæddist 17. september 1932. Hann lést 9. júní 2018. Útför Sigurðar fór fram 21. júní 2018. fyrir allan tímann sem við áttum sam- an, og sérstaklega hvað við áttum margar góðar stundir á síðastliðn- um árum, þar sem við gátum rökrætt allt á milli himins og jarðar og hvað þú varst óþreytandi að svara öllum mínum spurningum og taka þátt í alls konar vangaveltum. Laugardagsmorgnar við eldhús- borðið á Melum gátu stundum teygst vel fram að hádegi ef vel lá á okkur. Mér þótti gaman að heyra þig segja sögur frá þínum yngri árum, þegar þú varst á ver- tíð í Vestmannaeyjum, árunum á Vatni og Siglufirði og við deildum áhuga á örnefnum og náttúrunni. Og ást þín og virðing fyrir nátt- úrunni mótaði mig, og að eiga þig sem afa mótaði mig. Ég veit að þú verður alltaf hjá okkur á Melum og ég sé þig og finn þig alls stað- ar. Ég sé þig í rjúpunni, mar- íuerlunni hjá bílskúrnum, óðins- hananum á tjörninni og í hverju einasta lerkitré. Og við pössum upp á þetta allt fyrir þig og hvert annað, því þó að aldurinn hafi verið ágætis afrek hjá þér þá er söknuðurinn sár, og þá er gott að eiga Melaspóana að. Ég skála fyrir þér í Stellu elsku afi, sjáumst næst og koss á báðar kinnar. Þín Margrét Helga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.