Morgunblaðið - 03.07.2018, Side 26

Morgunblaðið - 03.07.2018, Side 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2018 VELDU ÚR MEÐ SÁL www.gilbert.is Eiríkur Valdimar Friðriksson matreiðslumeistari á 60 ára af-mæli í dag. Hann er enn að og sér um matinn á Kænunni íHafnarfirði. „Þetta er það eina sem ég kann og núna þegar aldurinn færist yfir er ég kominn í rólegra starf og vaxinn upp úr því að reka staði.“ Meðal veitingastaða sem Eiríkur hefur átt í gegnum tíðina eru Eikaborgarar og Salatbar Eika. Kænan er hádegisverðarstaður og veisluþjónusta. „Við erum mest- megnis með heimilismat og góðan fisk og það er brjálað að gera hjá okkur í hádeginu og röð út á götu.“ Eiríkur er gamall rallkappi og fagnaði Íslandsmeistaratitlinum árið 1984. Hann fylgist með formúlunni og heimsmeistarakeppninni í ral- lakstri. „Svo er það fótboltinn, er á kafi að fylgjast með heimsmeist- arakeppninni. Það kæmi ekki á óvart að Frakkarnir yrðu heimsmeist- arar, þeir spila skemmtilega, en annars getur allt gerst. Ég er voða hlynntur Englendingum, maður fylgist með þeim í enska boltanum, en veit ekki hvað þeir fara langt.“ Eiginkona Eiríks er Judy Friðriksson. Börn hans eru Ragnheiður 32 ára og Friðrik 24 ára og barnabörnin eru tvö. Í tilefni dagsins ætlar Eiríkur að halda stórt partí í Kænunni á laug- ardaginn og býður gestum og gangandi upp á hamborgara og kók. Eiki Eiríkur býður til veislu í Kænunni á laugardaginn. Vaxinn upp úr því að reka veitingastaði Eiríkur Friðriksson er sextugur í dag L ýður Ægisson fæddist á Siglufirði 3.7. 1948 og ólst þar upp. Mikið var um tónlist á heimilinu og þegar faðir þeirra fékk harmonikku í fertugsafmælis- gjöf varð ekki aftur snúið. Meðan faðirinn var á sjó stálust guttarnir í nikkuna og náðu fljótt tökum á henni. Harmonikkan og dillandi sjó- mannavalsar hafa síðan verið föru- nautar þeirra. Gylfi, bróðir Lýðs, er aðeins einu og hálfu ári eldri en hef- ur samið fjölda laga sem síðan urðu hluti af klassískum hópsönglögum þjóðarinnar. Lýður sinnti hins vegar listagyðjunni lítið fyrstu árin sín enda átti sjómennskan hug hans allan. Lýður var í Barnaskólanum á Siglufirði, fór í Stýrimannaskólann í Vestmannaeyjum og lauk fiski- mannaprófi þaðan vorið 1970. Lýður fór 14 ára til sjós á síðutog- arann Hafliða frá Siglufirði. Hann kom fyrst til Vestmannaeyja 17 ára, og hafði þá ráðið sig háseta á Jón Stefánsson VE. Eftir stýrimanna- prófið stundaði Lýður sjómennsku næstu 27 árin og var þá lengst af skipstjóri í Vestmannaeyjum, en þar bjó hann í liðlega 20 ár og var alla tíð aflasæll og farsæll skipstjóri. Hann tók við skipstjórn á Björgvini VE 72, af tengdaföður sínum. Þegar eld- gosið hófst í Eyjum tóku þeir Lýður og félagar þátt í björgunaraðgerðum en útgerðin og fjölskyldan flutti til Hafnar í Hornafirði og var fiskað þaðan. Hann flutti síðan aftur til Eyja, var stýrimaður, hjá Guðfinni á Árna úr Görðum og tókst mikill vin- átta þeirra í milli. Síðan var hann skipstjóri á Ófeigi III. sem var þá gerður út af Vitta Helga og Sigga Ella. Lýður Ægisson skipstjóri – 70 ára Ljósmynd/Kristjana Hlín Feðgarnir Lýður með kátum sonum sínum. Frá vinstri: Sigurjón, Þorsteinn, afmælisbarnið, Ófeigur og Finnbogi. Tónskáld og skipstjóri og Eyjapeyi frá Siglufirði Afmælisbarnið Lýður tók sjóinn fram yfir tónlistarástundun, en hef- ur nú samið um 300 lög og texta og gefið út sex geisladiska. Morgunblaðið/Ófeigur Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl. is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Á „Íslendinga“ síðum Morgunblaðsins er meðal annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða öðrum tímamótum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.